Morgunblaðið - 06.04.1993, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1993
Skýrslutæknifé-
lag Islands 2 5 ára
eftir Odd
Benediktsson
Hinn 6. apríl árið 1968 var stofn-
aður félagsskapur sem hlaut nafnið
Skýrslutæknifélag íslands. Á stofn-
fundinum var Hjörleifur Hjörleifs-
son, fjármálastjóri hjá Rafmagns-
veitu Reykjavíkur, kosinn formaður
en Hjörleifur var aðalhvatamaður
að stofnun félagsins.
Nú, tuttugu og fimm árum síðar,
eru félagar Skýrslutæknifélagsins
rúmlega þúsund talsins. Félagsstarf-
ið er í miklum blóma. Haldnar eru
ráðstefnur og efnt til sýninga og
vettvangskynninga. Tugir erlendra
fyrirlesara hafa komið til landsins á
vegum félagsins. Félagið gefur út
fagtímaritið „Tölvumál" og nú eru
átján ár síðan tímaritið kom fyrst
út. Félagið tekur þátt í starfi margs
konar nefnda og ráða um upplýs-
ingatækni og þá einkum varðandi
stöðlun og íslenskt mál. Félagið veit-
ir nemendum í framhaldsskólum og
háskólum verðlaun fyrir framúrskar-
andi árangur í tölvunámi. Síðastliðin
tíu ár hefur félagið rekið skrifstofu
og er Svanhildur Jóhannesdóttir nú
framkvæmdastjóri.
Formaður félagsins er Halldór
Kristjánsson verkfræðingur og vara-
formaður Anna Kristjánsdóttir pró-
fessor.
Óhætt er að fullyrða að Skýrslu-
tæknifélagið hafi á liðnum árum
haft veruleg áhrif á þróun upplýs-
ingatækninnar hér á landi með starf-
semi sinni. Félagið fjallar stöðugt
um það sem efst er á baugi á
fræðslufundum, námskeiðum og
ráðstefnum. Tímaritið „Tölvumál“
er eina íslenska fagtímaritið á sviði
upplýsingatækni sem gefið er út
reglulega. Félagið vinnur stöðugt
að því að viðunandi útfærsla sé á
íslenskum stöfum í algengum tölvu-
eftir Hjalta
Guðmundsson og
Jakob Agúst
Hjálmarsson
í Dómkirkjunni í Reykjavík er
auðugt helgihald um bænadagana
og páska. Til upplýsingar og fróð-
leiks er hér gerð grein fyrir helstu
þáttum þess.
Safnaðarkvöld í Kyrruviku
Dr. Einar Sigurbjömsosn, pró-
fessor, verður gestur á safnaðar-
kvöldi í Dómkirkjunni þriðjudags-
kvöldið 6. apríl kl. 20.30. Hann er
m.a. höfundur að bókunum „Kirkj-
an játar“ og „Credo", sem báðar
eru ætlaðar almenningi til fræðslu
um kristnidóminn.
Dr. Einar kallar erindi sitt „Písl-
arsagan og Passíusálmamir". Þar
ijallar hann um hver Píslarsagan
er og samsteypu hennar í heild.
Jafnframt skýrir hann hvemig sr.
Hallgrímur Pétursson útleggur
þetta efni og notar í Passíusálmum
sínum. Svala Nielsen, söngkona,
syngur við undirleik Marteins H.
Friðrikssonar dæmi úr Passíusálm-
unum til skýringar máli dr. Einars.
Tignun krossins
Á föstudaginn langa er í Dóm-
kirkjunni athöfn sem kallast Tignun
krossins. Hún byggist upp af lestri
Píslarsögunnar, Sjö orðum Krists í
flutningi Helgu Bachman leikkonu
búnaði og að hinn erlendi orðaforði
tækninnar sé íslenskaður.
Forsagan
Skýrsluvélanotkun á íslandi hófst
árið 1949 þegar Hagstofa íslands
flutti inn fyrstu gatspjaldavélarnar.
