Morgunblaðið - 27.05.1993, Side 51
51
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 27. MAÍ 1993
NBA II KNATTSPYRNA / URSLITALEIKUR EVROPUKEPPNI MEISTARALIÐA
New York
stendur
vel að vígi
LIÐ New York Knicks stendur
vel að vígi eftir tvo sigra gegn
Chicago Bulls í úrslitum aust-
urdeildar NBA deildarinnar í
körfuknattleik. Liðin mættust
öðru sinni í New York í fyrri-
nótt og heimamenn sigruðu
96:91.
Frá Gunnari
Valgeirssyni i
Sandaríkjunum
Sigur New York var sá 27. í röð
á heimavelli. Chicago hefur nú
aftur á móti tapað tveimur leikjum
í röð í úrslitakeppn-
inni í fyrsta skipti
síðan 1990.
Um miðjan ijórða
hluta var Scottie Pip-
pen rekinn af velli fyrir að henda
boltanum í dómara og liðið tvíefldist
og minnkuðu muninn í þijú stig. Lið-
ið hafði síðan alla möguleika á að
jafna, en miðheijinn Bill Cartwright
klúðraði þremur af íjórum vítaskot-
um á lokamínútunni, og Knicks hafði
sigur.
Lykillinn að sigrinum var að liði
New York tókst að halda Michael
Jordan niðri í seinni hálfleik. Þá hitti
hann aðeins úr 5 af 16 skotum, og
í leikjunum tveimur hefur hann að-
eins hitt úr 8 af 29 skotum í seinni
hálfleik. Patrick Ewing gerði 26
stig í leiknum fyrir New York og
Douc Rivers 21. Bakvörðurinn John
Starks gerði hins vegar mikilvæg-
ustu körfuna fyrir liðið á lokamínút-
unni með glæsilegustu troðslu úr-
slitakeppninnar, og jafnvel vetrarins
í NBA. Starks stökk upp af endalín-
unni, færði knöttinn úr hægri hendi
yfir í þá vinstri í loftinu, og tróð
með miklum tilþrifum yfir þijá
stærstu leikmenn New York. Jordan
var stigahæstur hjá Chicago, gerði
36 stig.
Draumurinn ræltist
Bemard Tapie, forseti og eigandi Marseille brosir sínu. breiðasta ásamt marka-
skoraranum Basile Boli, Abedi Pele og Jean-Jacques Eydelie, eftir að sigurinn
og þar með bikarinn var í höfn. Það hefur eflaust verið blendin tilfinning fyr-
ir Jean-Pierre Papin (sjá mynd) að fylgjast með fyrrum félögum sínum í Mar-
seille vinna Evrópukeppni meistaraliða í fyrsta sinn, og geta ekki fagnað með.
VARNARMAÐURINN Basile
Boli, sem grét er Olympique
Marseille tapaði eftir víta-
spyrnukeppni í úrslitaleik Evr-
ópukeppni meistaraliða fyrir
tveimur árum, var hetja liðsins
í gærkvöldi. Hann gerði eina
mark leiksins með skalla og
þar með varð Marseille fyrst
franskra liða til að hampa eftir-
sóttustu verðlaunum evrópsk-
ar knattspyrnu.
Italska liðið var mun betra í fyrri
hálfleik og fékk Massaro tvívegis
tækifæri til að koma liði sínu yfir á
fyrstu 20 mínútum leiksins. En Rudi
Völler og Ghanamaðurinn Pele börð-
ust eins og ljón og voru ágengir við
mark AC Milan áður en Boli skoraði
markið sem réð úrslitum. Pele
fiskaði hornspyrnuna sem færði
markíð með því að setja boltann
sjálfur yfir endalínuna.
Knattspyrnumaður Evrópu,
Marco van Basten, náði ekki að sýna
hvað í honum býr enda ekki kominn
í toppæfíngu eftir uppskurð í desem-
ber. Þó svo að Papin væri skipt inná
fyrir Donadoni í upphafi síðari hálf-
leiks náði liðið ekki að bijóta niður
sterkan varnarmúr Marseille.
„Ég held að við hefðum verðskuld-
að sigur í Bari fyrir tveimur árum,
en þessi sigur var mikilvægari því
við náðum að leggja besta lið heims
að velli,“ sagði Raymond Göthals,
þjálfari Marseille.
„Ég held að úrslitin hafi ráðist í
fyrri hálfleik þegar við náðum ekki
að nýta okkur þau marktækifæri
sem við fengum. Við vorum með
leikinn í okkar höndum þar til Mar-
seille skoraði," sagði Capello, þjálf-
ari AC Milan.
Bernard Tapie, forseti og eigandi
Marseille, náði loks að láta drauminn
rætast. Hann sagði að vonandi væri
þetta til þess að önnur frönsk lið
fengju meira sjálfstraust. „Þetta er
mikill sigur fyrir franska knatt-
spyrnu,“ sagði Tapie.
AC Milan - Sebastiano Rossi, Mauro Tas-
sotti, Paolo Maldini, Demetrio Albertini,
Aiessandro Costacurta, Franco Baresi,
Gianluigi Lentini, Frank Rijkaard, Marco
van Basten ( Stefano Eranio 79.), Roberto
Donadoni (Jean-Pierre Papin 55.), Daniele
Massaro.
Marseille - Fabien Barthez, Jocelyn Ang-
loma (Jean-Philippe Durand 62.), Eric Di
Meco, Basile Boli, Franck Sauzee, Marcel
Desailly, Jean-Jacques Eydelie, Alen Boksic,
Rudi Voeller (, Jean-Christophe Thomas
79.), Abedi Pele, Didier Deschamps.
