Morgunblaðið - 16.10.1993, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993
37
Sigríður Jóns-
dóttir - Minning
Hinn áttunda október síðastliðinn
lést vinkona mín Sigríður Jónsdóttir
eftir langvarandi veikindi. Ljúfsárar
minningar komu upp í huga minn
um þessa glæsilegu æskuvinkonu
mína.
Við Sigga kynntumst fyrst þegar
við vorum átta ára gamlar í Landa-
kotsskóla og urðum strax bestu vin-
konur. Hún bjó þá inn við Rafstöð
en ég í Hlíðunum. Löng vegalengd
var á milli heimilanna. En forsjónin
hagaði því þannig að tveimur árum
síðar fluttist ég ásamt fjölskyldu
minni inn í Vogahverfí. Nú gátum
við hist hvenær sem tími gafst til.
Rafstöðin með sínu fagra umhverfi
varð okkar leikvöllur. Þar lékum við
okkur í boltaleikjum á fögrum sum-
arkvöldum og skíðuðum í Ártúns-
brekkunni á vetuma. Heima hjá
Siggu naut ég gestrisni foreldra
hennar sem voru mér einstaklega
hlý og yndisleg.
Við Sigga fórum saman í sunnu-
dagaskóla KFUK og síðar sem ung-
lingar sóttum við fund hjá KSS. Með
þeim félagsskap fórum við ófáar
ferðir saman í Vatnaskóg, Vindáshlíð
og Kaldársel. Ég minnist gamlárs-
kvölds nokkurs fyrir allmörgum
árum. Þá var gengið á Helgafell eft-
ir samverustund í Kaldárseli. Var það
stórkostleg upplifun að líta yfir
Reykjavíkurborg kl. 12 á miðnætti,
hafin yfir allan skarkala en njóta
samt stórkostlegrar ljósadýrðar.
Ánægjustundirnar sem við Sigga
áttum saman gegnum tíðina voru
vissulega margar. Með árunum hitt-
umst við sjaldnar en misstum þó aldr-
ei sjónar hvor á annarri.
Áður en Sigga lærði til organista
starfaði hún sem ljósmóðir og svo
skemmtilega vildi til að frumburður
minn var fyrsta barnið sem Sigga
tók á móti sem fulllærð ljósmóðir.
Betri handleiðslu við þá frumraun
gat ég ekki fengið.
Fregnin um að vinkona mín væri
haldin ólæknandi sjúkdómi varð mér
mikið áfall. Við hittumst nokkrum
sinnum á þessu ári á meðan Sigga
gat enn verið heima og áttum saman
ómetanlegar stundir þar sem rifjaðar
voru upp gamlar minningar og fyllt
upp í götin.
Með þessum fátæklegu orðum vil
ég minnast vinkonu minnar og þakka
henni samfylgdina í gegnum tíðina.
Eiginmanni og sonum, tengdadætr-
um, móður og systkinum sendi ég
hugheilar samúðarkveðjur.
Björg Kristjánsdóttir.
Hinn 8. okt. sl. lést vinkona okk-
ar, Sigríður Jónsdóttir, organisti, á
Grensásdeild Borgarspítalans, eftir
langvarandi sjúkdómslegu af völdum
heilablóðfalls. Af þeim sökum hefði
lát hennar ef til vill ekki átt að koma
okkur á óvart. Samt sem áður snert-
ir fráfall góðs vinar ávallt viðkvæ-
man streng í hjörtum okkar. Það er
þó huggun harmi gegn, að við vitum,
að hún hefur nú fengið lausn frá
jarðneskum þjáningum og hvílir nú
við brjóst síns himneska föður, sem
hún átti svo einlæga trú á.
Við kynntumst Sigríði Jónsdóttur
fyrst fyrir um það bil 35 árum, þeg-
ar hún gekk til liðs við okkur í Kristi-
legum skólasamtökum. Þar var fyrir
bróðir hennar, Ásgeir Markús, og
nokkrum árum seinna kom yngri
systir þeirra, Guðrún, einnig í KSS.
Þau systkinin komu frá einlæglega
trúuðu heimili, þar sem foreldrar
þeirra Gunnþórunn og Jón Ásgeirs-
son, veittu þeim ástúðlegt, kristilegt
uppeldi, sem þau nutil góðs af upp
frá því og var þeim gott veganesti í
lífsbaráttunni.
Á þessari stundu koma fram í
hugann allar yndislegu samveru-
stundirnar, sem við áttum í KSS.