Klemens Tryggvason var hagstofu-
stjóri þá og einn af stofnendum
Skýrslutæknifélagsins.
Fyrirtækið Skýrsluvélar ríkisins
og Reykjavíkurborgar (SKÝRR) var
stofnsett árið 1952 í samvinnu Hag-
stofunnar, Rafmagnsveitu Reylqa-
víkur og embættis landlæknis vegna
kaupa á nýjum skýrslugerðarvélum.
Þá hófst vélræn útskrift rafmagns-
og hituveitureikninga og vinnsla
verslunarskýrslna færðist yfír á nýju
vélarnar. Fyrsta tölvan kom til
landsins árið 1964. Þá keypti
SKÝRR tölvu af gerðinni IBM 1401
til skýrslugerðar með eldri gat-
spjaldavélunum. Sama ár fékk Há-
skóli íslands tölvu af gerðinni IBM
1620 að gjöf frá Framkvæmdabanka
Islands. Tölva Háskólans var nýtt
til vísinda- og verkfræðireikninga.
Hún kostaði þá á við gott einbýlis-
hús. Nú eru auglýstar tölvur til ferm-
ingargjafa sem hafa margfalt meira
reikniafl en IBM 1620 tölvan og þó
dugði hún um árabil fyrir alla helstu
vísindaútreikninga landsmanna.
Þegar leið á sjöunda áratuginn
varð æ ljósara að gagnavinnslan og
tölvutæknin var allkostnaðarsöm og
vandmeðfarin. Því var eðlilegt að
hagsmunaaðilar byndust samtökum
um að nýta tæknina sem best. Á
hinum Norðurlöndunum og víðar
höfðu þá verið stofnuð félög um
nýlingu þessarar nýju tækni og voru
félögin með svipuðu sniði og
Skýrslutæknifélagið.
Starfsemi félagsins
I félagasamþykkt Skýrslutækni-
félagsins segir svo: „Tilgangur fé-
„Á föstudaginn langa er
í Dómkirkjunni athöfn
sem kallast Tignun
krossins. Hún byggist
upp af lestri Píslarsög-
unnar, Sjö orðum Krists
í flutningi Helgu Bach-
man leikkonu og prests-
ins, flutningi Litaníu sr.
Bjarna Þorsteinssonar
og stund fyrir framan
krossinn undir söng
sálms Davíðs Stefáns-
sonar frá Fagraskógi
við lag Páls Isólfssonar.“
og prestsins, flutningi Litaníu sr.
Bjarna Þorsteinssonar og stund fyr-
ir framan krossinn undir söng sálms
Davíðs Stefánssonar_ frá Fagra-
skógi við lag Páls ísólfssonar. í
þessari athöfn eru einnig sungnir
ýmsir þeirra sálma sem helst eru
tengdir efni dagsins en ekki er flutt
gredikun. Prestur er sr. Jakob
Ágúst Hjálmarsson, organisti Mar-
teinn H. Friðriksson og Dómkórinn
syngur.
Páskavaka
Á laugardagskvöidið fyrir páska
er helgistund þar sem páskaljósið
er tendrað með viðhöfn. Kveiktur
lagsins er að stuðla að hagrænum
vinnubrögðum við gagnavinnslu í
hvers konar rekstri og við tækni-
og vísindastörf. Þessum tilgangi
hyggst félagið ná með því að gang-
ast fyrir sýningum, fyrirlestrahaldi,
umræðum, upplýsingamiðlun og
námskeiðum .. . samræmingu og
stöðlun ..."
Fyrstu árin mótaðist starfsemin
af kynningar- og fræðslustarfsemi.
Þá var einnig lagður grundvöllur að
norrænu samstarfi á þessu sviði á
vettvangi Nordisk Dataunion.
