Morgunblaðið - 16.10.1993, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993
27
Felixverðlaunin
kynnt í Haskólabiói
EVRÓPSKA kvikmyndaakademían kynnir helgina 16.-17. októ-
ber Felixverðlaunin í Reyigavík í samvinnu við Háskólabíó. Sýnd-
ar verða fjórar myndir sem hlotið hafa þessi eftirsóttu verðlaun
sem veitt verða í sjötta sinn í desember í Berlín.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
HILMAR Jónsson, til hægri, en hann var forstöðumaður bókasafns-
ins í 35 ár, og Hulda Björk Þorkelsdóttir.
Bókasafnið í nýtt
og betra húsnæði
Keflavík.
BÆJAR- og héraðsbókasafnið í Keflavík hefur flutt í nýtt og betra
húsnæði við Hafnargötu 57, og var safnið opnað við hátiðlega athöfn
á föstudaginn. Ræður voru fluttar við þetta tækifæri og listamenn
bæjarins skemmtu með söng, hljóðfæraleik og upplestri.
Myndirnar sem verða sýndar
eru Riff-Raff eftir breska leikstjór-
ann Ken Loach sem valin var besta
evrópska mynd ársins 1991, II
Ladro di Bambini (Stolnu börnin)
Námstefna
um skóla-
málefni á
Akureyri
SKÓLASTJÓRA- og Skóla-
meistarafélag íslands standa
sameiginlega að námstefnu á
Akureyri dagana 15.-17. októ-
ber. Námstefnan er einungis
opin félagsmönnum og mun
þarna fjallað um hin ýmsu mál
sem snúa að skólastjórnun.
Á fyrsta degi námstefnunnar
mun Steinunn H. Lárusdóttir,
skólastjóri fjalla um skilvirkni og
stjórnun. Einnig munu dr. Börkur
Hansen, dósent við Kennarahá-
skóla íslands, fjalla um rannsókn
sem gerð var á störfum íslenskra
skólastjóra. Þá mun Haukur Vig-
gósson, M.ed. skýra frá nokkrum
niðurstöðum úr samanburðarrann-
sókn sem gerð var á störfum
skólastjóra annarsvegar í Lundi í
Svíþjóð og hinsvegar í Reykjavík
en rannsóknin er liður í doktors-
námi Hauks.
Annan daginn munu þeir Henn-
ing Johansson, prófessor við Hög-
skolan í Luleá, og Bert Stálhamm-
ar, dr. phil., rektor við Skolledar-
högskolan í Örebro, flytja fyrir-
lestra og stjóma umræðum. Fyrir-
lestur Henning Johansson mun
fjalla um hlutverk skólastjórnenda
en fyrirlestur Bert Stálhammar
um breyttar áherslu við skóla-
stjórnun. Báðir eru þeir um þessar
mundir mjög eftirsóttir fyrirlesar-
ar.
Þriðja daginn munu námstefnu-
gestir vinna úr efni námstefnunn-
ar ásamt því að fjallað verður um
það sem efst er á baugi í félags-
málum skólastjórnenda í dag.
Skráning hefur farið fram en
þeim sem áhuga hafa er bent á
að hafa samband við Ferðaskrif-
stofu íslands, Skógarhlíð 8.
Á ÞESSU ári eru 800 ár lið-
in frá andláti Þorláks helga
Þórhallssonar sem var bisk-
up í Skálholti 1178-1193.
Átthundruðustu ártíðar heil-
ags Þorláks verður minnst
við messu í Þorlákskirkju í
Þorlákshöfn sunnudaginn
17. október nk. en sú kirkja
er nefnd eftir Þorláki helga,
eins og kunnugt er.
Hr. Ólafur Skúlason, biskup ís-
lands, mun predika í messunni,
sem hefst kl. 14. Sóknarpresturinn
í Þorlákshöfn, sr. Svavar Stefáns-
son, þjónar fyrir altari ásamt bisk-
upi. Félagar úr Söngfélagi Þor-
lákshafnar sjá um söng undir
stjórn organista kirkjunnar, Ró-
berts Darlings.
Að lokinni messu verður afhjúp-
aður „veggskúlptúr“ sem Þorláks-
kirkju hefur verið gefinn. Lista-
verkið nefnist „Þorlákur" og er
eftir Ágústu Gunnarsdóttir, sem
gefur verið til heiðurs foreldrum
eftir ítalann Gianni Amelio sem
sigraði 1992, The Northerners eft-
ir Hollendinginn Alex van War-
merdam sem var valinn besta
mynd ungs leikstjóra 1992 og
Sweet Emma, Dear Böbe eftir
hinn heimsþekkta ungverska leik-
stjóra István Szabó en handrit
hans að myndinni var valið það
besta í Evrópu 1992.
