Morgunblaðið - 15.10.1993, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 15.10.1993, Qupperneq 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993 Rannsókn- ir styðja afstæðis- kenningn TILKYNNT var á miðvikudag að Bandaríkjamennimir Joseph Taylor, 52 ára, og Russell Hulse, 42 ára, hlytu nóbels- verðlaun í eðlisfræði í ár fyrir uppgötvanir sínar á tvískauta tifstjörnum en rafsegulbylgjur sem stjörnurnar senda frá sér, hafa rennt styrkari stoðum undir afstæðiskenningu Ein- steins. Taugaveiki í Alsír? UM 9.000 Alsírbúar hafa verið lagðir inn á spítala síðustu tvo daga með uppköst, niðurgang og hita. Grunur leikur á að um taugaveiki sé að ræða en heil- brigðisyfirvöid í Alsír segja að ástæða veikindanna sé of mik- ill klór í drykkjarvatni. Búast til árása á Rauða khmera NÝSTOFNAÐUR her Kambód- íu býr sig nú undir árás á Rauðu khmerana en þeir einir hafa neitað að samþykkja frið í land- inu. Um 3.000 hermenn hafa umkringt búðir khmeranna í Anlong Veng en niðurstaða samningaviðræðna þeirra og stjórnvalda í næsta mánuði mun ráða úrslitum um hvort herinn lætur til skarar .skríða. Ströng dag- skrárstefna í Kína KÍNVERSKI sjónvarpsmála- ráðherrann hvatti í gær til þess að strangt eftirlit yrði með sjón- varpsdagskrá í landinu. Sjón- varpið væri enn málgagn Kommúnistaflokksins og hagn- aðarsjónarmið mættu alls ekki grafa undan því markmiði fjölmiðilsins. Jafntefli hjá Short og Kasparov GARRÍ Kasparov og Nigel Short gerðu jafntefli í 17. ein- vígisskák sinni í London í gær. Hefur Kasparov nú 11 vinninga gegn 6 vinningum Shorts. Alls tefla þeir 24 skákir. Wiesel gagn- rýnir val Kohls GYÐINGURINN Eli Wiesel, handhafi friðarverðlauna Nó- bels, gagnrýndi í gær val Helm- uts Kohls Þýskalandskanslara á forsetaframbjóðandanum Stefan Heitmann. Sagði hann valið vera mistök. Astardrykkur úr hreindýrs- hornum SÆNSKT fyrirtæki hefur nú sett á markað drykk sem auka á kynorku manna. Saman- stendur hann að hluta úr hrein- dýrshorni í vodka. „Blóðhorns vodka“ kallast drykkurinn og binda framleiðendurnir vonir við að hann sé svar við eftir- spurn Asíubúa eftir ástarmeð- ulum. Lögreglusljórinn í Port-au-Prince neitar að láta af embætti Bandaríkjamenn hóta að setja Haiti í herkví Port-au-Prince, Washington. Reuter. DÓMSMÁLARÁÐHERRA Haiti, Guy Malary, var myrtur í gær er vopnaðir menn ruddust inn á skrifstofu hans og skutu hann í höfuðið. Joseph Michel Francois, lögreglustjóri í Port- au-Prince kvaðst ekki myndu segja af sér þrátt fyrir hvatning- ar erlendra ráðamanna en hann ræður nú lögum og lofum í höfuðborginni. Stuðningsmenn hans hótuðu í gær að efna til allsheijarverkfalls á mánudag og lama á þann hátt alla starf- semi í höfuðborginni. Irönsk stjórnvöld vísa aðild að bana- tilræði í Osló á bug Ósló. Reuter. ÍRÖNSK yfirvöld hafa vísað á bug fullyrðingum fyrrverandi starfs- manns í sendiráði írana í Ósló sem segist þess fullviss að íranir standi á bak við banatilræðið við norska útgefandann William Nygaard á mánudag. Segist maðurinn, Parvis Khazai, hafa varað norsku Iögregl- una við mögulegum árásum íranskra hryðjuverkamanna fyrir fjórum mánuðum. Lögreglan neitar þessu og segir manninn aðeins hafa rætt um að hann sjálfur væri í hættu. í yfirlýsingu ír- anska sendiráðsins í Ósló segir að ír- anir treysti því að almenningur og ijölmiðlar taki ekki mark á svo til- hæfulausum ásök- unum. í samtali við Reuíers-fréttastof- Khazai una fordæmdi tals- maður sendiráðs- ins þó ekki árásina. Khazai segist hafa beðið lögregl- una um að gæta sérstaklega þeirra sem kynnu að verða skotmörk hryðjuverkamanna á vegum íran- skra stjórnvalda. Meðal þeirra hafi verið hann sjálfur, Nygaard og þýð- andi „Söngva Satans“, Kari Risvik. Lögreglustjórinn