Morgunblaðið - 15.10.1993, Síða 10

Morgunblaðið - 15.10.1993, Síða 10
ib* MORGUNBLáÐIÐ FÖSTUÐAGIÍR 15. ÖkTÓBKR Í9$’ Augnablik sannleikans ________Leiklist____________ Súsanna Svavarsdóttir Frú Emilía - Héðinshúsinu AFTURGÖNGUR Höfundur: Henrik Ibsen Þýðing: Bjarni Benediktsson frá Hofteigi Tónlist: Sigurður Halldórsson Lýsing: Björn B. Guðmundsson Leikmynd og búningar: Njall Rea Leikstjóri: Sigríður Margrét Guðmundsdóttir „Syndir feðranna koma niður á börnunum,“ sagði Henrik Ibsen um leikrit sitt Afturgöngur og víst er að verkið fjallar um afleið- ingar af fjarlægri fortíð. Það gerist á heimili frú Alving og það er sonur hennar, Ósvald, sem erft hefur sjúkdóm frá föður sín- um; sjúkdóm sem ekki má nefna á nafn. En það er ekki bara þessi óljósi sjúkdómur frá föðumum sem er að leggja líf Ósvalds í rúst — heldur era það mein frá móðurinni sem heita „þögn“, „lygar“ og „blekkingar“. Hún hefur alla tíð leynt soninn réttu eðli föðurins — sendi hann ungan að heiman til að „vernda“ hann og í drengnum er hyldýpi tóm- leika og þjáningar sem verður til þegar skorið er á tilfinningasam- band við móður — og föður. Hann var ekki fær um að axla þá ábyrgð sem föðurhlutverki fylgir, vegna óreglu og sukks, hún átti fullt í fangi með að hafa hemil á karlinum svo samfélagið frétti ekki af framferði hans; heimilislífið snerist um átök hjón- anna — bamið varð að víkja. Réttlætingin heitir „vernd“ hjá frú Alving — rétt eins og hægt sé að vernda einhvern gagnvart lífinu. Að vísu gerir frú Alving þetta í góðri trú og meiningu. Hún veit ekki betur. Inn í augnablik sannleikans fléttast séra Manders, fjölskyldu- vinur, Regína, stofustúlka hjá frú Alving og „faðir“ hennar, Eng- strand smiður. Séra Manders er læstur inni í dyggðum og strang- kristilegum viðhorfum; notar þau til að þurfa ekki að taka þátt í lífinu og til að dæma þá sem það gera. Hann hefur engan skilning á tilfinningum fólks og örlögum — en er þeim mun varnarlausari andspænis skúrkum, eins og Engstrand, sem lifa í óreglu en koma til hans iðrandi með reglu- legu millibili. Dóttir Engstrands, Regína, hefur verið lengi á heim- ili frá Alving og þegar kemur að sannleiksstundinni, hafa hún og Ósvald fellt hugi saman og ætla sér að yfirgefa þennan eyðilega stað fyrir fullt og allt. Með hlutverk frú Alving fer Margrét Ákadóttir og fer mjög vel með það hlutverk. Mér finnst Ibsen oft vera maður „ofurdra- mans“, en Margrét nær að gera frú Alving býsna eðlilega; leikur af miklu jafnvægi á stigvaxandi örvæntingu hennar. Mér hefur oft fundist kvenpersónur Ibsens leiknar eins og þær séu móðu- sjúkar en ekki örvilnaðar — en hér verður frú Alving mennsk og það er mjög auðvelt að skilja að henni gekk gott eitt til. Um leið og maður finnur til með henni, vegna óbærilegra að- stæðna, verður hún fremur frá- hrindandi örlagavaldur. Á þá andstæðu strengi nær Margrét að spila. Þröstur Guðbjartsson leikur séra Manders. Túlkun hans á þessum óttaslegna manni — sem kallar dómhörku sína kristilegan kærleika og tækifærissinni sitt samlíðan með þeim sem iðrast — er stórkostleg! Það hefur lengi verið mér hulin ráðgáta hvers- vegna þessi einstaki leikari er ekki gernýttur í leikhúsunum. Ég man ekki eftir að hafa séð hann ganga frá