Morgunblaðið - 15.10.1993, Síða 24

Morgunblaðið - 15.10.1993, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 1993 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Ritstjórnarfulltrúi Árvakur h.f., Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Björn Vignir Sigurpálsson. Kringlan 1, 103 Reykjavík. Símar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar: 691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið. Lækka verður áætl uð ríkisútgjöld kom fram í máli Friðriks Sophussonar fjármálaráð- herra, er hann mælti fyrir fjárlaga- frumvarpi fyrir komandi ár, að ríkis- stjórnin hefði á rúmlega tveggja ára starfsferli þrívegis þurft að grípa til verulegs niðurskurðar á afla- heimildum. Þorskafli ársins 1994 verður aðeins helmingur þess sem hann var 1989. Aflasamdráttur, verðfali sjávarvöru og efnahags- lægð í umheiminum hafa rýrt um- svif í atvinnulífi okkar og þjóðartekj- ur. „Vegna samdráttar í efnahags- lífinu hafa skatttekur ríkissjóðs lækkað ár frá ári,“ sagði ijármála- ráðherra, „eða um hvorki meira né minna en átta milljarða króna að raungildi frá árinu 1991.“ Vaxandi atvinnuleysi og kjara- samningar síðastliðið vor hafa á hinn bóginn aukið útgjöld ríkissjóðs í ár um þrjá milljarða króna, í aukn- um framlögum til bæði Atvinnuleys- istryggingarsjóðs og til atvinnu- skapandi framkvæmda. Um það efni sagði fjármálaráðherra: „Til að styrkja fjárhagsstöðu At- vinnuleysistryggingarsjóðs og mæta um leið hluta af tekjutapi ríkissjóðs vegna lækkandi virðisaukaskatts [á matvörur] hefur ríkisstjómin ákveð- ið að innheimta sérstakt atvinnu- tryggingargjald af launþegum og atvinnurekendum. Til að draga úr áhrifum þessarar gjaldtöku á af- komu tekjulágra bamafjölskyldna verður bamabótaaukinn hækkaður ... Samanlagt munu þessir þrír þætt- ir, lækkun virðisaukaskatts, álagn- ing atvinnutryggingargjalds og hækkun bamabóta, fela í sér skatta- lækkun sem nemur 700-800 millj- ónum króna á næsta ári.“ Fjármálaráðherra sagði að ríkis- stjórnin hefði mætt þrengri greiðslu- getu í samfélaginu með aðhaldi, hagræðingu og sparnaði í ríkisbú- skapnum. Heildarútgjöld sam- kvæmt fjárlagafmmvarpi komandi árs, 113,3 milljarðar króna, lækki um 4 milljarða frá áætluðum út- gjöldum líðandi árs. Orðrétt sagði hann: „Með aðhaldsaðgerðum ríkis- stjórnarinnar hafa árleg útgjöld rík- isins verið lækkuð um 10 milljarða króna frá því sem var árið 1991 ... Með því hafa árleg vaxtagjöld ríkis- sjóðs í reynd verið lækkuð um rúm- ar 800 milljónir króna ... Ef ekki hefði komið til samdráttar í efna- hagslífinu hefði upphaflegt mark- mið um hallalaus fjárlög nú verið innan seilingar.“ Ráðherra minnti og á að við- skiptahalli við útlönd hefði minnkað vemlega, erlendar skuldir staðið í stað síðustu misserin, jafnvel lækk- að að raungildi, verðbólga væri með því lægsta sem þekkist í Evrópu og atvinnuleysi minna en í grannríkj- um. Lánsfjárþörf ríkissjóðs myndi og lækka um tvo milljarða króna á næsta ári og hafi þá lækkað um helming, eða úr 45 miiljörðum í 23 milljarða frá árinu 1991, reiknað á föstu verðlagi. „Minnkandi lánsfjár- þörf ríkissjóðs og annarra opinberra aðila að undanförnu hefur haft ótví- ræð áhrif á vaxtastigið til lækkun- ar.