Morgunblaðið - 23.10.1993, Page 22
22
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993
23
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Fulltrúar ritstjóra
Fréttastjórar
Ritstjórnarfulltrúi
Árvakur h.f., Reykjavík
Haraldur Sveinsson.
Matthías Johannessen,
Styrmir Gunnarsson.
Björn Jóhannsson,
Árni Jörgensen.
Freysteinn Jóhannsson,
Magnús Finnsson,
Sigtryggur Sigtryggsson,
Ágúst Ingi Jónsson.
Björn Vignir Sigurpálsson.
Kringlan 1, 103 Reykjavík. Simar: Skiptiborð 691100. Auglýsingar:
691111. Áskriftir 691122. Áskriftargjald 1400 kr. með vsk. á mánuði
innanlands. í lausasölu 125 kr. með vsk. eintakið.
Gamlar dyggðir
*
Ifyrradag flutti Helmut
Kohl, kanslari Þýzka-
lands, ræðu í sambandsþing-
inu í Bonn, þar sem hann
hvatti Þjóðverja til dáða og
til þess að brétta upp ermarn-
ar, vinna meira og leggja
meira á sig til þess að ná
þýzku efnahagslífi upp úr
þeim öldudal, sem það nú er
í. í ræðu sinni benti Kohl á,
að launakostnaður væri of
hár í Þýzkalandi, reglugerð-
afarganið of mikið og frídag-
ar of margir. Hann sagði, að
Þjóðveijar tækju sér að jafn-
aði sex vikna sumarleyfi og
að auki væru 12 aðrir frídag-
ar á hverju ári. í Þýzkalandi
væru að jafnaði unnar rúm-
lega 37 klukkustundir á viku,
sem væri styttri vinnuvika en
hjá öðrum þjóðum. Hann
benti á, að. launakostnaður
hefði hækkað um 30% í
Þýzkalandi á árunum 1985
til 1992 á sama tíma og hann
hefði aukizt um 4% í Japan
og 11% í Bandaríkjunum.
Þýzki kanslarinn sagði, að
svo virtist sem Þjóðverjar
væru með hugann við það,
hvernig þeir ættu að eyða
frítíma sínum, og Þýzkaland
væri að verða einn allsherjar
skemmtigarður. Hann hvatti
til endurmats á þessum lífs-
viðhorfum.
Þessi hvatningarorð Helm-
uts Kohls til landa sinna eru
endurómur af ræðu Johns
Majors á þingi brezka íhalds-
flokksins fyrir skömmu, þeg-
ar Major skoraði á Breta að
hefja til vegs á ný gamlar
dyggðir og hefðbundna lífs-
hætti. Báðir þessir stjórn-
málaleiðtogar endurspegla í
ræðum sínum vaxandi skiln-
ing fólks á því að tímamir
hafa breytzt. Að baki er
sveiflukennt tímabil ýmist
óhófs og munaðar eða til-
raunar til að kollvarpa hefð-
bundnum lífsstfl. Niðurstaðan
af sviptingum undanfarinna
tveggja áratuga er sú að far-
sælast sé að hverfa til þeirra
lífshátta, sem dugðu fólk vel,
þegar úr minnu var að spila.
Vinnusemi, nægjusemi,
nýtni, sparnaður, allir þessir
eiginleikar áttu ríkan þátt í
því að velmegun þjóða á Vest-
urlöndum varð svo mikil á
þessari öld, sem raun ber
vitni. Eins og oft vill verða,
þegar velgengni verður mikil,
missa menn fótanna og telja
að allt sé hægt. Þetta á við
um einstaklinga í einkalífi
þeirra. Þetta á við um stjóm-
endur atvinnufyrirtækja,
þegar vel gengur. Þetta á við
um heilu þjóðirnar.
Kreppan, sem gengið hefur
yfir Vesturlönd á undanförn-
um árum, hefur auðveldað
fólki að ná áttum. Hún hefur
opnað augu manna fyrir þýð-
ingu gamalla dyggða. Hún
hefur knúið þjóðir Vestur-
landa til þess að stöðva eftir-
sóknina eftir stöðugt meiri
lífsþægindum. Bæði Helmut
Kohl og John Major eru í
raun og veru að segja við
umbjóðendur sína: Þið verðið
að vinna meira, spara meira,
láta ykkur nægja minni lífs-
þægindi, en þið hafíð vanizt
um skeið. Veizlunni er lokið.
