Morgunblaðið - 21.09.1993, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 21. SBPTEMBER 1993
47
Skorað á fiokkana að gera grein fyrir fjárreiðum sínum
Eyða þarf grunsemd-
um um hagsmunatengsl
| ÁTTA kennarar í sljómmála-
fræði og hagfræði við Háskóla
íslands sendu í liðinni viku frá
sér svohljóðandi áskorun til
allra formanna íslenskra sljórn-
málaflokka:
„Undanfarin misseri hafa
nokkrir stjórnmálaflokkar í nálæg-
um löndum þegið fé af fyrirtækj-
um og hagsmunasamtökum í blóra
við lög og reglur sem gilda um
slík íjárframlög í þessum löndum.
Fréttir af vafasömum og stundum
ólöglegum fjárframlögum til
stjórnmálaflokka á Ítalíu, Japan,
Frakklandi og Spáni og nú síðast
á Bretlandi hafa vakið mikla at-
hygli um allan heim. Brezku morg-
unblöðin Times og Guardian hafa
krafizt þess nýlega að gefnu til-
efni, að brezki ríkisstjórnarflokk-
urinn geri grein fyrir þeim fjá-
framlögum, sem hann tók á móti
fyrir síðustu kosningar í landinu,
til að eyða grunsemdum um óeðli-
leg fjárhags- og hagsmunatengsl.
í flestum nálægum löndum
gilda skýrar reglur eða lög um
fjárreiður stjómmálaflokka. Slík-
um lögum og reglum er ætlað að
vemda almenning gegn afleiðing-
um óeðlilegra fjárhags- og hags-
munatengsla á milli fjársterkra
fyrirtækja, hagsmunasamtaka og
stjómmálaflokka. Þar hefur lög-
gjafarvaldinu þótt rétt að reisa
skorður við tilraunum fyrirtækja
og hagsmunasamtaka til að kaupa
sér áhrif á vettvangi stjórnmál-
anna. Brot gegn slíkum lögum
hafa leitt til hreingemingar í ít-
ölskum og japönskum stjómmál-
Doktorí
jarðeðl-
isfræði
ÞÓRA Árnadóttir varði dokt-
orsritgerð við jarðeðlisfræði-
deild Stanford-háskóla í Kali-
fomíu 6. ágúst sl.
Ritgerðin ber titilinn „Earth-
quake dislocation models derived
from inversion of geodetic data“
, og fjallar um notkun landmælinga
l við að kanna upptök jarðskjálfta.
I henni er þróuð aðferð til að finna
I legu misgengis og meta hreyfmgu
' á því, útfrá færslum sem mælast
á yfirborði jarðar við jarðskjálfta.
Aðferðinni er beitt á landmælinga-
gögn sem safnað var í tengslum
við Loma Prieta-jarðskjálftann í
Kalifomíu í október 1989. Einnig
er unnið úr mælingum frá jarð-
skjálfta í Kilauea-eldfjalli á
Hawaiieyju í júní 1989.
Andmælendur voru Paul Delan-
ey, sérfræðingur við Jarðfræði-
stofnun Bandaríkjanna (U.S. Geo-
logical Survey) í Arizona og Greg-
ory Beroza, Paul Kiparski, David
Pollard og Paul Segall, prófessorar
við Stanford-háskóla. Þóra mun
Dr. Þóra Árnadóttir
halda áfram rannsóknum við Cent-
er for Crustal Studies við Kalifor-
níuháskóla í Santa Barbara.
Þóra lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum við Sund 1983,
BS-prófí í jarðeðlisfræði frá HÍ
1986 og MA-prófí í sömu grein
frá Princeton-háskóla í New Jers-
ey 1989. Hún er gift Lárusi
Thorlacius, eðlifræðingi. Foreldrar
hennar eru Elín Hrefna Hannes-
dóttir, húsmóðir og Ámi Sigur-
bergsson, flugstjóri.
um og að undanförnu og til af-
sagnar margra hátt settra stjóm-
málamanna þar og í öðrum lönd-
um.
