Morgunblaðið - 15.10.1993, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993
Verðlagning bækiunarlækninga röng segir Brynjólfur Mogensen
Verð oft þriðjungur
af raunkostnaðinum
AÐGERÐIR við bæklunarlækningar hérlendis eru rangiega verðlagð-
ar í gjaldskrám og allt niður í þriðjung þess sem þær raunverulega
kosta, að sögn Brynjólfs Mogensen, yfirlæknis slysa- og bæklunardeild-
ar Borgarspítala. „Verðlagning á bæklunarlækningaaðgerðum er tóm
vitleysa í dag,“ segir Brynjólfur. „Þjónusta hér er þrisvar sinnum
ódýrari en t.d. í Svíþjóð, og er þó stofnkostnaður, tækjakostnaður og
verð aðfanga sambærilegt við aðgerðir þar.“ Hann segir að grunnur-
inn sé vitlaust reiknaður í upphafi.
í dag greiðir sjúklingur utan
Landspítala og Borgarspítala 1.200
kr. grunngjald og 40% af kostnaði
við aðgerð samkvæmt gjaldskrá
Læknafélags íslands, og Trygginga-
stofnun ríkisins þáð sem á vantar.
Samkvæmt upplýsingum frá Trygg-
ingastofnun, sem greiðir hluta
kostnaðar af aðgerðum sem sérfræð-
ingar framkvæma á eigin stofum
og á dagsjúklingum innan sjúkra-
húsa, var heildarkostnaður fyrir
bæklunarlækningar- og viðtöl rúm-
lega 150 milljónir kr. á seinustu
þremur árum.
Ósamræmi
Brynjólfur segir að þorri aðgerða
í bæklunarlækningum kosti undir
120 einingum, ef svæfíngarlæknir
deyfir sjúkling, en einingin er rúmar
131 kr. Gjaldskrá verðleggi hins
vegar flestar dýrari aðgerðir í algeru
ósamræmi við raunverulegan kostn-
að. Sem dæmi um ranga verðlagn-
ingu nefnir hann liðspeglun á hné,
þar sem sjúklingur fær mænudeyf-
ingu eða svæfingu. „Það má reikna
með að svæfingarlæknirinn og sá
er framkvæmdi aðgerðina fengi
samkvæmt samningum samtals um
250 einingar í dýrasta dæminu fyrir
þessa aðgerð, og því áætlar gjald-
skráin að kostnaðurinn sé um 32
þús. kr. Gjald fyrir liðspeglun í Sví-
þjóð er tæplega 100 þúsund kr., eða
þrisvar sinnum hærri upphæð sem
er nær réttum kostnaði en hér.
Samningarnir eins og þeir eru núna
eru rangir og verðið sem sett er upp
nægir oft ekki fyrir kostnaði við
aðgerð. Án þess að verðmat sé leið-
rétt geta læknar ekki tekið að sér
sjálfstæða umsjá þessara aðgerða."
Hann kveðst sannfærður um að
ein af þeim leiðum sem til greina
komi tii að minnka fjárhagslegan
skaða vegna þessa sé að leggja dag-
gjöld á sjúklinga. „Daggjöld eru eins
og bannyrði hérlendis, en er eitthvað
að því að fólk borgi t.d. 500 kr. á
dag fyrir matinn sem það lætur ofan
í sig á sjúkrahúsunum? Ég held
ekki,“ segir Brynjólfur.
VEÐUR
VEÐURHORFUR I DAG, 15. OKTOBER
YFIRLIT: Milli íslands og Grænlands er 1.034 mb hæð sem þokast
austur og verður yfir landinu á morgun. Við norðvesturströnd Nóregs
er 988 mb smálægð sem hreyfist suðsuðvestur.
SPÁ: ( dag verður norðan stinningskaldi austast á landinu og él en
annars verður fremur hæg norðlæg eða breytileg átt og léttskýjað. Áfram
verður frost um svo til allt land.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Hæg suðaustlæg átt og dregur úr frosti,
fyrst suðvestanlands. Sunnan- og vestanlands þykknar upp og verður
slydda vestanlands er líður á daginn.
HORFUR A SUNNUDAG: Búast má við suðlægri átt og frostlausu um
mest allt land. Rigning eða slydda víða um land.
HORFUR A MÁNUDAG: Vindur snýst líklega til norðlægrar áttar og
kólnar aftur með óljum norðaustanlands en birtir upp sunnan- og vestan-
iands.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22. 30. Svarsími Veðurstofu fslands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað
/ / / * / *
r r * r
/ / r / * /
Rigning Slydda
Hálfskýjað Skýjað Alskýjað
ý ^ ý
Skúrir Slydduél. Él
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og flaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
v súld
= Þoka
s«g-.
FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 (gær)
Þjóðvegir landsins eru flestir í góðu ásigkomulagi og greiðfærir. Víða
hefur snjóað á fjöllum á Vestur-, Norður- og Austurlandi og búast má
við hálku þar. Viða er þó unnið að vegagerð og þurfa vegfarendur að
haga akstri samkvæmt merkingum þar. Hálendisvegir eru færir fjallabíl-
um, en búast má við að hálka og snjór séu þar núna. Slóðir eru ekki
skoðaðar og engar fréttir af þeim.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti I síma 91-631500 og
ígrænnilínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl. tfma
hiti veður
Akureyri -^3 úrk. ígrennd
Reykjavlk +2 skýjað
Bergen 5 skýjað
Helsinki 5 skýjað
Kaupmannahöfn 5 rigning
Narssarssuaq 8 skýjeð
Nuuk 3 skýjað
Osló 5 léttskýjsð
Stokkhólmur 6 léttskýjað
Þórshöfn 2 léttskýjað
Algarve 17 alskýjað
Amsterdam 9 rigning
Barcelona 21 léttskýjað
Berlín 14 rignlng
Chicago 5 skúrásíð. klst.
