Morgunblaðið - 05.08.1993, Page 38

Morgunblaðið - 05.08.1993, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993 ... að vinna saman í garðinum TM Reg. U.S Pat Otl.—all rights reserved ° 1993 Los Angeles Times Syndicate inu? HÖGNI HREKKVÍSI BRÉF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík - Sími 691100 - Símbréf 691329 Sköpun - Erfðasynd - Skím Frá Jan Habets: HVERT er samband á milli sköpun- ar, erfðasyndar mannsins og skírn- arinnar? Sköpun kennir okkur um Guð, erfðasynd um náttúru manns- ins, skírn um sáluhjálp. Þess vegna er svarið mikilvægt fyrir sérhvern mann. Þegar biblían talar um sköpun heimsins 1250 f. Kr. gerir hún það ekki með orðum vísindamanna nú- tímans um „Big Bang“, heldur í orðabúningi síns eigin tíma, þ.e. með orðum sem minna jafnvel á goðsögn þessa tíma frá Babýlóníu. En mis- munur er skýr. Það eru ekki skurð- goð, heldur einn Guð, sem skapar himinn og jörð og ekki í stríði, held- ur með orði sínu. Sem saímtal sköp- unar velur Móse viku gyðinganna með sex virka daga og sjöunda dag, sem hvíld Guðs. Við brosum að „hvíld Guðs“. Jesús varði sig, þegar gyðingar ákærðu hann um að hann bryti hvíldardagshelgina, segjandi: „Faðir minn starfar til þessarar stundar, og ég starfa einnig" (Jh. 5,17). Nú kennir Gamla testamentið að gyðingar notuðu sabbat einnig fyrir guðsþjónustu. Auðvitað völdu heið- ingjar, sem urðu kristnir, heldur sunnudag, dag upprisu Jesú, fyrir guðsþjónustu. Við vitum að postu- lamir höfðu þegar árið 49, á kirkju- þingi í Jerúsalem, afnumið lögmál gyðinganna fyrir kristna út heiðingj- um (post. 14,1-29), þ.e. áður en ein bók biblíunnar var skrifuð. Sem kórónu verks síns skapaði Guð manninn. Móse notar mann- fræðilegt líkingamál. Eins og „Guð hvíldi", eins og við, starfar Hann nú sem leirkerasmiður, til að gera manninn. Mikilvægt er að Guð gerir manninn „eftir sinni eigin mynd“. Móse endurtekur það: „Hann skap- aði manninn (karl og konu) eftir Guð smynd“. Ef Guð hafði allt gert gott, þá skiljum við að Hann hafði gert manninn sérstaklega góðan. Fyrst og fremst mátti hann „drottna yfir ollum dýrum og gjöra sér jörðina undirgefna". Því að Guð vildi inni- legt samband við manninn. Hann gaf honum sérstakleg forréttindi skynsemi og hjartans. Aðeins mátti hann, sem sköpuð vera, sig ekki í óhlýðni jafna Guði, það sem sumir englar höfðu gert. Maðurinn varð þó óhlýðinn og Móse mælir það aft- ur í líkingamáli. Við sjáum tré með fallegum eplum í paradísargarði. Djöfullinn í mynd orms hefur tekið stað í trénu og bíður Evu og með lygi er það ekki erfitt að mála Guð öfundsaman. Eva varð óhlýðin, því hún át af eplum og Adam syndgaði líka. Maðurinn hafði ekki staðist raun að hlýða Guði. Hann syndgaði sjálfur en því að hann stóð þar sem ættfaðir mannkynsins komu afleið- ingar ekki aðeins niður á honum einum, heldur einnig á öllum niðjum hans. Þó syndin, sem við köllum erfðasynd, gerði okkur persónulega ekki skuldug, hafði hún áhrif á nátt- úru okkar. (Synd náttúru.) Vilji mannsins veiklaðist. Samhljómur við skaparann, menn og eigin líkama var trufluð. í staðinn fyrir samræmi og vináttu við Guð kom eigingirni, græðgi, drambsemi, holdleg fýsn og öfund. Var ráðagerð Guðs við menn nú eyðilögð? Alls ekki. Mósebók (1M 3,15) útskýrir að Guð lofaði strax sáluhjálp, að senda Son sinn, „Sæð konunnar til að meija höfuð djöfuls- ins“ og að bjarga mannkyninu. Guðs sonur varð hold, Hann bjó með oss og allir sem taka við Honum með endurfæðinguna í skírninni, þeim gefur Hann rétt til að verða Guðs börn, þeim er trúa á nafn hans (Jh 1,12). Það má spyija: Hvers vegna hindraði Guð ekki óhlýðni mannsins og afleiðingar syndarinnar? Það má spyija á móti: