Morgunblaðið - 27.05.1993, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
15
Matseðill
Heitur aspas með estragon-sinnepssósu 850
Bláskelsúpa með saffranþráðum 790
Salat með heitum humar og cous-cous 920
Ofnbökuð laxasneið með engjasúrusósu 940
Tagliatelli með reyktum laxi og graslauk 980
Steiktur skötuselur
með kremaðri stcinselju 1590
Ferskasti fiskur dagsins
Grilluð sinnepsmarineruð kjúkllngabringa
með hrisgrjónum 1390
Steinseljusteiktur lambahryggur
með basilikumtcrtu 1690
Grilluð nautalund
með morella og svepparagout 2590
Risahumar frá Maine 3800
Helt eplaskífa með vanilluis 510
Súkkulaðimousse með kardimommusósu 470
Creme Brulé með ferskum berjum 490
Heitar fikjur
með hungagsrjóma og hnetum 510
Smjördeig mcð hunangsis og ávaxtasósu 430
Árni og Sæmundur
sjá um mat og þjónustu
Borðið á Borginni
Búið á Borginni
Njótið lífsins á Borginni
Velkomin á Hótel Borg
ll Sími 1 \44Ö
Rafbú hf hefur yfirtekið rekstur
raftæknideildar Jötuns hf.
Við verðum meö sömu
A&HUURRE
NOVENCO
Morgunblaðið/Sturla Páll Sturluson
Sigurður Daníelsson tónskólastjóri ásamt nokkrum nemendum sínum
eftir vortónleika í Bjarnarborg.
Vortónleikar Tón-
skóla Suðureyrar
Suðureyri.
TÓNLISTARSKÓLA Suður-
eyrar var slitið laugardaginn
8. maí með lokatónleikum sem
haldnir voru í Bjarnarborg,
húsi Verkalýðs- og sjómannafé-
lags Súgandafjarðar.
Á tónleikunum komu fram flest-
ir nemendur skólans og fluttu stutt
sýnishorn af því sem þeir höfðu
numið á síðustu önn. Að sögn Sig-
urðar Daníelssonar tónskólastjóra
voru nemendur 24 á síðustu önn
og kennt var á sjö hljóðfæri.
Að tónleikunum loknum var
gestum og nemendum boðið upp
á kaffi og kökur sem runnu ljúft
niður í maga eftir allan tónlistar-
flutninginn.
- Sturla Páll.
Erla Þórólfsdóttir
með einsöngstónleika
ERLA Þórólfsdóttir sópran-
söngkona og Jórunn Víðar
píanóleikari halda einsöngstón-
leika í Hafnarborg í Hafnarfirði
í dag, fimmtudaginn 27. maí,
kl. 20.30. Tónleikarnir eru
lokaáfangi einsöngvaraprófs
Erlu frá _ Söngskólanum í
Reykjavík. Á efnisskránni eru
ljóð eftir Brahms, Richard
Strauss, Michael Head, Pál
Isólfsson og Jórunni Viðar, auk
aría eftir Handel, Haydn, Doniz-
etti og Offenbach.
Erla fæddist í Stykkishólmi og
að loknu píanónámi hóf hún nám
við Söngskólann í Reykjavík árið
1985. Undanfarin fjögur ár hefur
Þuríður Pálsdóttir verið aðalkenn-
ari hennar og Jórunn Viðar píanó-
leikari, en Erla lauk bæði 8. stigi
í einsöng og píanóieik vorið 1990
og í fyrra lauk hún söngkennara-
prófi frá Söngskólanum. Hún
syngur nú í Kór Islensku óperunn-
ar, hefur raddþjálfað og stjórnað
Kór átthagafélags Strandamanna
sl. sjö ár og stjómað Barnakór
„Bæði einfald-
ur og tvöfaldur“
Erla Þórólfsdóttir.
Bústaðakirkju. Hún er nú fastráð-
inn kennari við Tónlistarskóla Ár-
nesinga.
Jórunn Viðar, píanóleikari og
tónskáld, starfar við Söngskólann
í Reykjavík og er landskunn fyrir
störf að tónlistarmálum.
eftir Jón K.
Guðbergsson
Þorsteini Pálssyni virðist fremur
annt um uppeldisskilyrði þorsk-
seiða á fiskimiðum okkar. Hann
lokar veiðisvæðum, takmarkar
sókn, beitir kvótakerfi. Hann virð-
ist taka mark á því sem best er
vitað um þau efni.
Slíku er hins vegar ekki að heilsa
þegar að mannfólkinu og ungviði
þess kemur. Fyrir skemmstu birt-
ust niðurstöður könnunar á of-
beldi. Þár kom í ljós að 80% ofbeld-
ismanna eru undir áhrifum áfengis
og 70% þeirra sem fyrir ofbeldisá-
rásum verða. Þá leiddi könnunin í
ljós að ofbeldisverk eru afar oft
framin í tengslum við heimsóknir
í áfengisveitingahús.
