Morgunblaðið - 05.08.1993, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 05.08.1993, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993 31 undar Kristinssonar samúð mína. Guð blessi minningu hans. Gunnar Birgisson, formaður bæjarráðs Kópavogs. Með örfáum orðum vil ég minn- ast mæts vinar míns, Gissurar Jör- undar Kristinssonar, framkvæmda- stjóra Húsnæðisnefndar Kópavogs, er lést 2. júlí síðastliðinn langt um aldur fram. Það var mánudaginn 2. ágúst síðla dags, að ég var staddur um borð í skipi á ísafjarðardjúpi og var kallaður í símann um borð, var mér tjáð að vinur minn Gissur Jörundur Kristinsson væri látinn. Mig setti hljóðan, enda búinn að vera fjarri mannabyggðum án útvarps og síma heila viku. Klukkan hafði greinilega ekki stöðvast á meðan. Kynni okkar Gissurar hófust í byijun árs 1983 er ég hóf störf á Verkfræðistofu Guðmundar Magn- ússonar, en þáverandi stjórn Verka- marinabústaða í Kópavogi var að ljúka byggingu tveggja fjölbýlishúsa við Ástún í Kópavogi og var undir- búningur hafinn að byggingu íbúða við Álfatún. Er Guðmundur Magn- ússon verkfræðingur lést 14. apríl 1987 kom það í minn hlut að eiga meiri samskipti við Gissur, meðal annars um undirbúning og bygg- ingu 125 félagslegra íbúða við Hlíð- , arhjalla og Trönuhjalla í Kópavogi, I auk yfir 100 íbúða í Smárahvamms- landi. Gissur naut virðingar þeirra sem störfuðu við og fylgdust með mál- efnum félagsíbúðakerfisins, bæði hjá hinu opinbera og í öðrum sveit- arfélögum, en mest í Kópavogi. Störf hans að uppbyggingu félags- legra íbúða í Kópavogi bera vott um að hér var mikill vinnuþjarkur á ferð, því hvergi á landinu hefur einn maður með einn aðstoðarmann stuðlað að eins mikilli uppbyggingu þess kerfis. Draumur hans í seinni tíð var sá að geta minnkað við sig vinnuna og snúið sér meira að sínum hugðarefnum, enda hafði nær allur hans tími farið í vinnuna, bæði á 1 skrifstofunni og það sem unnið var við tölvuna heima. Eitt af aðaláhugamálum Gissurar voru tölvur. Þau mál voru ekki tek- in neinum vettlingatökum og átti I hann eina fullkomnustu gerð einka- * tölvu auk ógrynni forrita. Margir leituðu ráða hjá Gissuri í tölvumál- um, og var hann ávallt reiðubúinn að miðla af þekkingu sinni á því sviði og spáði sjaldan í hvað tíman- um liði. Ég minnist atviks fyrir tveim árum er ég hafði unnið að verkefni í tölvunni minni í tvær vik- ur sem átti að skila kl. 12 á laugar- dagsmorgni. Seint á föstudags- kvöldi er vinnu var að ljúka kemur tilkynning á skjáinn um að tölvu- diskurinn sé ónýtur og þar með öll vinnan. Snemma næsta morgun hringi ég í Gissur sem þá sat við sína tölvu að vanda og rek raunir mínar. Gissur segir að ég skuli bara koma og hann skuli athuga hvað hann geti gert. Viti menn, eftir klukkutíma leit var allt komið í lag eftir að hafa prófað ýmis meðul. Gissur var mikill áhugamaður um stangveiði. Ræddum við það áhuga- mál hans mikið nú síðustu árin. Ég átti því láni að fagna að standa hluta úr degi með honum á bökkum Ell- iðaá 17. júlí síðastliðinn, kom þá berlega í ljós hvað hann naut útiver- unnar þó aflinn væri rýr. Hann átti góðan og vandaðan útbúnað og hugðist í framtíðinni gefa þessu áhugamáli sínu meiri tíma. Gissur stóð vörð um hagsmuni þeirra sem minna mega sín í þjóðfé- íaginu, það var hans hugsjón. í störfum sínum var Gissur formfast- ur og nákvæmur, fyrir það naut hann virðingar þeirra sem hann átti viðskipti við. Flestum var þetta góð- ur skóli. Ég er þakklátur forsjóninni g fyrir að hafa fengið tækifæri að ® kynnast Gissuri Jörundi Kristins- syni. Ástvinum hans öllum, en þó sér- staklega Ástu konu hans, börnum, og bamabörnum sendi ég einlægar Isamúðarkveðjur. Megi minning hans haldin í heiðri. Sævar Geirsson. Með nokkrum fátæklegum orð- _j um viljum við minnast vinar okkar Gissurar, sem féll sviplega frá 28. júlí sl. Kynni okkar hófust með til- komu tölva, en öll áttum við sameig- inlegt það áhugamál að grúska á því sviði. Þessi kynni urðu mjög náin og varla leið sú vika, að við hefðum ekki samband hvert við annað. Það sýnir best hvað Gissur var lifandi og virkur, að hann var kom- inn á miðjan aldur þegar hann fékk brennandi áhuga á tölvum, en var samt manna duglegastur að fylgj- ast með öllum nýjungum á því sviði. Hann var jafnan reiðubúinn að leysa hvers manns vanda, ráðagóð- ur