“ Fjármálaráðherra boðaði hertar aðgerðir gegn skattsvikum. Starf- semi Skattrannsóknarstjóra ríkisins verður styrkt með því að ljölga starfsmönnum, sem eingöngu sinna rannsóknum á svartri atvinnustarf- semi. Endurskoðaðar verða reglur skattalaga sem gefa færi á undan- skotum og framkvæmd skattalaga samræmd eðlilegum nútímarekstri fyrirtækja. Skipuð hefur verið nefnd til að vinna að þessu mikilvæga verkefni. Áherzlur fjárlagafrumvarps fyrir komandi ár eru einkum þær „að draga úr hallarekstri ríkissjóðs með áframhaldandi sparnaði, en ekki með því að hækka skatta“, eins og Ijármálaráðherra komst að orði, „enda lækka skattar á næsta ári samkvæmt frumvarpinu. Þessar áherzlur eru í beinu samhengi við efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar, sem miðar að því að tryggja þann stöðugleika í efnahagsmálum sem náðst hefur. Það er forsenda fyrir hagvexti, nægri atvinnu og batn- andi lífskjörum." Morgunblaðið hefur gagnrýnt þrennt í fjármála- og efnahags- stefnu núverandi ríkisstjórnar. I fyrsta lagi hefur blaðið haldið því fram að ekki hafi verið gengið nægi- jega langt í niðurskurði ríkisútgjalda á þeim rúmum tveimur árum, sem núverandi ríkisstjóm hefur setið að völdum. Vissulega er það rétt að umtalsverður árangur hefur náðst en hann er ekki nægilegur og halla- rekstur ríkissjóðs á verulegan þátt í því háa vaxtastigi sem nánast úti- lokar að óbreyttu nýja uppsveiflu í atvinnulífi landsmanna. I öðru lagi hefur Morgunblaðið gagnrýnt geng- isfellingar núverandi ríkisstjórnar, aðallega þó gengisbreytinguna sem framkvæmd var á miðju ári, og bent á að í gengisbreytingum fælist flótti frá því verkefni að framkvæma uppskurð í sjávarútvegi lands- manna. í þriðja lagi hefur Morgun- blaðið gagnrýnt hlut núverandi rík- isstjórnar í gerð sfðustu kjarasamn- inga sem ríkissjóður hafi engin efni á að standa undir með þeim hætti sem áformað er. Jafnframt hefur Morgunblaðið haldið því fram, að ríkisstjómin hafí hækkað skatta. Fjármálaráð- herra neitar því og segir að ríkis- stjórnin hafi fært skattbyrðina frá fyrirtækjum yfir á einstaklinga. Þetta er auðvitað orðaleikur. Óum- deilt er að skattbyrði hefur aukizt veralega á miklum fjölda einstakl- inga. Sú skattahækkun hefði ekki þurft að koma til, ef rösklegar hefði verið gengið fram í niðurskurði rík- isútgjalda. Ríkisstjórnin sjálf er hins vegar ekki helzti Þrándur í Götu þess að draga úr útgjöldum hins opinbera heldur almennir þingmenn, sem þekkja ekki sinn vitjunartíma, hafa ekki gert sér grein fyrir breyttum viðhorfum og breyttum tíðaranda og telja að þeir geti hagað sér með sama hætti í dag og fyrir nokkrum árum þegar allt lék í lyndi. Svo er ekki og það er mesta vandamál núver- andi ríkisstjómar, þegar kemur að niðurskurði útgjalda hins opinbera. Rýmingarsala á útsöluvörum í Hagkaup Buxur seldar á 149,50 krónur Fatnaður af sumarútsölu versiunarinnar RÝMINGARSALA á útsöluvörum stendur nú yfir í Hagkaup- um í Skeifunni. Um er að ræða fatnað sem hefur verið á sumarútsölu hjá Hagkaupum á Akureyri og í Kringlunni. Á rýmingarsölunni eru einnig leikföng með 25% afslætti. Mik- il aðsókn var í gær eftir að rýmingarsalan opnaði en henni lýkur um næstu helgi. Rýmingarsalan fer fram á 250 fermetra gólfplássi í verslun Hag- kaupa í Skeifunni. Mikil aðsókn Að sögn Karls West verslunar- stjóra var mikil aðsókn eftir að rýmingarsalan opnaði í gær. Karl sagði að alls konar fatnaður og skófatnaður væri boðinn á lágu verði og nefndi til dæmis að vinnu- buxur fyrir herra hefðu verið seldar á 149,50 kr. Á rýmingarsölunni eru einnig leikföng með 25% afslætti og sagði Karl að mikið hefði selst af þeim. Rýmingarsalan mun standa yfir á opnunartíma verslun- arinnar meðan vörurnar endast en Karl sagðist búast við að henni lyki um helgina. TALSVERT af fólki skoðaði ú Odda- stefnaí Gunnars- hólma ODDAFÉLAGIÐ, samtök áhugamanna um endur- reisn fræðaseturs að Odda á Rangárvöllum, hefur frá stofnun þess í Odda fullveldisdaginn 1. desember 1990 staðið að mannfundum öðru hverju til að minna á málefnið. Oddahátíð er haldin í júní, helgina næst sumarsól- stöðum, en Oddastefnu er ætlunin að halda snemma vetrar. Hvort tveggja er haldið í Rangárþingi en hins vegar var hinnfyrsti- „Sæmundardagur“ hald- inn í Reykjavík 21. maí sl. vor. Lónaset í Laufaleitum Oddastefna verður haldin í annað sinn nk. laugardag, 16. október, og verður hún að þessu sinni haldin í Félags- heimilinu Gunnarshólma, Austur-Landeyjum. Mun hún heijast kl. 13 og ljúka kl. 17. Friðjón Guðröðarson sýslu- maður verður ráðstefnustjóri. Áð loknu upphafsávarpi Magnúsar Finnbogasonar, bónda að Lágafelli, flytur Elsa G. Vilmundardóttir jarðfræð- ingur Oddastefnuerindi og mun hún rneð hjálp litskyggna segja frá rannsóknum þeirra Ingibjargar Kaldal jarðfræð- ings, sem þær hafa unnið að í Rangárþingi og nefnist er- indið: Lónaset í Laufaleitum. Þá flytja sr. Sigurður Jóns- son, sóknarprestur í Odda, og Freysteinn Sigurðsson jarð- fræðingur stutt erindi um Odda á Rangárvöllum í nútíð og framtíð. Að þeim loknum verða almennar umræður fundargesta, en framsögu hafa Drífa Hjartardóttir, Keld- um, og Þór Jakobsson veður- fræðingur. Ráðstefnugjald verður 1.000 kr. og er þar með talið kaffi og meðlæti sem Kvenfé- lagið Freyja, Austur-Landeyj- um, tilreiðir ráðstefnugestum. Nánari upplýsingar fást hjá Þór Jakobssyni, formanni Oddafélagsins. Ekki greint á milli innlendrar og erlend Ríkissjóður um 28 millj; Greiddar afborganir af eldri lánum nei FJÁRMÁLARÁÐHERRA er fyrir hönd ríkissjóðs heimilt að taka að láni allt að 27,9 milljarða kr. á næsta ári skv. frum- varpi til lánsfjárlaga, sem lagt hefur verið fram á Alþingi. Áætlað er að greiddar afborganir af teknum lánum nemi 15,9 milljörðum kr. þannig að nýjar lántökur umfram afborg- anir af eldri lánum, eru taldar verða um 12 milljarðar. Heild- arlántökur hins opinbera á næsta ári eru hins vegar áætlað- ar 64 milljarðar og afborganir 41 milljarður. Atvinnutryggingadeild endurlánaðir 2,5 miiyarðar Sú breyting hefur nú verið ákveðin að engar upplýsingar verða veittar um það fyrirfram hversu mikið verður tekið að láni erlendis og hversu mikið innan lands en frá og með næstu áramótum verða nær allar hömlur á fjármagnsflutning- um milli landa afnumdar. Verður leitað lántökuheimilda til nota inn- an lands eða utan eftir því sem aðstæður á markaði leyfa hveiju sinni, segir í greinargerð frum- varpsins. Frumvarpið gerir ráð fyrir að Atvinnutryggingadeild Byggða- stofnunar verði endurlánaðir allt að 2,5 milljarðar á næsta ári saman- borið við 1,4 milljarða á þessu ári en hækkunin stafar af teknum lári- um sem falla í gjalddaga á næsta ári. Lánasjóði ísl. námsmanna verð- ur endurlánuð sama upphæð og á yfirstandandi ári eða allt að 3,7 milljarðar og áætlað er að endur- lána Alþjóðaflugþjónustunni allt að 100 millj. til frágangs nýrrar flug- stjórnarmiðstöðvar á Reykjavíkur- flugvelli,- Á næsta ári verður Landsvirkjun Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins flytjí Biðlaun falli r í starf sem er FJÓRIR þingmenn Sjálfstæðisflokksins, Eggert Haukdal, Matt- hías Bjarnason, Tómas Ingi Olrich og Guðjón Guðmundsson, hafa lagt fram frumvarp til breytinga á lögum um þingfarar- kaup alþingismanna. Er því ætlað að taka af öll tvímæli um að biðlaunagreiðslur fyrrverandi þingmanna falli niður ef sá sem þeirra á að njóta tekur við öðru starfi sem er jafnt eða hærra launað en þingfararkaup þegar hann lætur af þing- mennsku. Miklar umræður urðu um laun alþingismanna á Al- þingi í gær við fyrstu umræðu um frumvarpið. í framvarpinu segir að réttur til biðlauna falli niður ef fyrrv. þing- maður tekur við starfi í þjónustu rík- is, sveitarfélags eða fyrirtækis sem að meiri hluta er í eign ríkisins enda fylgi stöðunni jafnhá eða hærri laun en þingfararkaup. Ella gréiðist launamismunurinn til loka tímabils- ins. Eggert Haukdal sagði, er hann mælti fyrir frumvarpinu, að biðlaun væra laun milli embætta, til þess

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.