Við minnumst allra fundanna, skóla-
mótanna í Vatnaskógi og Vindáshlíð
og starfs í æskulýðskórum. Alls stað-
ar var Sigríður sjálfsagður þátttak-
andi og gekk að starfinu af fúsleik,
til þess að sem flestir fengju að heyra
fagnaðarboðskapinn um Jesúm
Krist. En síðast og ekki síst minn-
umst við allra gamlárskvöldanna,
þegar okkur var öllum boðið heim
til þeirra og nutum við einstakrar
gestrisni foreldra þeirra. Þar ríkti
fölskvalaus gleði, farið var í leiki og
mikið sungið. Þá tók Jón faðir þeirra
fram fiðluna sína og spilaði fyrir
okkur við undirleik Sigríðar. Þetta
eru okkur öllum ógleymanlegar
stundir.
Nú að leiðarlokum í þessu lífi, vilj-
um við gömlu félagarnir þakka Sig-
ríði Jónsdóttur fyrir allt sem hún var
okkur, fyrir allt hennar óeigingjama
starf, sem hún innti af hendi fyrir
KSS á þeim ámm sem við störfuðum
þar. Við biðjum góðan Guð að blessa
minningu hennar.
Þá biðjum við Drottin að blessa
ástvini hennar, eiginmann, móður,
böm og tengdabörn og veita þeim
sinn styrk í þeirra mikla söknuði og
sorg.
Fyrir hönd gömlu félaganna í KSS,
Hilmar E. Guðjónsson.
Ég átti því láni að fagna að kynn-
ast Siggu lítilsháttar síðustu tíu ár
ævi hennar. Fyrir þau kynni er ég
þakklátur Guði. Væntanlega munu
aðrir fjalla um störf hennar að tón-
listarmálum. Þar nutu sín hæfileik-
arnir til að starfa með fólki og byggja
það upp.
Þeir hæfileikar reyndust einnig
dýrmætir á þeim vettvangi sem ég
stafaði mest með Siggu - í sam-
starfi KFUK og KFUM. Hún lagði
alltaf áherslu á nærgætni og hlýju
sem kom sér vel í viðkvæmum mál-
um. Ég minnist þess að einu sinni
var ég tillitslaus við hana á fundi
og mér Ieið ekki vel fyrr en ég hafði
fullvissað mig um að hún erfði það
ekki við mig. Það var óbærileg til-
hugsun að hafa sært hana eða gert
á hlut hennar.
I minningunni er Sigga björt og
fögur, heið og sviphrein. Hún gat
verið föst fyrir en var sanngjörn og
laus við sýndarmennsku.
Þrátt fyrir margþætt störf sín að
tónlistar- og félagsmálum skilur
Sigga mest eftir sig sem eiginkona
og móðir. Hún átti góðan og traust-
an eiginmann sem stóð við hlið konu
sinnar í allri þjáningu hennar. Dreng-
irnir þeirra þrír bera vitni um gott
heimili og farsælt uppeldi - allir ein-
staklega vel gerðir, duglegir og
ábyrgir.
Kæru vinir, Pétur, Sigurður,
Gunnar Þór og Hannes. Missir ykkar
er mikill og söknuðurinn nístandi.
En þið vitið að böl og dauði eiga
ekki síðasta orðið. Ekkert getur gert
okkur viðskila við kærleika Guðs.
Upprisa Krists gefur okkur von eilífs
lífs. í þeirri von lifði og dó Sigga.
Þess vegna hvílir hún nú óhult í faðmi
Guðs, þar sem hvorki er til þjáning
né dauði heldur er Guð allt í öllu.
Megi sú vissa styrkja ykkur í sorg
ykkar. „Guði séu þakkir sem gefur
oss sigurinn fyrir Drottin vorn Jesú
Krist.“ (I. Kor. 15:57)
Ólafur Jóhannsson.
Glæsileg, hæfileikarík og ljúf í
viðmóti eru þau orð sem okkur dett-
ur í hug, er við minnumst bróðurdótt-
ur okkar, Sigríðar Jónsdóttur, sem
lést 8. október síðastliðinn, eftir erf-
ið veikindi aðeins 47 ára gömul.
Hún var fædd í Reykjavík 8. febr-
úar 1946, dóttir hjónanna Jóns Ás-
geirssonar, stöðvarstjóra við Elliða-
árstöðina, sem lést 1978 og Gunnþór-
unnar Markúsdóttur, sem lifir dóttur
sína. Hún var önnur í systkinaröð-
inni, eldri er Ásgeir Markús og yngri
Guðrún, bæði búsett í Reykjavík.
