Morgunblaðið - 06.04.1993, Qupperneq 38
38
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. APRÍL 1993
M
Hestasýning HÍS í Reiðhöllinni
Góðir hestar og
snjallir knapar
_______Hestar__________
Valdimar Kristinsson
HESTAÍÞRÓTTASAMBAND
Islands reið á vaðið á þessu ári
með sýningu í Reiðhöllinni um
helgina. Sem kunnugt er tók
Reylg'avíkurborg höllina á
leigu fyrir skömmu hestamönn-
um til mikils léttis því allt útlit
var fyrir að hún stæði lokuð
og ónotuð þetta árið. Eins og
gefur að skilja var sýning HÍS
nokkuð hraðsoðin og ekki um
að ræða nein stórbrotin sýning-
aratriði sem sérstaka athygli
vöktu en þarna komu fram
margir góðir hestar sem
glöddu augað og snjallir knap-
ar sem héldu sýningunni uppi
ásamt hestunum.
Allt frá því Reiðhöllin var tekin
í notkun hafa verið haldnar sýn-
ingar ár hvert o& hefði það sjálf-
sagt verið skrýtið ef þær hefðu
fallið niður þetta árið en sem bet-
ur fer verður ekki um það að
ræða því nú þegar hefur ein verið
haldin og vitað er um að minnsta
kosti tvær aðrar í farvatninu. Á
sýningunni um helgina var lögð
áhersla á hestamennskuna sem
íþrótt en ekki boðið upp á sérstak-
ar sýningar kynbótahrossa eins
og tíðkast hefur á Reiðhallasýn-
ingum.
Ef tiltaka á einhver sérstök
sýningaratriði má þar nefna sýn-
ingu íslenskra Evrópu- og heims-
meistara sem var borin uppi af
góðum hestum og knöpum. Þar
voru mættir þeir Sigurður Sæ-
mundsson, Ragnar Hinriksson,
Sigurbjöm Bárðarson, Benedikt
Þorbjömsson, Jón Pétur Ólafsson
og Gunnar Arnarsson. í hópinn
vantaði Reyni Aðalsteinsson, Að-
alstein Aðalsteinsson, Tómas
Ragnarsson og Albert Jónsson.
Ragnar Alfreðsson kom fram með
fagran hest í löngum taumi. Hest-
urinn vakti athygli fyrir svifmikið
brokk og fagrar hreyfíngar og
Ragnar fyrir mikið úthald en hann
þurfti að hlaupa nánast sömu
vegalengd á sama hraða og hest-
urinn. Böm og unglingar áttu sinn
þátt I sýningunni eins og venja
er til. Lína langsokkur og Emil í
Kattholti skemmtu áhorfendum
með því að fá tvo úr þeirra hópi
á bak og var farið í þrautakóng
undir handleiðslu Emils og Línu.
Þá komu fram böm, unglingar
og ungmenni sem á undanförnum
ámm hafa skarað fram úr á mót-
um. Var þar vasklega riðið á góð-
um hestum undir dynjandi tónlist.
Sett var á svið brúðkaup á hest-
um, nemendur frá reiðskólanum
Folinn fór vel
hjá Ingólfi
Kristjánssyni
sem er á tíræð-
isaldri en hann
hefur verið að
dunda sér við
að temja hann.
Þór Jóhannsson
sýndi mikið harð-
fylgi i dekkjarallinu
á sunnudag og sigr-
aði eftir harða
keppni.
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
Eftir sýninguna á sunnudag var krökkum boðið
á hestbak og fóru margir þar í sinn fyrsta túr
og þar á meðal hún Linda Jóhannsdóttir. Mynd-
aðist löng biðröð því áhuginn var mikill.
í Geldingaholti
sýndu hindr-
unarstökk, fólk
á ýmsum aldri
sýndi að hesta-
mennskan er
ekki einskorðuð
við ákveðna
aldurshópa,
með Ingólf
Kristjánsson á
tíræðisaldri í
broddi fylking-
ar á ungum fola
sem hann hefur verið að temja í
vetur.
Boðið var upp á tvö atriði þar
sem hestar komu ekki við sögu.
Tveir eyjapeyjar komu og spröng-
uðu skamma stund og KK-band
lék nokkur af sínum kunnu lögum.
í anddyri reiðhallarinnar voru
ýmsir aðilar með auglýsingabása
og kom á óvart hversu mörg fyrir-
tæki voru þar með fjölbreytt vöru-
úrval.
