Morgunblaðið - 16.10.1993, Síða 47
MORGUNBLAÐIÐ
IÞROTTIR LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 1993
47
URSLIT
Selfoss - IBV 24:22
fþróttahúsið á Selfossi, Islandsmótið í hand-
knattleik — 1. deild karla, föstudaginn 15.
október 1993
Gangur leiksins: 1:0, 3:2, 4:4, 7:5, 9:7,
11:8, 13:10, 14:11, 14:13, 14:14, 15:15,
17:16, 17:17, 18:18, 20:18, 22:19, 22:22,
23:22, 24:22.
Mörk Selfoss: Gústaf Bjamason 6, Jón
Þórir Jónsson 6, Siguijón Bjamason 4, Sig-
urður Sveinsson 4(2), Einar Guðmundsson
2, Einar Gunnar Sigurðsson 2.
Varin skot: Hallgrímur Jónsasson 16/1.
lltan vallar:10 mínútur
Mörk ÍBV: Björgvin Rúnarsson 8, Zoltan
Belany 5, Daði Pálsson 4, Guðfinnur Krist-
mannsson 3, Amar Pétursson 1, Helgi
Bragason 1.
Varin skot: Hlynur Jóhannsson 16.
Utan vallar: 0 min.
Dómarar:Sigurgeir Sveinsson og Gunnar
Viðarsson dæmdu vel og höfðu góð tök á
leiknum.
Áhorfendur: Um 400
Þór-ÍR 26:33
íþróttahöllin á Akureyri, íslandsmótið í
handknattleik — 1. deild karla, föstudaginn
15. október 1993.
Gangur leiksins: 1:0, 2:0, 3:2, 4:4, 4:7,
7:13, 11:17, 13:18, 16:19, 16:23, 18:24,
18:29, 20:30, 24:32, 26:33.
Mörk Þórs: Jóhann Samúelsson 8, Sævar
Ámason 7, Alexandrov Evgeni 3, Sigurður
Pálsson 3, Geir Aðalsteinsson 3, Atli Rún-
arsson 1, Samúel Ámason.
Varin skot: Hermann Karlsson 7. Sævar
Kristjánsson 1.
Utan vallar: 8 mín.
Mörk ÍR: Branislav Dimitrivich 7, Njörður
Ámason 7, Jóhann Ásgeirsson 5/2, Sigfús
Orri Bollason 4, Ólafur Gylfason 3, Ragnar
P. Ólafsson 3, Róbert Þór Rafnsson 2,
Magnús Ólafsson 2.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 15/2.
Utan vallar: 6 mín.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Ólafur
Haraldsson.
Áhorfendur: Um 100.
Fj. leikja U J T Mörk Stig
HAUKAR 3 3 0 0 77: 63 6
(R 4 3 0 1 94: 89 6
VALUR 3 2 0 1 78: 69 4
UMFA 3 2 0 1 74: 69 4
STJARNAN 3 2 0 1 71: 68 4
FH 3 2 0 1 80: 83 4
KA 3 1 1 1 67: 62 3
SELFOSS 4 1 1 2 97: 100 3
VIKINGUR 3 1 0 2 75: 77 2
KR 3 1 0 2 64: 67 2
ÞOR 4 1 0 3 102: 117 2
IBV 4 0 0 4 94: 109 0
i. deild karla: Völsungur-Fjölnir.... 23:25
Fj. leikja U J T Mörk Stig
UBK 3 2 1 0 76: 67 5
GROTTA 2 2 0 0 59: 43 4
HK 2 2 0 0 50: 39 4
IH 2 1 1 0 44: 37 3
VÖLSUNGUR 4 1 0 3 100: 100 2
FYLKIR 2 1 0 1 49: 54 2
armann 2 1 0 1 46: 51 2
FJÖLNIR 3 1 0 2 68: 74 2
IBK 2 0 0 2 47: 58 0
fram 2 0 0 2 37: 53 0
Körfuknattleikur
Reynir S. - Höttur..............61:63
Breiðablik - Þór................87:82
Sveinn Steinsson 24 og Hörður Pétursson
18 voru stigahæstir Biika en Einar Val-
bergsson 34 og Konráð Óskarsson 18 stig
fyrir Þór.
Knattspyrna
Þýskaland
Úrvalsdeild:
Dynamo Dresden — Karlsruhe.........1:1
(Penksa 28.) - (Kiryakov 41.). 15.500.
Wattenscheid — Köln................2:2
(Fink 69., Lesniak 77.) - (Baumann 31.,
Lehmann 44.). 10.000.
Duisburg — Éintracht Frankfurt.....1:0
(Preetz 42.). 28.000.
