Morgunblaðið - 12.03.1993, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 12.03.1993, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993 39 I I I Ráðstefna um heil- brigðismál NÚ UM nokkurt skeið hefur hér á landi verið talsverð umræða um heilbrigðismál í kjölfar breyt- inga á skipan þeirra mála, sem einkum má rekja til efnahagsað- gerða ríkisstjórnarinnar. Fjöl- mörg atriði innan þessa viða- mikla málaflokks hafa verið efst á baugi í þeirri umræðu. Má þar nefna niðurskurð í starfsemi sjúkrahúsa, tilvísunarkerfi, lyf- sölumál o.fl. Af þessu tilefni hafa tvö áhugafé- lög á sviði heilbrigðismála, Félag um heilbrigðislöggjöf og Félag um heilsuhagfræði, ákveðið að efna til sameiginlegs fundar laugardaginn 13. mars nk. í Borgartúni 6 (gömlu Rúgbrauðsgerðinni) klukkan 9.30. Efni fundarins er framtiðarstefnan í heilbrigðismálum — siðfræðileg og hagfræðileg álitamál. Málshefjendur verða Sighvatur Björgvinsson, heilbrigðis- og trygg- ingamálaráðherra, og Örn Bjarna- son læknir. Að framsöguerindunum loknum verða almennar umræður. Einnig munu málshefjendur svara fyrirspurnum. Ráðgert er að fund- inum ljúki um klukkan 12.30. Fund- urinn er opinn öllu áhugafólki um heilbrigðismál. (Fréttatilkynning) nokkrum mánuðum. Hann barðist við sjúkdóm sinn af hugrekki og var heima eins lengi og þrekið leyfði enda í góðum höndum dætra sinna og sambýliskonu. Fjölskylda mín minnist ánægju- stundanna og þétta handtaksins. Við sendum Kristínu, dætrum, föður, systur og öðrum ástvinum sem eiga um sárt að binda, innilegar samúðar- kveðjur. Guðrún Kristinsdóttir og fjölskylda. Það var haustið 1986 að sam- skipti okkar félaganna og Bjarts hófust, þegar hann réðst til Fjarðar- móta, og hefur hann óslitið síðan verið múrarameistari og steypuverk- stjóri hjá fyrirtækinu. Áður höfðum við margir um nokk- ur ár þekkt og séð til verka Bjarts, enda allir unnið meira og minna á sömu vinnusvæðum. Bjartur var góður samstarfsmaður, en umfram allt mjög góður félagi. Bjartur var alltaf með og tók þátt í leik og starfí af heilum hug. Minnumst við margra góðra stunda, m.a. ferðar okkar til Amsterdam haustið ’89 þar, sem og alls staðar annars staðar, var Bjart- ur hrókur alls fagnaðar. Síðasta árið var Bjarti erfitt vegna veikinda en hann bar þau af því umburðarlyndi og léttleika er ein- kenndu öll hans störf. Bjartur heim- sótti okkur í veikindum sínum á vinnustaðina reglulega, eins og kraftar leyfðu. Með þessum orðum viljum við fé- lagarnir minnast góðs drengs og félaga um leið og við vottum Krist- ínu, sambýliskonu hans, og dætrum samúð okkar. Samstarfsmenn, Fjarðarmótum hf. ■ NICE Stærð: 175x100 x 80 Útdreginn: 130 x 195 Verö: 57.500 kr. Minning Guðbjartur Benedikts■ son múrarameistari Fæddur 8. ágúst 1938 Dáinn 7. mars 1993 Við félagarnir í Lionsklúbb Hafn- arfjarðar höfum misst traustan og góðan félaga, við fráfall Guðbjarts Benediktssonar. Guðbjartur gekk til liðs við Lions- klúbb Hafnarfjarðar í febrúar 1990, en hann hafði áður verið félagi í Lionsklúbbnum á Húsavík. Guð- bjartur varð strax mjög virkur félagi og naut trausts og virðingar okkar félaganna. Þó að hann næði ekki að starfa lengi meðal okkar, má nefna, að þetta starfsárið var