Morgunblaðið - 21.09.1993, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SEPTEMBER 1993
35
í garðinum hjá afa sínum og ömmu.
Seinna tók Melaskólinn við og þar
sátum við saman í bekk. Dobbý sá
til þess að handavinnuprufur og
krosssaumur yrði mér ekki til
skammar og tók dijúgan þátt í að
klára þau mál í tólf ára bekk. Áfram
héldum við í Hagaskóla, en náms-
hesturinn hún Dobbý lét. sig ekki
muna um að taka bæði fyrsta og
annan bekk á einu ári og þar með
stakk hún okkur jafnaldrana af.
Það kom þó ekki að sök, vinskapur-
inn hélst eftir sem áður og saman
skelltum við okkur í fimmleika í ÍR.
Þar áttum við mörg skemmtileg og
ógleymanleg ár. Eftir æfíngar fór-
um við stelpurnar gjarnan til
Dobbýar sem bjó þá rétt handan
götunnar og hafði sér herbergi í
kjallaranum. Þar var nú ýmislegt
brallað.
Dobbý réðst ekki á garðinn þar
sem hann var lægstur þegar hún
ákvað hvað hún ætlaði að læra í
háskólanum — tannlækningar —
dugnaðarforkurinn, það var ekki
að sökum að spyija. Ég hélt utan
til náms og starfa og áfram héldum
við sambandi. Þegar ég eignaðist
elstu dóttur mína í Danmörku sendi
hún peysu, húfu og sitthvað fleira
sem hún hafði pijónað, vitandi það
að ekki myndi ég ptjóna á barnið,
sem henni fannst auðvitað alveg
ótækt — barnið yrði nú að eiga eitt-
hvað heimapijónað.
Stuttu eftir að ég fluttist heim
aftur árið 1983 veiktist Dobbý. Þá
kom fyrir alvörn í ljós hvern mann'
hún hafði að geyma. Með ótrúlegum
dugnaði, jákvæðni og endalausri
þolinmæði sigraði hún í þessari orr-
ustu — með Þorvald sér við hlið.
Hann stóð eins og klettur við hlið-
ina á henni, traustur og áreiðanleg-
ur og ómetanleg var umhyggja
hans.
Síðar lauk hún sínu námi, nánast
eins og ekkert hefði í skorist, og
hóf störf við tannlækingar. Áfram
hélt lífið. Saman eignuðust Dobbý
og Þorvaldur dótturina Birnu og er
óhætt að fullyrða að Birna hafi
verið stolt móðurinnar og yndi —
hún var augasteinn mömmu sinnar.
Þegar sjúkdómurinn tekur sig
upp aftur er engan bilbug á Dobbý
að finna. Alltaf var stutt í brosið,
alltaf var hún ánægð með það sem
hún hafði, alltaf var hún jákvæð
og þolinmóð og alltaf var hún með
einhveija handavinnu í gangi.
Ég kvaddi Dobbý í byijun ágúst,
kvöldið áður en ég og fy'ölskylda
mín fluttumst til Noregs. Þá vissi
ég að heilsu hennar var farið að
hraka, en hún reyndi þá sem áður
að láta ekki á því bera, alltaf sama
glaðlynda viðmótið.
Það er erfitt að horfa á eftir jafn-
öldru sinni og æskuvinkonu, sem
ætti að vera í blóma lífsins, yfir
móðuna miklu. Dobbý var drengur
góður og þannig minnumst við
hennar. Elsku Þorvaldur og Birna,
Guðlaug, Sveinbjöm og fjölskylda,
við sendum ykkur innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Stína Ólafsdóttir
og fjölskylda, Noregi.
í dag kveðjum við starfsfélaga
okkar Droplaugu Sveinbjörnsdóttur
sem andaðist 13. september 1993.
Frá því að Droplaug lauk tann-
læknanámi starfaði hún með okkur
í Síðumúlanum, og vann þar eins
lengi og heilsa hennar leyfði. Við
vinnufélagarnir höfum fylgst með
baráttu þessarar ungu konu í henn-
ar erfiðu veikindum og dáðumst að
dugnaði hennar og hennar nánustu.