Af einhveijum ástæðum var illa
mætt á þessar fjórar sýningar
Hestaíþróttasambands-
ins, líklega hefur heildar-
ijöldi verið innan við 2.000
manns. Læðist að manni sá
grunur að fyrr og betur
hefði mátt standa að kynn-
ingu og auglýsingu. Þótt ekki
ifi verið hér um að ræða neinn
stórviðburði í íslenskri hesta-
mennsku þá fannst mér sýningin
sem var ágætis skemmtun verð-
skulda betri mætingu hesta-
manna. Eftir tæplega hálfan mán-
uð verða Norðlendingar með sýn-
ingu Reiðhöllinni og eftir mánuð
verður Fákur í samvinnu við aðra
hestamenn á Suðurlandi með sýn-
ingu sömu helgi og sýning verður
á Stóðhestastöðinni í Gunnars-
holti.
Dómarar og- sigurveg-
arar fengu páskaegg
Harðarfélagar héldu vormót á
Varmárbökkum í Mosfellsbæ
um helgina þar sem keppt var
í tölti í þremur flokkum. í A-
flokki þar sem komu saman
reynslumiklir knapar sigraði
Sævar Haraldsson á Bráni, önn-
ur varð kona hans Barabara
Mayer á Háfeta, þriðji Eysteinn
Leifsson á Huginn frá Stykkis-
hólmi, Sigurður Sigurðarson
fjórði á Víði frá Hala og Hreinn
Olafsson á Dropa frá Helgadal
í fimmta sæti.
í B-flokki þar sem keppa leik-
menn, sigraði Axel Blomsturberg
á Drottningu frá Reykjavík, Ema
Amardóttir varð önnur á Þey,
Sigvaldi Haraldsson þriðji á Darra
frá Rangá, Aníta Pálsdóttir fjórða
á Hendingu. í unglingaflokki sigr-
aði Guðmar Þór Pétursson á Gusti
frá Stórholti, Þorvaldur Kristjáns-
son varð annar á Loga frá Mið-
sitju, Sölvi Sigurðarson á Nunnu
varð þriðji, Garðar Hólm fjórði á
Skafrenningi frá Ey II og Jóna
Björg Ólafsdóttir varð fímmta á
Garpi frá Svanavatni. í bama-
flokki sigraði Magnea Rós Axels-
dóttir á Vafa frá Mosfellsbæ,
Hrafnhildur Jóhannesdóttir önnur
á Miðli, Brynja Brynjarsdóttir
þriðja á Ljóma frá Seljatungu, og
Eyþór Ámason á Víkingi fjórði
og Helga Ottósdóttir fímmta á
Kolfinni frá Enni. Allir sigurveg-
arar auk dómara fengu að launum
páskaegg sem Nói Síríus gaf. Til
stóð að keppa í flokki Old boys
and girls en aðeins einn skráði
sig þannig að ekkert að varð af
því í þetta sinn.
Dómararnir Friðfinnur Hilmarsson og Ámundi Sigurðsson fengu ásamt sigurvegurunum páskaegg
fyrir góða frammistöðu en næst þeim standa frá vinstri talið Sævar Haraldsson, Guðmar Þór og
feðginin Axel Blomsturberg og Magnea Rós.
Trúður flytur fjöll
Kvikmyndir
Sæbjöm Valdimarsson
Háskólabíó: Kraftaverkamaður-
inn („Leap of Faith“). Leiksljóri
Richard Pearce. Aðalleikendur
Steve Martin, Debra Winger,
Liam Neeson, Lolita Davidovich,
Lukas Haas. Bandarísk. Para-
mount 1992.
I nýjustu mynd sinni leikur Steve
Martin „kraftaverkamanninn" Jonas
Nightingale, samviskulausan kjaft-
ask sem ferðast með fríðu föruneyti
vítt og breitt um bandarísku miðrík-
in. Selur Jesús á tölvuvæddum
skrautsýningum þar sem starfs-
mönnum hans er uppálagt að grípa
eitthvað bitastætt úr samtölum sam-
komugesta á meðan þeir vísa þeim
til sætis. Úrþessu moðar hans hægri
hönd (Debra Winger) á tölvuna. Fær
upplýsingar um sætisnúmer viðkom-
andi og sendir síðan „miðlinum"
skilaboðin þráðlaust.
Allt hefur gengið að óskum. Hver
bær og borg yfírfull af „aulum“ ein-
sog Martin kýs að kalla hrekklausan
almúgamanninn. Uns hann fyrir til-
viljun verður strandaglópur í smábæ,
einhvers staðar á sléttunum miklu.
Þar gerist kraftaverkið og „heilögum
Nightingale" fatast flugið.
