Morgunblaðið - 05.08.1993, Side 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 5. ÁGÚST 1993
SUND / EM í SHEFFIELD
Systkinin
nokkuð frá
sínu besta
BRYNDÍS Ólafsdóttir synti
200 m skriðsund á 2:08,35
sek. á Evrópumeistaramót-
inu í gær og Arnar Freyr,
bróðir hennar, sem keppti í
400 m fjórsundi, synti á
4.35,60. Bæði voru talsvert
frá sínum besta árangri i
þessum greinum.
Arnar, sem setti íslandsmet
í 400 m fjórsundi í apríl
sl. í Bandaríkjunum, er hann
synti á 4:34,23 mín., fékk tím-
ann 4:35,60 í gær og varð 22
af 24 keppendum í riðlakeppn-
inni. „Þetta er samt betra en
ég bjóst við,“ sagði Arnar Freyr
í samtali við Morgunblaðið í
gær. Hann missti úr æfingar
vegna veikinda fyrir stuttu.
„Þetta leit illa út tveimur vikum
fyrir mótið, mér gekk þá illa á
æfingum,“ sagði hann, en bætti
við að hann hefði komið talsvert
til síðan, þó svo hann væri ekki
T> að synda eins og hann gæti
best. „Ég hefði átt að geta gert
getur, miðað við góða tíma á
Möltu [á Smáþjóðaleikunum],
en veikindin settu strik í reikn-
inginn.“ Hann sagði fjórsundið
í gær erfiðustu greinina sem
hann tekur þátt í á mótinu, en
kvaðst vonast til að jafna sinn
besta tíma í 200 m fjórsundinu
á morgun, föstudag.
Bryndís var 28. og síðust í
riðlakeppninni í gær, en sagðist
þó ánægð með árangurinn. ís-
landsmet hennar er 2:06,23
mín., sett 1987. Hún sagði þetta
besta tíma sinn í greininni í
fimm ár og kvaðst ánægð, því
hún æfði fyrst og fremst fyrir
styttri vegalengdirnar.
KNATTSPYRNA
Markalaust
hjá stúlkunum
íslendingar gerðu markalaust
jafntefli við Bandaríkjamenn á
Norðurlandamóti ára kvenna, 20
ára og yngri, í Danmörku í gærí
Bandaríkin leika sem gestir á mót-
inu.
Reuter
Áskrifandi að meistaratitlinum!
TAMAS Damyi, ungverski ólympíu- og heimsmeistarinn, varð Evrópumeistari í 400 m fjórsundi í gær í fjórða skipti. Hér
er hann í lauginni í Sheffíeld í gær.
Damyi enn bestur
Vann Evrópumeistaratitilinn í 400 m fjórsundi í fjórða skipti
UNGVERSKI ólympíu- og
heimsmeistarinn Tamas
Darnyi sigraði í 400 metra fjór-
sundi i fjórða skipti á Evrópu-
meistaramóti, í Sheffield í gær.
Þýska stúlkan Van Almsick
vann þriðju gullverðlaun sín á
mótinu er hún sigraði í 200
metra skriðsundi.
Darnyi, sem er 26 ára, varð að
hafa mikið fyrir sigrinum í
fjórsundinu því Finninn Jani Sievin-
en veitti honum mikla keppni. Sie-
vinen, sem er aðeins 19 ára, hafði
forystu eftir flugsundið og Damyi
þá fjórði en Ungveijinn sótti í sig
veðrið og saxaði á forskotið í
bringu- og baksundinu og tók svo
framúr á síðustu metrunum á skrið-
sundsprettinum og var aðeins 0,27
sek. á undan í mark og fékk tímann
4:15.24 mín.
Van Almsick með þriðja gullið
Þýski táningurinn Franziska van
Almsick vann þriðju gullverðlaun
sín á mótinu í gær er hún sigraði
með nokkrum yfírburðum í 200
metra skriðsundi kvenna. Hún kom
í mark meira en tveimur sekúndum
á undan næstu stúlku á 1:57.97
mín. og var hálfri sekúndu frá
heimsmeti Heike Friedrich. Lumin-
ita Dobrescu frá Rúmeníu, broms-
verðlaunahafi frá EM 1987 og
1991, varð önnur á 2:00.39 mín.
