Morgunblaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 15.10.1993, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993 21 Nýr Nissan jeppi NÝI jeppinn frá Nissan er Terrano II og er hann hannaður og fram- leiddur hjá Evrópudeild Nissan. Nýr Nissan-jeppi frum- sýndur um helgina NÝR NISSAN-jeppi verður frumsýndur um helgina hjá Nissan- umboðinu, Ingvari Helgasyni í Reykjavík. Er það Nissan Terrano II sem er hannaður á ábyrgð Evrópudeildar Nissan og framleiddur á Spáni. Terrano II verður viðbót við jeppaframboð Nissan því áfram verða í boði Patrol, King Cab og Pathfinder Terrano jepparnir. Nissan Terrano II var sýndur verður aðeins fáanlegur með hand- fyrst á bílasýningunni í Genf snemma á þessu ári og er til í tveim- ur lengdum en hér verður aðeins fáanleg Wagon-útgáfan sem er femra dyra. Bíllinn er annars vegar með 2,4 lítra og 124 hestafla bens- ínvél og hins vegar 2,7 lítra 100 hestafla túrbó dísilvél. Þessi jeppi skiptingu. Verðið er kringum 2,6 milljónir. Þá hefur Ingvar Helgason fengið 1994-árgerðina af Nissan Primera. Sá bíll er nú fáanlegur með nýrri sjálfskiptingu sem býður uppá spól- vörn og spyrnustillingu sem ekki var í eldri árgerðum. Mickey Jupp leikur í Tveimur vinum BRESKI rokkarinn, lagasmiður- inn og söngvarinn Mickey Jupp er nú staddur hér á landi og hefur leikið á tónleikum víða um land undanfarið. Hann er brátt á förum og heldur síðustu tón- leika sína í Reykjavík í Tveimur vinum í kvöld. Mickey Jupp hóf feril sinn á sjö- unda áratugnum og nýtur mikillar virðingar meða annarra tónlistar- manna fyrir lagasmíðar sínar, var meðal annars kallaður Chuck Berry Bretlands á sínum tíma, en sjálfur hefur hann forðast almenna frægð. Jupp hefur leikið með KK Band sér til halds og trausts og svo verður einnig á Tveimur vinum í kvöld. Á morgun fara þeir félagar síðan til ísaQarðar og leika annað kvöld, en síðustu tónleikar Mickeys Jupps á íslandi að sinni verða í Vagninum á Flateyri á sunnudag. Mickey Jupp Dagur krabbameins á Heilsu og heilbrigði DAGUR krabbameins er í dag á sýningunni Heilsu og heilbrigði í Perlunni. Krabbameinsfélag Islands gengst fyrir fyrirlestrum og myndbandasýningum auk annars konar fræðslu. Dagskráin hefst kl. 18 með fyrir- lestri Helga Sigurðssonar læknis í fundarsal Perlunnar, Er hægt að koma í veg fyrir krabbamein? Bald- ur Sigurðsson yfirlæknir flytur fyr- irlesturinn Leit að brjóstakrabba- meini kl. 20 og kl. 21 flytur Val- gerður Sigurðardóttir læknir erindi sem nefnist Að vera með krabba- mein. Fræðslumyndbönd um skaðsemi reykinga, tvö erlend og þijú ís- lensk, verða sýnd kl. 17.30, 18.30, 19, 19.30, 20.30 og 21,30. Ragn- hildur Zoéga og Ingileif Ólafsdóttir, fræðslufulltrúar Krabbameinsfé- lags Reykjavíkur, verða á staðnum og veita upplýsingar. Auk þeirra verður á staðnum fulltrúi frá Styrk, samtökum krabbameinssjúklinga og aðstandenda þeirra. Prófessor verðlaunaður STJÓRN verðlaunasjóðs dr. Ólafs Danielssonar og Sigurðar Guð- mundssonar arkitekts hefur ákveðið að veita dr. Jakobi Yngvasyni prófessor verðlaun að upphæð 400.000 kr. fyrir framúrskarandi rannsóknir á stærðfræðilegum grunni eðlisfræðinnar. I frétt frá sjóðsstjórninni kemur á nytsömum byggingum eða skipu- fram að tilgangur sjóðsins sé tví- lagi innanbæjar í Reykjavík, einnig þættur. Annarsvegar að verðlauna á sex ára fresti. íslenskan stærðfræðing, stjörnu- Stjórn sjóðsins skipa Halldór El- fræðing eða eðlisfræðing á sex ára íasson, prófessor, fonnaður, Guðni fresti en hinsvegar að verðlauna Guðmundsson, rektor, og Guðríður íslenskan arkitekt fyrir teikningar Sigurðardóttir, ráðuneytisstjóri. John Frazer-Robinson í febrúar sl. fengu yfir 200 íslendingar að kynnast kenningum þessa heimsþekkta og eftirsótta markaðsmanns og óskuðu eindregið eftir frekari fræðslu hans. Stjómunarfélagið býður nú tvær námsstefnur sem JFR nefnir: „The Secrets of Effective Direct Mail“ 19. október nk. kl. 9—17 JFR mun fjalla nánar um ýmsa þætti beinnar markaðssóknar (Direct Marketing), með aðaláherslu á MARKPÓST (Direct Mail). Þetta er námsstefna sem hlotið hefur miklar vinsældir víða um heim og hefur verið aðalnámsefnið á alþjóðlegri ráðstefnu um beina markaðssókn í London undanfarin ár. Verð kr. 15.000,- 09 „The JFR Masterclass“ 21. október nk. kl. 9—17.30 Hér verður fjallað ítarlega um aðferðarfræði beinnar markaðssóknar þar sem JFR mun sjálfur vinna með þátttakendum að raunhæfum verkefnum þeirra í vinnuhópum. Verð kr. 18.000,- Staðun Hótel Saga, Þingstofa A Stjórnunarfelag íslands Fjöldi takmarkaður Skráning og nánari upplýsingar í síma 621066 Málningardeild: HARPA - MÁLNING - SJÖFN - SLIPPFÉLAGIÐ Innimálning 10% gljái 15% afsláttur Voxdúkur 15% afsláttur Veggfóður og veggfóðursborðar 20% afsláttur Teppadeild: Gólfdúkur í 2ja metra stærðum - verð frá kr. 775,- Frönsku filtteppin - verð frá kr. 350,- fm Keramik-flísar - 20-25% afsláttur ÓDÝRU STÖKU TEPPIN FYRIR PARKETIÐ EÐA FLÍSARNAR Dæmi: SARAH 160x230 kr. 4.864,- MONACO 160x230 kr. 8.274,- laugardag kl. 10 til 13 Líttu inn í Litaver þvíþað hefur ávallt borgað sig Öll íslensk málning! - Veljum íslenskt IGREIÐSLUR TIL18 MÁNAÐA GRENSÁSVEGI 18 SÍMI 812444

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.