Morgunblaðið

Ulloq
  • Qaammatit siuliiMay 1993Qaammatip tullia
    MoTuWeThFrSaSu
    262728293012
    3456789
    10111213141516
    17181920212223
    24252627282930
    31123456

Morgunblaðið - 27.05.1993, Qupperneq 42

Morgunblaðið - 27.05.1993, Qupperneq 42
42 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993 STJORNUSPA eftir Frartces Drake Hrútur (21. mars - 19. apríl) Misstu ekki þolinmæðina í umferðinni eða samskiptum við aðra. Þú tekur lífinu með ró í faðmi fjölskyldunn- ar í kvöld. Naut (20. apríl - 20. maí) Eitthvað á heimilinu þarfn- ast viðgerðar. Þú átt ánægjulegar stundir með gömlum vini. Einhver á það til að ýkja. Tvíburar (21. maí - 20. júní) Þér gengur vel að leysa verkefni sem þér var falið, en ofþreyttu þig ekki. I kvöld hættir þér til að eyða of miklu. Krabbi (21. júní - 22. júlí) HS£ Þetta verður rólegur dagur faman af, en þegar á líður tekur við mannfagnaður. Reyndu að ganga hægt um gleðinnar dyr. Ljón (23. júlí - 22. ágúst) Þér finnst skemmtanalífíð ekki hafa upp á margt að bjóða og þú kýst heldur að vera út af fyrir þig í kvöld. Meyja (23. ágúst - 22. september) Þér gengur hálfilla að ljúka verkefni í vinnunni. Félags- lífið er hins vegar ánægju- legt, og þú skemmtir þér með góðum vinum. (23. sept. - 22. október) Þér tekst að finna góða lausn á vandamáli. Þú skalt samt ekki ganga út frá neinu sem vísu varðandi framtíðahorfur. Sporódreki (23. okt. - 21. nóvember) Farðu gætilega með greiðslukortið í dag. Þú leysir vanda bams. I kvöld væri upplagt að heimsækja eftirlætisveitingastaðinn. Bogmaóur (22. nóv. - 21. desember) Smáágreiningur getur kom- ið upp milli ástvina sem leysist með gagnkvæmri hreinskilni. Gættu hófs í kvöld. Steingeit (22. des. - 19. janúar) ** Þig virðist skorta þolinmæði til að ljúka verkefni sem bíður lausnar. Ástvinir eiga góðar stundir saman í dag. Vatnsberi (20. janúar - 18. febrúar) tih Eftir stranga vinnuviku veitir ekki af afslöppun, en ágreiningur getur komið upp milli vina um hvað skuli gera. Fiskar (19. febrúar - 20. mars) ’Sjt Þig langar að láta heimilis- störfin eiga sig og fara þess í stað út að skemmta þér. Ekki eyða of miklu í skemmtanir. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Sþár af þessu tagi byggjast ekki á traustum grunni visindalegra staöreynda. DÝRAGLENS í SJ-rfÐO HU T/L, l/V ée ae>or£>a þerr/t? [éGVBÍTf.. GRETTIR OPPI LÍTUI5 VBL órf i f HATTI V TOMMI OG JENNI LJÓSKA SMÁFÓLK IVE 60T TUE NUMBER5 FI6UREP 0UT, 0UT WM0 ARE TME5E PE0PLE WITM TME FUNNVCL0TME5, AND UUMAT 6AME ARE LUE PLAVIN6 ANVUUAV? 5-b |VE 60T TME NUMBER5 FI6UREP 0UT.BUT U)H0 ARE THE5E PE0PLE UUITH THE FUNNV CL0THE5 AND UJHAT 6AME ARE UUE PLAVIN6, ANVUUAV? © 1993 United Feature Syndicate, Inc. Ég er búinn að læra tölurnar, en hvaða fólk er þetta í skrýtnu fötunum, og hvaða spil erum við eiginlega að spila? Ég er búinn að læra tölurnar, en hvaða fólk er þetta í skrýtnu fötunum, og hvaða spil erum við eiginlega að spila? BRIDS Umsjón Guðm. Páll Arnarson Bandarískir bridsspilarar héldu vorleika sína í Kansas City í lok marsmánaðar sl. Hápunkt- ur leikanna er Vanderbilt-út- sláttarkeppnin, sem veitir sigur- sveitinni rétt til að keppa um landsliðaþátttöku á HM. Sveit undir forystu Howards Wein- stein (Nagy, Morse, Sutherlin, Sanders, Arnold) vann keppnina í þetta sinn, eftir að hafa sigrað Cliff -Russell (Lev, Berkowitz, Cóhen, Fallenius, Nilsland) í úr- slitaleik. Spil dagsins er frá úr- slitaleiknum: Austur gefur; NS á hættu. Norður Vestur ♦ Á10763 VÁK ♦ Á3 ♦ D854 ♦ KDG92 V G109874 ♦ 6 4 2 Austur iiiiii Suður ♦ 985 ♦ 84 41610963 ♦ 53 ♦ KDG10742 ♦ K7 Á öðru borðinu voru Sanders og Arnold í NS gegn Russell og Lev. Þar opnaði austur á þremur laufum. Sanders í suður ákvað að passa og vestur sagði þrjú grönd. Russell gat ekki stillt sig um að sýna hálitina með fjórum laufum og þar með var fjandinn laus. Sanders hélt tíglinum til streitu upp á 5. þrep, en Russ- ell breytti í fimm hjörtu. Sem voru dobluð, 4 niður: 1.100 í AV. Sanders varð svo reiður að hann tók spilabakkann og henti honum á næsta vegg. ótrúleg hegðun og raunar furðulegt að manninum skyldi ekki vísað úr keppni. Á hinu borðinu héldu Svíarnir Fallenius og Nilstand stillingu sinni. Þeir voru í NS gegn Weinstein og Nagy: Vestur Norður Austur Suður — — 3 lauf 3 tíglar 5 lauf Dobl Pass Pass Redobl Pass Pass 5 tíglar Dobl 5 hjörtu Pass Pass Dobl Pass Pass 6 tíglar Dobl Allir pass Vörnin var vægðarlaus: Út kom spaðaás, síðan tígulás og meiri spaði. Austur trompaði og spilaði hjarta. Vestur tók slagina þar og sendi suður inn á tromp. Vörnin fékk því tvo slagi á lauf í lokin: 1.700 í AV og 12 IMPar til sigurvegaranna. SKAK Umsjón Margeir Pétursson Á svæðamóti Frakklands og Benelux-landanna í Brussel í vor kom þessi staða upp í viðureign hollensku stórmeistaranna Pauls Van der Sterren (2.490) og Loeks van Wely (2.560), sem hafði svart og átti leik. 25. — Hxe7!, 26. Dxe7 (Þvingað því 26. dxe7?? — Rg4+ tapar drottningunni) 26. — Ha4! (Hótar bæði 27. — He4 og 27. — Hf4+. Nú kemst hvítur ekki hjá manns- tapi) 27. De8+ — Kg7 og Van der Sterren gafst upp. Þessir tveir skákmenn hlutu nokkuð óvænt sætin tvö sem til boða stóðu á millisvæðamótinu í sumar. Van Wely, sem er aðeins tvítugur, vann landa sinn John Van der Wiel í úrslitaskák í síðustu umferð. Um helgina: TK, SH og Hellir halda atskákmót dagana 28.-29. maí í húsnæði Taflfélags Kópa- vogs í Hamraborg 5. Mótið hefst föstudaginn 28. maí kl. 20 og verður fram haldið daginn eftir kl. 14.

