Morgunblaðið - 21.09.1993, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
13
Frá æfingu á verkinu Englar í Ameríku sem Leikfélag Reykjavíkur
frumsýnir 22. október nk.
Leikfélag Reykjavíkur
Æfingar hafnar á
Englum í Ameríku
ÆFINGAR hófust á nýju leikriti, Englum í Ameríku, eftir ungan Banda-
ríkjamann, Tony Kushner, í Borgarleikhúsinu síðla sumars og verður
verkið frumsýnt á Stóra sviðinu hinn 22. október. Er það önnur svið-
setning á verkinu í Evrópu en það var frumflutt austanhafs í fyrra.
Sviðsetning breska þjóðleikhússins í London og nýleg sviðsetning á
Broadway vöktu báðar gífurlega athygli og aðdáun og sópuðu til sín
verðlaunum beggja vegna Atlandshafsins. Eru menn á einu máli að
þetta verk marki þáttaskil i leikritun Bandarikjanna, segir í frétt frá LR.
Werner Dittmann í
Hallgrímskirkju
Englar í Ameríku eru í tveimur
hlutum og verður sá fyrri frumsýnd-
ur í Borgarleikhúsinu í október. Ber
hann undirtitilinn Nýtt árþúsund
nálgast og gefur það nokkuð til
kynna hvaða efnistökum höfundur-
inn beitir. Fáir veita því athygli að
við nálgust brátt hin sögulegu tíma-
mót árþúsundaskipta í sögu mann-
kynsins. Við slík tímamót reyna
menn og samfélög að skoða hug sinn
og haf, hefja nýja sókn og bæta fyr-
ir gamlar syndir. í leiknum sem ger-
ist á árunum 1985 til 1986 í Banda-
ríkjunum, árum veltu og bjartsýni
fijálshyggjunnar, segir frá afdrifum
, tveggja para; ungra hjóna sem eru
mormónatrúar og tveggja ungra
manna í sambúð. Rekur leikurinn
ekki aðeins sundrungu sambandanna
af ólíkum ástæðum, heldur skoðar
hann heilindi og tryggð, ást og óbeit,
smán og skömm í mannlegu sam-
| bandi. Kushner er óhræddur að taka
fyrir stór mál, hugsjónir, hugtök og
kennisetningar og kanna breytni
manna því samhliða. Eitt helsta vopn
hans í þeirri könnun er leiftrandi
skop.
Sviðsetning verksins heimtar
óhemju mikið af átta leikendum sem
fara með sextán hlutverk í leiknum.
Það er Hlín Agnarsdóttir sem leik-
stýrir en leikaramir átta eru Arni
Pétur Guðjónsson, Ellert A. Ingi-
mundarson, Elva Ósk Ólafsdóttir,
Jakob Þór Einarsson, Jón Hjartar-
son, Magnús Jónsson, Margrét Ólafs-
dóttir og Steinunn Ólafsdóttir. Stígur
Steinþórsson gerir leikmyndina, Elf-
ar“ (nr. 19) benda til popptónlistar-
tilrauna, og „Smjörhnífur" (nr. 13)
minnir eflaust marga drengi á öllum
aldri á smíðatíma í barnaskóla.
Strákapörin og bíófyrirmyndirnar
koma síðan vel fram í „Teygjubyssa
I og 11“ (nr. 2 og 3) og „Roy og
Dale“ (nr. 6), sem voru fastur þáttur
í sunnudagstilverunni á árum áður.
Öll eru þessi verk ánægjuleg fyrir
hugann, og þá skipta hin fagurfræði-
legu gildi formanna oft minna máli.
Þó er vinnsla þeirra í góðu lagi; Stef-
án Geir er góður verkmaður, einkum
á tré, þar sem hann forðast þá freist-
ingu ágætlega að ofvinna ekki gri-
pina. A þessari sýningu er þó fyrst
og fremst á ferðinni græskulaust
gaman; hér er um að ræða þekkt
form og úrvinnslu þeirra, sem góður
listamaður getur haldið áfram að
vinna í langan tíma. Hversdagsleik-
inn og minningamar geta þannig
verið gjöful náma fyrir listamanninn,
en þó kemur að því að meira þarf
að koma frá honum sjálfum en úr-
vinnslan ein, og má vænta þess að
Stefáni Geir takist ekki síður upp,
þegar hann gefur hugarfluginu laus-
an tauminn.
Sýningu Stefáns Karls Geirssonar
í Gallerí Sævars Karls, Bankastræti
9, lýkur miðvikudaginn 22. septem-
ber.
ar Bjamason hannar lýsingu en Þór-
hallur Einarsson semur tónlist. Vet-
urliði Gunnarsson þýðir verkin en
dramaturg er Páll Baldvin Baldvins-
son.
