Morgunblaðið - 12.03.1993, Page 55
MORGUNBLAÐIÐ iÞRorrm FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993
5
HANDKNATTLEIKUR / HM I SVIÞJOÐ
Helena Stefánsdóttir
Gunnar Belntelnsson á auðan sjó og eftirleikurinn auðveldur - MARK.
Mótlætið þjapp-
aði okkur saman
lslenska liðið náði mjög góðri sóknamýtingu
gegn Ungveijum, 64,196. í fyrri hálfleik var
nýtingin 68,7%, en 60,8% eftir hlé. 11 sókn-
um af 16 í fyrri hálfleik lauk með marki,
en 14 af 23 í seinni hálfleik.
íslendingar gerðu 10 mörk með langskot-
um. Sigurður Sveinsson var með 100% nýt-
ingu f vftaköstunum, gerði fimm mörk úr
vftaskotum, en Júlfus Jónasson skaut fram-
kjá úr sinni tilraun. Þijú mörk voru gerð
af lfnu, þijú eftir gegnumbrot, þijú úr
hraðaupphlaupum og eitt úr hægra homi.
• Sigurður Sveinsson gerði 10/5 mörk úr
12 skottilraunum, átti tvær línusendingar,
sem gáfu mark, fékk eitt vfti og tapaði
boltanum tvisvar.
■ Geir Sveinsson var með þijú mörk úr
þremur tilraunum og fékk eitt víti. Hann
var utan vallar f fjórar mínútur.
• Gunnar Gunnarsson gerði tvö mörk í
sex tilraunum, átti eina línusendingu, sem
gaf mark, og þijár stoðsendingar að auki,
en fékk lfka tvö víti. Hann „stal“ boltanum
einu sinni.
• Júlfus Jónasson var með 50% skotnýt-
ingu. Hann fékk eitt vfti, en tapaði boltan-
um þrisvar. Hann fékk tisvar „kælingu í
tvær mfnútur og sfðan rauða spjaldið — var
rekinn af velli, þegar 16 mín. vom eftir.
• Bjarki Sigurðsson gerði þijú mörk úr
fimm tilraunum.
• Sigurður Bjamason gerði þijú mörk úr
fimm tilraunum. Hann var með eina stoð-
sendingu.
• Gunnar Beinteinsson var með 50% skot-
nýtingu - skoraði eitt mark úr tveimur
skottilraunum. Hann fiskaði eitt víti og tap-
aði boltanum einu sinni. Hann „stal“ boltan-
um einu sinni.
• Einar G. Sigurðsson var með 100% skot-
nýtingu.
• Guðmundur Hrafnkelsson varði 18 skot;
14 langskot og þaraf þijú til mótheija, þijú
gegnumbrot (tvö til mótheija) og eitt af línu.
Eg er ánægður með hversu mikinn
styrk liðið sýndi með því að rífa
sig út úr því mótlæti sem við lentum
í. Fyrst misstum við Héðin útaf og
síðan Júlíus og það var mjög erfitt,“
sagði Geir Sveinsson, fyrirliði, eftir
sigurinn á Ungveijum.
Dómaramir voru ekki með á nótun-
um og brottrekstramir sem við feng-
um á okkur vom flestir, ef ekki allir,
út í hött. Við vomm ákveðnir í að
gefast ekki upp og láta mótlætið
ekki á okkur fá. Þess í stað þjappaði
það okkur enn frekar saman. Við
þurftum að endurskipuleggja vömina
eftir þessi ósköp og það tók dálítinn
tíma. Það kom samt aldrei neitt ann-
að til greina en að standa saman sem
einn maður og sigra.
Þetta gekk allt mjög vel í dag
nema þessi smá kafli þegar dómar-
amir vom með sýninguna og ég vil
skýra það með því að svona atvik
hefur áhrif á liðið. Við missum tvo
sterkustu vamarmennina útaf og
auðvitað kemur smá rót á liðið við
það. Þetta sýnir að brekldin er góð
og hópurinn er frábær. Á þessu ætl-
um við að fljóta það sem eftir er
móts," sagði Geir hinn ánægðasti.
Sigurður jafnaði markametið
Sigurður Sveinsson skoraði tíu mörk gegn Ungverjum í gærkvöldi og
er hann annar íslendingurinn til að skora tíu mörk í leik ( heims-
meistarakeppninni. Kristján Arason skoraði 10 mörk í tapleik, 21:28,
gegn S-Kóreumönnum í HM í Sviss 1986.
Alfreð Gíslason hefur náð því að skora 9 mörk í leik. Það gerði hann í
leik gegn Póllandi, 25:27, í HM 1990 í Tékkóslóvakíu.
