Morgunblaðið - 16.10.1993, Side 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993
19
*
Arni Johnsen sendir frá sér plötu
Ætíð mörgjám í eldinum
- segir Arni, en 19 ár eru liðin frá síðustu plötu
ÁRNI Johnsen, alþingismaður, blaðamaður og tónlistarmaður,
hefur fengist við tónlist meðfram annarri iðju í áraraðir. Frá því
hann sendi síðast frá sér plötu, fyrir um nítján árum, hefur hann
samið grúa laga og flutt víða, en ekki gefið sér tima til að taka
upp plötu fyrr en í vor að hann hljóðritaði plötuna Vinir og kunn-
ingjar og kom út fyrir stuttu. Á plötunni eru 17 lög úr ýmsum
áttum. Milljónaútgáfan Einidrangur gefur út en Japis sér um
dreifingu.
Árni Johnsen hefur verið viðrið-
inn tónlist svo lengi sem menn
muna, en tónlistin hefur ævinlega
verið í bland við aðra fjölbreytta
iðju hans. Þannig hefur hann
sungið víða og stjórnað stærstu
kórum landsins á þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum ár hvert, setið á
þingi og stundað blaðamennsku
svo eitthvað sé nefnt.
Nítján ár eru síðan Árni sendi
síðast frá sér plötu, en hann seg-
ist ekki hafa lagt gítarinn á hill-
una í millitíðinni. „Mín spila-
mennska hefur verið tvíþætt. Ég
hef spilað í fjöldasöngstíl, sem er
sérfag, og svo verið líka í flutn-
ingi á vísnatónlist, hér heima og
erlendis. í kjölfar þess að ég gaf
út þriðju plötu mína jókst til muna
vinna mín í brauðstriti, ef svo
má segja, og þar sem það er mik-
ið mál að gefa út plötu þá hefur
það beðið. Á þessum tíma hefur
safnast mikið af lögum og ég á
í raun efni á margar plötur, og
eitthvað af þessu langaði mig að
gefa út.
Mörgjárn í eldinum
Ég hef alla tíð verið með mörg
járn í. eldinum og þjálfast upp í
því. Ég vinn að vísu langan vinnu-
dag, en það er mér mjög létt. Það
getur verið hvíld í því að taka
gítarinn, ekki síður en það getur
verið hvíld í því að grípa í upp-
vaskið eða grafa skurð, þetta fer
allt eftir því hvað það er sem ég
er að gera í hvert sinn. Ég hef
aldrei verið mikill dellumaður í
mínum áhugamálum; ég nýti bara
minn tíma í að gera það sem þarf
að gera og ég hef áhuga á. Mitt
starf er þingmennska og svo gefst
tækifæri til að grípa í gítarinn og
blaðamennsku og sitthvað fleira,
en fyrst og fremst er ég bara eins
og ég er.“
Árni segist hafa byrjað fyrir
nokkru á plötunni, „en Jón bassi
Sigurðsson útsetti plötuna fyrir
mig. Síðan greip ég tækifærið um
síðustu páska og tók plötuna upp
á ijórum dögum, en þess má geta
að þetta var síðasta platan sem
tekin var upp í stúdíói Stemmu.
Við upptökurnar aðstoðuðu mig
fjölmargir, Sigurður Rúnar Jóns-
son stjórnaði upptökum og hljóð-
blandaði, og lék að auki á mandól-
ín, Hammondorgel, fiðlu og fleiri
hljóðfæri, Vilhjálmur Guðjónsson
aðstoðaði mig við gítarleik, Jón
Sigurðsson lék vitanlega á bassa,
Grettir Björnsson á harmonikku,
Pétur Grétarsson á trommur og
Jóhanna Linnet söng í eínu lagi,“
segir Árni. Hann sagði ekki mikið
mál að vinna plötu á skömmum
tíma, það sem skipti máli sé að
vera búinn að undirbúa upptökur
og koma í hljóðverið með plötuna
tilbúna. „Þegar maður er hvorki
mikill tónlistarmaður eða söngv-
ari, þá þarf maður að renna inn
í það tempó sem maður er með
og allt þarf að hljóma saman.“
„Syng í mínum stíl“
Hljóðfæraskipan á Vinum og
kunningjum er fjölbreytt og Árni
segist kunna því vel, þó vissulega
séu fjölmörg lög þar sem stemmn-
Árni Johnsen. Morgunblaðið/RAX
ingin kalli á það að hafa bara
gítar og rödd. „Ég syng meira á
þessari plötu en fýrri plötum og
þegar maður er að tala um söng
er það ákveðinn stíll, minn stíll,
eins og ég syng.
Þessi plata er engin tímamót í
mínu lífí. Þetta er bara eitthvað
sem mig langaði til að gera og
gerði því og hafði gaman af.“
Árni segist munu sinna tónlistinni
áfram eins og hingað til, í það
minnsta á meðan hann hafí gam-
an af þvi, en það verði eins og
áður hluti af fjölbreyttri iðju.