Keppni var spennandi í 100
metra flúgsundi karla þar sem Pól-
verjinn Rafael Szukala bar sigurorð
af Rússanum Denis Pankratov með
aðeins 0,02 sekúndum. Szukala
varð annar í þessari grein á síðustu
Ólympíuleikum. Hann kom í mark
á 53.41 sek. sem er nýtt mótsmet.
Evrópumeistarinn frá 1991, Vla-
dislav Kulikov frá Rússlandi, náði
aðeins fímmta sæti.
Brigitte Becue frá Belgíu, sem
vann silfurverðlaun á EM 1989,
sigraði nokkuð ömgglega í 200
metra bringusundi kvenna á
2:31.18 mín. 17 ára rússnesk
stúlka, Anna Nikitina, varð önnur
á 2:32.15 mínútum.
■ Úrslit/41
FRJALSIÞROTTIR
Burrell stal senunni
Skaut bæði Christie og Lewis ref tyrir rass í 100 metra hlaupinu
BANDARÍKJAMAÐURINN Leroy Burrel stal heldur betur senunni
þegar hann sigraði í 100 metra hlaupi á alþjóðlegu stigamóti í
frjálsum íþróttum, sem haldið var íZúrich íSviss ígær. Hann
skaut bæði Ólympfumeistaranum Linford Christie og landa sínum
Carl Lewis ref fyrir rass, en hlaupinu var upphaflega stillt upp
sem einvígi þeirra á milli. Christie varð annar en Lewis aðeins
fjórði, Jon Drummond landi hans náði þriðja sætinu.
GOLF / NM
Landslið-
in tvö valin
Landslið íslands í golfí fyrir
Norðurlandamótið, sem
fram fer í Finnlandi um aðra
helgi, hafa verið valin. Karla-
landsliðið á Norðurlandameist-
aratitil að veija og það skipa
'eftirtaldir kylfíngar: Þorsteinn
Hallgrímsson, Siguijón Amars-
son. Björgvin Sigurbergsson,
Ulfar Jónsson, Bjöm Knútsson
og Þórður Ólafsson. Liðsstjóri
er Jóhann Benediktsson.
Kvennaliðið skipa eftirtaldar:
Karen Sævarsdóttir, Ragnhildur
Sigurðardóttir, Ólöf María Jóns-
dóttir og Herborg Amarsdóttir.
Liðsstjóri er Kristín Pálsdóttir.
Sigurinn var mikilvægur fyrir
Burrell sem komst ekki í
þriggja manna iið Bandaríkja-
manna í 100 metra hlaupi sem
keppa mun á HM í Stuttgart síðar
í þessum mánuði. Burrell kom í
mark á mjög góðum tíma, 10,02
sekúndum og Christie varð annar
á 10,03.
„Þar sem ég komst ekki í liðið
varð ég að gera þetta hlaup að því
besta á árinu," sagði Burrell kamp-
akátur. Lewis varð fjórði en sagðist
hafa hlaupið miklu betur en í Gates-
head sl. föstudag, þegar hann varð
í þriðja sæti. „Þetta var frábært
hlaup hjá Leroy,“ sagði Lewis.
Bandaríski meistarinn Andre Cason
varð í fimmta sæti.
Fyrsta tap Devers
Það dró líka til tíðinda í 100
metra hlaupi kvenna í gær. Gail
Devers frá Bandaríkjunum beið sinn
fyrsta ósigur á tímabilinu. Merlene
Ottey frá Jamaíku sigraði á 10,93
sek., næst besta tíma ársins, og
Gwen Torrence varð önnur á 10,98.
Gail Devers varð þriðja á 11,00 sek.
Annar Jamaíkubúi, Winthrop
Graham, kom á óvart í gærkvöldi
þegar hann sigraði í 400 metra
grindahlaupi og skaut þar með
bæði heimsmeistaranum og Ólymp-
íumeistaranum ref fyrir rass. Samu-
el Matete frá Sambíu varð annar
og Bandaríkjamaðurinn Kevin Yo-
ung varð þriðji. Graham kom í
mark á 47,60 sek. og er það næst
besti tími ársins i greininni.
