Morgunblaðið - 12.03.1993, Qupperneq 56

Morgunblaðið - 12.03.1993, Qupperneq 56
Gæfan fylgi þér í umferðinni SJOVAljoALMENNAR MORGUNBLAÐIÐ, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVÍK SÍMl 691100, SlMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FÖSTUDAGUR 12. MARZ 1993 VERÐ í LAUSASÖLU 110 KR. Flutningabílstjóri gripinn við að urða sorp að næturlagi Smyglaði sorpi á Hvols- völl og flutti hey til baka STARFSMENN áhaldahúss Hvolsvallar stóðu flutningabíl- stjóra úr Reykjavík að því að urða sorp af höfuðborgarsvæð- inu á sorphaugum Hvolsvallar í fyrrinótt. I ljós kom að bíl- stjórinn hefur stundað þá iðju lengi að safna byggingasorpi á höfuðborgarsvæðinu, flytja það í gámum austur á Hvols- völl og losa þar en í bakaleiðinni flutti hann hey frá gömlu graskögglaverksmiðjunni á Stórólfsvöllum til borgarinnar. Bílstjórinn hét því að láta af þessari iðju. Sigurgeir Bárðarson verkstjóri áhaldahússins segir að starfsmenn hafí orðið varir við í fyrrasumar, að einhveijir óviðkomandi voru famir að losa sorp á haugum þeirra í tölu- verðum mæli. Um er að ræða gamal- dags opna hauga suður af Hvols- velli, rétt við Rangá, þar sem grófu sorpi er fargað með því að brenna það. „Við gripum loks til þess ráðs að vakta haugana til að koma í veg fyrir þetta enda eigum við nóg með okkar sorp,“ segir Sigurgeir. „Við gripum síðan bflstjóra þennan með fullan gám af sorpi frá höfuðborgar- svæðinu. En það vantaði ekki að hann gekk vel frá sorpinu. Hann gaf okkur þá skýringu að hann ynni við að flytja hey til Reykjavíkur frá Hvolsvelli og gerði þetta svona í hjáverkum. Hann lofaði því að þetta kæmi ekki fyrir aftur og ég reikna Vilja ekki prenta fyrir Islendinga HOLLENSK prentsmiðja sem islensk útgáfufyrirtæki hafa skipt við hefur ákveðið að hætta viðskiptum við ís- lensk fyrirtæki vegna vandamála sem upp hafl komið í skiptum við nokkra viðskiptamenn. Hollenska prentsmiðjan OPDA, Offset planodrukkerij Antwerpen, hefur svarað fyrir- spumum íslenskra fyrirtækja á þann hátt að vegna vandamála með ýmsa viðskiptavini á ís- landi hafí fyrirtækið ákveðið að hætta í bili öllum samningum um verkefni á íslandi. Fyrir- tækið muni draga sig út af ís- lenska markaðnúm og hætta að bjóða í prentun fyrir íslenska viðskiptavini. Leit gerð aðmönnum með byssu LÖGREGLAN í Reykjavík, ásamt mönnum úr víkingasveit lögreglunnar, leitaði í nótt að tveimur mönnum sem taldir voru vopnaðir haglabyssu með söguðu hlaupi. Skömmu eftir miðnættið hafði ekki tekist að hafa upp á mönnunum. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni munu menn þessir hafa ógnað þriðja manni með byss- unni í Grafarvoginum í gærkvöldi. Hann tilkynnti síðan atburðinn til lögreglunnar og leit hófst í kjölfar- rið. með að ekki verði frekari eftirmæli af þessu máli.“ Tímanna tákn Sigurgeir segir að það sé bagalegt ef fólk reyni að koma sér undan skilagjöldum á sorpi með því að urða það í öðru sveitarfélagi og hann tel- ur að fleiri hafí verið að verki en þessi bílstjóri. ísólfur Gylfi Pálmason sveitar- stjóri á Hvolsvelli segir að hann sé mjög óánægður með að fólk notfæri sér sorphauga byggðarlagsins í óleyfi. „En þetta er kannski tímanna tákn að fólk reynir hvað það getur til að koma sér undan þeim gjöldum sem fylgja eyðingu sorps og mér skilst að þau gjöld séu nokkuð há á höfuðborgarsvæðinu," segir Isólfur. Morgunblaðið/Þorkell Staldrað við K. Jónsson gjaldþrota NIÐURSUÐUYERKSMIÐJA K. Jónssonar og co. á Akureyri hefur verið úrskurðuð gjald- þrota. Fyrirtækið hefur átt í miklum rekstrarerfiðleikum undanfarið og tapið á síðasta ári nam 100 milljónum króna. Landsbanki neitaði fyrirtækinu nýlega um afurðalán vegna grá- sleppuhrognakaupa og það átti yfír höfði sér kröfur vegna meintra van- goldinni tolla. Því taldi stjóm fyrir- tækisins ekki lengur möguleika á að halda rekstrinum gangandi. Um 70 manns unnu hjá K. Jóns- syni er það var lýst gjaldþrota en starfsfólki hefur stöðugt fækkað á undanfömum ámm eða síðan Rúss- landsmarkaður lokaðist fyrir afurðir verksmiðjunnar fyrir þremur ámm. Sjá bls. 32: Um 70 starfsmenn... Morgunblaðið/Ólafur Auðunsson íslensk