jafnvel smæstu af smáum hlutverkum öðruvísi en með því að stela senunni. Vinnubrögð hans eru óvenjulega vönduð og það er hreinn unaður að horfa á hann loksins í stóru hlutverki, þar sem öll hans hæfni nýtur sín til hins ýtrasta. Hann fylgir hverri setningu eftir með hárnákvæmum svipbrigðum, blæbrigði raddarinnar eru svo rík að aíltaf er ljóst að séra Manders talar tungum tveim; eins og leik- ið sé á tvö hljóðfæri og líkams- beitingin er óaðfinnanleg. Séra Manders verður hlægilegur — ekki „kómísk“ týpa, heldur hlægilegur frá sjónarhóli gildis- mats sem gengur út frá því að tilfinningar og mennska sé eitt- hvað raunverulegt. En um leið er ljóst hvaða ógn hann er við einmitt þetta gildismat í því samfélagi sem hann býr í. Sigurður Skúlason leikur Eng- strand smið og er sannfærandi í hlutverki þessa grófa skúrks, sem hefur upprætt allt göfugt og gott í sér, en er næmur á tækifæri sem hann getur nýtt sér. í hlutverki Ósvalds er Ari Matthíasson og fannst mér túlk- un hans á þessum unga manni, sem rambar á mörkum þess að vera heilbrigður, dálítið ábóta- vant; örvæntingin verður hávaði og „köstin" yfirdrifin. Örvilnan hans þegar hann heldur að hann sé sjálfur valdur að sjúkleika sín- um er ekkert öðruvísi en reiðin sem hann sýnir þegar hann áttar sig á þessu með syndir feðranna. Það sama má segja um Jónu Guðrúnu Jónsdóttur. Leikur hennar var of varkár; hún verður mjög mött persóna í stað þess að vera vel skikkuð stúlka og þegar hún reiðist, verður það hávaði. Bæði Guðránu og Ara skortir töluvert í raddbeitingu til að persónur þeirra lifni á sviðinu. Leikmyndin finnst mér ekki ganga upp. í fyrsta lagi finnst mér rýmið undir hana of stórt. Það er hátt til lofts í Héðinshús- inu og hljómburður því erfiður; textinn vill bergmála og jafnvel týnast, eins og hann leysist upp í öllu þessu rými. Meginleiksvæð- ið er fremur eyðilegt og borð- stofa frá Alving síðan utansviðs, þannig að gengið er út úr leikrit- inu til að fara inn í hana. Þetta rýfur athygli áhorfandans; blekk- ingin milli hans og leiksviðsins fellur, hann verður meðvitaður um að hann er í leikhúsi í stað þess að verða tilfinningalega þátttakandi í þeim harmleik sem á sér stað. Búningarnir voru hins- vegar smekklegir að mestu leyti, þótt mér hafi þótt buxur Ósvalds mega vera betur sniðnar og dálít- ið síðari. Hann varð hálf-kauðsk- ur. Tónlistin féll vel að verkinu. Einleikur á selló, þar sem áhersl- an var á döprum tónum. í leikstjórninni fannst mér vera nokkuð rangar áherslur og mis- vægi, sem gerði sýninguna frem- ur flata. Misræmi í leik er þar eitt atriði. Annað er að viðbrögð persónanna við smáatriðum voru sterk; svo sem Regínu, þegar faðir hennar kemur í heimsókn og Ósvalds gagnvart bullinu í séra Manders. Það skorti spennu í sýninguna og þegar kom að stund sannleikans — ástæðunni fyrir því að elskendurnir Ósvald og Regína gátu ekki fengið að eigast, voru nánast engin við- brögð, enginn harmur. Hún stóð upp og sagðist vera farin, hann var alveg „grallaralaus“ og þetta augnablik sem afhjúpar afleið- ingarnar af syndum feðranna, lá steindautt á sviðinu. Sýningin náði eingöngu að lifa í þeim sen- um sem eru á milli frú Alving og séra Manders; þar voru þagn- ir nákvæmar og spenna í loftinu, en