Sigríður ólst upp á yndislegu heim-
ili í fögru umhverfí við Elliðaárnar.
Snemma komu tónlistarhæfileikar
hennar í ljós, sem hún ræktaði vel
enda fékk hún hvatningu til að
stunda tónlistarnám. Hún lærði líka
ljósmóðurstörf og vann við þau um
árabil.
Árið 1968 giftist hún Pétri Sig-
urðssyni skipstjóra. Þau eignuðust
þijá syni sem eru: Sigurður, fæddur
1969, líffræðinemi, kvæntur Ingi-
björgu Valgeirsdóttur; Gunnar Þór,
fæddur 1971, lögfræðinemi, kvæntur
Eddu Björk Skúladóttur; og Hannes,
fæddur 1974, nemi.
Fjölskyldan bjó um tíma á Suður-
eyri. Þar var Sigríður organisti í
kirkjunni. Eftir að þau fluttu aftur
til Reykjavíkur varð hún aðstoðar-
organisti í Laugameskirkju í tvö ár,
seinna eitt ár í Breiðholtskirkju og
síðan f Grafarvogssókn frá stofnun
hennar.
Tími Sigríðar er nú liðinn. Enginn
flýr örlög sín, síst af öllu dauðann.
Stundum finnst manni hann birtast
okkur af miskunnarleysi og svo er
vissulega nú þegar við kveðjum
frænku okkar, svo unga og hæfi-
leikaríka konu, sem lífið virtist blasa
við.
Við og fjölskyldur okkar sendum
Pétri, sonum, tengdadætrum, Gunn-
þórunni, Ásgeiri Markúsi, Guðrúnu
og fjölskyldum, okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Sá sem eftir lifir
deyr þeim deyr
en hinn dáni lifir
í hjarta og minni
manna er hans sakna.
þeir eru himnarnir
honum yfir.
(Hannes Pétursson)
Guðs blessun fylgi Sigríði í hinstu
ferð.
Steinunn Ásgeirsdóttir,
Einar Ásgeirsson
og fjölskyldur.
Kveðja frá KFUK
í Reykjavík
I dag stöndum við félagskonur í
KFUK í þeim erfiðu sporum að
kveðja Sigríði Jónsdóttur, félagssyst-
ur okkar og fyrrum formann KFUK.
Á undangengnum vikum höfum við
þegar séð á bak þremur félagssystr-
um okkar og Sigríður yngst þeirra
fyllir nú þann hóp.
Við nemum staðar — komið er að
kveðjustundu. Hugleiðingar um lífið
og tilveruna gera óhjákvæmilega
vart við sig, vangaveltur sem snerta
eðli og tilgang lífsins, hinstu rök til-
verunnar og þá ráðgátu sem dauðinn
er. Kristur og frelsunarverk hans
verður okkur hugleiknara. Vald
dauðans hefur verið borið ofurliði.
Sigurinn er Krists og fyrir hann höf-
um við höndlað lífið, lífið með honum
um' eilífð alla.
Sigga greindist fyrir tveimur árum
með þann alvarlega sjúkdóm, sem
að iokum lagði hana að velli. í veik-
indum sínum var hún sem og fjöl-
skylda hennar borin á bænarörmum,
þar sem Guð var beðinn að líta til
þeirra í náð sinni, veita þeim hjálp
og gefa þeim styrk trúarinnar. Við
fylgdumst náið með Siggu og skynj-
uðum glöggt þá erfiðu baráttu sem
hún háði. Hún fól sig Guði og í hon-
um átti hún athvarf sitt.
Sigga var barn að aldri þegar hún
fór að sækja fundi hjá KFUK og
KFUM enda voru foreldrar hennar
meðlimir í þeim félögum. Framan
af tók hún þátt í ýmsum þáttum
starfsins en hin síðari ár var hún
undirleikari á fundum okkar og sam-
komum. Spiiaði hún síðastliðin ár
nær undantekningarlaust á öllum
AD-fundum í KFUK. Tónlistin skip-
aði stóran sess í lífi hennar. Hún
starfaði sem organisti úti á landi,
er fjölskyldan bjó þar og á síðari
árum einnig í Reykjavík.
Sigga var í stjórn KFUK árin
1986-1992, lengstum sem ritari.
Starfsárið 1991-1992 var hún for-
maður félagsins, en varð að hætta
þeim störfum sökum þeirra alvarlegu
veikinda, sem gerðu vart við sig.