BADMINTON / HM I BIRMINGHAM
KNATTSPYRNA / U-16 ARA KVENNA
Góðbyijun
í Birmingham
ÍSLENSKA landsliðið í bad-
minton byrjaði heimsmeist-
aramótið í Bjrmingham með
því að sigra íra 3:2 í liða-
keppninni sem hófst í gær.
Þetta var fyrsti sigur íslands
á írum frá upphafi.
Broddi sigraði Michael Watt
nokkuð örugglega í einliða-
leik, 15:11 og 15:13. Broddi komst
í 7:0 í fyrri lotunni og síðan 11:7
og loks 15:11. Watt byijaði síðari
lotuna vel og komst í 0:3 en
Broddi snéri leiknum sér í hag
og breytti stöðunni í 6:3 en síðan
var leikurinn jafn upp í 13:13, en
þá tók íslandsmeistarinn af skarið
og sigraði, 15:13.
Broddi og Ámi Þór unnu Bruce
Topping og Michael O’Meara í
tvíliðaleik, 15:12 og 15:10. Loks
sigrðu Guðrún Júlíusdóttir og
Árni Þór þau Graham Henderson
og Jayne Plunkett í tvenndarleik,
15:6 og 17:16.
Bima Petersen tapaði fyrir
Sonya McGinn 6:11 og 3:11 í einl-
iðaleik. Tvíliðaleikur kvenna tap-
aðist einnig, en hann léku Birna
og Guðrún Júlíusdóttir gegn Anne
Stephens og Jayne Plunkett. ís-
lensku stúlkumar töpuðu naum-
lega í fyrri lotunni, 14:18 og síðan
11:15. Þar sem þetta var síðasti
leikurinn var sigur íslands í höfn
áður en hann fór fram.
Eins og áður segir var þetta
fyrsti sigur íslands á írum. Fyrst
léku ísiendingar gegn ímm í Nor-
egi 1981 og töpuðu 0:7. Síðan 2:3
í Svíþjóð 1986 og einnig 2:3 í
Danmörku 1991.
íslenska liðið mætir liði Banda-
ríkjanna, sem tapaði í gær fyrir
Tékkneska lýðveldinu 2:3, í dag.
44 þjóðir taka þátt í liðakeppninni
á HM. Einstaklingskeppnin hefst
á mánudaginn.
Tap gegn Svíum
„ÉG ER auðvitað ekki ánægð
með að tapa með fjórum mörk-
um í landsleik, en ég er alls
ekki óánægð með stelpurnar,
þær stóðu sig vel miðað við
aðstæður," sagði Vanda Sigur-
geirsdóttir þjálfari U-16 ára
landsliðs kvenna eftir 1:5 tap á
móti Svíum f vináttulandsleik á
Varmárvelli f gærkvöldi.
Sænsku stúlkurnar byijuðu af
krafti og eftir tæpan hálftíma
vom þær búnar að gera þrjú mörk,
þar af tvö beint úr
Stefán hornspyrnum, og
Eiriksson var staðan þannig í
skrifar hálfleik. Islensku
stúlkurnar börðust
mun betur í síðari hálfleik og kom-
ust í kjölfarið nokkuð inn í leikinn.
Þær sænsku gerðu fjórða markið
beint úr aukaspyrnu á 70. mínútu,
og fimm mínútum síðar kom ís-
lenska markið. Helga S. Gunnars-
dóttir var stödd rétt fyrir framan
miðju og ætlaði væntanlega að
senda knöttinn inn í teig, en skaut
í staðinn föstu skoti að marki Svía,
boltinn skoppaði einu sinni í teign-
Morgunblaðið/Þorkell
Erla Hendriksdóttir sem er hægra
megin á myndinni átti ágætan leik og
er hér í harðri baráttu um boltann í
leiknum í gærkvöldi.
um og'síðan yfir sænska markvörð-
inn og inn. Svíar bættu svo síðasta
markinu við undir lokin.
íslenska liðið lék í síðari hálfleik
oft á tíðum ágætlega. Ingibjörg
Ólafsdóttir var best í íslenska lið-
inu, og Hulda M. Rútsdóttir, Erla
Hendriksdóttir og Katrín Jónsdóttir
léku einnig vel. Sænska liðið spilaði
mjög vel, sérstaklega í fyrri hálf-
leik. Pia Sundhage þjálfari liðsins
sagðist líka vera ánægð með leik
liðsins í fyrri hálfleik, en samspilið
hefði ekki gengið eins vel í þeim
síðari enda hefði mótspyrna ís-
lenska liðsins verið mun meiri þá.
ÚRSLIT
Bikarkeppni KSÍ, 1. umferð:
Hvatberar - UBK..................0:9
- Valur Valsson 3, Jón Þórir Jónsson 2,
Guðmundur Þórðarson 2; Hákon Sverrisson,
Kristófer Sigurgeirsson.
Árvakur - BI.....................1:7
Rúnar Sigurðsson - Jóhann Ævarsson 4,
Örn Torfason, Stefán Tryggvason og Guð-
mundur Gíslason.
Vináttulandsleikur kvenna U-16
ára, Varmárvelli Mosfellsbæ:
ísland - Svíþjóð.................1:5
Helga S. Gunnarsdóttir - Louise
Holmqvist-Sköld 3, Sara Call, Viktoria
Svensson.