Þessar hvatningar eiga
ekki síður erindi til okkar Is-
lendinga en annarra Vestur-
landaþjóða. Kannski má
segja, að afturhvarf til hinna
gömlu dyggða, vinnusemi,
nýtni, nægjusemi og sparnað-
ar, sé forsenda fyrir því, að
okkur takist að rétta úr kútn-
um og vinna okkur út úr
kreppunni í stað þess að verða
henni að bráð eins og gerzt
hefur hjá frændum okkar í
Færeyjum, sem nú em upp á
náð og miskunn Dana komnir.
Þessi boðskapur forystu-
manna íhaldssamra flokka í
Bretlandi og í Þýzkalandi á
líka erindi til þess mikla Qölda
trúnaðarmanna Sjálfstæðis-
flokksins, sem nú bera saman
bækur sínar á landsfundi. Það
er áreiðanlega hljómgrunnur
fyrir þessum boðskap hjá al-
menningi á íslandi ekki síður
en annars staðar, svo lengi
sem menn sjá, að þeir, sem
til forystu hafa valizt á ýms-
um sviðum þjóðlífsins, haga
gerðum sínum á sama veg.
Því hefur löngum verið
haldið fram, að Islendingar
vinni meira en aðrar þjóðir.
Það er áreiðanlega orðum
aukið. Þótt vinnudagur sé hér
langur er agi á vinnustað
ekkert í líkingu við það, sem
þekkist annars staðar. íslend-
ingar, sem lengi hafa starfað
erlendis, kvarta undan aga-
leysinu, sem einkenni íslenzkt
samfélag að þeirra mati. Með
sameiginlegu átaki til þess
að auka aga og vinnusemi
og aðrar þær gömlu dyggðir,
sem hér hefur verið vikið að,
getum við komizt ótrúlega
langt. Það þurfa fleiri að
bretta upp ermamar en Þjóð-
verjar.
31. LANDSFUNDUR SJALFSTÆÐISFLOKKSINS I LAUGARDALSHÖLL
Ráðherrar sjálfstæðismanna sitja fyrir svörum á landsfundinum
Setja nú fyrirvara við frum-
varp um ráðstöfun Iðnlánasjóðs
RÁÐHERRAR Sjálfstæðisflokksins sátu fyrir svörum hjá landsfundar-
fulltrúum í gærmorgun. Tugir fyrirspurna bárust um margvísleg
málefni. Þar kom meðal annars fram í svari Davíðs Oddssonar forsæt-
isráðherra í svari við fyrirspurn Halldórs Jónssonar úr Kópavogi um
afstöðu ráðherra til frumvarps sem samið var í ráðherratíð Jóns Sig-
urðssonar um stofnun fjárfestingarbanka sem tæki við öllum eignum
Iðnlánasjóðs, að ráðherrar áskilji sér nú rétt til að fara ítarlega yfir
frumvarpið og endurskoða þá hugsun sem í því liggi. Ekki hafi verið
ákveðið að leggja fram frumvarpið og verði málið rætt ítarlega í ríkis-
stjórn áður en svo verði. Forsætisráðherra sagði að frumvarpið hefði
verið samið sem stjórnarfrumvarp
efni þess.
Menntamálaráðherra var spurður
hvort gera ætti breytingar á því að
unnt yrði að innheimta afnotagjöld
RÚV með þvingunarúrræðum og
dómsvaldi. í svari Ólafs G. Einars-
sonar menntamálaráðherra kom
fram að störfum nefndar undir for-
ystu Tómasar Inga Olrichs alþingis-
manns sem ; yhni að endurskoðun
útvarpslaga ætti að ljúka fyrir ára-
mót og meðal verkefna þeirrar
nefndar væri að fjalla um hvort hen-
tugast væri að afla því íjár með af-
notagjöldum eða öðrum hætti.
Aðspurður um heilsukort sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra að
sú hugmynd gæti samræmst sjónar-
miðum sjálfstæðismanna í heilbrigð-
ismálum um að þeir sem njóti þjón-
ustu standi í auknum mæli undir
kostnaði enda verði hagur þeirra sem
illa eru settir ávallt tryggður. Hann
kvaðst telja að Guðmundur Árni
Stefánsson heilbrigðisráðherra hefði
þurft að sitja undir ósanngjörnum
árásum vegna málsins þar sem hann
væri að vinna að því að tryggja
grundvöll velferðarkerfisins en ekki
að skemma hann. Verði ekki tekið á
sjálfvirkri útgjaldaþenslu í kerfinu
muni það springa.