þegar kom að unga parinu, var Regína gersamlega litlaus og Ósvald virkaði ekki sem persóna sem er uppgefin á lífinu, heldur sem leikari sem er uppgefinn á hlutverkinu. Þarna hefði þurft að slípa verulega til, sérstaklega hvað varðar þagnir, sem hluta af spennubyggingu; lokahlutinn varð of hraður en dramatískt nið- urlag dálítið langdregið og á skjön, vegna þess hversu létt- vægt og snöggt sannleiksaugna- blikið var. Píanóleikari lítur um öxl Merkar hljóðritanir Rögnvaldar Sigurjónssonar píanóleik- ara gefnar út í tilefni 75 ára afmælis hans RÖGNVALDUR Sigurjónsson píanóleikari er 75 ára í dag. í tilefni afmælisins gefur Japís út úrval hUóðritana Rögnvaldar frá árunum 1948-1963. Hljóðritanirnar voru gerðar hjá Ríkisútvarpinu og hafa varðveist þar á lakkplötum og tónböndum til dagsins í dag að þær eru endurútgefnar á geisladiski. „Ég er bara dálítið ánægður með þennan disk,“ segir Rögnvald- ur þar sem hann situr í vinnustofu sinni við Þórsgötuna. Steinway & Sons flygillinn stendur hljóður í hominu og á veggjum eru myndir frá atburðum á ferli Rögnvaldar, í hillum skáldverk og bækur um tónlist. „Upptökumar lýsa mér eins og ég var á þessum áram og skapa skemmtileg tengsl við fortíðina," heldur Rögnvaldur áfram. Upptök- urnar voru ýmist gerðar um leið og útsendingar fóru fram eða tekn- ar upp í útvarpssal til síðari flutn- ings. Ekki var stoppað til að betr- umbæta upptökuna, eins og tíðk- ast í hljóðverum nútímans, heldur leikið viðstöðulaust líkt og á tón- leikum. Flutningurinn er því lif- andi, hlaðinn spennu og áhrifum augnabliksins. Góður hljómburður, þrátt fyrir aldur Fyrir nokkram árum fóru Rögn- valdur og kona hans, Helga Egil- son, að forvitnast um hvað til væri í fóram Ríkisútvarpsins af upptök- um með leik Rögnvaldar. „Ég var búinn að gleyma sumu sem við fundum og það kom mér á óvart að margt var í mjög sæmilegu ástandi,“ segir Rögnvaldur. Hug- myndin að útgáfu gömlu hljóðrit- ananna kviknaði síðan hjá Helgu konu hans. „Hún lét mig ekkert vita af þessum hugleiðingum í fyrstu. Svo hófust mjög leyndar- dómsfullar símhringingar milli hennar og Runólfs Þórðarsonar verkfræðings, vinar míns og fyrr- um nemanda. Það má segja að hann sé vísindamaður í öllu því sem lýtur að píanóleik, bæði hvað varð- ar flytjendur og tónlistarsögu. Það kom upp úr kafinu að hann hafði einmitt látið sér detta í hug það sama og Helga, að gefa þessar hljóðritanir út. Runölfur leitaði til Japís með hugmyndina og fékk sérlega ljúfmannlegar viðtökur hjá Ásmundi Jónssyni.“ Rögnvaldur fékk um síðir að vita af áformunum um útgáfuna og tók fullan þátt í að velja efnið á diskinn. Hann vann með Þóri Steingrímssyni tæknimanni að yf- irfærslunni á stafrænt segulband sem diskurinn er unninn eftir. „Þórir er mjög flinkur maður og næmur á tónlist. Ha,nn hreinsaði út rispur og aukahljóð sem voru á gömlu plötunum. Mér finnst hafa tekist ótrúlega vel til og merkilega góður hljómur á diskinum, í ljósi þess hvað þetta era gamlar upptök- ur.