Skýrslutæknifélagið gerðist auka-
aðili að Nordisk Dataunion árið 1982
og síðan fullgildur aðili 1991. Lilja
Ólafsdóttir var formaður samtak-
anna um skeið. Félagið er aukaaðili
að IFIP (Intemational Federation for
Information Processing) og er að
ganga í CEPIS, samtök skýrslu-
tæknifélaga í Evrópu.
Á fundum félagsins hafa verið
fluttir fyrirlestrar um margs konar
efni. Sem dæmi um tæknilegt um-
fjöllunarefni fyrirlestra má nefna
gagnasafnskerfí, tölvunet á íslandi,
nýjungar í tölvubúnaði, stýrikerfí,
kerfísgerð, upplýsingahagfræði,
varnir gegn tölvuveirum, verkefnis-
stjóm og gæðastjómun í hugbúnað-
argerð. Sem önnur dæmi um umfjöll-
unarefni má nefna tölvufræðslu í
skólum, löggjöf, máltölvun, tölvur
og heilsufar, áhrif tölvutækni á
menningu og líf, orðabókargerð á
tölvuöld og höfundarrétt á hugbún-
aði. Félagið hefur einnig haldið nám-
skeið. Til dæmis hafa verið haldin
námskeið í kerfísgerð, hugbúnaðar-
verkfræði og gagnasafnsfræði.
Hin seinni ár hefur fræðslustarf-
semin einkum beinst inn á ráðstefnu-
hald og er þá oftast fjallað um vel
afmarkað efni þar sem fluttir eru
nokkrir fyrirlestrar og oft höfð pall-
borðsumræða í lokin. Sem dæmi um
umfjöllunarefni á ráðstefnum má
er eldur utan kirkju og í hann sótt-
ur logi á páskaljósið sem borið er
inn í fylkingu allra viðstaddra og
af honum tendruð ljósin í kirkj-
unni. Fram fer skírn ungmenna og
eftirvænting páskahátíðarinnar
sjálfrar byggð upp.
Helgisiðir þessarar athafnar eru
all sérstæðir og standa á eldfornum
merg en í nýjum búningi.
Hátíðadagskráin að öðru leyti
Á skírdag verður kvöldmáltíðar-
guðsþjónusta kl. 21 í umsjá sr.
Hjalta Guðmundssonar.
Á föstudaginn langa verður hefð-
bundin guðsþjónusta kl. 11, sömu-
leiðis í umsjá sr. Hjalta. Þar verður
flutt tónverkið Ave verum corpus
eftir W.A. Mozart.
Á páskamorgun er mikið um
dýrðir. Þá verður flutt tónverkið
Páskamorgunn eftir Sveinbjörn
Sveinbjörnsson í báðum messum
kl. 8 og kl. 11. Einsöngvarar eru
Elín Sigurvinsdóttir, Anna Sigríður
Helgadóttir og Tómas Tómasson. í
fyrri messunni, sem er í umsjá sr.
Hjalta, verður altarisganga en
þeirri síðari sem er í umsjá sr. Jak-
obs verður skírn.
Á annan páskadag verður ferm-
ing kl. 11 sem og tvo næstu sunnu-
daga. Þá daga verða einnig messur
kl. 17. Dómkórinn syngur við allar
athafnimar við undirleik Marteins
H. Friðrikssonar.
Höfundar eru sóknarprestar við
Dómkirkjuna í Reykjavík.
Oddur Benediktsson
„Á þeim tuttugn og fimm
árum sem liðin eru frá
stofnun Skýrslutæknifé-
lagsins hafa tölvurnar
valdið því að þjóðfélagið
hefur breyst á ýmsa vegu.
Og þá vaknar spurningin
hvort miklar breytingar
séu enn framundan. Allt
bendir til að svo sé vænst
að Skýrslutæknifélag ís-
lands haldi áfram að
varða veginn fram á við
eins og það hefur gert
hingað til.“
nefna einmenningstölvur, hugbún-
aðargerð, tölvunotkun í námi, stöðl-
uð notendaskil, siðamál og viðskipta-
hætti, framtíðarsýn stjómenda og
upplýsingatækni í Evrópu.
