Morgunblaðið - 27.05.1993, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C
117. tbl. 81. árg.
FIMMTUDAGUR 27. MÁÍ 1993
Prentsmiðja Morgnnblaðsins
Mikil einkavæðing áformuð í Frakklandi
Afskiptum af
iðnaði að ljúka
París. Reuter.
FRANSKA stjórnin birti í gær áætlun um einkavæðingu 21 ríkisfyrir-
tækis en þar á meðal eru flugfélagið Air France og Renault-bifreiða-
verksmiðjurnar. Virðir stjórnin andstöðu Francois Mitterrands
Frakklandsforseta að vettugi en á ríkisstjórnarfundi í byrjun vikunn-
ar lagðist hann gegn einkavæðingaráformunum af mikilli hörku.
Nicolas Sarkozy, fjárlagaráðherra
og talsmaður ríkisstjórnar Edouards
Balladurs, sagði að auk Air France
og Renault væri ráðgert að selja
bankana Banque Nationale de Paris
(BNP) og Credit Lyonnais, svo og
hergagna- og rafeindarisann Thom-
son. Ennfremur flugvélaverksmiðj-
Boli hetja
Marseille
OLYMPIQUE Marseille varð í
gærkvöldi fyrst franskra fé-
lagsliða til að sigra í Evrópu-
keppni meistaraliða. Franska
liðið vann AC Milan 1:0 og kom
þar með í veg fyrir að ítalska
liðið sigraði í keppninni í þriðja
sinn á fimm árum. Varnarmað-
urinn Basile Boli, sem hampar
hér bikarnum ofsakátur, gerði
sigurmarkið með skalla eftir
homspymu á lokamínútu fyrri
hálfleiks. Leikurinn fór fram á
Ólympíuleikvanginum í Múnc-
hen að viðstöddum 65 þúsund
áhorfendum.
Sjá nánar íþróttir á bls. 51.
umar Aerospatiale, tölvufyrirtækið
Bull, olíufyrirtækið Elf-Aquitaine,
pökkunar- og álframleiðslufyrirtækið
Pechiney, lyfja- og efnaverksmiðj-
urnar Rhone-Poulenc, tryggingafyr-
irtækið UAP, stálverksmiðjurnar
Usinor-Sacilor og vindlingaverk-
smjðjurnar SEITA.
Aldagömlum afskiptum hætt
Með sölunni hyrfu frönsk ríkisaf-
skipti af verksmiðjuframleiðslu og
fjármálaþjónustu. Er um meiriháttar
umskipti að ræða því franska ríkið
hefur haft gífurleg afskipti af iðn-
framleiðslunni um aldir. Jafnframt
hefur stjóm Balladurs ákveðið að
afnema hömlur á eignarhlut útlend-
inga í fyrirtækjum í Frakklandi.
Þinghúsið umkringt
UM 10.000 manns, margir með klúta fyrir vitum, mótmæltu frumvarpinu um herta innflytjendalöggjöf
fyrir utan þinghúsið í Bonn og reyndu þeir að girða það af með kaðli. Samkvæmt skoðanakönnun, sem
birt var í gær, er mikill meirihluti Þjóðveija hlynntur ströngum takmörkunum við innflutningi fólks.
Ný og ströng löggjöf um innflytjendur samþykkt á þýska þinginu
F ólkstraumurinn til EB-
ríkja verður stöðvaður
London, Bonn. Reuter.
FYRIRHUGAÐ er að stórherða eftirlit og
reglur um innflytjendur í ríkjum Evrópu-
bandalagsins, EB, og verða útlendingar,
sem eru þar í vinnu án tilskilinna leyfa,
umsvifalaust reknir til síns heima. Kom
þetta fram í breska blaðinu Guardian í
gær en það sagði að búist væri við að tillög-
ur um þetta yrðu samþykktar á fimdi
innanríkisráðherra EB í Kaupmannahöfn
í næstu viku. Um 10.000 manns reyndu í
gær að koma í veg fyrir, að þingmenn á
þýska þinginu í Bonn kæmust inn í þing-
húsið til að ræða herta löggjöf um innflytj-
endur en hún var samþykkt í gærkvöldi.