“ Grafið úr gleymsku Þegar farið var að hlusta á gömlu plöturnar kom ýmislegt í Ijós sem fallið var í gleymskunnar dá. Það á til dæmis við um fyrsta verkið á diskinum og elstu hljóðrit- unina, Píanókvintett, Opus 44 eftir Schumann. „Helga kom heim og sagði mér að þau Runólfur hefðu fundið upptöku frá 1948 af Schu- mann-kvintettinum. Ég sagði að þetta hlyti að vera tóm vitleysa, ég hefði spilað kvintettinn löngu síðar og hann ekki hljóðritaður. Ég verð að játa að ég var spennt- ur að vita hvað þarna væri á seyði. Við Runólfur fóram til að kanna þetta nánar. Upptakan var á tveimur lakkplötum og pínulítill merkimiði á hvorri plötu. Á fyrri plötuna var bara skrifað Rögnvald- ur og Kvartett Tónlistarskólans, Reykjavík 1948. Ég lét kanna á Landsbókasafninu hvort eitthvað væri skrifað um þessa upptöku í Utvarpstíðindum og viti menn, í maí 1948 var bein útsending þar sem ég lék þetta verk með Kvart- etti Tónlistarskólans. Magnara- vörðurinn hafði tekið þetta upp á hljómplötu um leið og útsendingin fór fram og var upptakan leikin í útvarpi viku síðar og síðan aldrei meir. Plöturnar voru sem næst óslitnar og það kom mér mjög gleðilega á óvart að þetta skyldi vera til,“ segir Rögnvaldur. Þau sem léku með Rögnvaldi á þessari upptöku voru Hans Stephanek á 1. fiðlu, frænka Rögnvaldar, Katr- ín Dalhoff Bjamadóttir Dannheim, lék á 2. fiðlu, Sveinn Ólafsson á lágfiðlu og dr. Heinz Edelstein á hnéfiðlu. Samtímamaður tón- listarmenntunar Það má segja að Rögnvaldur sé samtíðarmaður sígildrar tónlistar- menntunar á Islandi. Hann var aðeins 12 ára gamall þegar hann varð einn af fyrstu nemendum Morgunblaðið/Þorkell Píanóleikarinn RÖGNVALDUR Sigurjónsson segir hljóðritanir á nýjum geisladiski gefa góða mynd af leik sínum fyrstu tvo áratugina eftir að hann sneri heim frá námi 1945. Tónlistarskólans í Reykjavík 1930 og var fyrst lærisveinn Franz Mixa og síðar Árna Kristjánssonar. Hann segir það gæfu sína að Ámi Kristjánsson kom til starfa við Tónlistarskólann 1933, það hafi ekki vafist fyrir sér að hann vildi leggja tónlistina fyrir sig þrátt fyr- ir ungan aldur. Að loknu námi í Tónlistarskólanum fór Rögnvaldur til framhaldsnáms í París hjá Marc- el Ciampi og í New York hjá Sasc- ha Gorodnitzki. Frumraun hans á tónleikasviði var í Washington, D.C., 1945. Þótt Rögnvaldur ætti góðar framavonir í útlöndum hélt hann heim með fjölskyldu sína og tók til við kennslu og tónleikahald, bæði heima og erlendis. Hann var yfirkennari píanódeildar Tónlistar- skólans í Reykjavík um 30 ára skeið. Rögnvaldur fór á eftirlaun en var ekki reiðubúinn að setjast í helgan stein. Hann fór að kenna við Nýja tónlistarskólann og hefur þar tíu nemendur. „Ég hef gaman af að kenna og gæti ekki lifað annars, því eftirlaun tónlistarkenn- ara eru sko ekki nein bankastjóra- eftirlaun, það er eitt sem víst er.“ Og enginn bíll? „Nei, ég hef aldrei átt bíl.“ íslensk og erlend verk Geisladiskinum fylgir greinar- gerð Runólfs Þórðarsonar þar sem hann rekur sögu verkanna og seg- ir frá ferli Rögnvaldar. Auk píanó- kvintettsins, sem fyrr er tálinn, eru á diskinum fjögur verk eftir Liszt: Spönsk rapsódía (S.254), Au bord d’une source (S.160.4), Sonetto 123 del Petrarcha (S.161.6), Mep- histo-vals nr. 1 (S.514). Tvö verk eftir Debussy: La soirée dans Grenade og Bruyéres. Þá eru þrjú íslensk verk, Strákalag eftir Jón Leifs, Sónatína eftir Jón Þórarins- son og Rondo Islanda eftir Hall- grím Helgason.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.