í tilefni af kynningu þessari
heimsækja ísland góðir gestir á
vegum Evrópsku kvikmyndaaka-
demíunnar. Sænski heimildarleik-
stjórinn og heiðursfélagi akadem-
íunnar, Erwin Leiser, kynnir
myndirnar. Auk hans verða við-
stödd sýningar myndanna breski
leikarinn Robert Carlyle sem leik-
ur aðalhlutverkið í Riff-Raff, Jo-
hanna ter Seege sem tilnefnd var
til verðlauna sem besta leikkona
fyrir leik sinn I Sweet Emma,
Dear Böbe og Enzo Porcelli, fram-
leiðandi Stolnu barnanna.
Dagskrá Felixhátíðarinnar
verður sem hér segir: Laugardag-
inn 16. október verður myndin
Sweet Emma, Dear Böbe sýnd kl.
5, The Northerners kl. 7, Riff-
Raff kl. 9 og Stolnu börnin verða
sýnd kl. 11. Sunnudaginn 17.
október er myndin Riff-Raff sýnd
kl. 5, Stolnu börnin kl. 7, The
Northerners kl. 9 og Riff-Raff
verður einnig sýnd kl. 11.
sínum, Gunnari Markússyni og
Sigurlaugu A. Stefánsdóttur, sem
um langt árabil störfuðu mikið að
kirkjumálum í Þorlákshöfn. Ág-
Forstöðumaður Bókasafns Kefla-
víkur er Hulda Björk Þorkelsdóttir
og sagði hún í samtali við Morgun-
blaðið að lesáhugi Keflvíkinga og
þeirra sem safnið þjónaði væri ákaf-
lega mikill. „Á siðasta ári var lánað-
ur út 66.161 titill og erum við
skammt á eftir Vestamanneyingum
sem eiga íslandsmetið í útlánum.
Það varð mikil aukning hjá okkur,
sem var á bilinu 500-1.000 titlar á
mánuði og 35,8% yfir árið.“
Hulda Björk sagði að nú væru
ústa, sem er MA í myndlist frá
Indianaháskóla, er búsett í Ann
Arbor í Michigan-ríki í Bandaríkj-
unum.
um 40.000 titlar í safninu þar sem
allir ættu að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi, þar mætti auk bóka
nefna tónlist, myndbönd og tímarit.
Með tilkomu nýja húsnæðisins
stækkar gólfflötur safnsins um
þriðjung þar sem er lesaðstaða og
verður safnið opið á alla virka daga
frá kl. 10-20. Safnið verður opið á
laugardögum í vetur á sama tíma
til að gefa skólafólki tækifæri til
að nýta sér aðstöðuna.
- BB
fyrir skattahækkanir. Því lendi
hækkun á staðgreiðsluskatti og
hátekjuskattur í raun ekki á
stjórnarmönnunum. Eiríkur
Guðnason sagði að stjórnarlaunin
væru að fullu gefín upp til skatts,
„þ.e. þær 34 þúsund kr. og 17
þúsund kr. sem formaður stjómar
og stjórnarmenn fá í laun,“ sagði
Eiríkur. Um er að ræða mánaðar-
greiðslur.
Hann sagði að ákveðið hefði
verið að miða við að laun for-
manns stjórnar og stjórnarmanna
yrðu 20 þúsund kr. og 10 þúsund
kr. eftir skatt. „Mér skilst að slíkt
sé til í dæminu hjá öðrum stjórnum
en ég er nú ekki mjög kunnugur
stjórnarlaunum yfirleitt. Ég geri
þó ráð fyrir að í flestum tilfellum
sé stjórnarþóknun ákveðin fyrir
skatt og stjórnarmenn sjái sjálfir
Á sýningunni verða sýnd verk
alls níu félagsmanna FHI, þau hin
sömu og voru sýnd á alþjóðlegu
húsgagnasýningunni í Bella Cent-
er í Kaupmannahöfn í september
sl. Árangur sýningarinnar var
mjög góður og er hér getið þess
helsta: Siguijón Pálsson hefur
gert samning við þýskt fyrirtæki
um framleiðslu á rað-stólk og er
tilraunaframleiðsla þegar hafin.