og vel að sér. Gissur var örlátur, glaðlyndur og góður félagi með afar ljúfa lund, traustur og hjálpsamur. í hóp okkar hefur verið höggvið stórt skarð sem ekki verður fyllt. Gestrisni Ástu og Gissurar var við brugðið og nutum við hennar ávallt. Með djúpum söknuði kveðjum við góðan dreng og vottum fjölskyldu hans okkar innilegustu samúð. Sigurður, Svana og félagar. Fleiri minningargreinar um Gissur Jörund Kristinsson bíða birtingar og munu birt- ast i blaðinu næstu daga. + Ástkær dóttir okkar og systir, ÁSLAUG ÞORSTEINSDÓTTIR, Álfhólsvegi 75, lést þann 2. ágúst í Sahlgrenska sjúkra- húsinu í Gautaborg. Ellen Pálsdóttir, Gunnar Kristjánsson, Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Hrefna Gunnarsdóttir, Gunnar Gunnarsson. Systir mín, GUÐBJÖRG SVEIIMSDÓTTIR, síðasttil heimilis á vistheimilinu Seljahlfð, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju föstudaginn 6. ágúst kl. 13.30. Karl Sveinsson. + Móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LOVÍSA ÞÓRÐARDÓTTIR, Suðurbraut 14, Hafnarfirði, áður Ártúni 3, Selfossi, sem lést á Sólvangi 3. ágúst, verður jarðsungin frá Selfosskirkju laugardaginn 7. ágúst kl. 13.30. ' Ásta Lúðvfksdóttir, Geir Gunnarsson, Sesselja Lúðvfksdóttir, Hjörvar Valdemarsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuleg eiginkona min og móðir okkar, INGVELDUR RÓSA GUÐJÓNSDÓTTIR, Rauðanesi, Borgarhreppi, er lést 31. júlí, verður jarðsungin frá Borgarneskirkju laugardaginn 7. ágúst kl. 14.00. Jarðsett verður að Borg. Viggó Jónsson, börnin og fjölskyldur. + Ástkær móðir okkar, ÞORBJÖRG GRÍMSDÓTTIR, áðurtil heimilis á Skólavörðustfg 24a, Reykjavík, andaðist á Droplaugarstöðum 3. ágúst sl. Jarðarförin auglýst síðar. Fyrir hönd aðstandenda, Aðalbjörn Aðalbjörnsson, Guðrún Aðalbjörnsdóttir. + Móðir okkar, systir og amma, HERMÍNA S. TAVSEN, Háholti 3, Hafnarfirði, lést í Landspítalanum sunnudaginn 1. ágúst. Jarðsett verður frá Víðistaðakirkju, Hafnarfirði, föstudaginn 6. ágúst kl. 13.30. Bára K. Pétursdóttir, Gunnar Pétursson, Sigurður Á. Jónsson, Fylkir A. Jónsson, Elvar S. Jónsson, systkini og barnabarn. + Ástkæreiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ ÁSMUNDSDÓTTIR, Gilsbakka 1, Seyðisfirði, verður jarðsungin frá Seyðisfjarðarkirkju föstudaginn 6. ágúst kl. 14.00. Fyrir hönd aðstandenda, Guðmundur Emilsson. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir, tengdamóðir og amma, ANIKA SJÖFN BÉRNDSEN, Hraunbæ 88, Reykjavík, lést sunnudaginn 1. ágúst. Jarðarförin fer fram frá Háteigskirkju þriðjudaginn 10. ágúst kl. 13.30. Egill Guðmundsson, Áslaug Halldóra Berndsen, Þórunn Egilsdóttir, Egill G. Egilsson, Rúna Egilsdóttir, Áslaug Pálsdóttir, Leif Hansen og barnabarn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang- amma, ELÍSA KATRÍN ERLENDSDÓTTIR frá Snjallsteinshöföa, dvalarheimilinu Lundi, Hellu, lést 2. ágúst. Otför hennar verður gerð frá Skarðskirkju á Landi laugardaginn 7. ágúst kl. 14. Samúel Jónsson, Hlff Samúelsdóttir, Þórir Guðmundsson, Gunnur Samúelsdóttir, Pétur Kristjánsson, Guðjón Samúelsson, Guðrún Friðriksdóttir, Auður Samúelsdóttir, EggertWaage, Katrín Samúelsdóttir, Ólafur Helgason, barnabörn og barnabarnabörn. + Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, dóttir og tengdadóttir, KRISTRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Helgafelli, Helgafellssveit, sem lést 30. júlí sl. í St. Fransiskus- sjúkrahúsinu í Stykkishólmi, verður jarðsungin frá Helgafellskirkju föstu- daginn 6. ágúst kl. 14.00. Hjörtur Hinriksson, Jóhanna Kristín Hjartardóttir, Ástrfður Hjartardóttir, Guðmundur Helgi Hjartarson, Hinrik Hjartarson, Ragnheiður Hjartardóttir, Óskar Hjartarson, Ósk Hjartardóttir, Jóhanna Sigmundsdóttir, Ragnheiður Þorgeirsdóttir, Hinrik Jóhannsson. + Þökkum auðsýnda samúð vegna andláts eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, ÞÓRHALLS SIGJÓNSSONAR, Keldulandi 13, Reykjavík. Ólöf Hannesdóttir, Edda Þórhallsdóttir Peachie, Birna Þórhallsdóttir, Sigjón Þórhallsson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og útför eiginmanns míns og föður okkar, BALDURS HÓLMGEIRSSONAR, Bragagötu 38, Reykjavik. Þuríður Vilhelmsdóttir, Hólmgeir Baldursson, Birgir Ragnar Baldursson, Guðmundur Baldursson. (

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.