Nú síðast fyrir tveimur vikum var
námsstefnan „Nettengdur sýndar-
veruleiki“ haldin í samvinnu við Fé-
lag tölvunarfræðinga og Háskóla
íslands. Carl E. Loeffler frá
Carnegie Mellon University var fyr-
irlesari. Með orðum hans sannaðist
það er Jónas Hallgrímsson kvað:
Ég kominn upp á það,
ailra þakka verðast,
að sitja kyrr á sama stað,
og samt að vera að ferðast.
Auk funda og ráðstefna hefur
Skýrslutæknifélagið gengist fyrir
sýningum á tölvubúnaði og svoköll-
uðum „ET-dögum“ þar sem gagn-
gert hefur verið fjallað um einmenn-
ingstölvur. í tilefni 25 ára afmælis-
ins er félagið nú ásamt Þjóðminja-
safni og Árbæjarsafni að undirbúa
sýningu á tölvubúnaði og þróun
hans. Sýningin verður haldin í sept-
ember í Geysishúsinu við Aðalstræti.
Þessir hafa verið formenn félagsins:
1968-1975 Hjörleifur Hjörleifsson,
fjármálastjóri hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur.
1975-1977 Einar Pálsson, forstjóri
Reiknistofu bankanna.
1977-1979 Oddur Benediktsson
prófessor.
1979-1983 Jón Þór Þórhallsson,
forstjóri SKÝRR.
1983-1987 Siguijón Pétursson, að-
alframkvæmdastjóri Sjóvár-
Almennra.
1987-1989 Páll Jensson prófessor.
1989- Halldór Kristjánsson
verkfræðingur.
Útgáfumál
Rit félagsins, „Tölvumál", hóf
göngu sína árið 1976. Ritið birtist
í nýjum og vönduðum búningi árið
1992. „Tölvumál" er eina íslenska
fagtímaritið á sviði upplýsingatækni
sem gefið er út reglulega. Tímaritið
er veigamikil heimild um þróun upp-
lýsingatækninnar á íslandi. Ritstjórn
tölvumála hafa haft með hendi þeir
Óttar Kjartansson, Stefán Ingólfs-
son, Ágúst Úlfar Sigurðsson og
Daði Jónsson.
Orðanefnd félagsins hóf störf
skömmu eftir stofnun félagsins. Árið
1974 gaf Orðanefnd Skýrslutækni-
félagsins út „Skrá yfír orð og hug-
tök varðandi gagnavinnslu“. Fyrsta
útgáfa Tölvuorðasafns var gefín út
árið 1984. Ritstjóri var Sigrún
Helgadóttir og útgefandi íslensk
málnefnd. Og orðanefnd Skýrslu-
tæknifélagsins lét ekki þar við sitja
því 1986 kom Tölvuorðasafnið út í
aukinni og endurbættri útgáfu.
Orðanefndina skipuðu þá Baldur
Jónsson, Sigrún Helgadóttir (for-
maður), Þorsteinn Sæmundsson og
Örn Kaldalóns.