x

Morgunblaðið

Publication Type:
Collection:
Gegnir:
ISSN:
1021-7266
Language:
Volumes:
111
Issues:
55740
Registered Articles:
3
Published:
1913-present
Available till:
30.09.2024
Skv. samningi við Árvakur útgáfufélag Morgunblaðsins er ekki hægt að sýna efni frá síðustu þremur árum Morgunblaðsins í almennum aðgangi á Tímarit.is.
Locations:
Editor:
Vilhjálmur Finsen (1913-1921)
Þorsteinn Gíslason (1921-1924)
Jón Kjartansson (1924-1947)
Valtýr Stefánsson (1924-1963)
Sigurður Bjarnason frá Vigur (1963-1970)
Matthías Johannessen (1959-2000)
Eyjólfur Konráð Jónsson (1960-1974)
Styrmir Gunnarsson (1972-2008)
Ólafur Þ. Stephensen (2008-2009)
Davíð Oddsson (2009-present)
Haraldur Johannessen (2009-present)
Publisher:
Félag í Reykjavík (1924-1947)
Árvakur (1947-present)
Keyword:
Description:
Dagblað. Fréttir og greinar um innlend sem erlend málefni.
Sponsor:
Supplements:

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: 117. tölublað (27.05.1993)
https://timarit.is/issue/125577

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

117. tölublað (27.05.1993)

Iliuutsit: