Morgunblaðið - 15.10.1993, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993
23
Reuter
Hundar gegn fótboltabullum
BRESKU „fylliraftarnir" eins og eitt hollenskt dagblað kallaði þá
stóðu fyrir ólátum í Rotterdam í fjóra daga áður en landsleikurinn
fór fram í fyrrakvöld. Hér hefur lögregluhundur glefsað í einn þeirra
en alls voru 800 breskar fótboltabullur handteknar.
Bresku blöðin vilja refsa fótboltabullunum
Hýddar og svipt-
ar vegabréfinu
London. Reuter.
BRESKU blöðin, einkum gula pressan, sem svo er kölluð, fóru í gær
hamförum yfir framferði breskra fótboltabullna í Rotterdam og
Amsterdam í fyrradag og hvöttu sum þeirra til, að þær yrðu hýdd-
ar opinberlega, fangelsaðar og sviptar vegabréfi ævilangt.
1 gulu pressunni, sem þykir ekkert
sérstaklega orðvör, var ofbeldinu og
slagsmálunum við hollensku lögregl-
una slegið upp undir fyrirsögnum
eins og „Sorpið okkar" og „Skömm“.
„Það ætti að gera upptæk vegabréf
þekktra ofbeldisseggja fyrir fullt og
allt. Þeir eiga skilið að vera hýddir
og látnir bijóta grjót í fimm ár. Með
hausnum," sagði Daily Starog keppi-
nauturinn Sun lagði til, að glottið
yrði þurrkað af andliti bullnanna með
hörðum refsingum. „Leggið hald á
vegabréfín þeirra í tíu ár að minnsta
kosti og lokið þær inni í sex klukku-
stundir öll laugardagssíðdegi."
Góða hliðin á 2-0 tapinu
Daily Express vill einnig, að vega-
bréfín verði tekin af vandræðamönn-
unum og hvetur til, að þeir verði
dæmdir og bannað að fara úr landi.
Today hvetur hollensk yfirvöld til að
leyfa fótboltabullunum að bragða á
hollenskum fangamat og Daily Mirr-
or segir, að það góða við 2-0 tapið
fyrir Hollendingum sé, að nú sleppi
Bandaríkjamenn við að kynnast
bresku bullunum.
Önnur blöð taka þetta einnig fyrir
og í Guardian sagði, að atburðimir
í Hollandi væru til skammar fyrir
Breta. John Major, forsætisráðherra
Bretlands, sagði það sama í viðtali
við Sky-sjónvarpið í fyrrakvöld.
Hollendingar æfir
Viðbrögðin voru ekki minni í Hol-
landi og þar var þess krafíst í leið-
ara eins helsta dagblaðsins, De Te-
legraaf, að enska landsliðinu yrði
bannað að leika erlendis.
Kona Papandreous verður skrifstofustj ór i forsætisráðherra
Skipuleggur vimni-
claginn og ræður
hverj ir fá áheym
í sjöunda himni
ANDREAS Papandreou kyssir eiginkonu sína, Dimitru, og fagnar
því að vera kominn til valda í Grikklandi á ný.
Aþenu. Reuter.
ANDREAS Papandreou, for-
sætisráðherra og leiðtogi
grískra sósíalista, hefur enn
á ný náð að vekja hneykslan
í röðum margra í heimalandi
sínu. Hann hefur nú ákveðið
að eiginkona hans, Dimitra
Liani, verði skrifstofustjóri
forsætisráðherra en það starf
felur í sér að hún mun ákveða
hverjir fá áheyrn hjá Pap-
andreou auk þess sem hún
mun skipuleggja vinnudag
eiginmannsins.
Papandreou sem er 74 ára að
aldri leiddi Sósíalistaflokkinn til
sigurs í þingkosningunum sem
fram fóru í Grikklandi um síð-
ustu helgi. Papandreou er maður
heilsuveill en efasemdir um ár-
vekni hans komu þó ekki í veg
fyrir sigur flokksins, sem fékk
um 47% atkvæða í kosningunum.
Nú þykir sýnt að Dimitra Liani,
sem starfaði sem flugfreyja hjá
Olympic-flugfélaginu gríska er
hún kynntist Papandreou, sé nú
orðin einn valdamesti einstakl-
ingurinn í stjórnmálalífi Grikk-
lands.
Ást í óþekktri flughæð
Ekki liggur fyrir hver flug-
hæðin var er þau Andreas Pap-
andreou og Dimitra Liani börðu
hvort annað augum í fyrsta
skipti en ástarsamband þeirra
og ásakanir um umfangsmikla
spillingu urðu honum að falli í
þingkosningunum 1989. Voru þá
helstu stjómmálaskýrendur
grískir sammála um að dagar
hans á vettvangi stjómmála
væru taldir. Papandreou sem
ávallt hefur verið annálaður fyrir
kvensemi fór þá ekki leynt með
að hann stæði í ástarsambandi
við flugfreyjuna ljóshærðu og
urðu margir til þess að hneyksl-
ast á þessu framferði forsætis-
ráðherrans. Fáeinum dögum fyr-
ir kosningarnar sem fram fóru í
júnímánuði 1989 skildi Pap-
andreou við hina bandarísku eig-
inkonu sína Margaret og gekk
að eiga 'Dimitm Liani, sem nú
er 38 ára að aldri. Ættmenni
Papandreou tóku þessari ákvörð-
un þunglega og margir hundsuðu
brúðkaup þeirra. Sættir virðast
á hinn bóginn hafa náðst innan
fjölskyldunnar, alltjent er sonur
Papandreous, George, nú orðinn
aðstoðarutanríkisráðherra en
hann fór með menntamál í grísku
ríkisstjórninni er faðir hans gekk
í það heilaga með Dimitm.
Gullkeðjunum lagt
Það er og almannarómur að
öll framganga Dimitra hafi
breyst og þá heldur til hins betra,
á þeim fjóram áram sem þau
hjónin voru í pólitískri útlegð í
Grikklandi. Hún ber ekki lengur
gullkeðjur um ökkla sér og
áhugamenn benda á að pilsin
hafi heldur lengst á þessu tíma-
bili. Meiri hófsemi þykir almennt
einkenna fatasmekk hennar nú
um stundir en henni var áður
oftlega líkt við Evitu Peron, fyrr-
um forsetafrú í Argentínu, sök-
um dirfsku sinnar á þeim vett-
vangi.
Er Papandreou kom fram í
sjónvarpi um síðustu helgi og
fagnaði sigri í þingkosningunum
þakkaði hann konu sinni þennan
góða árangur. „Eg færi Dimitra
þakkir mínar. Því verður vart
með orðum lýst hvernig hún hef-
ur auðgað líf mitt og styrkt mig
í baráttunni."
Hófsemi kvendýrsins?
Engum dylst að starf skrif-
stofustjóra forsætisráðherra er
valdamikið embætti en líkt og í
Bandaríkjunum felur það í sér
yfirumsjón með öllu starfsliði á
vegum forsætisráðuneytisins.
Dagblaðið Eletftherotypia, sem
studdi Papanderou í kosninga-
baráttunni lýsti yfír efasemdum
sínum um ágæti þessarar
ákvörðunar í gær. Dimitra Liani
hefur ævinlega haldið því fram
að hún sækist ekki eftir frama
á vettvangi stjórnmálanna. Ný-
verið ítrekaði hún þetta í blaða-
viðtali og sagði: „Það eina sem
ég vil er að vera eiginkona
Andreas Papandreou." Hinu
gagnstæða hefur hins vegar
löngum verið haldið fram og
lærðir menn hafa bent á að
grískur heimspekingur, Aristóte-
les, hafí fyrstur skilgreint mann-
skepnuna sem „pólitískt dýr“.
Og nú vita jafnt samheijar sem
andstæðingar að vilji þeir eiga
fund með Papandreou þurfa þeir
fyrst að hringja í eiginkonuna.
14.-17. október
Verð aðeitis 2.900 kr.-
Gestgjafar verða matreiðslumeistararnir
Sigurður Hall og Rúnar Guðmundsson.
Halldór Gunnarsson (Þokkabót)
leikur á píanó.
Njótið lífsinsyfir úrvalsréttum úr
íslenskri náttúru.
Borðapantanir í sírr.a 17759
Veitingahúsið Naust
— ./</?)///' //*/ /) j ///
framköllunarþjónustu
í Suðurveri
% fyrir allar almennar filmur
• Gæöaframköllun á góðu veröi
® Fagmenn annast framköllunina
LGI
framköllun
Suöurveri — Stigahlíð
Ljósmyndastofa
Gunnars Ingimarssonar
45 — sími 34855