Aðspurður um áform hvenær veg-
ir yfir Kjalveg og Sprengisand yrðu
brúaðir sagði samgönguráðherra að
það yrði væntanlega á næstu öld því
engar áætlanir lægju fyrir þar að
lútandi. Menntamálaráðherra varp-
aði þá fram þeirri spurningu hvort
menn ættu ekki jeppa?
Aðspurður hvort sjálfstæðismenn
hefðu ekki lofað að afnema fískveiði-
stjórnunarkerfí framsóknarmanna
þegar þeir kæmust í stjóm sagði
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegsráð-
og þá talið að samstaða væn um
Dagskrá
landsfundar
um helgina
STÖRF landsfundar hefjast
kl. 9.30 í dag þegar starfshóp-
ar vinna fram til kl. 12. Kl.
13.30 hefst afgreiðsla álykt-
ana og umræður.
Á morgun, sunnudag, hefjast
störf kl. 10 með umræðum og
afgreiðslu ályktana. Því næst
verður kosning miðstjórnar. Kl.
13 verður framhald á umræð-
unum og afgreiðslu ályktana og
stjórnmálaályktunar.
Kl. 16 verður kosning for-
manns og varaformanns en
fundarslit verða að þeim kosn-
ingum loknum. Lokahóf lands-
fundar verður á Hótel íslandi
og hefst það með borðhaldi kl.
19.30.
herra að sjálfstæðismenn bæru
ábyrgð á núverandi fiskveiðistjómun
og hefði flokkurinn tekið þátt í mót-
un þess í ríkisstjórn á sínum tíma.
Núverandi ríkisstjórn hefði strax
skipað nefnd til að fjalla um mótun
sjávarútvegsstefnu sem skilað hefði
skýrslum í vor og þrátt fyrir ýmsan
ágreining og aðfinnslur hefði niður-
staðan í gmndvallaratriðum verið sú
að skynsamlegast væri að byggja á
núverandi kerfi. Þrátt fyrir galla
stjómkerfisins mætti þó ekki kenna
því um þau vandræði sem rekja
mætti til minnkandi þorskstofns.
Aðspurður um leiðir til að auka
áhrif kvenna í stjórnmálum innan
flokks og utan kvaðst Davíð Oddsson
ekki telja að kvótar um ákveðið lág-
markshlutfall kynja á framboðslist-
um eða í embættum væri rétta leiðin
til að auka hlut kvenna. Að miklu
leyti ylti málið á konum sjálfum.
Hann kvaðst vonast til þess að þeir
tímar væm framundan að menn
veltu ekki fyrir sér fjölda kvenna eða
karla á framboðslistum eða í emb-
ættum heldur einungis því hvort um
hæfa einstaklinga væri að ræða.
Undir Friðrik Sophusson fjármála-
ráðherra var borið hvort lögð væri
of mikil áhersla á sparnað í heilbrigð-
iskerfinu sem til væri varið 16,2%
af ríkisútgjöldum. Friðrik Sophusson
sagði að líta þyrfti til heilbrigðis- og
tryggingakerfisins í heild þar sem
þangað væri rástafað nær 40% ríkis-
útgjalda. í raun hefðu útgjöld til
heilbrigðismála hækkað en ekki
lækkað. Ráðherrann sagði m.a. mik-
ilvægt að þeir sem gætu tækju þátt
í kostnaði með beinum greiðslum þar
sem slíkt kerfi bæti tilfinningu jafnt
greiðenda sem veitenda þjónustu
fyrir raunvemlegum kostnaði.
Svanur Guðmundsson í Grundar-
firði sagði að ákveðið hefði verið að
með Þróunarsjóði yrði sjávarútveg-
urinn látinn greiða fyrir pólitísk mis-
tök sem gerð hefðu verið í atvinnu-
málum og spurði hver yrði látinn
greiða fyrir lán Atvinnutrygginga-
sjóðs til Álafoss. Þorsteinn Pálsson
svaraði á þann veg að öllum lán
Atvinnutryggingasjóðs sem ekki
hefðu farið til sjávarútvegsfýrir-
tækja yrði haldið utan við Þróunar-
sjóð sjávarútvegsins.