í Ósló, Willy Haugii, segist hafa hitt Khazai í mars en neitar með öllu að nafn Nygaards hafi verið nefnt. Þá segir yfirmaður öryggislögreglunnar að Khazai hafi haft samband við lög- regluna þar sem hann hafi óttast um eigið öryggi eftir að íranskur andófsmaður var myrtur í Róm í marsmánuði. Norska lögreglan hefur nú í haldi konu sem var farþegi í bíl, sem talið var að hafi sést við heimili Nygaards fyrir skotárásina. Maðurinn sem ók bílnum, flúði og hefur ekki náðst. Lögreglan lýsti því yfir í gær að lík- lega væri bíllinn ekki sá sem leitað hefur verið en hann yrði þó að rann- saka til fulls og yfirheyra konuna. De Bene- detti und- ir grun Róm. Reuter. STJÓRNANDI Olivetti-verk- smiðjanna ítölsku, Cai'lo de Benedetti, er meðal þeirra sem grunaðir eru um fjármálaspill- ingu og ólögleg framlög til stjórnmálaflokka, að sögn frétta- stofunnar ANSA í gær. Itölsk yfirvöld eru einnig að kanna hvort ákæra skuli Cesare Romiti, framkvæmdastjóra Fiat- verksmiðjanna, fyrir spillingu. Ekki reyndist unnt að fá þessar fréttir staðfestar hjá yfirvöldum í gær. De Benedetti hefur þegar viður- kennt að hafa greitt ítölsku póst- og símamálastofnuninni mútur til að hreppa samninga um kaup á framleiðslu fyrirtækjanna. ítalska lögreglan handtók í gær um 130 mafíuliða á ýmsum stöðum í landinu og var þetta gert í sam- starfi við Svisslendinga. Hinir síðar- nefndu munu nú í fyrsta sinn hafa hlítt evrópskum reglum um upplýs- ingaskyldu banka þegar grunur leikur á svonefndum peningaþvotti. Á mánudag ganga í gildi refsi- aðgerðir Sameinuðu þjóðanna hafi valdaræningjarnir þar í landi ekki uppfyllt skilyrði friðarsamkomu- lags, sem kveður á um að Raoul Cedras, yfirmaður hersins, láti af völdum í dag og Jean-Bertrand Aristide komist aftur til valda. Bill Clinton Bandaríkjaforseti varaði í gær lögreglu- og hermála- yfirvöld á Haiti við því að Banda- ríkin kynnu að sjá „einhliða“ til þess að friðarsamningur sá sem herinn undirritaði í júlí sl. verði virtur og lýðræði komið á. Méðal þess sem rætt hefur verið um, er að Bandaríkjamenn setji Haiti í herkví. Þá samþykkti Öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna í gær vopna- og olíusölubann á Haiti og að frysta eigur Haiti erlendis, frá og með miðnætti á mánudag, virði Haiti- menn ekki friðarsamkomulagið. Hefur afsökunarbeiðni Cedras á átökunum við höfnina síðasta mánudag, er vopnaðir menn komu í veg fyrir að bandarískt herskip legðist að bryggju í Port-au- Prince, engin áhrif þar á. Cedras hefur einnig boðist til þess að segja af sér í dag, verði öllum þeim sem stóðu að valdáráninu 1991 veitt sakaruppgjöf. Lögreglustjórinn hefur ákveðið að deyja á Haiti Lögreglustjórinn Francois er milljónamæringur og auk þess að stýra lögreglunni, stjórnar hann mörgum stærstu fyrirtækjum landsins í ríkiseigu. Hann ræður yfir stórum hópi vopnaðra manna, sem stóðu meðal annars að átök- unum við höfnina á mánudag. „Ég er Haiti-búi og hef ákveðið að deyja hér,“ sagði Francois í yfirlýs- ingu sem lesin var upp í útvarps- stöð á Haiti. HAITI Vopnaðir þjóðernissinnar á Haiti, sem eru mótfallnir áætlun Sameinuðu þjóðanna um umbætur í stjórnarfari, koma í veg fyrir að bandarískt herskip með 200 hermenn innanborðs leggist að bryggju í Port-au-prince. Port-au-PrincI"% HA|TI I ÓtyllNfKANSkÁ ' LYÐvELDJL^ ji KARÍBÁHAF fHWÍ 27711 lerkflómetrar. Fólksfjöldi: 6,2 milljónir. 95% svertingjar, 5% múlattar. Höfuóbofg: Poit-au-Prince. Opinber Franska og kreólska. tungumál: Tfú: 80% rómversk kaþólskif, en llestir trúa einnig á vúdú. Efnahagur: Fátœkasta þjóð Amerlku. Þjóóartraml.: 2,4 milljarðar dollara (1989). Þjóðartraml. á mann: 380 dollarar. Her: Um 7.000 manns. 1791:Franskri nýlendustjórn velt í þræla- uppreisn. 