Axel Axelsson skoraði 8 mörk í leik gegn Tékkum, 15:25, í HM-keppninni
í A-Þýskalandi 1974.
Réðum ekki við
kraft íslendinga
- sagði Laszlo Kovács, þjálfari Ungverja „Markvarslan skipti sköpum"
Það sem réði úrslitum var mark-
varslan. íslenski markvörður-
inn [Guðmundur Hrafnkelsson]
varði mun betur en
Svemn okkar markvörður
Agnarsson og það skipti sköp-
skrifarfrá um þegar uppi var
Gautaborg staðið," sagði Laszlo
Kovács, þjálfari Ungveija. „íslend-
ingar sýndu mikinn baráttuvilja og
þótt við næðum að jafna og komast
yfír undir lokin réðum við ekki við
kraftinn í íslendingunum. Við feng-
um mjög góðan möguleika á að
snúa leiknum okkar í hag þegar
Júlíus Jónasson var rekinn af
leikvelli í þriðja skipti og útilokaður
frá leiknum. Leikmenn íslenska
liðsins virtust afar slegnir yfír brott-
rekstrinum; eða allir nema mark-
vörðurinn, sem varði afar vel á
þessum kafla og frækileg fram-
ganga hans réð úrslitum."
„NéAum ekkl að hefna“
„Við erum vonsviknir, því við
ætluðum okkur að hefna fyrir ófar-
irnar á Ólympíuleikunum í Barce-
lona. Því miður tókst það ekki og
við verðum að bíða enn um stund
eftir hefnd," sagði István Csoknay-
ai, leikmaður Ungveija. „Þetta var
jafn og spennandi leikur, ef undan
eru skildar síðustu tíu mínútumar.
í fyrri hálfleik reyndum við að
sleppa íslendingum ekki langt frá
okkur og tókst það þokkalega. Við
byijuðum síðan illa í síðari hálfleik
og urðum að taka á öllu sem við
áttum - til að komast aftur inn 5
leikinn. Það dugði þó ekki; við
sprungum og undir lokin náðu ís-
lendingar aftur að rétta úr kútn-
um.“
Héðinn ur axlariið
Héðinn Gilsson meiddist í leiknum gegn Unveijum í gær þegar
aðeins sjö mínútur voru búnar af leiknum. „Eg var að blokka
skot og handleggurinn hrökk úr axlarlið en strax í hann aftur. Þetta
er vonandi bara tognun, en ég leik örugglega ekki með gegn Banda-
ríkjamönnum á Iaugardaginn,“ sagði Héðinn.
Héðinn kom reyndar einu sinni inná síðar í leiknum en fann það
mikið til að hann varð að fara útaf fljótlega aftur.
Hvað sögðu strákarnir?
Hikstuðum
á tímabili
etta var mjög ljúft, sérstaklega
vegna ruglsins í dómurunum.
Ég veit satt að segja ekki hvað þeir
voru að hugsa á tímabili blessaðir.
Ég trúi því varla að þeir hafí verið
að huga til Frakklandsmótsins um
daginn, en þá lentum við í útistöðum
við þá. Það gengur auðvitað ekki að
toppdómarar séu að erfa það við lið
þó uppúr hafí soðið í gamla daga,“
sagði Gunnar Gunnarsson leikstjóm-
andi sem stjómaði leijc íslenska liðs-
ins af mikilli festu og útsjónasemi.
„Þeir sögðu að Júlli hefði verið að
kýla einn Ungveijann þegar þeir gáfu
honum rautt. Það er rosalega líklegt
að maður sem hefur tvívegis farið
útaf sé að gera slíkt uppúr þurra!
Annars var þetta stórkostleg barátta
og við sýndum mikinn styrk að láta
þetta ekki fara með okkur. Við lent-
um í þessu sama í Frakklandi á dög-
unum og létum það fara með okkur.
Nú létum við bekkinn um að röfla
og einbeittum okkur að því að vinna.
Það kom rosa hiksti í þetta þjá okkur
þegar við voram alitaf einum færri í
síðari hálfleik og leikurinn hjá okkur
var hálf fálmkenndur. Það lagaðist
þegar Siggi fór niður í homið og
Bjarki í hans stöðu, þá opnaðist bet-
ur. Siggi Bjama kom mjög vel inn í
leikinn og svo auðvitað Guðmundur,
sem varði eins og vitleysingur undir
lokin. Annars hjálpuðust allir að til
að ná þessum sigri," sagði Gunnar.