Þegar horft er um öxl og litið til
baka verður mynd Siggu björt og
skýr. Öli störf sín í KFUK vann hún
af stakri samviskusemi og vand-
virkni. Þessir þættir ásamt einlægni,
heiðarleika og rósemi voru einkenn-
andi fyrir hana. Hún var glæsileg
kona og einstaklega vel gerð.
Sigga var ekki margmál um eigin
hagi en þó duldist engum sem kynnt-
ist henni, að eiginmaður hennar Pét-
ur Sigurðsson stóð henni við hlið og
studdi hana einlæglega. Hann lagði
sitt af mörkum til starfsins og í hon-
um eignaðist KFUK góðan stuðn-
ingsmann, sem við metum mikils og
þökkum fyrir. Við sendum Pétri, son-
um þeirra, Sigurði, Gunnari Þór og
eiginkonum þeirra, Hannesi, aldraðri
móður og fjölskyldunni allri innilegar
samúðarkveðjur. Við biðjum Guð að
umvefja þau með kærleika sínum,
hugga þau og vera þeim nálægur í
sorg þeirra.
Við þökkum Guði fyrir Siggu og
öll störf hennar í þágu KFUK. Við
kveðjum hana með orðum þeim sem
hún gaf okkur félagssystrum sínum
er hún lét af formennsku í KFUK
árið 1992.
„Fyrir því látum vér ekki hugfall-
ast. Jafnvel þótt vor ytri maður
hrörni, þá endurnýjast dag frá degi
vor innri maður. Þrenging vor er
skammvinn og léttbær og aflar oss
eilífrar dýrðar sem stórum yfirgnæf-
ir allt.“ (2. Kor. 4:16-17.)
Sljórn KFUK í Reykjavík.
+
Ástkær eiginkona mín,
GUÐRÚN GUÐJÓNSDÓTTIR,
Neðstaleiti 2,
lést í Borgarspítalanum aðfaranótt 15. október.
Fyrir hönd aðstandenda,
Sigurður Jónsson.
Innilegar þakkir til allra, sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og
útför móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og systur,
ÓLAFfU INGIBJARGAR
ÞORGILSDÓTTUR
frá Þórshamri í Sandgerði,
Eskihlíð 12b,
Reykjavík.
Oddný Jónasdóttir,
Þorgils Jónasson, Vilborg Bjarnadóttir,
barnabörn, barnabarnabörn
og systur.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför eiginkonu minnar,
móður okkar, dóttur, tengdadóttur og
systur,
ÞÓRDÍSAR S. FRIÐRIKSDÓTTUR
sjúkraliða,
Álfheimum 9.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
krabbameinsdeildar 11E og Heimaað-
stoðar Landspítalans, fyrir frábæra
umönnun og hlýhug. Einnig til starfsfólks
og félaganna á Morgunblaðinu.
Guð blessi ykkur öll.
Karel Kristjánsson og börn,
foreldrar, tengdaforeldrar og systkini.
+
Móðurbróðir okkar,
STEINGRÍMUR JÓHANNESSON,
Svínavatni,
Austur-Húnavatnssýslu,
andaðist aðfaranótt 15. október f sjúkrahúsinu á Blönduósi.
Ingibjörg Gunnarsdóttir, Ingibjörg Pétursdóttir,
Guðmundur Pétursson, Jóhannes Pétursson,
Anna Guðnadóttir, Jóhanna Guðnadóttir.
+
Móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma,
EDITH AGNES SCHMIDT,
er lést f Landspítalanum þann 8. október, verður jarðsungin frá
Fossvogskapellu mánudaginn 18. október kl. 10.30.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónas B. Erlendsson.
+
Hjartans þakkir til allra, sem sýndu okkur samúð og vinarhiig
vegna and.'áts bróður okkar,
SIGURÐAR J. SIGURÐSSONAR
frá Skammbeinsstööum.
Guð blessi ykkur.
Systkini hins látna.
+
Faðir okkar, bróðir, tengdafaðir, afi og langafi,
HAUKUR PÉTUR GÍSLASON,
Ö. Kristine Lundvegen 9,
Malmö,
verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 18. október
kl. 13.30.
Anna Kristín Hauksdóttir, Gísli Hjálmar Hauksson,
Halldór Sveinn Hauksson, Birna Guðbjörg Hauksdóttir,
tengdabörn, barnabörn, barnabarnabarn
og systkini hins látna.