Kæri Þorvaldur, Birna, Svein-
björn, Guðlaug og aðrir aðstand-
endur, við sendum ykkur okkar
innilegustu samúðarkveðjur á- þess-
um erfiðu tímamótum.
Við viljum kveðja Droplaugu með
þessum ljóðlínum Hallgríms Péturs-
sonar:
Nú ertu leidd, mín ljúfa,
lystigarð Drottins í,
þar áttu hvíld að hafa
hörmunga’ og rauna frí,
við Guð þú mátt nú mæla,
miklu fegri en sól
unan og eilíf æska
er þín hjá lambsins stól.
Dóttir, í dýrðar hendi
Drottins, mín, sofðu vært,
hann, sem þér huggun sendi,
hann elskar þig svo kært.
Brids
Bridsfélag Reykjavíkur
Umsjón Arnór Ragnarsson
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag var spilaður eins kvölds
tvímenningur með þátttöku 20 para.
Úrslit: N — S
Magnús Aspelund - Steingrimur Jónasson251
Guðm. Pálsson - Guðm. Gunnlaugsson 242
Haukur Hannesson - Ragnar Bjömsson 237
A - V
Sigrún Pétursd. - Gunnþórunn Erlingsd. 249
Ami M. Bjömss. - Heimir Þ. Tryggvason 228
Unnur Sveinsd. — Inga Lára Guðmundsd. 217
Meðalskor 216.
Næsta fímmtudag hefst þriggja
kvölda hausttvímenningur. Spilin
verða forgefin og fá menn útskrift af
spilunum með sér heim. Skráning er
í Þinghól.
Bridsfélag Breiðholts
Vetrarstarfsemi félagsins hófst sl.
þriðjudagskvöld. Spilaður var eins
kvölds tvímenningur.' Efst urðu eftir-
talin pör:
Gísli Sigurkarlsson - Halldór Ármannsson 134
Björgvin Sigurðsson - Ingi Agnarsson 129
Guðjón Jónsson — Lilja Guðnadóttir 119
Baldur Bjartmarsson - Valdimar Sveinss. 118
Næsta þriðjudag verður spilaður
eins kvölds tvímenningur. Þriðjudag-
inn 28. september hefst þriggja kvölda
hausttvímenningur. Spilað er í Gerðu-
bergi kl. 19.30. Allir velkomnir.
Bridsdeild Skagfirðinga
Reylqavík
Hauststarfsemi félagsins hófst síð-
asta þriðjudag. Spilaður var eins
kvölds tvímenningur. Frekar rólegt
var. Úrslit urðu:
Þórður Sigfússon — ÓlafurLárusson 106
Hallg. Hallgrímsson - Sigm. Stefánsson 88
Eggert Bergsson — Láms Hermannsson 86
Næstu 2 þriðjudaga verður spilaður
eins kvölds tvímenningur, en stefnt
er að haustbarometer þar á eftir.
Spilað er í Drangey við Stakkahlíð
17 og hefst spilamennska kl. 19.30.
Allt spilaáhugafólk velkomið. Skorað
er á gamla félaga að vera með frá
byrjun.
Sl. miðvikudag, 15. september,
hófst fjögurra kvölda hipp-hopp tví-
menningur, en í honum taka 52 pör
þátt. Spilað er í fjórum hópum, N/S
og A/V, í A- og B-riðli. Úrslit kvölds-
ins urðu:
A-riðill N/S:
Siguiður Vilhjálmss. — Hrólfur Hjaltason 871
ísak Öm Sigurðsson - Gylfi Baldursson 775
Sveinn Þorvaldsson - Halldór Þorvaldsson 736
A-riðill A/V:
Eirikur Hjaltason - Sveinn R. Eiriksson 788
YalgerðurKristjónsd. — Esther Jakobsd. 725
Ásmundur Ömólfsson - Jón Þ. Daníelsson 722
B-riðill N/S:
Ámína Guðlaugsdóttir—Bragi Erlendsson725
Bjöm Amórsson—Þröstur Sveinsson 705
Öm Amórsson—Guðl. R. Jóhannsson 685
B-riðill A/V:
Hjördís Eyþórsdóttir — Ásmundur Pálsson 862
Aron Þorfinnsson — Ingi Agnarsson 797
Guðm. Páll Arnarson - Þorlákur Jónsson 743
Meðalskor er 650 stig.