Og hver eru viðbrögð dóms- og
kirkjumálaráðherra? Hann lengir
þann tíma sem áfengisveitinga-
menn hafa til að selja fólki þann
drykk sem sannanlega veldur
meira böli með þjóðinni en önnur
efni og stuðlar þar að auki að út-
gjöldum og tekjutapi svo að millj-
örðum nemur. Þar er ekki verið
að hugsa um velferð ungviðisins.
Skilaboðin sem börn og unglingar
fá eru þau að áfengi sé slíkt önd-
vegisefni áð nauðsynlegt sé að
hafa það á boðstólum sem víðast
og sem lengst dag hvern. Og nú
geta ölóðir menn stundað þjóð-
hagslega ábatasama iðju sína dag-
inn út og daginn inn ásamt með
tilheyrandi barsmíðum og öðrum
öndvegisverkum.
Hvað veldur slíkum firnum?
_ Frændur okkar á Norðurlöndum
kalla slíkt alkóhólpólitíska fávisku
á sínu máli. Sumir mundu kannski
halda að sú væri orsökin. En það
er nú ekki alveg víst. Þorsteinn
Pálsson á ekki glæsilegan feril að
baki hvað afskipti af áfengismála-
stefnu snertir. Flestir dómsmála-
ráðherrar aðrir hafa leitast við að
vinna ekki stórtjón á skynsamlegri
áfengismálastefnu sem upphaflega
var mótuð af þeim mönnum sem
leiddu þjóð vora til sjálfstæðis.
Nægir í því sambandi að minna á
forvera hans í starfi, Óla Þ. Guð-
bjartsson og Jón Helgason. Þor-
steinn Pálsson hóf á hinn bóginn
feril sinn sem ráðherra með því
að knýja fram breytingar á lögum
um verslun ríkisins með áfengi.
Þá var öðrum aðilum en ÁTVR
heimilað að framleiða áfenga
drykki með leyfi fjármálaráðherra.
Það leyfi var að sjálfsögðu auð-
fengið enda Þorsteinn þá í því
embætti. Þarna var gengið gegn
þeirri meginstefnu að einstaklingar
skyldu ekki hafa persónulegan hag
af drykkju annarra. í greinagerð
Telemecanique
þjónustuna varðandi rafbúnað
og Jötunn hf var áður með.
Verslun okkar verður áfram á
sama stað.
Síminníafgneiðslu er 685656
Síminn á verkstæðinu er 68 5518
Rafbú hf, Höfðabakka 9,112 Reykjavík.
„Fyrir skemmstu birt-
ust niðurstöður könn-
unar á ofbeldi. Þar kom
í ljós að 80% ofbeldis-
manna eru undir áhrif-
um áfengis og 70%
þeirra sem fyrir ofbeld-
isárásum verða.“
með þessu frumvarpi má lesa að
þarna réð ferðinni gróðavon fyrir-
tækis sem lét þá „framleiða vodka
fyrir sig í Stóra-Bretlandi“. Þarna
sýnist mér vera upphafið á einka-
væðingunni og er Þorsteinn líklega
stoltur af að hafa riðið þar á vað-
ið. En saga hans í þessum málum
er ekki öll. Fyrir nokkrum mánuð-
um lengdi hann áfengissölutíma
fram á nóttina svo að nú eru nán-
ast blámorgunstundirnar eini
tíminn sem áfengisveitingamönn-
um er óheimill til sölu á varningi
sínum.
Nú skulum við hugsa okkur að
jafnágætir menn og trillukarlar
færu fram á auknar veiðiheimildir
eða að afli þeirra, sem er kannski
ferskasta og besta hráefni í heimi,
yrði að minnsta kosti ekki skertur.
Hvað mundi Þorsteinn Pálsson
gera? Svari hver því sem honum
þykir líklegast. En þegar það fólk
sem hefur lífsuppeldi sitt af því
að pranga ólyfjan upp á menn og
stuðla þar með að óhamingju þús-
unda barna og unglinga biður um
aukið frelsi til iðju sinnar þá stend-
ur ekki á dóms- og kirkjumálaráð-
herra. Við þau öfl er hann til þjón-
ustu reiðubúin.
Ég get ekki að því gert að þeg-
ar ég heyri minnst á Þorstein Páls-
son og athafnir hans ýmsar dettur
mér oft í hug gömul saga: Verk-
stjóri kom að mönnum sínum þar
sem þeir voru að verki. Einn verka-
mannanna þótti ekki bráðlaginn
og fannst verkstjóra auðséð að
hann væri að gera einhveija vit-
leysu.
„Ósköp ertu einfaldur, Nonni
minn,“ sagði hann.
„Það getur verið að ég sé ein-
faldur,“ sagði Nonni. „En þú ert
þrefaldur."
„Hvemig má það vera?“ spurði
ráðamaðurinn og þóttist nú hafa
fengið enn eina sönnunina um
heimsku Nonna.
„Þú ert nefnilega bæði einfaldur
og tvöfaldur," svaraði Nonni.
Höfundur er starfsmaður
Áfengisvarnaráðs.