Hér á íslandi virðast á hinn
bóginn ekki gilda neinar skýrar
reglur eða lög um fjárreiður stjóm-
málaflokkanna. Hér á landi er þó
sízt minni þörf fyrir slíka löggjöf
en í öðrum löndum. Við undirritað-
ir kennarar í hagfræði og stjóm-
málafræðum við Háskóla íslands
beinum því þeirri áskoran til for-
manna stjórnmálaflokkana að:
•þeir geri grein fyrir því fé sem
flokkamir hafa tekið við undan-
farin sjö ár, þar á meðal fjár-
framlögum í kosningasjóði
flokkanna fyrir Alþingiskosn-
ingarnar 1987 og 1991 og
sömuleiðis fyrir sveitastjómar-
kosningar á sama tímabili;
•þeir hlutist síðan til um að til
dæmis Ríkisendurskoðun ásamt
óháðum endurskoðendum utan
stjómkerfisins verði falið að
kanna, hvort fjárframlög til
flokkanna bendi til óeðlilegra
fjárhags- og hagsmunatengsla
að einhveiju leyti; og
•þeir beiti sér loks fyrir því að
setja skýrar reglur eða lög um
fjárframlög til flokkanna til
samræmis við lög og reglur i
öðram löndum með niðurstöður
Ríkisendurskoðunar að leiðar-
ljósi.“
Undir áskoranina skrifa Gunnar
Helgi Kristinsson, dósent, Jón
Ormur Halldórsson, lektor, Ólafur
Þ. Harðarson, lektor, Ragnar
Árnason, prófessor, Svanur Krist-
jánsson, dósent, Tór Einarsson,
dósent, Þorvaldur Gylfason, pró-
fessor, og Þórólfur Matthíasson,
lektor.
------» ♦ 4-----
Áfengi stolið
TVEIR menn voru teknir eftir
innbrot á veitingastaðinn Bing
Dao í Geislagötu á Akureyri um
helgina.
Brotist var inn á veitingastaðinn
aðfaranótt sunnudags og stolið
nokkra magni af áfengi. Óverulegar
skemmdir vora unnar við innbrotið.
Lögreglan handtók tvo menn
skammt frá innbrotsstað þar sem
þeir voru á ferðinni með þýfið.
Selfyssingar með hugmyndir um 150 milljóna íþróttahöll
1 Bygging fjölnota íþróttahúss
kynnt bæjaryfirvöldum
Selfossi.
STJÓRN Ungmennafélags Seifoss hefur lagt fyrir bæjaryfirvöld á
Selfossi hugmyndir um byggingu risastórs íþróttahúss sem er 46x72
metrar að stærð. Hugmyndir félagsins eru meðal annars byggðar
á tilboði frá Butler fyrirtækinu um slíkt hús. í drögum að kostn-
aði við byggingu hússins, sem lögð voru fyrir bæjarráð á fimmtu-
dag, er reiknað með að kostnaður verði 35-40 þúsund krónur á
fermetra. Heildarkostnaður gæti numið um 150 milljónum króna.
Stærð hússins er 3.312 fermetr-
ar að grunnfleti en heildargólfflöt-
ur er 4.300 fermetrar með milli-
lofti yfir búnings- og þjónustu-
rými. Gert er ráð fyrir 2.520 fer-
metra íþróttagólffleti á aðalgólfi
auk íþróttarýmis á millilofti.
Umboðsmaður Butler fyrirtæk-
isins á íslandi kynnti gerð slíks
risahúss síðastliðið vor. í framhaldi
af þeirri kynningu vann Ung-
mennafélagið upp fyrstu drög að
kostnaði við bygginguna og fékk
í því sambandi fast verðtilboð frá
Butler fyrirtækinu í burðargrind
hússins, og einangrun.
Yfirbyggður íþróttavöllur
Húsið sem um er að ræða er
nánast yfirbyggður íþróttavöllur
sem stærðar sinnar vegna getur
hýst stóra íþróttaviðburði og mun
ef af byggingu verður skapa nýjar
aðstæður fyrir íþróttastarfsemi á
Selfossi og í nágrenni.
Hugmyndir Ungmennafélagsins
um bygginguna ganga út á það
að húsið sé sem einfaldast að allri
gerð og þjóni fyrst og fremst þeim
tilgangi að skapa góðar aðstæður
til íþróttaiðkunar, með góðu gólfí,
lýsingu, böðum og tækjabúnaði.
Gert er ráð fyrir því að búnings-
klefar hússins nýtist einnig starf-
semi á íþróttavallasvæði en fyrir-
huguð staðsetning hússins er við
hlið íþróttavallasvæðisins við
Engjaveg.