í svari við fyrirspurn um hvort
ríkisstjórnin hygðist ráðast í frekari
aðgerðir til að vernda byggð á Vest-
fjörðum fyrir áfalli vegna aflasam-
dráttar lögðu forsætis- og sjávarút-
vegsráðherrar báðir áherslu á að
hagur fiskvinnslufyrirtækja sé í raun
betri en aflasamdráttur og verðfall
á afurðum gefí tilefni til að ætla
vegna aðgerða ríkisstjómarinnar á
sviði skatta- og gengismála til að
bæta samkeppnisstöðu greinarinnar.
í máli forsætisráðherra kom fram
að Byggðastofnun hefði verið beðin
um_ úttekt á stöðu Vestfjarða.
Ólafur G. Einarsson sagði í svari
við fyrirspum að á næstunni lyki
nefnd störfum sem falið hefði verið
að gera tillögur um eflingu iðnnáms
og verknáms. Þá sagðist hann telja
það forsendu þess að rekstur grunn-
skóla yrði fluttur til sveitarfélaga
að jafnframt yrðu þeim tryggðir
auknir tekjustofnar. Þá boðaði ráð-
herra að hann mundi innan skamms
leggja fram frumvarp til laga um
leikskóla sem tryggði sveitarfélögum
í verki forræði þess skólastigs.
Aðspurður hvort hann mundi beita
sér fyrir því að lögfest yrðu mann-
sæmandi lágmarkslaun í landinu og
um leið sett þak á hámarkslaun sagði
Davíð Oddsson að sem betur fer
væru fátæktarmörk hér mun hærri
og launajöfnuður meiri en víðast
erlendis. Davíð kvaðst ekki mundu
beita sér fyrir lögbundnum lág-
markslaunum fremur en að ákveða
á alþingi hámarkslaun í landinu.
Hann rakti að t.a.m. í Svíþjóð hefðu
jöfnunaraðgerðir sem beint hefði
verið gegn hálaunafólki leitt til
skattsvika, landflótta og þess að
hátekjustéttir hefðu dregið úr vinnu.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar hefðu
hins vegar stuðlað að því að þeir
fengju mest sem minnst hefðu. Áuk
eingreiðslna í kjarasamningum væri
fyrirhuguð lækkun matarskatts jöfn-
unaraðgerð sem nýttist best lág-
launafjöjskyldum þar sem sú lækkun
þýddi um 60 þúsund króna sparnað
fyrir fjögurra manna fjölskyldu á ári.
Bændur taka til í sínum garði
Landbúnaðarráðherra var spurður
hvort hann hefði trú á að íslenskir
bændur stæðust óhefta og tollfijálsa
samkeppni og sagði Halldór Blöndal
að undanfarin 10-15 ár hefðu bænd-
ur búið við harðnandi skilyrði um
framleiðslustýringu og flatan niður-
skurð þannig að þeir hefðu ekki með
skynsamlegum hætti getað staðið
að þeirri hagkvæmni í búrekstri sem
fjárfesting og landkostir byðu upp
á. Bændum sé hins vegar jafnljóst
og öðrum að eftir undirritun GATT-
Framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks um sameiningu sveitarfélaga
Þyrfti að endurskipuleggja
skipulag flokksins frá grunni
Umræða um fjármál flokka yfirgengilega ómerkileg
KJARTAN Gunnarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins, vék
að tillögum um grundvallarbreytingar á sveitarfélagaskipaninni er
hann flutti skýrslu um starfsemi Sjálfstæðisflokksins á landsfundinum
í gær og sagði að ef breytingamar næðu fram að ganga myndu þær
hafa áhrif á allt skipulag Sjálfstæðisflokksins til frambúðar. í ræðu
sinni fjallaði Kjartan einnig um þá umræðu sem orðið hefur á opinber-
um vettvangi að undanförnu um fjármál sljórnmálaflokka og gagn-
rýndi hana harðlega.
Um tillögur um sameiningu sveit-
arfélaga sagði Kjartan: „Verði veru-
legar breytingar á þessu er ljóst að
Sjálfstæðisflokkurinn þarf að endur-
skoða skipulag sitt frá grunni og
aðlaga það að nýjum veruleika. Þar
með þarf að endurskoða reglur um
val frambjóðenda flokksins, bæði til
Alþingis og sveitarstjórna, skipulag
félaga og félagssvæða, val fulltrúa
í trúnaðarstörf í flokknum og kosn-
ingar til landsfundar flokksins,"
sagði hann.