Heike Drechsler sigraði í lang-
stökki kvenna með 7,21 meters
löngu stökki, sem er lengsta stökk
ársins. Maria Mutola frá Mósambík
náði besta tíma ársins í 800 metra
hlaupi kvenna, hljóp til sigurs á
einni mínútu 55,62 sek.
Kenýamaðurinn Yobes Ondieki
beið lægri hlut í 5000 metra hlaup-
inu fyrir Marokkómanninum Khalid
Skah, en Ondieki ætlaði að reyna
við heimsmet í hlaupinu. Óhætt er
að segja að Skah er í litlu uppá-
haldi hjá Kenýamönnum, sérstak-
lega eftir Ólympíuleikana, þegar
hann var dæmdur úr leik í 10 km
hlaupinu og það síðan dregið til
baka næsta dag. Kenýamennirnir í
hlaupinu ætluðu augljóslega að
gera Skah lífíð leitt, en hann náði
að stinga þá af á endasprettinum.
„Þetta gerist alltaf, þeir ráðast allt-
af gegn mér,“ sagði Skah um
Kenýumennina, en hann hljóp á 13
mínútum 4,67 sekúndum.
ÚRSLIT
Frjálsar
Alþjóðlegt stigamót í frjálsum, haldið í
Ziirich í Sviss í gærkvöldi. Helstu úrslit.
Hástökk kvenna: metrar
1. Stefka Kostadinova (Búlgaríu)...2,00
2. Galina Astafei (Rúmeníu)........1,98
3. Silvia Costa (Kúbu).............1,98
800 metra hlaup kvenna: mín.
1. Maria Mutola (Mósambík)......1.55,62
2. Svetlana Masterkova (Rús.)...1.56,76
3. EllaKovacs (Rúmeníu).........1.57,00
4. TinaPaulino (Mósambík).......1.57,58
5. Joetta Clark (Bandar.).......1.58,46
6. Diane Modahl (Bretl.)........1.59,00
400 metra grindahlaup karla: sek.
1. Winthrop Graham (Jamaíku)......47,60
2. Samuel Matete (Sambíu).........47,82
3. Kevin Young (Bandar.)..........48,08
4. Eric Keter (Kenýu).............48,97
5. Kriss Akabusi (Bretl.).........49,15
6. Olaf Hense (Þýskal.)...........49,36
100 metra hlaup kvenna:
1. Merlene Ottey (Jamaíku)........10,93
2. GwenTorrence (Bandar.).........10,98
3. GailDevers (Bandar.)...........11,00
4. Irina Privaiova (Rússl.).......11,12
5. Mary Onyali (Nígeríu)..........11,24
6. Michelle Finn (Bandar.)........11,29
800 metra hlaup karla: mín.
1. JohnnyGray (Bandar.).........1.44,03
2. Andrea Benenuti (Ítalíu).....1.44,55
3. William Tanui (Kenýu)........1.44,69
4. Jose-Luis Barbosa (Brasilíu).1.44,73
5. Nixon Kiprotich (Kenýu)......1.44,77
6. Robert Kibet (Kenýu).........1.44,98
100 metra hlaup karla: sek.
1. Leroy Burrell (Bandar.)........10,02
2. Linford Christie (Bretl.)......10,03
3. John Drummond (Bandar.)........10,05
4. Carl Lewis (Bandar.)...........10,07
5. Andre Cason (Bandar.)..........10,11
6. Daniel Effiong (Nígeríu).........10,12
400 metra hlaup karla:
1. Michael Johnson (Bandar.)......44,22
2. Dave Grindley (Bretl.).........44,50
3. Steve Lewis (Bandar.)...,......44,54
4. Butch Reynolds (Bandar.).......44,62
5. Quincy Watts (Bandar.).........44,65
6. Sunday Bada (Nígeríu)..........44,90
3000 metra hlaup kvenna: min.