Bæjarráð fól nefnd, sem vinnur
að tillögum um uppbyggingu
íþróttamannvirkja, að vinna að
frekari útfærslu og athugunum, í
samvinnu við Ungmennafélagið, á
þeim hugmyndum sem félagið
lagði fram.
Sig. Jóns.
UR DAGBÓK
LÖGREGLUNNAR í REYKJAVÍK:
17. - 20. september 1993
Á föstudagsmorgun voru til-
kynnt þijú innbrot í austurborg-
inni. Brotist hafði verið inn í hús
við Tangarhöfða og þaðan stolið
peningum og ávísunum. Úr vinn-
uskúr við Smárarima hafði verið
stolið naglabyssu og borvél og í hús
við Deildarás hafði verið farið inn
og stolið peningum. Síðdegis á
föstudag urðu starfsmenn verslunar
í Árbæ varir við að búið var að
taka peninga og ávísanir að upphæð
170.000 kr. ófrjálsri hendi.
Skömmu eftir miðnætti á föstu-
dag varð gangandi vegfarandi fyrir
bifreið í Bankastræti. Meiðsl hans
urðu ekki það alvarleg að hann teldi
ástæðu til þess að fara á slysadeild
vegna þeirra. Skömmu síðar var
tilkynnt að maður hefði dottið milli
hæða húss við Kaplaskjólsveg. Sá
var fluttur á slysadeild með sjúkra-
bifreið. Meiðsli hans voru talin tölu-
verð. Um nóttina varð stúlka fyrir
bifreið við gatnamót Vesturlands-
vegar og Höfðabakka. Stúlkan var
flutt á slysadeild, en meiðsli hennar
voru talin alvarleg. Einnig var til-
kynnt að maður hefði orðið fyrir
bifreið á Laugavegi. Maðurinn virt-
ist lítt meiddur, en honum var ekið
á slysadeild til vonar og vara. Ann-
ars var föstudagsnóttin annasöm
og höfðu allir vakthafandi lögreglu-
menn í nógu að snúast. Ölvunar-
tengd útköll voru fjölmörg. Þá var
tilkynnt um þijár líkamsmeiðingar,
en þær reyndust minniháttar.
Marga ölvaða einstaklinga þurfti
að fjarlægja úr miðborginni aðfara-
nótt laugardags. Þeir yngri voru
færðir í athvarfið, en þeir eldri voru
vistaðir í fangageymslum.
Snemma á laugardagsmorgun
var tilkynnt að bifreið hefði oltið á
Bústaðavegi á móts við Grímsbæ.
Ökumaðurinn var færður á lög-
reglustöðina grunaður um að hafa
verið undir áhrifum áfengis og fjar-
lægja þurfti ökutækið af vettvangi
með kranabifreið. Þá segir í dag-
bókinni að þrisvar hafi þurft að fjar-
lægja ókunna menn úr stiga-
göngum fjölbýlishúsa þar sem þeir
höfðu sofnað ölvunarsvefni. í öllum
tilvikum reyndust útidyr fjölbýlis-
húsanna hafa verið ólæstar um
nóttina. Um miðjan dag á laugar-
dag var tilkynnt umferðarslys á
Norðurfelli við Vesturberg. Þar átti
bifreið að hafa verið ekið á dreng
á reiðhjóli. í ljós kom að tilkynning-
in reyndist orðum aukin. Drengur
hafði fallið þar af reiðhjóli og
skrámast lítilsháttar. Til öryggis
var talin ástæða til að flytja hann
á slysadeildina.
Á laugardagskvöld varð harður
árekstur með tveimur bifreiðum á
gatnamótum Norðurfells og Suður-
fells. Ökumaður og farþegi úr ann-
arri bifreiðinni voru fluttir á slysa-
deild, en fjarlægja þurfti báðar bif-
reiðamar af vettvangi með krana-
bifreið. Um kvöldið var tilkynnt um
neyðarblys út af Góttu. Við nánari
athugun reyndist þar vera um fagn-
andi Skagamenn að ræða.
Aðfaranótt sunnudags var eril-
söm. M.a. var tilkynnt um lausan
eld í kjallaraíbúð við Undraland.
Töluverðar skemmdir urðu á íbúð-
inni. Þá voru sex aðilar í akstri
grunaðir um ölvun og tveir til við-
bótar reyndust réttindalausir á öku-
tækjum sínum.