Óþolandi ásakanir
I ræðu sinni sagði Kjartan einnig
að í umræðunni að undanförnu hefði
verið gengið út frá því að fjármál
stjórnmálaflokka hlytu að vera vafa-
söm og óhrein. „Umræða af þessu
tagi er auðvitað yfirgengilega
ómerkileg og lýsir ótrúlega litlum
skilningi á íslenskum veruleika og
fullkomnu skilningsleysi á starfí og
starfsháttum stjórnmálaflokka,"
sagði Kjartan.
Sagði Kjartan að þótt stjómmála-
flokkar væru ekki framtalsskyldir
væru þeir engu að síður bókhalds-
skyldir, þeir greiddu í lífeyrissjóði,
til verkalýðsfélaga og ýmis opinber
gjöld og reikningar allra stjórnmála-
flokka væru lagðir fram og þeir yfirf-
amir. „Það er hins vegar alveg frá-
leitt að stjórnmálaflokkar ættu að
þurfa að sæta einhveijum sérstökum
eftirlitsreglum umfram alla aðra að-
ila í þjöðfélaginu um fjármál sín.
Með því væri því nánast slegið föstu
að þeim væri ekki treystandi til þess
að fara með fé og þeir hlytu að hafa
eitthvert óhreint mjöl í pokahorninu,
auk þess sem stjórnvöldum væru þá
gefnar sérstakar auknar heimildir til
þess að ógna stjórmmálaflokkunum
og þar með að vega að rótum lýðræð-
islegs stjómkerfis í landinu," sagði
hann.
Kjartan sagði eðlilegt að sú breyt-
ing yrði gerð á tekjuskattslögum að
framlög til stjórnmálastarfsemi verði
frádráttarbær frá tekjum á sama
hátt og margvísleg framlög til Iíkn-
ar- og menningarmála og annarra
málaflokka.
„Það er óþolandi fyrir þá sem
annaðhvort em í forystu fyrir stjórn-
málaflokki eða starfa fyrir slíkan
aðila að sitja undir getsökum og
ásökunum um vafasama og tor-
Morgunblaðið/Þorkell
Framkvæmdastj óri
Sjálfstæðisflokksins
KJARTAN Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokks-
ins, flytur skýrslu sína um flokks-
starfið á landsfundi.
tryggilega fjármálastarfsemi," sagði
Kjartan.
í máli Kjartans á landsfundinum
í gær kom fram að nú væri alls starf-
andi 151 félagí Sjálfstæðisflokknum
og flokksmenn væru 22 þúsund tals-
ins.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Setið fyrir svörum
RÁÐHERRAR Sjálfstæðisflokksins sátu fyrir svörum hjá landsfundar-
fulltrúum í gær. Frá vinstri: Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs- og dóms-
málaráðherra, Ólafur G. Einarsson, menntamálaráðherra, Halldór
Blöndal, landbúnaðar- og samgönguráðherra, Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra, Friðrik Sophusson fjármálaráðherra og Salome Þorkelsdótt-
ir forseti Alþingis sem stýrði fundinum.
Landsfundarfulltrúar
samkomulags verði ekki unnt að
standa á móti innflutningi unninna
mjólkur- og kjötvara sem verði í stór-
um dráttum frjáls eftir 1. janúar
1995. Ráðherra kvaðst ekki hræddur
um að bændur stæðust ekki þá sam-
keppni m.a. vegna þess til að byija
með muni þeir njóta þess að á inn-
flutning verði lögð tollígildi sem fari
smám saman lækkandi. Bændur
sjálfir væru að taka til í sínum garði
og kvaðst ráðherra telja að þeir
gerðu um þessar mundir strangari
kröfur til sjálfra sín en aðrar stéttir
í landinu.
Fjármálaráðherra var spurður af
hveiju hann hefði látið ríkistollstjóra
grípa inn í mál Jóhannesar í Bónus
vegna kalkúnalæranna eftir að utan-
ríkisráðherra hefði leyft innflutning
þeirra og sagði Friðrik Sophusson
að sömu lög ættu að gilda í landinu
öllu og ríkistollstjóri ætti að sjá um
samræmingu tollareglna á landsvísu.
Fjármálaráðherra var spurður um
framtíð RARIK og tók undir að
stefna beri að því að stofna sjálf*
stæðar héraðsveitur en það útilokaði
ekki að fyrsta skrefið sem stigið
yrði í þá átt yrði að stofna hlutafélag
um rekstur RARIK.
