Morgunblaðið - 21.09.1993, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ VIÐSKIPTI/ATVINNULÍF ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPEMBER 1993
29'
Gengi hiutabréla í Flugleiðum
janúar febrúar mars
Verðbréf
Gengi Flugleiðabréfa
það lægsta á árinu
GENGI hlutabréfa í Flugleiðum hf. hefur ekki verið skráð lægra á
Verðbréfaþingi það sem af er þessu ári. Síðastliðinn fimmtudag
voru þar skráð viðskipti upp á um 300 þúsund krónur að nafnverði
á genginu 0,93. Um síðustu áramót var skráð gengi Flugleiðabréfa
1,49. Jöfnunarhlutabréf voru ekki gefin út í kjölfar síðasta aðalfund-
ar, en samþykkt var að greiða hluthöfum 7% arð. Að teknu tilliti
til arðgreiðslunnar nemur Iækkun á gengi Flugleiðabréfa það sem
af er árinu um 30%.
Fyrstu skráðu viðskipti með
hlutabréf í Flugleiðum á þessu ári
áttu sér stað 9. febrúar á genginu
1,2. Á meðfylgjandi línuriti má sjá
þróun á gengi Flugleiðabréfanna á
þessu ári. Línuritið miðað við skráð
lokagengi hvers dags, en í einstaka
tilfellum hafa átt sér stað viðskipti
yfir daginn á öðru gengi en loka-
genginu. Sú var t.d. raunin 6. sept-
ember síðastliðinn þegar skráð voru
viðskipti að nafnverði 33,2 milljónir
og lokagengi var 1,04. Af þessari
upphæð fóru 33 milljónir á genginu
1,01 en viðskipti með 200 þúsund
krónur voru skráð síðar um daginn
á genginu 1,04.
Samkvæmt upplýsingum frá
Verðbréfaþingi hefur það aðeins
gerst fimm sinnum á árinu að skráð
lokagengi er ekki sama og lægsta
viðskiptagengi dagsins þegar um
er að ræða viðskipti með Flugleiða-
bréf. Meðfylgjandi línurit er því
marktækt um þróun viðskiptageng-
is á bréfunum.
Sjónarhorn
Pappírslaus viðskipti
breyta vinnubrögðum
PAPPÍRSLAUS viðskipti verða
sífellt útbreiddari og nú þegar
hafa nokkrir tugir íslenskra fyr-
irtækja náð að bæta þjónustu sína
og auka rekstrarhagræði með
hagnýtingu þeirra.
Með pappírslausum viðskiptum
er átt við að aðilar í viðskiptum
sendi viðskiptaupplýsingar beint á
milli tölva sinna um símalínu.
Þessar upplýsingar geta verið
pantanir, .reikningar, bókanir,
greiðslur, tollskýrslur og nánast
hvað sem senda þarf.
Auk pappírssparnaðar hafa við-
skipti með þessum hætti þann meg-
inkost að upplýsingar berast viðtak-
anda um leið og þær eru sendar.
Tímaspamaðurinn sem það leiðir af
sér, býður upp á mikla möguleika
við stjórnun fyrirtækja, t.d. til þess
að lækka kostnað með aukinni hag-
nýtingu „just-in-time“ birgðastýring-
ar.
Reynslan sýnir að upptaka papp-
írslausra viðskipta hefur leitt til
breyttra vinnubragða í fyrirtækjum,
vinnubragða sem leiða til aukinnar
hagkvæmni. Sem dæmi má nefna
að eitt bílaumboðanna hefur með
upptöku pappírslausra tollskýrslna
náð fram slíku vinnuhagræði að heilt
stöðugildi sparast. Þá er ótalin sú
hagræðing sem hlýst af skjótari toll-
afgreiðslu.
Snýst um stjórnun
fremur en tækni
Af þessu má sjá að pappírslaus
viðskipti eru fyrst og fremst við-
fangsefni stjórnenda og full hagnýt-
ing þeirra er verkefni á sviði stjóm-
unar. Mönnum hættir til að líta á
Fyrirtæki
Byggingarþjónustan byggir
sérhæfðan upplýsingabanka
BYGGINGARÞJÓNUSTAN hf. hóf formlegan rekstur í síðasta mán-
uði. Fyrirtækið sérhæfir sig í að veita hvers kyns upplýsingar um
byggingarefni, byggingaraðila og þjónustufyrirtæki í byggingariðn-
aði hér á landi og erlendis. Eitt af fyrstu verkefnum Byggingarþjón-
ustunnar hefur verið að byggja upp víðtækan, sérhæfðan upplýsinga-
banka í tölvu um alla aðila sem taka þátt í íslenskum byggingariðn-
aði og selja byggingarefni og þjónustu.
I gagnabanka Byggingarþjón-
ustunnar eru nú skráðir á þriðja
þúsund aðilar. Að sögn stofnenda
Byggingarþjónustunnar, arkitekt-
anna Gests Ólafssonar og Hauks
Viktorssonar, greiða fyrirtæki fyrir
aðild að gagnabanka fyrirtækisins,
en hægt er að fá upplýsingar úr
honum endurgjaldslaust.
Eigendurnir segja ennfremur að
Byggingarþjónustan stefni að því
að eiga miiligöngu um öflun hvers
kyns upplýsinga og rannsókna,
bæði innlendra og erlendra sem
komið geta íslenskum byggingarað-
ilum að gagni. Fyrirtækið muni selja.
í 34 ár
Hressingarleikfími kvenna og karla
Haustnámskeið hefjast fimmtudaginn 23. september nk.