Viðtal Árni Matthíasson
Fastir vextir eyða óvissu
NEFND sem fjallaði um vaxtamyndun á lánsfjármarkaði leggur
m.a. til í skýrslu sinni að frá og með næstu áramótum verði einung-
is heimilað að hafa fasta vexti af verðtryggðum útlánum. Þó verði
lieimilt að endurskoða vexti á lánstímanum á nokkurra ára fresti
með hliðsjón af markaðsaðstæðum og hafi lántakandi þá rétt til
að greiða skuld sína upp. Finnur Sveinbjörnsson, formaður nefnd-
arinnar, segir þetta mikið réttlætismál, því við núverandi aðstæð-
ur séu lántakendur í mikilli óvissu um hvort þeir vextir sem þeir
semdu um hækkuðu á lánstímanum og hvort þeir gætu staðið
undir vaxtabyrðinni.
Nefndin vill að jafnframt verði
hugað að því hvort ástæða sé til
þess að draga úr breytanleika
vaxta á verðtryggðum innláns-
reikningum þannig til dæmis að
vextir væru einungis breytanlegir
við upphaf hvers binditímabils.
Finnur sagði að bankarnir gætu
í dag breytt vöxtum á verðtryggð-
um útlánum hvenær sem væri og
Ungir jafnaðarmenn krefjast sameiginlegs borgarst)ómarframboðs
Formaður FUJ and-
vígrir ályktuninni
STJÓRN Félags ungra jafnaðarmanna í Reykjavík samþykkti á fundi
sínum sl. þriðjudag ályktun þar sem þess er krafist að fulltrúaráð
Alþýðuflokksins í borginni hefji formlegar viðræður við fulltrúa
minnihluta borgarstjórnar um sameiginlegt framboð fyrir næstu
borgarstjórnarkosningar. Formaður FUJ, Bolli Runólfur Valgarðs-
son, var andvígur ályktun stjórnarinnar og segir forsendurnar fyrir
sameiginlegu framboði alls ekki fyrir hendi.
Leshringir í
Langholts-
kirkju
TVEIR leshringir verða í Lang-
holtskirkju í október og nóvem-
ber.
Heimspeki Sörens Kierkegaards
þar sem lesin verður Endurtekning-
in ásamt völdum textum. Leshring-
urinn hefst sunnudaginn 17. októ-
ber kl. 15 og verður síðan vikulega
í sex skipti.
Trúarstef í ritum Halldórs Lax-
enss þar sem lesnir verða valdir
kaflar úr skáldverkum Laxness og
rýnt í þau trúarstef sem þar er að
fínna. Leshringurinn hefst sunnu-
daginn 17. október kl. 17 og verður
síðan vikulega í sex skipti.
Umsjón með leshringjunum hafa
Brynjólfur Magnússon, Kristján B.
Jónasson og Haukur Ingi Jónasson.
Bolli kveðst í grundvallaratriðum
ekki vera andvígur sameiginlegu
framboði og að málefnalegur
ágreiningur flokkanna sé ekki mik-
ill. Einnig hafi verið lögð fram gögn
á fundi félagsins um að hjásetu
kjósanda megi rekja til fjölda fram-
boðsflokkanna sem sýni að ákjósan-
legt væri að aðeins tvær hreyfingar
væru í framboði. Hins vegar séu
rökin gegn slíku framboði fleiri en
þau sem mæli með því. „Það er
yfirlýst stefna alls almenns Alþýðu-
flokksfólks að bjóða fram eigin
lista, eins og kom fram á seinasta
aðalfundi fulltrúaráðs flokksins.
Þetta og fólk sat heima í seinustu
borgarstjórnarkosningum vegna
óánægju með þáverandi tilhögun,“
segir Bolli.
Andstaða hjá fleirum
Hann segir einnig andstöðu við
sameiginlegt framboð innan Al-
þýðubandalagsins og Framsóknar-
flokksins, og segir endurteknar
umræður um sameiginlegt framboð
ems og að beija höfðinu við stein.
„í formlegum og ófonnlegum við-
ræðum flokkanna hafa þeir gengið
út frá sérlistaframboðum, en þar
hefur komið fram einlægur áhugi
á að móta grófa, sameiginlega
málefnaskrá og við viljum koma
fram sem raunhæfur valkostur með
þeim hætti,“ segir Bolli og kveðst
búast við að ályktun stjórnar FUJ
verði borin upp á næsta fundi full-
trúaráðsfundi Alþýðuflokksins í
Reykjavík.
sumir einstaklingar sem tekið
hefðu lán þegar vextirnir voru lág-
ir hefðu lent í því að þurfa allt í
einu að greiða allt upp í 9-10%
vexti. Það væri því óheppilegt fyr-
ir lántakendur að vita ekki hvort
þeir hefðu möguleika á að standa
undir þessum vaxtakostnaði. Þetta
þýddi líka að vaxtabyrði allra lán-
takenda sveiflaðist eins á sama
tíma sem væri á ýmsan hátt
óheppilegt.