Að sögn Guardians, sem vitnaði í óbirt EB-
skjöl, verður einnig fylgst betur með fólki sem
ætlar að hafa skamma viðdvöl og skorður verða
settar við því að ættingjar innflytjenda fái að
koma í kjölfarið. Sagði blaðið að innanríkisráð-
herrar aðildarríkjanna 12 hefðu þegar samþykkt
reglurnar, sem yrðu síðan samþykktar á innan-
ríkisráðherrafundi EB í Kaupmannahöfn í næstu
viku.
EFTA-ríki undanskilin
Það munu vera Frakkar sem hafa gengist
mest fyrir að herða innflytjendalöggjöfina, en
þeir hafa miklar áhyggjur af vaxandi fólks-
straumi til landsins, einkum frá Austur-Evrópu
og Afríku. íbúar í EFTA-löndunum munu verða
undanþegnir nýju reglunum með tilkomu Evr-
ópska efnahagssvæðisins, EES.
Þýska þingið samþykkti í gærkvöld lög, sem
eiga að koma að mestu í veg fyrir gífurlegan
fólksstraum til landsins, en á síðasta ári settust
þar að 440.000 manns, aðallega frá Austur-Evr-
ópu. Voru lögin samþykkt með 521 atkvæði
gegn 132 og studdu þau flestir þingmenn jafnað-
armanna. Létu þeir og aðrir þingmenn ekkert á
sig fá mótmæli um 10.000 manna, sem reyndu
að hindra þingmenn í að komast inn í þinghúsið.
í þeirra hópi voru um 2.000 grímuklæddir stjóm-
leysingjar og kom til nokkurra átaka milli þeirra
og lögreglunnar. Samkvæmt skoðanakönnun,
sem gerð var í Þýskalandi í gær, em 68% fylgj-
andi hertum reglum um innflytjendur en 24%
andvíg.
Varnarmálaráðherrar NATO-ríkja á fundi í Brussel
Varað við niðurskurði á
framlögum til varnarmála
Brussel. Reuter.
VARNARMÁLARÁÐHERRAR Atlantshafsbandalagsins, NATO, sam-
þykktu í gær að skora á ríkissljórnir aöildarríkjanna að hætta mikl-
um niðurskurði á framlögum til varnarmála vegna nýrra krafna,
sem gerðar væru til bandalagsins, til dæmis varðandi friðargæslu.
Bentu þeir á, að búið væri að skera verulega niður kjarnavopnaeign
bandalagsins á síðustu tveimur árum, eða um 60% í Evrópu.
Manfred Wörner, framkvæmda-
stjóri NATO, sagði að loknum
tveggja daga fundi í Brussel, að
frekari niðurskurður væri ógnun við
bandalagið sjálft og getu þess til
að bregðast við ef með þyrfti.
Kvaðst hann ekki aðeins vona, held-
ur búast við, að nú yrði látið staðar
numið.
Öll NATO-ríkin hafa dregið veru-
lega úr framlögum til varnarmála
og mest þau smæstu, til dæmis
Holland og Belgía. Les Aspin, varn-
armálaráðherra Bandaríkjanna,
sagði á fundinum í gær, að hann
myndi reyna að sannfæra Banda-
ríkjaþing um, að rangt væri að tak-
marka frekar útgjöld til NATO.
Fundur varnarmálaráðherranna
samþykkti einnig stuðning við að-
gerðir Sameinuðu þjóðanna í Bosn-
íu, en lagði áherslu á að skilgreina
yrði markmið nýrrar áætlunar vest-
rænna ríkja og Rússlands miklu
betur en gert hefði verið.
Sjá „NATO vill ..." á bls. 24.
„Orrustan um Atlantshafið“
Hálf öld er liðin síðan bandamenn unnu sigur í „Orrustunni um Atlantshaf-
ið“ en þáttaskilin í baráttunni við þýsku kafbátana eru talin hafa verið
24. maí 1943. Er nú verið að minnast sigursins í Liverpool og eru komin
þangað meira en 40 skip frá 17 löndum, þar á meðal varðskipið Týr. Það
er konungssnekkjan Brittania, sem öslar hér ölduna ásamt fleiri skipum
úti fyrir Ongulsey. Sjá „Hátíðahöld ...“ á bls. 24.