Morgunblaðið - 05.08.1993, Qupperneq 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
19
Brjóstmynd af
Meulenberg’
biskupi afhjúpuð
MARTEINN Meulenberg var fyrsti biskup hinnar aimennu ka-
þólsku kirkju á Islandi eftir að Jón biskup Arason leið. Laugardag-
inn 24. júlí var afhjúpuð bronsafsteypa af gifsmynd af biskupnum
sem Guðmundur Einarsson frá Miðdal gerði nokkru eftir 1930.
Marteinn Meulenberg var fædd-
ur 30. október 1872 í Þýskalandi.
Hann hlaut prestsvígslu árið 1899
en til íslands kom hann árið 1903
og allt hans starf upp frá því var
helgað þjónustu hinnar kaþólsku
kirkju á Islandi. Rossum kardináli
vígði hann til biskups 2q. júní
1929. Meulenberg lést í Reykjavík
3. ágúst 1941 og hvílir nú í graf-
reitnum bak við Kristskirkju.
Nú eru 52 ár liðin frá andláti
biskupsins og vilja margir halda
minningu hans í heiðri. Grétar
Eiríksson tæknifræðingur hafði
því forgöngu fyrir því að tekin var
bronsafsteypa af brjóstmynd sem
Guðmundur Einarsson frá Miðdal
gerði af Marteini Meulenberg á
árunum upp úr 1930. Helgi Gísla-
son myndhöggvari var fenginn til
að hafa umsjón með því verki.
Laugardaginn 24. júlí var myndin
svo afhjúpuð við Kristskirkju á
Landakotstúni í Reykjavík. Við
athöfnina voru viðstaddir, auk
safnaðarmeðlima, herra Alfred
Jolson biskup, sr. Patrick sóknar-
prestur og fleiri kennimenn.
Fyrstur útlendinga til
að fá ríkisborgararétt
Grétar Eiríksson minntist þess
að Meulenberg var fyrstur er-
lendra manna til að öðlast íslensk-
an ríkisborgararétt strax eftir að
ísland varð fullvalda 1918. Meu-
lenberg varð fyrsti íslenski biskup
kaþólskrar kirkju eftir siðaskipti
og hann leit svo á að hann væri
arftaki Jóns Arasoriar. Grétar
sagði Meulenberg biskup hafa
notið trausts og virðingar allra
sem af honum höfðu kynni, hvar
í trúfélagi þeir voru. Hann vildi
minnast góðs manns og eins hins
merkasta kirkjuhöfðingja en Meu-
lenberg var mikill athafnamaður
og stóð fyrir miklum framkvæmd-
um á vegum kirkjunnar, ber þar
hæst dómkirkju Krists konungs á
Landakotstúni. Grétar bað loks
fermingarbarn Meulenbergs bisk-
us, Gunnar J. Friðriksson fram-
kvæmdastjóra, um að afhjúpa
myndina.
Alfred Jolson flutti í ávarpi sínu
þakkir til allra þeirra sem hefði
Kirkj uhöf ðingi
GUNNAR J. Friðriksson afhjúpaði myndina af biskupnum.
dreymt um að heiðra minningu
Meulenbergs biskups og hefðu
komið á stall þessari bijóstmynd.
Ennfremur sagði hann: „Meulen-
berg biskup dreymdi um að ísland
yrði kaþólskt land og þess vegna
rættist draumur hans um dóm-
kirkjuna sem hér stendur. Við bíð-
um þess að sá dagur renni upp
að eining ríki meðal íslendinga —
meðal allra íbúa þessa verðuga
lands. Enn í dag gætir sterklega
anda kaþólsks siðar í hjarta og
huga íslendinga."
Wonderbra
c*>
m
rníous
FEET
Undrahaldarinn frá
er kominn aftur
hvítur, svartur, A og B skálar
fympií
Laugavegi 26, s. 13300
Kringlunni 8-12, s. 33600
Höfðar til
.fólksíöllum
starfsgreinum!
Eistlendingar útskrifast
Thdro
Vatnsþéttingarefni
til kústunar
- POKAPÚSSNING
- HRAUN, GRÓFT EÐA f(NT
- LITUÐ PÚSSNING
- SKRAUTPÚSSNING
Þaulprófuð og með yfir 15 ára
reynslu á íslandi.
S steinprýði
Stangarhyl 7, simi: 672777.
RÝMINGARSALA
á herrafatnaði hefst í dag!
Verslunin hættir með herrafatnað
og markaðsmál en í þeim hluta
námskeiðsins gerðu nemendurnir
viðskiptaáætlun fyrir eitthvað
' ákveðið verkefni.
Dæmi um viðskiptaáætlanirnar
eru áætlun á innflutningi sjávaraf-
urða til Eistlands, timburútflutningi
frá Eistlandi, innflutningi á ís-
lenskri ull til Eistlands og áætlun
um fyrstu einkareknu sjónvarps-
stöðina í Eistlandi, sem væntanlega
hefur útsendingar í október að sögn
Arna.
STJÓRNUNARFÉLAGIÐ hefur
nú útskrifað í annað sinn tólf
einstaklinga frá Eystrasaltslönd-
unum og í þetta sinn voru þeir
frá Eistlandi. Námskeiðið á veg-
um Sljórnunarfélagsins er liður
í aðstoð íslenska ríkisins við
Eystrasaltsríkin. I fyrra útskrif-
uðust tólf Litháar og segir Arni
Sigfússon, framkvæmdastjóri
Stjórnunarfélagsins, að mikil
tenging sé enn milli þeirra og
Islands. Bæði Litháarnir í fyrra
og Eistlendingarnir nú hafa
margir hveijir sótt menntun sína
til virtra háskóla utan lands síns
að sögn Arna. Hann segir góðar
líkur á því að á næsta ári verði
tekið við tólf manns frá Lett-
landi.
Eistlendingarnir tólf hafa verið
hér á landi sl. fimm vikur og segir
Árni að þeir hafi bæði kynnst ís-
lensku atvinnulífi og heimilum vel
en Eistlendingarnir gistu allir á
heimilum JC- og Lionsfélaga og
hver þeirra fór í viku í eitt fyrir-
tæki til að kynnast rekstri þess.
Gerðu viðskiptaáætlanir
Á námskeiði Stjórnunarfélagsins
segir Árni að sérstök áhersla hafi
verið lögð á svokallaða árangurs-
iykla, sem beinast m.a. að því að
menn nái persónulegum árangri.
Farið var í viðskiptaensku, kennt á
tölvur og farið ofan í stjórnunar-
Útskriftarveisla
Morgunblaoio/bvemr
EISTLENDINGARNIR tólf ásamt Jóni Baldvin Hannibalssyni utan-
ríkisráðherra og Árna Sigfússyni, framkvæmdastjóra Stjórnunarfé-
lagsins. Námskeiðið var liður í aðstoð Islendinga við Eystrasaltsríkin.
- lofar góðu!
Þaö verða sannkallaðir *
í Súlnasal laugardagskvöld!
ffföómsoeitin
GLEÐIGJAFAR
Carl Meller - hljómborö
Einar Bragi - sax
Árni Scheving - bassi
Einar Scheving - trommur
ANDRE BACHMANN
6.BJARNI ARA
ásamt MÓEIÐI
JÚNÍUSDÓTTUR
V
'%\W Ilif
f/O/jmrr <■ \o e/WAWO/t rsÁem/Jifi/1
OPIÐ FRÁ KLUKKAN 19:00 - 03:00