Finnur benti á að Seðlabankinn
hefði í dag heimild samkvæmt
Ólafslögum til að ákveða að vext-
ir af verðtryggðum lánum væru
fastir, en það hefði þó aldrei verið
gert.
Um útfærslu þessarar hug-
myndar sagði Finnur hugsanlegt
að bestu lántakendurnir fengju
kannski 8% fasta vexti í einhvern
tiltekinn tíma, eitt til þijú ár, óháð
breytingum á öðrum vöxtum, sem
yrðu svo endurskoðaðir með hlið-
sjón af markaðsaðstæðum en aðr-
ir lántakendur gætu þurft að
semia um hærri fasta vexti.
Ford
Escort og
Mondeo
sýndir
HELGINA 16. og 17. október n.k.
mun Globus hf, kynna 1994 árgerð-
irnar af Ford Escort og Ford
Mondeo. Nýjungarnar í 1994 ár-
gerð af Escort eru þær að aukið
hefur verið við staðalbúnað bílsins
og úrval aukahluta sem hægt er
að panta aukið verulega. Helstu
breytingar á Escort eru á staðal-
búnaði m.a. upphituð framrúða og
upphitaðir útispeglar, afísun á 30
-90 sekúndum, samiitir stuðarar,
ný sæti og ný áklæði, hæðarstillt
ökumannssæti og rafstýrðir úti-
speglar.
Þá er hægt að panta aukalega
loftpúða fyrir ökumann fyrir 42.000
kr. og fyrir 79.000 kr. fæst einnig
loftpúði (líknarbelgur) fyrir farþega í
framsæti, en margar gerðir í þessum
stærðarflokki bíla bjóða ekki upp á
þennan búnað. Áfram verða í boði
1400 og 1600 vélar og verðið á Esc-
ort hefur aldrei verið jafn hagstætt.
Þriggja dyra Ford Escort 1,4 CLX
kostar nú 1.096.000 kr. Escort er fá-
anlegur í 3ja, 4ra og 5 dyra útfærslum
og sem skutbíll. Ford Orion sem und-
anfarin ár hefur notið mikilla vinsælda
verður ekki framleiddur áfram en Esc-
ort 4ra dyra mun leysa hann af hólmi,
en Ford Orion hefur ekki verið annað
en 4ra dyra útfærsla af Escort.
Ford Mondeo var fyrst kynntur hér
á landi um mitt síðastliðið sumar og
nú verða frumsýndar nýjar útfærslur
af Ford Mondeo. Sjálfskipting er nú
fáanleg í allar gerðir og einnig verður
kynnt skutbflsútfærsla af Mondeo.
Eftir að Mondeo var fyrst kynntur
erlendis sl. vor, hefur hann hlotið
mjög góðar undirtektir og er þegar
farinn að safna verðlaunum. I boði
verður áfram 2,0 lítra, 16 ventla, 136
hestafla Zeta vélin. Verðið á 4ra dyra
Ford Mondeo 2,0 GLX er 7.789.000
kr. og Ford Mondeo skutbíll kostar
frá 1.944.00. Sjálfskiptingin sem í
boði er er 4 þrepa og hægt að velja
um sparnaðar- eða sportskiptingu.
Fýrir sjálfskiptan Mondeo þarf að
greiða aukalega 93.000 kr.
Sýningin á nýju 1994 árgerðunum
af Escort og Mondeo verður opin frá
kl. 12-17 báða dagana.
..—....» ♦ ♦--------
■ OKTÓBERMESSA Kvenna-
kirkjunnar verður haldin í Grens-
áskirkju sunnudaginn 17. október
kl. 20.30. Þema messunnar verður
hin nýja byrjun sem hefst á hveiju
hausti í hugum manna og gerðum.
Sr. Jóna Kristín Þorvaldsdóttir, prest-
ur í Grindavík, prédikar. Hallfríður
Ólafsdóttir leikur einleik á flautu og
sönghópur Kvennakirkjunnar leiðir
almennan söng við stjóm og undir-
leik Sesselju Guðmundsdóttur. Kaffi
í safnaðarheimilinu að lokinni messu.
HJA ANDRESI
Skólavörðustíg 22A - sími 18250 - póstkröfuþjónusta.
Nýsending af jakkafötum...Verð kr. 14.900
Ný sending af fauelsbuxum .Verð kr. 1.790-5.600
Yfirhafnir og peysur í úrvali.
Stakar buxur í úrvali.Verð frá kr. 1.000-5.600
og Ijtffeng tg.
c>
^(Jiffiíjrácl
CZOOOj
ar~
14.-17. október
Verð aðeitis 2.900 kr.-
Gestgjafar verða matreiðslumeistararnir
Sigurður Hall og Rúnar Guðmundsson.
Halldór Gunnarsson (Þokkabót)
leikur á píanó.
Njótið lítsins yfir úrvalsréttum úr
íslenskri náttúru.
Borðapantanir í síma 17759
Veitingahúsið Naust
— J/r/<)w /jtrt) iál