Guðbjartur í forystu fyrir þeirri nefnd sem sér um annað aðal fjáröflunarverkefni klúbbsins. Til marks um áhuga hans á málefninu, þá stjórnaði hann þessu verkefni til að byrja með í gegnum síma, heiman að frá sér. eftir að ljóst var að hann var orðinn sjúkur. Er við kveðjum Guðbjart er okkur efst í huga þakklæti fyrir að hafa notið þess að ganga með honum götuna fram um veg. Við sendum fjölskyldu hans og ættingjum öllum hugheilar samúðarkveðjur. Fyrir hönd Lionsklúbbs Ilafnarfjarðar, Ellert Eggertson formaður. fram á síðustu stundu, meðan heils- an leyfði. Systkini Bjarts eru Ragn- heiður, gift Högna Guðjónssyni, bú- sett í Keflavík, og Siguijón sem fórst með síldveiðibátnum Eddu frá Hafn- arfirði aðeins 17 ára gamall. Bjartur giftist ungur Jónínu Arnd- al og eignuðust þau þijár dætur, Guðrúnu, Lilju og Vigdísi og barna- börnin eru sex. Bjartur og Jónína slitu samvistir og síðustu árin bjó hann með Kristínu Árnadóttur í Brekkubyggð 5, Garðabæ. Bjartur veiktist af illkynja sjúk- dómi sem leiddi hann til dauða á Mig langar að minnast míns kæra frænda og vinar Guðbjarts Bene- diktssonar og þakka honum fyrir þá góðvild og tryggð sem hann sýndi mér og foreldrum mínum alla tíð. Hjá þeim dvaldi hann á sumrin sem lítill drengur. Upp frá því heimsótti hann gömlu hjónin svo oft sem hann gat, bæði sem unglingur og síðar með alla fjölskyldu sína. Hann var sérstakt prúðmenni og vildi öltum gera gott. Hann var skemmtilegur heim að sækja og minnumst við bæði ferðalaga og heimsókna á hans heimili. Hann var laginn við hvað eina sem hann tók sér fyrir hendur og nutu margir handlagni hans og hjálpsemi. Bjartur, eins og hann var nefndur af kunnugum, var sonur Guðrúnar Eyjólfsdóttur sem er látin og Bene- dikts Viggós Jónssonar, Vesturbraut 7, Hafnarfirði, og þar ólst hann upp. Benedikt Viggó býr nú á Sól- vangi í Hafnarfirði. Fullorðnum for- eldrum sínum sýndi hann mikla tryggð og passaði að vitja þeirra reglulega eða láta í sér heyra alveg LYSTADÚN-SNÆLANO hf Skútuvogi 11 • 124 Reykjavík • Sími 814655 / 685588 Sendum í póstkröfu um land allt Fallegu svefnsófarnir og svefnstól- arnir frá Lystadún - Snælandi eru góðir daga sem nætur. Þeir eru • sannkölluð híbýlaprýði og þægi- legir að sofa á. Hönnunin er glæsi- leg og fjölbreytt, form og litir marg- víslegir. Stærðirnar eru mismunandi svo auðvelt er að fá sófa eða stól sem hentar vel í allar stærðir herbergja. Svefnsófi frá Lystadún - Snælandi er tilvalinn í gestaher- bérgið eða sjónvarpskrókinn og unglingarnir kunna vel að meta piNA þægindin að því að hafa bæði rúm og sófa til umráða. Og til að lífga upp á tilveruna enn frekar er til mikið úrval af púðum í fallegum litum. Svefnsófi frá Lystadún - Snælandi tryggir þér góðan dag eftir góða nótt. Stærð: 157 x 70 x 70 Útdreglnn: 135 x 190 Verö: 34.000 kr. ■JOSEPHINE Stærð: 130 x 80 x 86 Útdreginn: 130x 190 Verð: 32.500 kr. ■ REBECCA-svef nstóll Stærð: 71x90x73 Útdreginn: 65 x 200 Verð: 23.000 kr. ■ REBECCA Stærð: 136x90x73 Útdreginn: 130 x 200 Verð: 37.500 kr. ■ PAULINE Stærð: 165x80x86 Útdreginn: 120x 195 Verð: 51.500 kr. ■SESAM Stærö: 145x85x70 Útdreglnn: 140 x 190 Verð: 56.000 kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.