Endurgreiðsla kostnaðar vegna
unninna skattamála
í svari við annarri spurningu
kvaðst Friðrik Sophusson mundu
beina því til nefndar sem endurskoði
skattalöggjöf hvort rétt sé að setja
í lög ákvæði um að aðili sem vinni
mál fyrir ríkisskattanefnd gegn
stjórnvöldum fái endurgreiddan
kostnað vegna sérfræðiaðstoðar til
að stuðla að jafnræði skattgreiðenda
og ríkisvalds, sem ekki greiði drátt-
arvexti af ofteknum sköttum en
krefjist þeirra vegna vangoldinna.
Fjármálaráðherra var spurður
hveiju það sætti að ríkisstjórnin
ætlaði að selja fríhöfnina á Keflavík-
urflugvelli sem hefði aflað ríkinu
mikilla tekna. Taldi fyrirspyijandi
það ekki rétt að slátra slíkum „gull-
kálfi“. Ráðherra sagði að ef starf-
semi fríhafnarinnar yrði boðin út
yrði það einungis gert í því skyni
að afla ríkinu meiri tekna en í dag.
Einn fyrirspyijandi sagðist telja
að landsfundurinn einkenndist af
áhugaleysi og deyfð og að flokkurinn
væri helst farinn að líkjast embættis-
mannanefnd.
Eldmóður í verki
Davíð Oddsson forsætisráðherra
svaraði þessu og sagðist telja að
Sjálfstæðisflokkurinn væri ekki emb-
ættislegur flokkur. Eidmóðurinn
kæmi kannski ekki fram í hrópum,
köllum og klappi líkt og á flokksþing-
um gömlu kommúnistaflokkanna
heldur í verki. Menn þyrftu ekki að
hylma yfir innihaldsleysið með lát-
um. Sjálfstæðismenn hefðu reynt að
leysa þann vanda sem við væri að
etja með því að hækka ekki skatta
heldur taka á sig óvinsældir með
niðurskurði.
Efasemdir um sjálfstæðan
seðlabanka
í svari við annarri fyrirspurn sagð-
ist Davíð hafa efasemdir um að
tískukenningar um algjört sjálfstæði
seðlabanka ættu við. Þýski seðla-
bankinn byggi vissulega við mikið
sjálfstæði en til dæmis sá breski
yrði að lúta töluverðri pólitískri stýr-
ingu. „Eg held að svona kenningar
eigi ekki endilega við í okkar litla
samfélagi," sagði Davíð.
Þá var forsætisráðherra spurður
að því hvað hann hygðist gera til
að koma böndum á hinn umfangs-
mikla eftirlitsiðnað ríkisins, sem
væri nánast farinn að þróast í sjálf-
stæða atvinnugrein. Svaraði hann
því til að nefnd væri nú að fara ofan
í saumana á þessum „eftirlitsiðnaði"
í þeim tilgangi að skera hann niður.
Fjármálaráðherra var spurður
hvort hann hefði heimildir fyrir því
að breski kaupmannaiðnaðurinn
hefði greitt með innkaupaferðum
íslendinga þangað. Friðrik Sophus-
son sagðist ekki hafa heyrt neitt slíkt
en sagði það vera mjög alvarlegt
hversu margir færu til útlanda að
kaupa föt og þá ekki síst barnafatn-
að. Hann sagði hins vegar að innan
breska íhaldsflokksins væri nú til
umræðu að setja virðisaukaskatt á
fleiri vöruflokka, þ.á m. barnaföt,
matvæli og bækur. Kæmi fram í fjár-
lagafrumvarpi breska fjármálaráð-
herrans, sem innan skamms yrði lagt
fram, hvort af þessu yrði.
Fjármálaráðherra var einnig
spurður að því hversu mikið hann
teldi að mætti hækka skatta og hvort
hann teldi raunhæft að ná fram
markmiðinu með hallalaus fjárlög
án þess að ráðast á niðurgreiðslur
til landbúnaðar.
Friðrik sagðist telja að ekki mætti
ganga lengra í skattheimtu en þegar
hefði verið gert og í þeirri stefnuyfir-
lýsingu fælist gífurlegur munur á
stefnu fyrrverandi stjórnar og núver-
andi. Þá sagði hann að ef þjóðin
hefði ekki orðið fyrir þeim utanað-
komandi áföllum sem dunið hefðu
yfir hefði verið hægt að ná fram
hallalausum fjárlögum.