Aðalkostur Kraftaverkamannsins
er sú háðska umfjöllun sem ,jes-
úsiðnaðurinn" og gervispámennskan
fær óþvegna. Prédikarar af svip-
uðum toga og Martin hafa löngum
verið þáttur í bandarísku þjóðlífí og
margir komist í álnir. I meðförum
Martins verða þessir tungulipru
kaupsýslumenn fáránleg himpigimpi
sem ekkert er heilagt, a.m.k. þegar
komið er að vösum kúnnanna.
Það er svosem hugsanlegt að
Sinclair Lewis hefði tölvuvætt Elmer
Gantry, en samlíkingin kemur óneit-
anlega upp í hugann. En það er ólíku
saman að jafna. Bókin snilld, sömu-
leiðis handritið sem var samið eftir
henni og myndin ógleymanleg. Burt
Lancaster í sínu besta formi, og þá
er mikið sagt. Báðir góðir sölumenn
en tilgangurinn ólíkur. Gantry að
predika sig uppá konu en Nighting-
ale að hugsa um bankabókina sína.
Eða var það eitthvað varðandi upp-
vaxtarárin í Bronx?
En það er ekki réttlátt að fara
nánar útí samjöfnuðinn. Elmer
Gantry klassísk háðsádeila, Krafta-
verkamaðurinn auðgleymt stundar-
gaman, sem svíkur þó engan aðdá-
anda Martins því handritið býður
uppá trúðssýningu sem hann gjör-
nýtir. Það sem ekki snýr að honum
er öllu slakara og aukapersónurnar
skipta litlu máli. Eins manns sýning.
sýni og umburðarlyndi. Hann setur
þær upp á bráðfyndinn hátt, oftast
nær, skoðar velferðarþjóðfélagið í
hnotskum sveitaþorps þar sem
hræsnin ræður ríkjum. Flestir íbú-
arnir telja sig hina einu, sönnu fyrir-
myndárborgara en eru í rauninni
uppbelgdir trúarhræsnarar, kyn-
þáttahatarar, öfundsýkin og afbrýð-
in uppmáluð. Hálf-fríkuð borgar-
börnin með sína hæpnu fortíð, að
öllum líkindum listamenn úr ljósbláa
geiranum, hann að auki kynhverfur,
eru hinir siðferðislegu vendir þjóðfé-
lagsins. Gott hjá Nutley og ekkert
skrýtið þó sænskir vilji bendla sér
mest við manninn.
Englasetrið kemur hressilega á
óvart, hún er jafnan ágætlega frum-
leg og svo mikill er styrkur hennar
að handritshöfundurinn og leikstjór-
inn Nutley getur leyft sér að kaf-
sigla myndina á tíma og kemst upp
með það. Réttir hana af og siglir
öruggur í höfn. Nýtur frábærra leik-
ara. Wolff er eftirminnilegur sem
hin léttmálaða kabarettstjama, best-
ir þó bræðumir, nágrannarnir ros-
knu, sem fá reyndar nokkrar bestu
línurnar í handritinu. Hress skemmt-
un sem kemur á óvart.
I sælu og synd
Regnboginn:
Englabærínn
Leikstjóri og handritshöfundur
Colin Nutley. Kvikmyndatöku-
stjóri Jens Fischer. Aðalleikendur
Helena Bergström, Rikard Wolff,
Sven Wollter, Ernst Gunther,
Reine Brynjolfsson, Viveka
Seldahl, Per Oscarsson. Samnorr-
æn/Svíþjóð 1992.
í sænsku þorpi, sem má muna
sinn fífil fegurri, fer allt á annan
endann er forpokaður sveitavargur-
inn fær óvænta heimsókn úr borg-
inni. Það er par sem stingur í stúf
við skinhelga og umtalsilla íbúana;
Bergström, ung og falleg, erfingi
ættaróðalsins Englasetursins og
Wolff, enn grunsamlegri fylgismað-
ur hennar. Vissulega hafa þau haft
kabarettsýningar í vafasamari kant-
inum að atvinnu sinni en eru engu
að síður allt að því heilagt fólk í
samanburði við flesta grannana. Svo
þegar þeim er farið að ofbjóða slúðr-
ið og smáborgarahátturinn útaf
fijálslegri framkomu þeirra og
klæðaburði, gípa þau til sinna ráða.
Það er sagt að Englendingurinn
Nutley sé sænskari en allt sem
sænskt er, hvað um það, óneitanlega
kann hann góð skil á andstæðum
innikróaðrar afdalamennsku og víð-