Erla S. Óskarsdóttir er þessa dag-
ana í Þýskalandi að ræða um fram-
Veturinn
miruiir ásig
eftir sól-
ríktsumar s
Borg í Miklaholtshreppi.
EFTIR að hlýr og veðragóður
septembermánuður kvaddi hefur
veðráttan minnt okkur á að nú
fer vetur í hönd. Þrátt fyrir það
megum við ekki kvarta því að
þeir októberdagar sem liðnir eru
hafa verið bjartir og svalur norð-
austanvindur leikið um vanga.
Nokkra nætur hefur jörð stirðn-
að af vægu frosti.
Haustlitir hafa sýnt hversu til- ^
breytilegt og fagurt Iandslag við
eigum sem oft hefur glatt auga
ferðamannsins og sumarið sem
senn kveður var sólríkt og mikill
ferðamannstraumur um héraðið.
Kartöflur hafa víða náð góðum
þroska, hlýindin í september áttu
stóran hlut í uppskerunni.
Fall dilka eru með mesta móti,
eflaust verður nægilegt kjöt á
næsta ári og vel það en feita og
besta kjötið er nú verðfellt og er
leitt til þess að vita hve matarvenj-
ur fólks eru breyttar. Sláturtíð
stendur nú sem hæst og talað er
um að slátra verði um 60.000 fjár
í Borgarnesi. Fyrir nokkru árum
voru átta bílar í fjárflutningum sem j
sóttu fé fyrir Kaupfélag Borgfirð-
inga. En fénu hefur fækkað eins
og mannfólkinu í þessum sveitum.
Nú eru þrír bílar sem sækja sláturf-
éð, stórir og öflugir. Slátrað er um
1.600 fjár á dag en áður var slátr-
að 2.500 þegar féð var flest.
- Páll.
um að greiða skatt af henni. Þarna
var ákveðið að miða við að þegar
laun eru greidd til stjórnarmanna
sé búið að taka staðgreiðsluskatt-
inn af,“ sagði Eiríkur.
Eiríkur sagði að aðeins stað-
greiðsluskatturinn væri tekinn af
laununum og ætla mætti að stjórn- «
armenn verði sjálfir að gera skil
á hátekjuskatti. „Ég get fullyrt
að það var aldrei ætlunin með
þessari útfærslu að tryggja mönn-
um það að þeir slyppu við hvers
konar hækkanir á sköttum. Ef
staðgreiðsluskatthlutfallið breytist
er ekkert útilokað og meira að
segja fremur líklegt að aðalfundur
Verðbréfaþings ákveði öðruvísi
stjórnarþóknun. Það er ekki gull-
tryggt að þóknunin verði svona til
eilífðar,“ sagði Eiríkur.
leiðslusamning á stól sínum. Ómar
Sigurbergsson hefur fengið fyrir-
spurnir um sölu á stól sínum og
er verið að leita að innlendum
framleiðanda. Einnig birtist stóll-
inn hans í Berlingske Tidende og
var umsögnin mjög vinsamleg og
lofsverð. Ennþá eru nokkrir aðilar
í viðræðum við erlenda framleið-
endur. Eru þær viðræður árangur
sýningarinnar í Bella Center frá
1992.
Yerðbréfaþingið sjálft
greiðir skatta af þóknun
EIRÍKUR Guðnason, formaður stjórnar Verðbréfaþings
íslands, segir að Seðlabankinn greiði ekki skatt af greiðsl-
um til stjórnarmanna í Verðbréfaþinginu. Hið rétta sé að
stjórnarmenn fái ákveðna þóknun sem er föst upphæð eft-
ir skatta. Verðbréfaþingið sjálft taki staðgreiðsluskattinn
af þóknuninni en samkvæmt samningi við Seðlabankann
um aðstöðu í bankanum greiðir hann út reikninga fyrir
þingið. Hann segir fremur líklegt að sljórnarþóknun muni
breytast með breyttu staðgreiðsluhlutfalli.
í DV sagði í vikunni að Seðla- launum hjá Verðbréfaþingi og kjör
bankinn greiði skatta af stjórnar- stjórnarmanna skerðist ekki þrátt
Listaverk gefíð Þorlákshöfn
Þorlákskirkja
Arkitektar með sýn-
ingu í Ráðhúsinu
SÝNING í Ráðhúsi Reykjavíkur verður opnuð sunnudaginn 17.
október kl. 14 á vegum Félags húsgagna- og innanhússarki-
tekta og lýkur sunnudaginn 24. október.