Morgunblaðið - 04.07.1993, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.07.1993, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4. JULI 1993 7 Dame Edna Það eru ekki margir sem komast upp með að henda stórstirninu Jane Fonda á dyr,tuska Chubby Checkertil eins og smástrák á meðan verið er að kenna honum að tvista og fá sinn mesta aðdáanda, Douglas Fairbanks yngri, í heimsókn. Engin nema Dame Edna Everage og ef þú hefur ekki þegar haft þá ánægju að kynnast henni ættirðu ekki að láta þetta stórgóða tækifæri þér úr greipum ganga! Prakkarinn 2 Lilli er martröð en Trixie gefur honum ekkert eftir þegar prakkastrik eru annars vegar. Þessi sakleysislegi, Ijóshærði og bláeygi keppinautur Lilla heldur honum vel við efnið. En Lilli verður að passa sig vilji hann ekki sitja uppi með fósturmóður númer 32 í röðinni! Sá stóri Hvernig liði þér ef þú værir 13 ára þegar þú færir að sofa en þrítugur þegar þú vaknaðir? Hláturinn lengir lífið en við viljum vara við því að mikill hlátur í of stórum skömmtum getur valdið einkennilegum brosgrettum í andliti. Það er því rétt að hita vel upp fyrir þessa mynd með Fyndnum fjölskyldumyndum og Dame Ednu! Hver er Harry Crumb? Hann hefur taugar úr stáli, vöðva úr járni og heila úrtré! Þessi skrítna lýsing hér að framan á að sjálfsögðu við einkaspæjarann Harry Crumb en með hlutverk hans fer hinn viðkunnanlega íturvaxni John Candy. ROME L Fyndnar fjölskyldumyndir Bk Þessir þættir eru án efa B einhverjir þeir vinsælustu H fyrr og siðar enda fátt skemmtilegra en að hlæja ■P sig máttlausan r að meinfyndnum myndglefsum af náunganum! Addams-fjölskyldan Á þaki fjölskyldusetursins er stór pottur. í honum bíður eitthvað óvænt, sjóðandi heitt og hættulega fyndið. Þannig hefstsagan um Morticiu Addams, eiginmann hennarog eldheitan elskhuga, Gomez, Hönd, Fester frænda og fleiri kynlega kvisti sem halda þessari vönduðu gamanmynd á furðuflugi! Freddie Starr Búðu þig undir hárbeitta breska brandara með alþjóðlegu ívafi. Búðu þig iíka undir að sjá nýjar hliðar á hnefaleikamanninum Frank Bruno og kaupsýslumanninum, poppstjörnunni og leikaranum Adam Faith. Reyndu ekki að velta þvi fyrir þér hvað Freddie Starr tekur sér fyrir hendur næst - það veit enginn! k r Rowan Atkinson Þessi breski grínisti þykir með þeim bestu í heimi og við ábyrgjumst að þetta er einhver fyndnasti þáttur sem sýndur hefur verið á Stöð 2! Beint á ská 21/2 Þessi mynd er svo fyndin að fólk tekur loftköst, svo ekki sé minnst á hlátursköst, i stólunum heima í stofu. Það er góð hugmynd að færa stofuborðið frá sófanum eða sitja bara á gólfinu þegar lögregluforingi allra tíma, Frank Drebin, birtist á skjánum. Það er ekki vitað hvort hann hefur mælanlega greind og enginn veit hvaða öfl reka hann áfram í baráttunni gegn glæpum! Elskan, ég minnkaði börnin Frábærlega vel geró gamanmynd fyrir alla fjölskylduna frá Walt Disney. Þegar krakkarnir lenda í nýjustu uppfinningu pabba síns, minnkunarvélinni, upphefst ævintýraleg og fyndin leit að þeim því þau eru aðeins nokkrir millímetrar á hæð! Sólstingur Þegar pabbi gamli hrekkur upp af bíða erfingjarnir spenntir eftir að erfðaskráin verði lesin upp En sá gamli vissi sínu viti og auðæfum hans fylgja skilmálar. Það barna hans sem fyrst eignast afkomanda dettur í lukkupottinn. Það verður heldur betur hamagangur í öskjunni og nú er bara að sjá hvert þeirra verður fyrst! Sveitasæla! Chevy Chase hefur leikið í mörgum óborganlegum grínmyndum og Sveitasæla! er með þeim fyndnari. Hafir þú ekki séð myndina skaltu ekki fyrir nokkra muni missa af henni. Ef þú hefur séð hana þá mælum við með þvíað þúsjáirhana aftur vegna þess að þú hlóst svo mikið síðast að þú misstir af nokkrum drepfyndnum atriðum! Buckfrændi KSSKlIinHESfll Hann er neyðarúrræði með gott hjartalag og hann á að gæta fimmtán ára stelpu og tveggja grislinga vegna veikinda í fjölskyldunni! John Candy er Buck frændi og hann miðlar óspart af broslegu innsæi sínu í þessari skemmtilegu gamanmynd. Krakkarnir eru ekkert yfir sig hrifnir en Buck frændi kann á þeim lagiðl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.