Morgunblaðið - 17.08.1993, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 17. ÁGÚST 1993 23
kommúnismann og koma á lýðræði.
Þverl á móti taldi ég hann miðju-
mann innan sovésku forréttinda-
stéttarinnar sem gert hafði sér ljóst
að stöðnunin sem ríkti var orðin
vandamál í Sovétríkjunum og að
hann væri þeirrar hyggju að til þess
að bjarga kommúnismanum þyrfti
að laga hann að aðstæðum og breyta
honum. Þetta starf hóf Gorbatsjov
en hann gerði sér ekki grein fyrir
að umbætur eru óhugsandi í komm-
únísku ríki.“
Utanríkisráðherra ræðir einnig
samskipti íslands og Eystrasaltsríkj-
anna f viðtalinu við Leonidas Stepa-
nauskas og víkur að því að íslending-
ar standi utan þess formlega sam-
starfs sem komið hafi verið á fót á
milli ríkjanna þriggja og nágranna
þeirra. Það hafi verið vilji Dana og
Þjóðveija að íslendingar tækju ekki
þátt í því starfi. Utanríkisráðherra
segist hins vegar bjartsýnn á fram-
vindu mála í Eystrasaltsríkjunum og
kveðst sannfærður um að á vett-
vangi efnahagsmála muni brott-
hvarfið frá miðstýrðu hagkerfi kom-
múnismans taka mun skemmri tíma
þar en t.a.m. í Rússlandi og Úkraínu.
ræddu við þær um leiðir til að laum-
ast frá borði. Þegar Gharib brá sér
á salerni klukkan tvö eftir miðnætti
í fyrrinótt að staðartíma létu þeir
sig síga á köðlum niður flugstjórnar-
klefann og samtímis réðust víkinga-
sveitirnar um borð í flugvélina. Var
Gharib auðveldlega yfirbugaður og
handtekinn en þá voru liðnar 10 og
hálf klukkustund frá því hann birtist
í stjómklefanum og afhenti flug-
mönnunum handskrifaða tilkynn-
ingu með kröfum sínum. Reyndist
hann óvopnaður með öllu og með
enga sprengju í fórum sínum.
Konan, sem tókst að bjarga í
gær, var starfsmaður hótelsins og
hafði hún verið föst undir rústunum
frá því á föstudag. Talið er að hún
hafi verið síðasta manneskjan sem
eftir var á lífi.
Þrír af helstu stjórnendum hótels-
ins og verkfræðingur voru handtekn-
ir á sunnudag og sakaðir um van-
rækslu í starfi. Hótelið, sem telur
134 herbergi, var upphaflega tveggja
hæða en fjórum hæðum til viðbótar
var síðar bætt við og þegar það
hrundi var verið að bæta við sjöundu
hæðinni. Heimildir herma einnig að
þegar vatnsskortur kom upp fyrir
tveimur vikum hafi miklu magni af
vatni verið dælt upp í geyma á þaki
hótelsins.
Lekkpai, forsætisráðherra Thai-
lands, kom á slysstaðinn um helgina
og sagðist þá hafa skipað stjómvöld-
- ávallt
skammt utidan
Árlegt bruðl SÞ
Tugir
milljarða
í súginn
London. Reuter.
HVERS kyns mistök og spilling
valda því að um 400 milljónir doll-
ara, nær 30 milljarðar króna, fara
í súginn hjá Sameinuðu þjóðunum
ár hvert, að sögpi breska blaðsins
The Sunday Times á sunnudag.
Blaðið fullyrðir ennfremur að
stjórn samtakanna hafi stungið
undir stól innanhússskýrslu þar
sem farið var í saumana á bruðlinu.
Gagnrýni á stjórn SÞ hefur farið
vaxandi að undanfömu vegna þess
hve illa hefur gengið að flytja á brott
særð og veik fórnarlömb átakanna í
Bosníu-Herzegóvínu. í frétt breska
blaðsins er sagt að skrifræði sé orð-
ið gjörsamlega stjómlaust í starfi
samtakanna og nokkrir háttsettir
embættismenn þeirra fái laun án
þess að gera nokkum skapaðan hlut.
Blaðið ræddi við marga heimildar-
menn og hefur eftir Dennis Good-
man, er áður var bandarískur sendi-
fulltrúi hjá SÞ, að þar væri við lýði
bitlinga- og hálaunaandrúmsloft sem
lýsa mætti með orðunum „fátæktar-
hjal á daginn og hið ljúfa líf á kvöld-
in“.
Bitlingar ofan á eftirlaun
Blaðið sagði að sumir embættis-
menn gengju undir samheitinu kall-
aðir „Verklausir blýantsnagarar",
aðrir fengju höfðinglegar greiðslur
fyrir ráðgjöf eftir að þeir væru hætt-
ir störfum og hlytu jafnframt há eft-
irlaun.
Áðurnefnd skýrsla um bruðlið var
unnin af Richard Thornburgh, fyrr-
verandi dómsmálaráðherra Banda-
ríkjanna, fyrir Boutros Boutros-
Ghali, framkvæmdastjóra SÞ.