1. SonjaO’Sullivan (írlandi)....8.30,12
2. Elana Meyer (S-Afríku).......8.34,62
3. Uta Pippig (Danm.)...........8.40,99
Langstökk kvenna: metrar
1. Heike Drechsler (Þýskal.).......7,21
2. Irina Muchailowa (Rússl.).......6,87
3. Renata Nielsen (Danm.)..........6,77
lOOmetragrindahlaupkvenna: sek.
1. Gail Devers (Bandar.)..........12,57
2. Michelle Freeman (Jamaíku).....12,85
3. Aliuska Lopez (Kúbu)...........12,91
4. Julia Graudyn (Rússl.).........12,98
5. Lynda Tolbert (Bandar.)........12,99
6. Yordanka Donkova (Búlgaríu)....13,00
3000 metra hindrunarhlaup: mín.
1. Moses Kiptanui (Kenýu).......8.10,29
2. Patrick Sang (Kenýu).........8.11,09
3. Julius Kariuki (Kenýu).......8.13,38
400 metra grindahlaup kvenna:
1. Sally Gunnell (Bretl.).........53,52
2. Margarita Ponomaryova (Rús.)...54,32
3. Tonja Buford (Bandar.).........54,60
5000 metra hlaup karla:
1. Khalid Skah (Marokkó).......13.04,67
2. Yobes Ondieki (Kenýu).......13.05,09
3. Richard Chelimo (Kenýu).....13.05,14
4. Haile Gebreselassie (Eþ.)...13.05,39
5. Ismael Kirui (Kenýu)........13.06,50
6. Francesco Panetta (Ítalíu)..13.06,76
Kringlukast karla: metrar
1. Lars Riedel (Þýskal.)..........66,00
2. Romas Ubartas (Litháen)........64,24
3. Anthony Washington (Bandar.)...63,92
4. Vaclavas Kidikas (Litháen).....63,86
5. Erik de Bruin (Holl.)..........63,76
6. Roberto Moya (Kúbu)............62,98
1500 metrahlaup karla: mín.
1. Noureddine Morceli (Alsír)...3.30,06
2. Fermin Cacho (Spáni).........3.32,01
3. Abdi Bile (Sómalíu)..........3.32,83
4. Mohammed Suleiman (Qatar)....3.33,29
5. Simon Doyle (Ástrallu).......3.33,39
6. Johan Landsman (S-Afríku)....3.33,56
110 metra grindahlaup: sek.
1. Tony Dees (Bandar.)............13,19
2. Mark Crear (Bandar.)...........13,28
3. Jack Pierce (Bandar.)..........13,31
Kúluvarp karla: metrar
1. Wemer Gúnthör (Sviss)..........21,49
2. Mike Stulce (Bandar.)..........20,68
3. Jim Doehring (Bandar.).........20,02
4. Gert Weil (Chile)..............19,82
5. PaoloDal Soglio (Ítalíu).......19,76
6. Klaus Bodenmueller (Austur.)...19,58
Spjótkast kvenna:
1. Trine Hattestad (Noregi).......67,96
2. Natalja Zikolenko (H-Rússl.)...64,90
3. Steffi Nerius (Þýskal.)........63,84
4x100 metra hlaup karla: sek.
1. Bandarískt úrvalslið...........37,99
2. Santa Monica félagið...........38,19
3. Kúba...........................38,7^
Hástökk karla: metrar
1. Troy Kemp (Bahamas).............2,34
2. Steve Smith (Bretl.)............2,34
2. Dalton Grant (Bretl.)...........2,34
4. Hollis Conway (Bandar.).........2,32
5. Javier Sotomayor (Kúbu).........2,30
6. Patrik Sjöberg (Svíþjóð)........2,28
Langstökk karla:
1. Mike Powell (Bandar.)......... 8,43
2. ObimaEregbu (Nígeríu)...........8,16
3. Ivaylo Mladenov (Búlgaríu)......8,02
4. Larry Myricks (Bandar.).........7,97
5. Erich Walder (Bandar.)..........7,90
6. Mike Conley (Bandar.)...........7,88
Stangarstökk:
1. Sergei Bubka (Úkratnu)..........5,90
2. Grigori Yegorov (Kazakhstan)....5,80
3. Rodion Gataullin (Rússl.).......5,70
3. Igor Trandenkov (Rússl.)........6,70