Bridsdeild Rangæinga
Nk.' miðvikudagskvöld 22. septem-
ber hefst fimm kvölda tvímenningur
(Sigurleifsbikar) hjá deildinni þar sem
keppt er um farandbikar. Allt spila-
áhugafólk er velkomið. Spilað er í
Ármúla 40, 2. hæð og hefst spila-
mennskan kl. 19.30. Skráning hjá
Lofti, vs. 36120 og hs. 45186.
Jöklamótið ’93
Bridsfélag Hornafjarðar stendur
fyrir opnu tvímenningsmóti (barómet-
er) á Hótel Höfn helgina 24.-25. sept-
ember. Mótið hefst kl. 20 á föstudag-
inn og áætlað er að ljúka því um kl.
19 á laugardaginn. Veitt verða góð
verðlaun fyrir fjögur efstu sætin að
verðmæti 210.000 kr. Auk þess er
spilað um silfurstig.
Pakkar í boði
Dæmi um verð: Flug með Flugleið-
um og gisting i tvær nætur 10.900
MINNINGARKORT SJALFSBJARGAR
REYKJAVÍK 0G NÁGRENNIS
1 78 68
Innheimt með gíróseðli
Þú lifðir góðum Guði,
í Guði sofnaðir þú,
í eilífum andarfriði
ætíð sæl lifðu nú.
Samstarfsfélagar í
Síðumúla 25.
Tengjum fastara bræðralagsbogann,
er bálið snarkar hér rökkrinu í.
Finnum ylinn og lítum í logann
og látum minningar vakna á ný.
í skátaeldi býr kynngi og kraftur,
kyrrð og ró en þó festa og þor.
Okkur langar að lifa upp aftur
liðin sumur og yndisleg vor.
(H.Ó.)
„Liðin sumur og yndisleg vor“
virðast skammt undan, en þó eru
mörg ár síðan hópur skátasystkina
úr vesturbænum átti saman góðar
stundir. Skátastarfið reyndi á hóp-
inn með margbreytilegum viðfangs-
efnum, en einnig var tekjst á við
þroska unglingsáranna. Árin liðu
og leiðir okkar lágu í ýmsar áttir
og samvistir urðu stijálar. En nú
stöndum við frammi fyrir því að ein
úr hópnum er fallin frá eða „farin
heim“ eins og við skátar segjum
gjarnan. Þá stöldrum við óhjá-
kvæmilega við og lítum til baka.
Droplaug tók þátt í starfí þessa
hóps, svo og öðru skátastarfi, af
þeim dugnaði og samviskusemi sem
einkenndi hana, hvort sem um var
að ræða glaðværan söng, undirbún-
ing fyrir fjölmenna útilegu eða að
létta undir með vinum sínum í dag-
legu lífi. Hún miklaði ekki fyrir sér
að takast á við erfið eða tímafrek
verkefni. Af sömu elju og dugnaði
tókst hún á við það sem lífið bar í
skauti sér og virtist alltaf vera tilbú-
in að sækja á brattann.
Við vottum Þorvaldi, Bimu, fjöl-
skyldu og vinum dýpstu samúð
okkar og biðjum Guð að styrkja þau
á þessum erfiðu tímum.
Að lokum viljum við kveðja góða
vinkonu með kvöldsöng kvenskáta:
Sofnar drótt, nálgast nótt,
sveipast kvöldroða himinn og sær.
Allt er hljótt, hvfldu rótt.
Guð er nær.