Staða efstu liða:
Frankfurt..........12 9 2 1 30:11 20
Werder Bremen......11 7 3 1 24:12 17
Duisburg...........12 5 6 1 20:14 16
Hamburg............11 7 1 3 22:16 15
Bayern Miinchen....11 5 4 2 28:12 14
Kaiserslautem......11 6 2 3 24:15 14
BEintracht Frankfurt tapaði fyrsta leik
sinum á tímabilinu fyrir Duisburg sem er
með neðstu liðum deildarinnar. Michael
Preetz, sem var settur inn í byrjunarliðið
fyrir Uwe Weidemann sem var meiddur,
gerði sigurmarkið með skalla. Frankfurt
heldur þó enn þriggja stiga forskoti en
Werder Bremen gæti minnkað forskotið
niður eitt stig með sigri á Freiburg i dag.
Holland
Roda JC — Vitesse Amhem...........2:1
Asíuriðill HM
Qiitur:
Norður-Kórea - írak...............3:2
Ryu Song-gun (67.), Kim Gyong-il (77.),
Choe Won-nam (82.) - Alaa Jebur (7., 46.)
Japan - Saudi-Arabía...........0:0
HANDKNATTLEIKUR/1. DEILD KARLA
Mikil spenna á
lokamínútunum
á Selfossi
ÍR-ingar komnir í annað sæti
„ÞETTA var ágætur leikur en reynsluleysi okkar kom okkur í
koll. Það hefði verið gott að klára þetta. Annars er barátta í
liðinu og við vinnum bara næsta leik,“ sagði Björgvin Rúnars-
son leikmaður ÍBV eftir leikinn við Selfoss sem heimamenn
unnu 24:22. Björgvin átti stórleik og var áberandi bestur í liði
ÍBV.
Sigurður
Jónsson
skrifar
frá Selfossi
Leikurinn var jafn allan tímann
og Eyjamönnum tókst alltaf
að vinna aftur upp þriggja og fjög-
urra marka mun
sem Selfyssingar
náðu. Leikurinn var
mjög líflegur og
hraður á köflum þar
sem skemmtileg tilþrif komu fyrir
einkum þegar hraðaupphlaup Sel-
fyssinga gengu upp. Þeir Gústaf
Bjamason og Jón þórir Jónsson
áttu mjög góðan leik og skoruðu
úr erfiðum færum.
„Við vissum að þeir myndu berj-
ast til að ná stigi og það var virki-
lega erfitt að eiga við þá. Við vor-
um klaufar að keyra ekki yfír þá
og lentum í vandræðum í lokin,“
sagði Gústaf Bjamason, einn besti
leikmaður Selfoss.
Mikil spenna var á lokamínútun-
um en staðan var jöfn 22:22 þegar
5 mínútur voru eftir og mikil bar-
átta á vellinum. Upp úr sauð þegar
tveir leikmanna IBV fengu rautt
spjald fyrir þriðju brottvísun og
Oliver Pálmason fyrir áflog og á
yfir höfði sér leikbann. Einar Guð-
mundsson gat ekki leikið allan leik-
inn vegna meiðsla og óvíst er að
hann verði með í næstu leikjum.
I
ÍR-ingar burstuöu Þórsara
R-ingar fóra létt með slakt lið
Þórsara í 1. deild karla á Akur-
Pálmi
Óskarsson
skrífarfrá
Akureyrí
eyri í gærkvöldi. Úrslitin urðu
33:26 fyrir ÍR og þar með skaust
Reykj avíkurliðið
upp að hlið Hauka
í efsta sæti deildar-
innar, í bili að
minnsta kosti.
í byijun var jafnræði með liðun-
um en síðan kom getumunurinn
berlega í ljós og skref fyrir skerf
færðust ÍR-ingar framúr. í hálfleik
var staðan 11:17 fyrir ÍR og allt
annað en bjart útlitið fyrir heima-
menn.
Þórsarar hófu síðari hálfleikinn
af miklum móð og minnkuðu mun-
inn í þijú mörk, 16:19, en þá átt-
uðu ÍR-ingar sig og fóra að taka á
í vörninni — afleiðingin var sægur
hraðaupphlaupa og munurinn. óx
jafnt og þétt og varð mestur ellefu
mörk, 19:30 er skammt var til
leiksloka. ÍR skipti því sem næst
öllu byijunarliði sínu útaf í lokin
og Þór náði þá að minnka forskot-
ið, en aðeins niður í sjö mörk áður
en flautað var af.
Lið Þórsara á ekkert fyrir hönd-
um nema fallbaráttu í vetur ef það
sýnir ekki meira en það gerði f
þessum leik. Sóknarleikur liðsins
byggðist mest upp á einstaklings-
framtaki. Vömin var döpur og
gátu ÍR-ingar skorað nánast að
vild. Sævar Ámason og Jóhann
Samúelsson vora skástu leikmenn
Þórs.
Gústaf Bjarnason var einn besti
leikmaður Selfoss í gærkvöldi. Hann
gerði sex mörk er Selfyssingar unnu
fyrsta leik sinn í deildinni, gegn
Eyjamönnum 24:22.
ÍR-ingar spiluðu þokkalega, sér-
staklega í sókninni en vamar-
leikurinn var ekki sannfærandi
lengst af fram í síðari hálfleik.
Magnús markvörður varði 15 skot
og var besti leikmaður vallarins.