gleði! GLEÐIN leyndi sér ekki hjá íslenska liðinu eftir frækilegan sigur á Ungveijum 25:21 í Gautaborg í gærkvöldi. Sigurður Sveinsson, nr. 13, fagnar með Stefáni Carlssyni, lækni liðsins, og Jakobi Gunnarssyni sjúkraþjálfara. í baksýn eru Héðinn Gilsson og Einar Gunnar Sigurðsson. Lengst til hægri er Ungverjinn Gyurka að þakka íslendingunum fyrir leikinn. Island áfram í milliriðil ISLENDINGAR unnu Ung- veiya 25:21 í C-riðli heims- meistarakeppninnar í hand- knattleik í Gautaborg í gær- kvöldi og tryggðu sér þar með sæti í milliriðli keppn- innar. íslenska liðið hafði forystu í leiknum allt þar til Ungveijar náðu að komast yfir 19:18 þegar innan við stundarfjórðungur var eftir. En á lokakaflanum gerði íslenska liðið 7 mörk á móti tveimur frá Ungveij- um. „Þetta sýnir að breiddin er góð og hópurinn er frábær. Á þessu ætlum við að fljóta það sem eftir er mótsins," sagði Geir Sveinsson, fyrirliði íslenska liðsins. Sjá bls. 52-55 Krafan um afslátt á söluverði hlutabréfa SÍS í Samskipum Fjárfestar fylgjast með aðgerðum Draupnissjóðs TVEIR stórir fjárfestar sem keyptu hlutabréf í Samskipum af Sambandinu á sl. ári, Lífeyrissjóður verslunarmanna og VÍS, hyggjast fylgjast vel með að- gerðum Draupnissjóðsins, en hann hef- ur farið fram á afslátt af verði bréf- anna hjá Sambandinu. Draupnissjóður- inn og Landsbréf telja að skort hafi á upplýsingagjöf Samskipa um rekstrar- horfur sl. árs þegar a.m.k. 400 milljóna kr. tap varð hjá félaginu í stað áætlaðs 125 milljóna kr. hagnaðar. Þorgeir Eyjólfsson, forstjóri Lífeyrissjóðs versl- unarmanna, sem keypti hlutabréf í Samskipum fyrir um 16 millljónir, sagði að sjóðurinn fylgdist vel með aðgerðum Draupnissjóðs í þessum efnum. „Við lítum þannig á að verði um einhvers konar leiðréttingu að ræða gagnvart þeim þá hljóti það að ganga til annarra aðila sem keyptu bréf á sama tíma á sömu forsendum." VÍS keypti hlutabréf í Samskipum fyrir 25 milljónir. „Við munum fylgjast með hvaða fram- gang þetta mál hefur, en höfum ekki verið í sam- starfi við neina aðra kaupendur þessara hluta- bréfa. Þessi þróun mála hjá Samskipum hefur auðvitað valdið okkur jafnmiklum vonbrigðum og komið okkur jafnmikið á óvart og öllum öðrum,“ sagði Axel Gíslason, forstjóri VIS. Sölulýsingin Samkvæmt reglum Seðlabankans um gerð út- boðsgagna vegna almennra útboða markaðsverð- bréfa skal gera grein fyrir framtíðarhorfum útgef- anda í útboðslýsingu. Þar þurfa að koma fram yfirlýsingar stjómarmanna, framkvæmdastjóra og verðbréfafyrirtækis um að framlagðar upplýs- ingar séu að þeirra vitund réttar og ekkert dreg- ið undan sem máli skiptir. Ennfremur segir að á útboðstímanum sé skylt að skýra frá í viðbæti við útboðslýsingu sérhveijum mikilvægum nýjum þætti eða verulegri ónákvæmni í útboðslýsingu, sem geti haft áhrif á mat á verði markaðsverð- bréfa og koma fram frá því að upphafleg útboðs- lýsing er gefin út. Orðrétt segir í sölulýsingu Samskipa: „Tilgang- ur sölulýsingar þessarar er að veita væntanlegum kaupendum hlutaíjár í Samskipum hf. bestu fáan- legu upplýsingar um fyrirtækið, fiárhagsstöðu þess og framtíðarhorfur. Sölulýsingin er samin af Landsbréfum hf. í samvinnu við Samskip hf. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel efni sölulýsingarinnar, sem og ársskýrslu Samskipa hf. fyrir árið 1991 sem fylgir sölulýsing- unni.“ Síðan segir: „Við undirritaðir lýsum þvi yfír að upplýsingar í sölulýsingunni eru í fullu samræmi við staðreyndir og að engu mikilvægu atriði er sleppt." Undir þetta rita stjómendur Landsbréfa og Samskipa. Hins vegar er sérstak- lega tekið fram í athugasemdum við rekstraráætl- un Samskipa fyrir árið 1992 að hún sé að öllu leyti unnin af starfsmönnum Samskipa og á ábyrgð þeirra. „Það er í fyllsta máta eðlilegt að sölulýsing í svona tilvikum sé jafn vel unnin og ef um nýtt útboð væri að ræða. Bréfín em boðin til sölu til almennings og þá er eðlilegt að höfð sé hliðsjón af þeim reglum sem gilda um sölu nýrra bréfa eftir því sem við verður komið,“ sagði Eiríkur Guðnason formaður stjómar Verðbréfaþings ís- lands.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.