Kennslustaðir: Leikfimisalur Laugarnesskóla og íþróttahús Seltjarnarness.
Fjölbreyttar æfíngar
Músik - Dansspuni - Þrekœfíngar
- Slökun - Ýmsar nýjungar
Innritun og upplýsingar...
í síma 33290.
Ástbjörg S. Gunnarsdóttir,
íþróttakennari.
Bjarki Már Karlsson
bækur, tímarit, reglugerðir, upplýs-
ingarit og annað sem varði bygging-
ariðnaðinn. Þá skipuleggur Bygg-
ingarþjónustan ráðstefnur, kynnis-
ferðir og vörukynningar fyrir inn-
lenda og erlenda aðila.
Byggingariðnaður án landamæra
verður yfírskrift Mannvirkjaþings
sem Byggingarþjónustan stendur
fyrir og verður haldið á hótel
Hóliday Inn dagana 28. og 29. októ-
ber nk. í tengslum við ráðstefnuna
verður þar sýning á því helsta sem
er að gerast í íslenskum byggingar-
iðnaði.
þau sem mál tæknilegs eðlis, eða
viðfangsefni tölvudeilda. Þar er röng
leið farin. Það er hlutverk stjórnenda
að taka ákvörðun um upptöku papp-
írslausra viðskipta út frá þeim mark-
miðum sem þeir setja sér að ná með
þeim. Notandi pappírslausra við-
skipta þarf ekki að vera fróður um
tölvutækni frekar en notandi rit-
vinnslu.
Á vegum Viðskiptavakans, sem
er sameiginleg skrifstofa þeirra sam-
taka sem láta sig pappírslaus við-
skipti varða, er unnið að útbreiðslu
pappírslausra viðskipta, jafnt í þeim
greinum þar sem þau hafa þegar
haslað sér völl sem og nýjum grein-
um. Af nýjum greinum má m.a.
nefna lyfjaviðskipti og bifreiðatrygg-
ingar, þar sem menn sjá fram á
mikla möguleika. Skrifstofa Við-
skiptavakans veitir allar almennar
upplýsingar um pappírslaus við-
skipti, en hún er staðsett í húsakynn-
um Verslunarráðs íslands.
Hagkvæmnin felst í
stöðlun skeyta
Þá er lögð rík áhersla á að vinna
íslenskar útgáfum alþjóðlegra
„skeyta“, en hinar pappirslausu
sendingar eru í raun skeytasendingar
á stöðluðu formi. Það er einmitt
vegna þess að skeytin eru stöðluð
að ná má fram jafn miklu hagræði
og raun ber vitni. Ef allir sem eiga
með sér pappírslaus viðskipti þyrftu
að byija á að koma sér saman um
form hinna pappírslausu sendinga,
hver í sínu lagi, þá hefði það í för
með sér óþarfa vinnu og kostnað sem
draga myndi mjög úr hagræði af slík-
um viðskiptum. Því hafa menn kom-
ið sér saman um alþjóðlegan skeyta-
staðal, EDIFACT, sem þróaður er
undir stjórn efnahagsstofnunar Sam-
einuðu þjóðanna. Hér á Íslandi er
það ICEPRO, nefnd um bætt verklag
í viðskiptum, sem þróar íslenskar
útgáfur skeytanna. ICEPRO-nefndin
er stærsti aðilinn að rekstri skrif-
stofu Viðskiptavakans.
Kynning á skeytastöðlum
29. nóvember
Mánudaginn 29. nóvember efna
ICEPRO-nefndin og EAN á íslandi
til kynningar á pappírslausum skeyt-
um í verslunargeiranum. Kynningin
fer fram í fundarsal Verslunarráðs
íslands kl. 15. Kynningin er öllum
opin. Framundan eru svo kynningar
á farmflutningaskeytum og banka-
skeytum.
Viðskiptavakinn hvetur alla þá,
sem fyrirtækjarekstur stunda og
áhuga hafa á að finna leið til að
mæta samdrætti með sókn, til að
kynna sér pappírslaus viðskipti.
Stöðluð skeyti
Stöðluð verslunarskeyti vegna
pappírslausra viðskipta sem til eru í
íslenskri útgáfu ICEPRO:
Pöntun •
Breyting á pöntun
Svar við pöntun
Móttökutilkynning
Reikningur
Vöru- og verðlisti
Birgðaskýrsla
Greiðsluupplýsingar
Fylgibréf
Söluskýrsla
Söluspá
Almennar viðskiptaupplýsingar
Bjarki Már Karsson, fram-
kvæmdastjóri Viðskiptavakans.
— vildir þú
ISLENSKIR BÆNDUR
NILFISK GM200
NILFISK GM200 hefur nýjan 5-þrepa síunarbúnað
og hreinni útblástur en nokkur önnur ryksuga
(heldur eftir 99% rykagna stærri en 0,3/1000 mm).
GM200 er líka hljóðlátari (58 desibel), kraftmeiri
(1150W mótor) og endingarbetri (2000 tímar áður
en skipta þarf um kol í mótor).
★ 7m inndregin rafmagnssnúra
★ Innbyggt sogstykkjahólf
★ Aflaukandi kónísk slanga
★ Þægileg sogaflsstilling
★ Rykmælir lætur vita þegar skipta
á um poka
★ Létt (7,8 kg.) og lipur
NILFISK GM200
kostar aðeins kr. 23.150.-
21.990.- staðgreitt
og er hverrar krónu virði!
/FQmx
HÁTÚNI6A REYKJAVÍK SÍMI (91)24420