Fmmsýning er fyrirhuguð 22.
október á Stóra sviðinu.
Tónlist
Ragnar Björnsson
Josef Gabriel Rheinberger (f.
1839) er það tónskáld frá Lichtein-
stein sem á sínum tíma náði mikilli
frægð sem organleikari, tónskáld,
kennari og fl. og fékk heiðursviður-
kenningar við að skrifa ótrúlegan
fjölda tónsmíða, þar á meðal nær 40
óperar, mörg ópus af kammermúsík,
nokkur rekvíem, verk fyrir hljóm-
sveitir og kóra, sóriötur fyrir orgel
og þá er aðein lítill hluti verka hans
upptalinn. Nú era verk Rheinberger
fallin í gleymskunnar dá, þó lifa org-
elsónötur hans enn sem minnisvarði
um mikinn „kontrapunktiker". Þjóð-
veijar vildu reyndar eigna sér Rhein-
berger af því vinnustaður hans var
Þýskaland, en ekki breytir það því
að upprani hans var Lichtenstein.
Orgelsónatan nr. 18 í A-dúr op 188
ber kontrapunkt-kúnstinni vott, þótt
stundum væri svolítið erfitt að greina
þann vef vegna þess hvað organleik-
arinn Dittmann registraði orgelið
þykkt. Þessa freistingu falla margir
í þegar þeir komast í stórt, hljómmik-
ið orgel. Sónatann verður líklega
ekki mörgum minnisstæð, þótt vel
sé skrifuð er svolítið erfitt að fmna
höfundinn í henni, til þess minnir hún
of oft á aðra höfunda og má þar til
nefna Mendelsohn, Fr. Liszt og fleiri.
Sónatan er skrifuð í hefðbundnu són-
ötuformi, — rómantisku — hvar ann-
ar þátturinn naut sín hvað best. Síð-
asti þátturinn er töluvert rismikill
en naut sín tæplega sem skyldi í
þessu þykka raddavali Dittmanns.
Fáir áheyrendur mættu til leiks að
þessu sinni og má vera að haft hafi
áhrif á hljómburðinn, en því þarf að
velta fyrir sér sem samviskusamleg-
ast. Aðeins tvö verk voru á efnis-
skránni hjá Dittmann sunnudaginn
19. september og það síðara var
önnur Örgelsinfónían eftir Louis Vi-
erne. Þessi tvö verk era kannski
ekki heppilegust til að standa saman
á efnisskrá, til þess eru þau of áþekk.
Merkileg er sú saga Vierne að blind-
ur er hann fæddur og að skurðað-
gerð, gerð á augum hans sjö ára
gömlum (f. 1870), gaf honum nokkra
sjón og hann síðar varð nemandi C.
Francks og Widors og enn síðan einn
frægasti organleikari Frakka. Sex
orgelsinfóníur hans bera frönskum
virtúósastíl sterk vitni, þar sem spil-
að er á flesta effekt-möguleika org-
elsins. Hættan er að slík verk verði
of langdregin hlustun fyrir nútíma-
manninn, a.m.k. ef verkið er ekki
því ökunómiskar skrifað og briljant
flutt. Orgelsinfónían nr. 2 í e-moll
op. 20 er að mínum dómi ekki sú
mest spennandi af sinfóníum Wierne
og ekki náði Wemer Dittmann að
halda athygli minni vakandi til enda.
Dittmann er vafalaust góðu organ-
leikari en varð að þessu sinni nokkuð
djarftækur til orgelsins.
,134
900
•Qft iie -!•-
« *»t
• HP Vectra 486/25VL
• Hljóðlát og nett borðtölva
• 4MB vinnsluminni
• ULTRA VGA LOCAL BUS skjákort
• HYUNDAI 14" ULTRA VGA litaskjár
• 127MB harður diskur
• 1 samsíða- 2 raðtengi og músartengi
• MS-DOS 6.0 r———n
• WtNDOWS 3.1 og mús QSKJT*
• HP-DASHBOARD
E'gPfóttSlt
I V*. ir »•
Eel
HEWLETT
PACKARD
HP A ISLANDI MP
j^Tæknival
Skeifan 17, sími 681665
Framleiðum áprentaða tau-burð-
arpoka. Lágmarkspöntun 30 stk.
Húfugerð og tauprent,
sími 91-677911.
Glæsilegur
útifatnaður fyrir
íslenska veðráttu
Opið á föstudögum til kl. 19
og á laugardögum frá kl. 10-17.
Hafnarstræti 5, símar 16760 og 14800