Erfrtt aö koma inn
„Nei, ég er ekki óhress með minn
leik undir lokin," sagði Bjarki Sig-
urðsson brosandi eftir frábæran loka-
kafla. „Það var mjög erfitt að koma
inní þennan leik. Við voram búnir að
vera yfír mest allan tímann og eram
tveimur mörkum yfír þegar ég kem
inná og það tók svolítinn tíma að
komast inní leikinn. Sigurður var tek-
inn úr umferð og boltinn kom varla
í homið en þegar Siggi fer niður 1
homið opnaðist þetta meira. Þetta
var erfitt en maður kemur ( manns
stað og það sýndi sig f kvöld. Liðið
er andlega sterkt og það kom best í
Við munum
nú berjast
einsogljón
Þungu fargi er af okkur létt.
Við komum til Svíþjóðar til
að leggja Ungveija að velli og
BHHHi skipa okkur á
Sveinn bekk með sex
Agnarsson bestu handknatt-
skritarfrá leiksþjóðum
Gautaborg heims,“ sagði
Einar Þorvaðrason, aðstoðar-
landsliðsþjálfari.
„Við vorum hræddir við Ung-
veija fyrir leikinn og útlitið var
ekki gott eftir að Héðinn meidd-
ist og JúKus var útilokaður, eftir
að hafa fengið sína þriðju brott-
vísun. Ungu mennimir sýndu þá
góðan styrk og stóðu þeir svo
sannarlega fyrir sínu þegar á
reyndi. Nú erum við ákveðnir að
beijast eins og ljón í öllum leikj-
unum sem við eigum eftir - og
að sjálfsögðu stefnum við að því
að vinna þá aila,“ sagði Einar.
ljós þegar við rifum okkur upp úr
öldudalnum sem kom um tíma,“ sagði
Bjarki.
Frábært
„Þetta var frábært. Ég náði mér
vel á strik en það er dálítið erfítt að
lýsa því hvað gerist þegar maður fer
að veija svona, en það er eitthvað
sem gerist innra með manni. Maður
nær fullkominni einbeitingu," sagði
Guðmundur Hrafnkelsson sem varði
meistaralega. „Það er auðvitað
ákveðin markvarsla sem verður að
koma í lokin. Það er mjög mikilvægt
að maður taki sína bolta og sem bet-
ur fer tókst það í kvöld.
Mér gekk á tíma frekar illa með
skotin frá þeim, sérstaklega Sótonyí
[nr. 4] og Eles [nr. 6þþví þeir fóra
að skjóta á hausinn á mér og ég fór
að hugsa of mikið um það. En síðan
náði ég nokkram boltum frá þeim og
þá var þetta komið. Það var líka
mjög mikilvægt að ná að stöðva Gy-
urka, en hann er sterkur leikmaður,“
sagði Guðmundur.
■ GUNNAR Gunnarsson og Sig-
urður Sveinsson, sem era herberg-
isfélagar, skoraðu Samtals 12 mörk
gegn Ungveijum. Þeir sögðu að
þeir hefðu skuldað þetta, eftir léleg-
an leik gegn Svíum.
■ BENGT Johansson, þjálfari
Svía, sagði eftir leikinn gegn
Bandaríkjunum, að það væri erfítt
að skilgreina þann leik sem Banda-
ríkjamenn væru að leika - það
væri blanda af handknattleik og
körfuknattleik. „Ég hef aldrei verið
eins afslappaður, eins og þegar leik-
urinn stóð yfir.“
■ TÉKKJNN Mares, sem er
þjálfari Bandaríkjamanna, sagði
að sínir leikmenn væra byijendur -
hefðu litla reynslu af stórmótum.
■ SIGURÐUR Sveinsson var út-
nefndur besti leikmaður íslands og
fékk hann í verðlaun flugmiða frá
SAS - flugleiðina Keflavík, Kaup-
mannahöfn, Keflavík.
■ STAFFAN „Faxi“ Olsson hef-
ur ekki náð sér á strik í HM. í leikn-
um í gærkvöldi gegn Bandaríkja-
mönnum náði hann ekki að skora;
þegar hann stóð á vítalínu fyrir
framan mannlaust mark Banda-
ríkjamanna.
■ EINAR GUNNAR Signrðsson
er fyrsti innfæddi Selfyssingurinn,
sem hefur leikið og skorað mark í
HM.
I SIGURÐUR Bjamason er
fýrsti sköllótti íslendingurinn, sem
hefur leikið í HM. Leikmenn ís-
lenska landsliðsins hafa oft tekið
upp á ýmsu, þegar þeir hafa leikið
í stórmótum á erlendri grundu. í
B-keppninni 1977 í Austurríki létu
margir leikmenn setja krallur í hár
sitt. Sigurður og Patrekur, eins
og þeir era nú, hefðu ekki verið lið
tækir í landsliðshópinn 1977.