Framtíð Rásar 2
Óiafur G. Einarsson menntamála-
ráðherra var spurður hvernig miðaði
að því markmiði að selja Rás 2 líkt
og landsfundur hefði ályktað um.
Ráðherra sagði að ekki hefði verið
ályktað um að selja rásina heldur
fela rekstur hennar öðrum aðila en
ríkinu. Hann sagðist ekki geta sagt
hvort eða hvenær það atriði kæmi
til framkvæmda en þetta væri eitt
þeirra atriða sem útvarpslaganefnd
hefði til skoðunar. Nú væri lögbund-
ið að ríkinu bæri að reka tvær rásir
en hann teldi ekki ástæðu til að
hafa slíkt í lögum.
Fjármálaráðherra var spurður að
því hvort hann óttaðist að Islending-
ar myndu glata ijárhagslegu sjálf-
stæði sínu vegna erlendrar skulda-
söfnunar. Hann sagðist að sjálfsögðu
óttast of miklar erlendar skuldir en
ríkisstjórninni hefði tekist að koma
í veg fyrir of mikla skuldasöfnun
þjóðarbúsins. Sem betur fer hefðu
vextir líka farið lækkandi á alþjóða-
markaði og kannski gæti það leitt
til þess að erlend lántaka myndi
lækka vexti hér á landi. Þeir aðilar
sem lánuðu íslendingum sæju líka
að íslendingar væru að taka til heima
hjá sér og væru ánægðir með það.
íslendingar stæðu nú tiltölulega vel
á þessum vettvangi miðað við hinar
Norðurlandaþjóðirnar.
Davíð Oddsson sagði lánshæfni
íslendinga hafa batnað og bar stöð-
una hér á landi saman við stöðuna
í Svíþjóð í nokkrum málum. Til dæm-
is væri hallarekstur ríkissjóðs hér á
landi 4,5% en 13% í Svíþjóð, vaxta-
greiðslur ríkisins væru 13% af út-
gjöldum en 27% í Svíþjóð. „Við erum
á réttri leið,“ sagði Davíð.
Hvalir og Byggðastofnun
Þorsteinn Pálsson sjávarútvegs-
ráðherra var spurður hvort hann
styddi það að hefja hvalveiðar á ný
og hvort hann hefði í hyggju að
endurnýja lúðuveiðiheimildir Færey-
inga.
Þorsteinn sagðist hafa skipað
nefnd allra flokka vegna hvalveiða
og sagðist búast við niðurstöðum
hennar í byijun næsta árs. Þá væri
hægt að taka næsta skref í málinu.
Það væri mjög mikilvægt að viðhalda
þjóðarsamstöðu um þetta mál, stíga
varfærin skref en jafnframt ákveðin.
Varðandi veiðiheimildir Færeyinga
hefðu íslendingar horft á erfiðleika
þessarar frændþjóðar og talið rétt
að rétta þeim hjálparhönd. Ákvörðun
væri hins vegar tekin frá einu ári
til annars og ekki hægt að segja á
þessu stigi hver yrði niðurstaðan
næst.
Yfirlýsing vegna
kjarasamninga
Friðrik Sophusson fjármálaráð-
herra sagði að sú yfirlýsing
ríkisstjórnarinnar, sem gefin var út
í tengslum við kjarasamninga, að til
stæði að taka upp fjármagns-
tekjuskatt, hefði verið gefin út til
að tryggja að aðilar vinnumark-
aðarins stæðu ekki gegn slíkum
skatti ef til kæmi.
Kom þetta fram í fyrirspurn til
ráðherrans um hvort til stæði að
leggja á fjármagnstekjuskatt. Fjár-
málaráðherra sagði ennfremur að
ekki væri endanlega búið að ákveða
hvaða form yrði á fjármagnstekju-
skattinum og hvenær hann yrði tek-
inn upp. Innan ríkisstjórnarinnar
væri nú verið að kanna hvort betra
væri að breikka eignaskattsstofninn
og taka tillit til fjármagns við eigna-
skattsálagningu.
Friðrik var síðar spurður að því
hvort til greina kæmi að lækka virð-
isaukaskatt á íslenskri tónlist, þann-
ig að hann yrði 14% líkt og á íslensk-
um bókmenntum. Sagði ráðherra að
hann teldi rétt að samræma virðis-
aukaskatt á íslenskum bókmenntum
og tónlist, þegar fram í sækti, þann-
ig að öll íslensk menning myndi bera
sama skatt.
