Morgunblaðið - 17.08.1993, Síða 5

Morgunblaðið - 17.08.1993, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1993 5 Morgunblaðið/Gunnlaugur Rögnvaldsson. Á fullri ferð ÍSLANDSMEISTARARNIR í fjallahjólreiðum, en keppt var í sex flokkum karla og kvenna. Á innfelldu myndinni sjást kepp- endur í íslandsmótinu í víðavangi í Heiðmörk á sunnudaginn . Þeir sem fóru lengst lögðu að baki Morgunblaðið/RAX 35 km. Islandsmeistaramót í fjallahjólreiðum Keppendur hjól- uðu allt að 35 km Lokakeppni til íslandsmeistara í fjallahjólreiðum fór fram í Heið- mörk á sunnudaginn, en mótið hefur staðið yfir í allt sumar á veg- um íslenska fjallahjólaklúbbsins. Um helgina var keppt í sex flokk- um, þar sem keppendur hjóluðu allt að 35 km langa leið um ná- grenni Heiðmerkur. Lá leiðin um vegi og þrönga stíga, hóla og hæðir sem reyndu á kjark og þol keppenda. í kvennaflokki vann Sigríður Ól- afsdóttir á Trek reiðhjóli, en hún hefur einnig verið framarlega í sigl- ingu hérlendis. Sigurgeir Hregg- viðsson, sem keppti á Moongoose- hjóli, tryggði sér sigur í meistara- flokki karla, sem hjóluðu lengstu vegalengdina. Marinó Siguijónsson veitti honum mesta keppni, en Sig- urgeir varð á endanum á undan í endamark. í flokki 16-18 ára vann keppandi, sem þykir mikið efni í reiðhjólamennsku hélendis, Sig- hvatur Jónsson. Nokkrir íslenskir hjólreiðamenn eru taldir eiga erindi í keppni erlendis eftir mót sumars- ins og er í undirbúningi að senda nokkra kappa erlendis í framtíð- inni. Er mikill áhugi á hjólreiðum hérlendis og sala íjallahjóla hefur slegið út sölutölur á heimsvísu mið- að við höfðatölu. Verðlaunahafar Eftirtaldir unnu til verðlauna í sínum flokkum í keppninni: Meist- araflokkur: 1. Sigurgeir Hreggviðs- son, 2. Marinó Siguijónsson, 3. Óskar Páll Þorgeirsson, Flokkur 16-18 ára: 1. Sighvatur Jónsson, 2. Arnar Ástvaldsson, 3. Krist- mundur Guðleifsson. Kvennaflokk- ur: 1. Sigríður Ólafsdóttir, 2. Svala Sigurðardóttir, 3. Gerður Rún Guð- laugsdóttir. Opinn flokkur: Guð- mundur Eyjólfsson, 2. Guðmundur Vilhjálmsson, 3. Hjalti Finnsson. Flokkur 13—15 ára: 1. Helgi Berg Friðþjófsson, 2. Gissur Þorvaldsson, 3. Hjalti Finnsson. Flokkur 9-12 ára: 1. Gylfi Jónsson, 2. Björn Odds- son, 3. Sveinbjöm Sveinbjörnsson. Ölafur Raguar Grímsson Segir pró- fessorsstöðu sinni lausri ÓLAFUR Ragnar Grímsson hefur sagt prófessorsstöðu sinni við Háskóla íslands lausri með bréfi til mennta- málaráðherra í lok júlí. Hann segir að á meðan hann hafi gegnt trúnaðarstörfum og þingstörfum fyrir Alþýðu- bandalagið hafi hann ekki gegnt prófessorsstöðu sinni jafnframt því. Hann hafi ekki talið eðlilegt að hafa embætt- ið tengt sér lengur með þess- um hætti, en síðast kenndi hann við skólann árið 1988. Siguijón Björnsson, forseti félagsvísindadeildar Háskóla íslands, segir að tími Ólafs Ragnars í launalausu leyfi hafi runnið út nú í sumar og þar sem hann hafi ekki ætlað að snúa sér aftur að kennslu hafi hann sagt starfinu lausu. Siguijón segir að samkvæmt reglum félagsvísindadeildarinnar sé kennurum gefinn ákveðinn tími til að vera í launalausu leyfi og því hafi Ólafur Ragnar farið rétt að með því að láta af embætti sínu við Háskólann ef hann hefði ekki ætlað að koma aftur til starfa í haust. „Ólafur fylgdi því þeim regl- um, sem settar eru um þessi mál hér innan okkar deildar," segir Siguijón. Ekki eðlilegt að halda stöðunni Ólafur Ragnar segir að þrátt fyrir að í gegnum tíðina hafi ýms- ir alþingismenn, svo sem Gylfi Þ. Gíslason, Kjartan Jóhannsson og Ólafur Jóhannesson, haldið emb- ættum við Háskólann um leið og þeir sinntu þingmennsku og voru jafnvel formenn flokka sinna, hafi hann sjálfur ekki talið eðlilegt að gera það og þess vegna sagt stöð- unni lausri. „Ég hafði fullan rétt á því að taka aftur upp kennslu við Háskól- ann ef ég hefði svo kosið, eins og ýmsir þingmenn og formenn flokka hafa áður gert. Það var lenska áður fyrr að ýmsir forystumenn í stjórnmálum kenndu í Háskólanum um leið og þeir sætu á Alþingi. Mér fannst hins vegar ekki eðlilegt að ég gegndi þannig tvöföldu starfi," segir Ólafur Ragnar. AF SLATTUVEL EF ÞU KAUPIR NYJA SLATTUVEL NÚNA TEGUND VERÐ 1/3FRÍAN ÞÚ GREIÐIR MTD 042 19.900 6.627 13.273 MDT 072 24.900 8.292 16.608 Flymo L47 44.550 14.835 29.715 Flymo E 300 15.900 5.295 10.605 Flymo E 400 22.900 7.626 15.274 Zenoah orf 220.. 34.162 11.376 22.786 Zenoah orf 431.. 48.938 16.296 32.642 fjSFJSk s'/t

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.