Skýrslan þótti svo harkaleg í gagn-
rýni sinni að hún var látin í ruslakörf-
una, segir The Sunday Times.
um á svæðinu að framkvæma ítar-
lega rannsókn. „Þjóð okkar brýtur
oft reglumar. Þess vegna fer svo
margt úrskeiðis,“ sagði ráðherrann.
Thord
Vatnsþéttingarefni
til kústunar
- POKAPÚSSNING
- HRAUN, GRÓFT EÐA PÍNT
- LITUÐ PÚSSNING
-SKRAUTPÚSSNING
Þaulprófuð og með yfir 15 ára
reynslu á íslandi.
S steinprýði
Stangarhyl 7, sími: 672777.
Bílamarkaöurinn
Renault 19 GTS '92, hvítur, 5 g., ek. 7
þ. Fallegur bíll. V. 980 þús.
Suzuki Swift GL Sedan ’90, hvítur, 5 g.,
ek. 43 þ. V. 700 þús.
MMC L-300 Minibus 4x4 '88, grásans,
5 g., ek. 120 þ. Gott ástand. V. 1090 þús.
GMC Jimmy SLE 4*3 I '91, rauður, 4ra
dyra, sjálfsk., rafm. í rúðum o.fl. Toppein-
tak. V. 2.580 þ., sk. á nýl. fólksbíl.
MMC Lancer GLXi Hlaðbakur 4x4 '91,
grásans, 5 g., ek. 49 þ., rafm. í öllu o.fl.
V. 1130 þús.
MMC Colt EXE '92, svartur, 5 g, ek. 28
þ. Fallegur bfll. V. 850 þús.
Tilboðsverð á ýmsum bifreiðum.
Citroen BX 16 TRS '91, 5 g., ek. 35 þ.,
rafm. í öllu. V. 950 þús.
Toyota Corolla XLi Hatchback '93, 5 d.,
5 g., ek. 25 þ. V. 1150 þús.
BMW 318 IS '92, 5 g., ek. 25 þ. V. 2 millj.
Hyundai Scoupe Coupé '92, gulur, 5 g.,
ek. 20 þ. V. 890 þús.
MMC Pajero stuttur B '85, grár, 5 g., ek.
112 þ. Gott eintak. V. 680 þús.
Nissan Sunny SLX Sedan 4x4 ’89, 5 g.,
ek. 70 þ. V. 740 þús.
Suzuki Swift GL Sedan '90, hvítur, 5 g.,
ek. 43 þ. V. 700 þús.
Audi 80 1.8E ’89, svartur, 5 g., ek. aðeins
35 þ., álfelgur, sóllúga o.fl. V. 1350 þús.,
sk. á ód.
V.W Golf GL ’90, 5 dyra, sjálfsk., ek. 30
þ., grásans. V. 980 þús.
Vantar árg. '89-’93 á staðinn.
Ekkert innigjald.
Viðbúnaður I Diisseldorf
Reuter
ÞÝSKA lögreglan umkringdi hollensku farþegþótuna er hún var neydd til að lenda í Diisseldorf. Röskum
10 stundum síðar yfirbugaði sérsveit lögreglunnar, GSG-9, ræningjann og reyndist hann vopnlaus með öllu.
Egypskur byggingaverktaki rændi KLM-þotu
Vopnlaus ræninginn var
yfirbugaður á salerninu
DUsseldorf. Reuter.
SÉRSVEIT þýsku lögreglunnar, GSG-9, yfirbugaði í fyrrinótt flu-
græningja sem á sunnudag neyddi flugmenn Boeing 737-400 þotu
hollenska flugfélagsins KLM til að lenda í Diisseldorf á leið frá
Túnis til Amsterdam.
Ræninginn var fertugur egypskur
byggingaverktaki frá útborg Kairó,
Khalid Abdekmounien Gharib, sam-
kvæmt vegabréfi sem hann bar.
Hann hótaði að sprengja þotuna í
loft upp ef henni yrði ekki flogið til
New York. Sömuleiðis krafðist hann
þess að Bandaríkjamenn slepptu
egypska klerknum Omar Abdel-
Rahman úr haldi en hann er grunað-
ur um aðild að sprengjutilræðinu í
World Trade Center í New York.
Áður en Gharib var yfirbugaður
hafði hann sleppt öllum farþegum
sem voru 135 talsins og fimm af sjö
manna áhöfn þotunnar. Er á leið
gerðist hann taugaveiklaður og ráf-
aði um farþegaklefann. Flugmenn-
irnir voru í stöðugu sambandi við
lögreglusveitir utan þotunnar og
Rætt við Jón Baldvin
Viðtal Leonidas Stepanauskas við Jón Baldvin Hannibalsson utanrík-
isráðherra birtist í litháíska vikublaðinu Amzius (Oldin). Það hefur
ennfremur verið birt á ensku í tímaritinu Lithuanian Weekly og
verið lesið upp í ríkisútvarpinu í Litháen.
Konu bjargað úr
rústum hótelsins
Nakhon Ratchasima. Reuter.
KONU var í gærmorgun bjargað úr rústum hótelsins Royal Plaza í
borginni Nakhon Ratchasima. Hótelið hrundi á föstudag og er talið að
á annað hundrað manns hafi farist.