A maðurinn ekki að vera frjáls og verður þessi eining við Guð mannsins, sem hefur sannað ást til Guðs í lífsstríðinu ekki inni- legri en sú fyrsta manna? JAN HABETS, Stykkishólmi. HEILRÆÐI Göngugarpar! Sýnið aðgát í gönguferðum. Veljið leiðir við hæfí. KOMUM HEIL HEIM Víkveqi skrifar Þyrla Landhelgisgæzlunnar hef- ur verið mikið á ferðinni að undanförnu til að bjarga mannslíf- um. Einn daginn fór þyrlan t.d. í íjögur útköll. Enn og aftur vill Vík- veiji nota rými í dálkinum til að hvetja stjórnvöld til þess að hraða eftir mætti kaupum á nýrri og full- kominni björgunarþyrlu. Þeim pen- ingum sem til þyrlukaupa fara er vel varið, það er engin spurning. xxx Um fátt er meira rætt í knatt- spyrnuheiminum þessa dag- ana en hina miklu yfirburði Akur- nesinga í 1. deild. Að loknum 10 umferðum hafa Skagamenn 9 stiga forskot á næstu lið og telja verður yfirgnæfandi líkur á því að þeir hampi íslandsbikarnum í haust. Víkveiji brá sér upp á Akranes fyr- ir skömmu og fylgdist með leik ÍA og FH, sem þá var í öðru sæti. Yfirburðir ÍA voru slíkir að með fádæmum verður að telja í viður- eign tveggja toppliða í íslandsmóti. Hin góða staða Skagamanna kemur ekki á óvart. Þar fer saman styrk stjóm knattspyrnudeildar, góð þjálfun og mjög góðir og sam- stilltir leikmenn. Þegar tvíburarnir Bjarki og Arnar Gunnlaugssynir hættu sl. haust og fóru í atvinnu- mennsku gerði þjálfarinn, Guðjón Þórðarson, ráðstafanir til að fá menn í þeirra stað. Ólafur Þórðar- son sneri aftur frá Noregi og feng- inn var sterkur miðheiji frá Júgó- slavíu, Bibercic. Og Sigurður Jóns- son leikur betur en nokkru sinni, eftir meiðsli í fyrra, og munar um minna. í Morgunblaðinu sunnudaginn 25. júlí sl. var athyglisvert viðtal við Guðjón þjálfara. Þar kom fram að hann beitir vísindalegum aðferð- um við þjálfunina, sem hann sækir til Þýzkalands. Þetta eru greinilega mjög árangursríkar aðferðir, sem aðrir íslenzkir þjálfarar eiga vafa- laust eftir að taka upp í auknum mæli. Störf Guðjóns og árangur ýta sterkum stoðum undir þá skoðun margra, að hann eigi að verða næsti landsliðsþjálfari íslands. xxx Sumardaginn eina kalla Akur- eyringar 16. júní sl. Þann dag var sumarblíða fyrir norðan og menn vonuðust eftir góðu og hlýju sumri. En síðan hefur varla komið góður dagur þar til nú, að eitthvað er að rofa til fyrir norðan. Áhrif veðráttunnar eru mikil. Landbúnað- arstörf eru skammt á veg komin og ferðaþjónustan hefur tapað miklu fé. En menn mega ekki gleyma því að það er ekki á vísan að róa með veðrið hér í þessu norð- læga landi og mörg sumur hafa farið fyrir lítið hjá Sunnlendingum á síðustu árum. Bjartsýni ársins var það kallað þegar skátar settu upp sólúr í tengslum við landsmót sitt á Akur- eyri! XXX Víkveiji brá sér upp í Borgar- fjörð um verzlunarmanna- helgina og átti þar hina ánægjuleg- ustu dvöl. Geysilegur íjöidi fólks var í Borgarfirði um þessa helgi. Samkvæmt útvarpsfregnum var sömu sögu að segja frá fjölmörgum öðrum stöðum. Því vakti það undr- un Víkveija þegar hann kom til Reykjavíkur á sunnudagskvöld að miðbærinn var fullur af fólki. Það voru meira að segja biðraðir fyrir utan nokkrar krár og skemmtistaði! XXX Umferðin um helgina var jöfn og góð. Á tímabili gleymdi Víkveiji sér aðeins og ók fullgreitt. Þá birtist lögreglubíll á veginum fyrir framan. Lögreglumennirnir kveiktu blikkljósin í smá stund til aðvörunar, smávink, og Víkveiji hélt sér á löglegum hraða á leiðar- enda. Svona umferðareftirlit er til fyrirmyndar. Annars vakti það at- hygli Víkveija hve margir bílar voru eineygðir. Þessu þurfa bíleigendur að kippa í liðinn nú þegar fer að dimma hratt.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.