Á sunnudagskvöld varð níu ára
gamall drengur á reiðhjóli fyrir bif-
reið á gatnamótum Melabrautar og
Hæðarbrautar. Talið er að hann
hafí lærbrotnað. Drengurinn mun
hafa hjólað eftir Hæðarbraut, en
bifreiðinni var ekið eftir Melabraut
og beygt áleiðis inn á Hæðarbraut
þar sem bifreiðin og hjólið lentu
saman. Þá var tilkynnt um umferð-
arslys á Kleppsvegi gegnt húsi
nr.72. Þar var bifreið ekið á ljósa-
staur. Ökumanni og farþega var
ekið á slysadeild, en þar kom í ljós
að farþeginn virtist hafa hlotið al-
varleg meiðsli á hrygg, en meiðli
ökumannsins reyndust ekki telj-
andi. Fjarlægja þurfti bifreiðina af
vettvangi með krana. Um helgina
voru tilkynnt 7 umferðarslys og 21
annað umferðaróhapp. Grunur er
um ölvunarakstur í einu tilvikanna.
Á sunnudagskvöld var tilkynnt
að maður væri að svamla í sjónum
við hvalbátana. Talið var að honum
hefði verið hent í sjóinn. Maðurinn
komst af sjálfsdáðum upp úr sjón-
um og sást hlaupa upp bryggjuna.
Við athugun kom í ljós að þarna
var um að ræða ölvaðan skipveija
af dönsku varðskipi og hafði hann
fallið í sjóinn á Ieið sinni um borð,
en ekki orðið meint af. Honum var
því ekið að varðskipinu þar sem
hann fór um borð.
Alls eru færðar 536 bókanir í
dagbókina á tímabilinu. Af þeim
eru m.a., auk umferðaróhappanna,
65 vegna of hraðs aksturs öku-
manna, 13 vegna ölvunaraksturs, 4
vegna réttindaleysis ökumanna, 72
vegna annarra umferðarlagabrota,
74 vegna ölvunarástands fólks, 4
vegna heimilisófriðar, 13 vegna inn-
brota, 7 vegna þjófnaða, 8 vegna
líkamsmeiðinga, 12 vegna skemmd-
arverka, 9 vegna rúðubrota, 12
vegna gistingar af sjálfsdáðum í
fangageymslu og 19 vegna aðstoð-
ar ýmiss konar. Margir þeirra sem
kærðir voru fyrir að aka of hratt
voru staðnir að því að aka verulega
yfir leyfileg hámarkshraðamörk í
nágrenni borgarinnar.
37. leikvika, 18 - 19. sepL 1993
Nr. Leikur: Röðin:
1. Haimstad - MabnöFF - - 2
2. Heisingborg - Öster i - -
3. Hackcn - Degerfoss i - -
4. Trelieborg - Brage - X -
S. Örebro - Norrköping - - 2
6. Coventry - Chelsea - X -
7. Everton - Liverpooi 1 - -
8. Ipswich - Aston Villa - - 2
9. Manch. Utd. - Arsenal 1 - -
10. Q.P.R. - Norwich - X -
11. Swindon - Newcastle - X -
12. Tottenham - Oldham 1 - -
13. Wimbledon - Man. Clty 1 - -
Heildarvinningsupphœðin;
84 milljón krónur
13 réttlr: 750.580
12 réttir: 11.030 |
11 réttin 880
10 réttir: 1
EURO fTIPS
| 37. leikvika, 15-16. sept 1993
Nr. Leikur: Röðin:
1. Rosenborg - A. Wien 1 - -
2. AIK - Sparta Prag 1 - -
3. W. Bremen - D. Minsk 1 - -
4. f A - Feyenoord 1 - -
5. Aarau - AC Milan - - 2
6. Norwidt - V. Amheim 1 - -
7. Bröndby - Dundce 1 - -
8. Norrköping-Mechdoi - - 2
9. Öster - Köngsvinger - - 2
10. KR - MTK Budapest • • 2
11. Twente - B. Munchen - - 2
12. Nantes - Valescia - X -
13. Innsbruck - F. Budapest 1 - “
14. Odense - Arsenal - - 2
Hcildarvinningsupphæðin:
8 milljón krónur
14 réttir: 7.504.510 | kr.
13 réttir: 21.950 i
12 réttir: 870 J kr.
11 réttir: 0 | kr.