Feneyjar 20 rigning
Frankfurt 16 skýjað
Glasgow 9 léttskýjað
Hamborg 9 rígning
London 11 skýjað
LosAngeles 17 alskýjað
Lúxemborg 11 skúr
Madrtd 12 skýjað
Malaga 19 alskýjað
Mallorca 21 skýjað
Montreal + 1 léttskýjað
NewYork 6 skýjað
Orlando 19 þokumóða
París 14 rigning
Madelra 21 léttskýjað
Róm 24 þokumóða
Vín 24 skýjað
Washington 11 alskýjað
Winnipeg +3 léttskýjað
IDAG k\. 12.00
Heimild: Veðurstofa íslands
(Byggt á veðurspá kt. 16.15 í gær)
Mynd/Bragi Magnússon
Siglingá vélsleða
JÓNMUNDUR Gunnar Guðmundsson varð fyrstur manna til að
komast á vélsleða út í Viðey og aftur til baka sl. þriðjudag. Vega-
lengdin er 900 metrar og verður að halda 60 til 70 km hraða á
klukkustund ef sleðinn á ekki að sökkva. Margir vélsleðamenn hafa
freistað gæfunnar á þessari leið, nokkrir sokkið á leiðinni en öðrum
lánast að komast út í Viðey. Hingað til hefur engum tekist að kom-
ast klakklaust til lands aftur.
Yfirlögregluþj ónn
leystur frá störfum
DÓMSMÁLARÁÐHERRA hefur veitt yfirlögregluþjóni á Siglufirði
lausn frá störfum í framhaldi af máli sem upp kom á Siglufirði í
vor. Þá fundu tollverðir á Siglufirði áfengi og reiðtygi í vörusend-
ingu sem var í eigu sýslumannsins á staðnum. Sýslumaðurinn hefur
sagt af sér en er ekki sáttur við hversu hart hefur verið tekið á málinu.
Halldór Þ. Jónsson, settur sýslu-
maður á Siglufirði, sagði að yfirlög-
regluþjóninum á staðnum hefði ver-
ið veitt lausn frá embætti og hefði
honum verið birtur úrskurðurinn í
gær. Yfirlögregluþjóninum var veitt
tímabundin lausn frá störfum í vor
skömmu eftir að málið kom upp.
Smávægilegt afbrot
Erling Óskarsson sýslumaður á
Siglufirði sagði af sér í kjölfar
málsins. „Ég lít svo á að brottvikn-
ing yfirlögregluþjónsins sé alger-
lega út í hött,“ sagði Erling í sam-
tali við Morgunblaðið. „Afbrot hans
er svo smávægilegt að annar hver
maður þyrfti að fjúka í þessu kerfi
ef fylgt væri sömu reglu.“
Erling segist hafa verið neyddur
til að segja af sér en hann lítur svo
á að hann hefði sem opinber starfs-
maður átt rétt á að sleppa með
áminningu fyrir minniháttar brot.
Hann sagði að margt ætti eftir að
koma í ljós í þessu máli en sjálfur
myndi hann ekkert aðhafast fyrir
en saksóknari hefði tekið ákvörðun
um framhald þess.
Hlaut tveggja ára
fangelsi fyrir rán
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær 21 árs gamlan mann í tveggja ára
fangelsi fyrir líkamsárás og rán. Maðurinn var einnig dæmdur til
að greiða allan áfrýjunarkostnað og málsvarnarlaun skipaðs verj-
anda síns fyrir Hæstarétti.
Í dómnum segir að fallast beri
á það með héraðsdómara að sann-
að sé að ákærði hafi átt beinan
hlut að ráninu og bendi allt til að
hann hafi ásamt tveimur mönnum
öðrum farið á eftir manni út af
veitingahúsinu Keisaranum í
Reykjavík fyrir réttu ári með þeim
ásetningi að ræna hann. Sakbom-
ingnrinn var laus til reynslu þegar
þetta gerðist. Hann hefur nú af-
plánað þá dóma að fullu sem hann
hafði ekki setið af sér.
Maðurinn var tvítugur að aldri
er brotið var framið og á að baki
nokkurn afbrotaferil. Með tilvísan
til þess að hann er ungur að árum
þótti Hæstarétti, þrátt fyrir brota-
feril hans, rétt að stytta refsingu
frá því sem ákveðið var í héraðs-
dómi og dæmdi manninn til
tveggja ára fangelsisvistar í stað
þriggja eins og héraðsdómur kvað
á um.
Staða borg-arendur-
skoðanda auglýst
STAÐA borgarendurskoðanda hefur verið auglýst laus til umsókn-
ar, en ráðið verður í stöðuna frá 1. januar næstkomandi.
Bergur Tómasson hefur gegnt störfum fyrir aldurs sakir þar sem
stöðu borgarendurskoðanda frá hann verður sjötugur í næsta mán-
árinu 1975. Hann lætur nú af uði.