Þá sagði hann að hugsanlega
gæti komið til greina að lækka efra
virðisaukaskattsþrepið almennt í
framtíðinni. Danir yrðu nú að lækka
sinn virðisaukaskatt vegna aðildar-
innar að EB og vel gæti farið svo
að þegar íslendingar yrðu orðnir
aðilar að einum markaði í gegnum
Evrópska efnahagssvæðið gæti
reynst nauðsynlegt að athuga lækk-
Un á virðisaukaskatti hér á landi.
Rækjueinokun aflétt
Þorsteinn Pálsson, sjávarútvegs-
ráðherra, sagði í svari við fyrirspurn
að hann mundi á næstu dögum
ákveða að aflétta einokunarrétti
rækjuverksmiðja í hveiju héraði á
innfjarðarrækju.
Sjávarútvegsráðherra kvaðst telja
eðlilegt að veita hóflegan aðlögun-
artíma.
Aðspurður á landsfundinum hven-
ær ráðist yrði í að breikka og setja
lýsingu á Reykjanesbraut frá Kefla-
vík að Hafnarfirði, sagði Halldór
Blöndal samgönguráðherra að sú
framkvæmd væri ekki á vegaáætlun
og kvaðst hann telja að önnur
verkefni væru biýnni vegna umferð-
arþunga og slysahættu í samgöngu-
málum á höfuðborgarsvæðinu. Þar
kvaðst ráðherra telja efst á blaði
breikkun nýju Reykjanesbrautarinn-
ar milli Hafnaríjarðar og Kópavogs
sem væri hætt að anna umferð sem
um hana færi.
Þungaskattur í olíuverðið
í svari við fyrirspurn frá Steini#--
Hermannssyni landfundarfulltrúa
sagði Friðrik Sophusson fjármála-
ráðhera að ákveðið hefði verið að
hætta að innheimta þungaskatt eftir
mæli en færa skattinn þess í stað út
í olíuverðið.
Ráðherra sagði að teknar hefðu
verið upp viðræður við olíufélögin
um málið og framkvæmd þess og
stefnt væri að því að þessi breyting
gæti tekið gildi sem fyrst. Enn væri
þó ekki tímabært að spá fyrir um
hvenær nýtt fyrirkomulag taki gildi.
Forsætisráðherra var að Iokum
spurður hvort hann teldi rétt að
leggja niður Byggðastofnun. Hann
sagðist ekki telja það tímabært.
Dregið hefði verið úr starfsemi
stofnunarinnar í Reykjavík en hún
að sama skapi aukin úti á landi. Þá
hefði Byggðastofnun samið byggða-
áætlun sem um margt væri merk.
Það væri því margt að færast í rétta
átt varðandi rekstur stofnunarinnar
ekki síst vegna reglugerðar sem
gerði starf hennar skilvirkara.
------» ♦ «-----
Drög að stjórn-
málaályktun
Þingmönniim
fækkað í 50
„LANDSFUNDURINN telur að
tímabært sé að jafna atkvæðis-
rétt kjósenda í landinu. Fleiri en
ein leið kemur til greina í því
efni. Eðlilegast er að ríkisstjórn-
in hafi forystu um að reyna að
ná samkomulagi um breytingar
sem lúta í þessa átt og gera jafn-
framt ráð fyrir fækkun þing-
manna í allt að 50. Raunhæft
verður að telja að ná megi slíku
samkomulagi fyrir lok kjörtíma-
bilsins og taka fyrri áfanga að
stjórnarskrárbreytingu vegna
þessa fyrir næstu alþingiskosn-
ingar,“ segir í drögum að stjórn-
málaályktun landsfundar Sjálf-
stæðisflokksins en umræður um
hana hófust á landsfundinum í
gær.
í ályktunardrögunum segir m.a.
að á næstunni sé brýnt að koma
böndum á halla ríkissjóðs með því
að draga úr útgjaldaþörf hans og
lækka kostnað við opinbera þjón-
ustu en í því efni hafi margt áunn-
ist undanfarin tvö ár.
Sigurður Einarsson, frá Vest-
mannaeyjum, lagði fram tillögu við
umræðurnar í gær um að landið
verði allt gert að einu kjördæmi og
að þingmönnum verði fækkað í 45.>