Stöðlunarmál
Skömmu eftir stofnun félagsins
hófyst afskipti þess af stöðlun á
sviði upplýsingatækni og var unnið
í starfshópum að samræmingu á
stafatöflum og lyklaborðum vegna
íslensku stafanna. Árið 1977 flutti
Willy Bohn, staðlasérfræðingur hjá
IBM í Þýskalandi, erindi á félags-
fundi um alþjóðlega staðla og stafa-
töflur. Willy mun reyndar hafa liðs-
innt íslendingum svo um munaði
þegar unnið var að tölvustafatöflum
fyrir Evrópu. Honum eigum við það
að þakka að allir séríslensku stafirn-
ir finnast í hinum veigamikla, alþjóð-
lega staðli ISO 8859. Þessi staðall
er enn grundvöllur þess að við getum
krafíst þess af framleiðendum al-
menns tölvubúnaðar að íslenskan sé
útfærð samkvæmt staðlL
Þegar IBM PC samhæfðar tölvur
voru fyrst fluttar inn til landsins
1983 breyttu innflytjendur þeim til
að mæta kröfum íslenskunnar, en á
mismundandi hátt. Er IBM á íslandi
hóf innflutning PC-tölva 1984 voru
þær síðan aðlagaðar að íslensku á
enn nýjan hátt. Frammámenn í
Skýrslutæknifélagi íslands, með Jó-
hann Gunnarsson í broddi fylkingar,
komu því þá til leiðar að öllum PC-
samhæfðum tölvum var breytt á
sama hátt og varð það til ómetan-
legs hagræðis fyrir einmenningst-
ölvunotendur. Á sama tíma voru
a.m.k. átta mismunandi útfærslur á
danskri aðlögun í gangi í Danmörku.
Árið 1981 var gerð tillaga að nið-
urröðun íslensku stafanna á lykla-
borð sem byggði á alþjóðastaðlinum
ISO 2126. Þá voru í lyklaborðsnefnd
Auðun Sæmundsson (formaður),
Helgi Jónsson og Jóhann Gunnars-
son.
Þegar lejð á níunda áratuginn fór
Staðlaráð íslands að hlutast til um
stöðlun á sviði upplýsingatækni og
hefur Skýrslutæknifélagið verið haft
með í ráðum.
Helgi Jónsson var skipaður full-
trúi félagsins í nýstofnað staðlaráð
um upplýsingatækni á vegum Iðn-
tæknistofnunar íslands árið 1986.
Oddur Benediktsson var formaður
ráðsins.
Árið 1992 tók félagið þátt í stofn-
un „Fagráðs í upplýsingatækni" á
vegum Staðlaráðs Islands og var
Halldór Kristjánsson kosinn í stjóm
fagráðsins. Jóhann Gunnarsson var
fyrsti formaður ráðsins.
Löggjöf og siðareglur
Á félagsfundi árið 1975 vakti El-
ías Davíðsson máls á nauðsyn þess
að sett yrðu lög um meðferð per-
sónuupplýsinga í tölvum en slík lög-
gjöf hafði þá verið sett í flestum
löndum nærri okkur.
Lög nr. 63/1981, um kerfís-
bundna skráningu á upplýsingum,
er varða einkamálefni, voru fyrstu
lögin til verndar einstaklingum
vegna skráningar á upplýsingum um
einkamálefni þeirra. Samkvæmt
beiðni Alþingis gaf félagið umsögn
um frumvarpið og lagði til breyting-
ar á því.
Svonefnd tölvunefnd starfar sam-
kvæmt lögunum til þess að hafa
eftirlit með framkvæmd þeirra.
Skýslutæknifélagið tilnefnir mann í
tölvunefnd og situr Guðjón Reynis-
son þar af hálfu félagsins.
Skýrslutæknifélagið hefur skráð
siðareglur fyrir félagsmenn sína.
Siðareglurnar kveða meðal annars á
um heiðarlega framkomu í starfí og
rétta meðferð upplýsinga og höfund-
arréttar. í siðanefnd félagsins eru
nú Gunnar Linnet, Oddur Benedikts-
son, formaður, og Sigutjón Péturs-
son.
Lokaorð
Á þeim tuttugu og fimm árum
sem liðin eru frá stofnun Skýrslu-
tæknifélagsins hafa tölvurnar valdið
því að þjóðfélagið hefur breyst á
ýmsa vegu. Og þá vaknar spurning-
in hvort miklar breytingar séu enn
framundan. Allt bendir til að svo sé.
Þess er vænst að Skýrslutæknifélag
íslands haldi áfram að varða veginn
fram á við eins og það hefur gert
hingað til.
Höfundur cr prófessor í
tölvunarfræði við Húskóla íslands.
Helgihald í Dómkirkj-
unni um hátíðimar