1804:Hlýtur sjálfstæði og verður fyrsta lýðveldi svadra. Pólitlskt öngþveiti rlkir alla 19. ðldina. 1915:Bandaríkin senda her sinn á vettvang. 1934:Hemámi Bandarlkjanna lýkur. 1957: Francois "Papa Doc" Duvalier kemst til valda í vafasömum kosningum og stýrir með harðri hendi. 1971: Andlál Papa Doc. Sonur hans Jean- Claude (Baby Doc) tekur við. 1986:Duvalier hrökklast (rá völdum í uppreisn. 1986-91 :Fjöldi valdarána, byltingar- og valdaráns- tilraunir. 1990:Jean-Bertrand Aristide, vinstrisinnaður rómversk-kaþólskur prestur og and- stæðingur Duvaliers, kjðrinn forseti I fyrstu frjálsu kosningunum í landinu. 1991: Aristide er steypt af stóli í blóðugu valdaráni. Flýr til Bandaríkjanna. 1992: Hagfræðingurinn Marc Bazin sest í stól forsætisráðherra. Júní 1993:Bazin tilkynnir afsögn sina. Júlí 1993: Bandarísk yfirvöld og SÞ þvinga her- stjórnina til að samþykkja endurkomu REUTER Aristide. Óöld tylgir í kjölfarið. Frakkar stefna framtíð EB í voða Hong Kong. Reuter. FARI viðræðurnar um nýjan GATT-samning út um þúfur vegna þvermóðsku Frakka getur það haft alvarleg áhrif á framtíð Evrópu- bandalagsins. Richard Needham, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Bret- lands, lýsti þessu yfir í Hong Kong í gær og sagði, að bandalag með þjóð, sem skeytti ekki um neitt nema sína þrengstu sérhagsmuni, ætti sér litla framtíð. „Við skulum ekki efast um það eina stund, að geri Frakkar GATT- samningana að engu, þá mun það Eflir Mozart greind? Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. MANNSKEPNUNA hefur löngum dreymt um að efla greind sína, en viskubrunnurinn hefur reynst torfundinn. Nú hafa bandarísk- ir vísindamenn komist að niðurstöðu, sem gefur til kynna að lausn- ina sé að finna í tónsmíðum tónskáldsins Wolfgangs Amadeusar Mozarts. Frances Rauscher og félagar hans við Kaliforníuháskóla í Irvine létu 36 stúdenta leysa flatarmáls- þrautir eftir að hafa hlustað á sónötu eftir Mozart fyrir tvö píanó í D-dúr í tíu mínútur og kom í ljós að greindarvísitala þeirra var þá átta til níu stigum hærri en þegar þeir glímdu við svipaðar þrautir eftir að hafa hlýtt á „afs- löppunarhljóð“ í tíu mínútur og þögn í tíu mínútur. Oft hefur því verið haldið fram að tónlist efli sköpunargáfuna, en vísindaleg könnun hefur ekki ver- ið gerð á áhrifum hennar til þessa. Rauscher og félagar, sem greindu frá niðurstöðum sínum í breska vísindatímaritinu Nature í gær, kváðust hvorki hafa reynt rapp né nútímatónlist og spáðu því að einfaldari tónlist eða endurtekn- ingar myndu „fremur standa í vegi fyrir en efla hreina rök- færslu“. Áður en lesendur hlaupa upp til handa og fóta í leit að áður- nefndri píanósónötu Mozarts er rétt að taka fram að böggull fylg- ir skammrifi. Áhrifin þverra tíu mínútum eftir að hlýtt hefur verið á sónötuna. Kosturinn við þennan greindarauka er hins vegar sá að honum fylgja engar aukaverkanir. hafa veruleg áhrif á Evrópubanda- lagið,“ sagði Needham á ráðstefnu um efnahagslega samvinnu Evrópu og Austur-Asíuríkja. Það er hið margnefnda Blair House-sam- komulag EB og Bandaríkjanna um landbúnaðarmál, sem stendur í Frökkum, en þeir vilja fá að styrkja landbúnaðarframleiðslu sína sem mest af ótta við erlenda samkeppni. Milliganga Þjóðveija Needham kvaðst þó ekki trúaður á, að Frökkum einum tækist að eyðileggja GATT-viðræðurnar og sagðist binda miklar vonir við milli- göngu Þjóðveija. Embættismenn í Bonn sögðu hins vegar í gær, að Helmut Kohl kanslari ætlaði ekki að reyna að miðla málum milli Frakka og Bandaríkjamanna en af yfirlýsingu, sem Gúnter Rexrodt, efnahagsmálaráðherra Þýskalands, lét frá sér fara, má ráða, að hann hyggist reyna að bera sáttarorð á milli.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.