Branislav, Jóhann og Njörður léku
einnig vel fyrir ÍR.
KNATTSPYRNA
Ólafur eftirsóttur
Teitur Þórðarson tekur ekki við Öster, en Lilleström í biðstöðu
ÓLAFUR Þórðarson, lands-
liðsmaður í knattspyrnu frá
Akranesi, hefur fengið tilboð
frá þremur félögum á síðustu
dögum. Oslóarliðin Válering-
en og Lyn hafa boðið honum
samning og danska úrvals-
deildariiðið AaB vill fá hann
til Álaborgar til viðræðna.
Olafur hefur verið í fríi í Noregi
að undanförnu, en fór með
landsiiðinu til í gær. „Ég reikna
með að fara til Álaborgar fljótlega
eftir landsleikinn við Túnis og
skoða aðstæður. Þeir vilja helst fá
mig strax því þá vantar miðju-
mann,“ sagði Ólafur. Hann sagðist
lítið þekkja til hjá danska liðinu,
nema markvörðinn sem lék með
honum hjá Brann á sínum tima,
en hann benti forráðamönnum AaB
á Ólaf. AaB er nú í 4. sæti dönsku
úrvalsdeiidarinnar eftir sex um-
ferðir.
Ólafur sagðist einnig vera með
tilboð frá Lyn sem hann iék með
fyrir einu ári. En liðið er nú nán-
ast fallið úr úrvalsdeildinni. Eins
hefur Váleringen sett sig í samband
við Ólaf. Váleringen er frá Osló
eins og Lyn og vann sér rétt til
að leika í úrvalsdeildinni næsta ár.
„Þetta era allt spennandi dæmi sem
Bræöumir Ólafur og Teitur Þórðarsynir eru báðir með tilboð sem þeir
eru að skoða.
vert er að skoða,“ sagði Ólafur.
Te'rtur í biAstödu
Teitur Þórðarson, bróðir Ólafs,
er með tilboð um að gerast þjálfari
hjá tveimur norskum liðum; Lil-
leström sem leikur í úrvalsdeildinni
og Berum sem leikur í 1. deild.
Teitur sagðist í samtali við Morgun-
blaðið vera í biðstöðu með þessi
mái vegna þess að norska þjálfara-
sambandið, sem hann er meðlimur
í, hefur bannað þjálfuram að ræða
við Liileström því félagið á enn
eftir óuppgerða skuld við fyrrver-
andi þjálfara félagsins. Teitur sagð-
ist vera búinn að gefa frá sér tiiboð
frá Öster í Svíþjóð og Lyn, sem
þegar hefur ráðið til sín þjálfara
fyrir næsta tímabil.
FOLK
DIEGO Maradona verður fyr-
irliði Argentínu í tveimur leikjum
gegn Ástralíu um sæti í úrslita-
keppni HM í Bandaríkjunum.
Alfío Basile, landsliðsþjálfari
Argentínu, skýrði frá þessu í
gær. Fyrri leikurinn verður í Sydn-
ey 31. október og síðari í Buenos
Aires 17. nóvember.
V MARADONA hefur létt sig
um 12 kfló á síðUstu vikum og er
sagður í góðri æfíngu. Hann hefur
þegar spilað leik með nýja félag-
inu, Newells Old Boys, og skoraðf*"
í sínum fyrsta leik. Hann á nú að
bjarga Árgentínu fyrir hom og
koma liðinu til Bandaríkjanna.
■ ALFIO Basile, landsliðsþjálf-
ari Argentínu, hefur verið gagn-
rýndur fyrir slakt gengi liðsins að
undanförnu og eftir 5:0 tapið gegn
Kólombíu varð hann að gera
breytingar. Hann hefur kallaði
inn fímm nýja leikmenn fyrir
utan Maradona. Þeir era: Victor
Hugo Sotomayor, Carlos Javier
Mac Allister, Jose Chamot, Hugo
Leonardo, Perez og Abel Balbo.
■ BOBBY Gould, framkvæmda-
stjóri Coventry, hefur ákveðið að
sonur hans, Jonathan, standi i
markinu í dag í stað Steve
Ogrizovic. Coventry leikur gegn
Southampton.
■ OSSIE Ardiles, framkvæmda-
stjóri Tottenham, setti skoska
framheijann Gordon Durie á sölu-
lista í gær. Hann hefur verið til
vandræða hjá félaginu og Ardiles
sagðist ekki vilja hafa leikmann
sem leggur sig ekki 100 prósent
fram fyrir félagið. Durie var
keyptur frá Chelsea á 2,2 milljónir
punda fyrir tveimur áram.
■ LIERSE sem leikur í 1. deild-
inni í Belgíu hefur gert samning
við norska leikmanninn Jahn Jak-
obsen, sem var hjá þýska liðinu
MSV Duisburg. Hann var síðasta
keppnistímabil hjá Young Boys í
Sviss og gerði þá 22 mörk, en
náði ekki að festa sig í sessi hjá
Duisburg.