Skátasystkin úr Ægisbúum.
kr. Nánari upplýsingar um tilboð og
bókanir gefur Sigurpáll hjá Jöklaferð-
um í síma 97-81701 og hs. 97-81911.
Einnig BSÍ (Elín) 91-619360.
Tekið verður við skráningu til
fimmtudagsins 23. september og tak-
markast parafjöldi við 40 pör. Keppn-
isgjald verður 3.500 kr. á keppanda.
Innifalið er kaffi á meðan á móti stend-
ur.
Heildarverðmæti verðlauna
210.000 kr. 1. verðlaun: 60.000 kr.
og Jöklaferðir fyrir fjóra með Jökla-
ferðum hf. Samtals að verðmæti
100.000 kr. 2. verðlaun: 50.000. kr.
3. verðlaun: 30.000. kr. 4. verðlaun:
7.000. kr. Humar í aukaverðlaun fyijr
fyrstu þijú sætin.
Bryndís Bjama-
dóttir — Minning
Fædd 11. október 1960 ..
Dáin 10. september 1993 -
Faðmur
Hans vegur
er væng
haf
og geiminn
þér pð
gaf
um eilífð •
sem einn
dag
hans frelsi
er faðm
lag
(Ingimar Erlendur Sigurðsson)
Við sitjum hér saman saumaklúb-
burinn og kveikjum á kerti í minn-
ingu um góða vinkonu og félaga og
rifjum upp margar samverustundir
frá liðnum árum sem eru bæði ljúfar
og góðar.
Elsku Bryndís, við þökkum þér
samfylgdina og kveðjum þig með
söknuði. Við sendum Birgi, Brynju,
Andra og ættingjum innilegar sam-
úðarkveðjur.
Saumakúbburinn.
í dag fer fram útför mágkonu
minnar Bryndísar Bjamadóttur sem
lést eftir baráttu við erfiðan sjúkdóm.
Við höfðum talast við fyrir tveim
dögum, hún í Svíþjóð og ég hér
heima. Alltaf bar hún sig svo'vel að
við héldum að hún mundi hafa betur
en vegir guðs em órannsakanlegir.
Margt rifjast upp. Við áttum
margar stundir saman með þeim
hjónum Birgi og Bryndísi. Þau kynnt-
ust mjög ung og byijuðu sinn búskap
16 ára í Skálagerði í Reykjavík. Þau
stóðu alltaf saman í öllum sínun
gerðum, samheldnari hjón veit ép
ekki um. Biyndís var einstaklega ljú
og hæglát manneskja og hjálpaði þaf
henni í sínum erfiðu veikindum.
Elsku Bryndís mín, ég þakka þéi
fyrir allar samverustundir okkar.
Biggi minn, Brynjar og Andri, Guð
gefi ykkur styrk á þessum erfiðu tím-
um.
Guðrún Ásta.
í dag kveð ég svilkonu mína Bryn-
dísi Bjamadóttur, sem lést föstudag-
inn 10. september á sjúkrahúsi í
Svíþjóð eftir erfið veikindi.
Bryndís var yndisleg kona og
traustur vinur, enda hafa hún og
eiginmaður hennar staðið þétt saman
gegnum lífið, allt frá fermingaraldri.
Um leið og ég þakka fyrir allar okk-
ar góðu samverústundir bið ég Guð
að blessa minningu hennar. Megi
Guð og menn styrkja Birgi, Brynju
og Andra í sorg þeirra.
Jón Þór.
Islenskur efniviður
íslenskar steintegundir henta margar
afar vel í legsteina og hverskonar
minnismerki. Eigum jafnan til fyrir-
liggjandi margskonar íslenskt efni:
Grástein, Blágrýti, Líparít og Gabbró.
Áralöng reynsla.
Leitið
upplýsinga.
il
IS. HELGAS0N HF
STEINSMIÐJA
SKEMMUVEGI 48 • SÍMI 91-76677
ÚTSALA - ÚTSALA
Stórkostlegt
úrval
10-30% afsl.
FAXAFENIVIÐ SUÐURLANDSBRAUT • SÍMI 686999