Morgunblaðið - 23.10.1993, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 23.10.1993, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993 Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Deilt um fulltrúa Hafnarfjarðar í stjóm 30 Á AÐALFUNDI Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um síðustu helgi voru menn ekki á eitt sáttir er kom að stjórnarkjöri. Fram kom tiilaga um Þorgils Ottar Mathiesen, Sjálfstæðisflokki, í sljórn samtakanna sem fulltrúa minnihlutans i Hafnarfirði. Það vildu fulltrúar Alþýðuflokksins í bæjarstjórninni ekki sætta sig við, þar sem líklegt er talið að Þorgils Óttar verði kosinn næsti formaður samtakanna. Sveinn Andri Sveinsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðis- flokksins, hefur gegnt formennsku síðastliðin þijú ár en hann hyggst ekki gefa kost á sér á ný er nýkjörin stjórn kemur saman í lok nóvember, skipta með sér verkum og kýs sér formann. Samkvæmt reglum samtakanna er einn fulltrúi frá hveiju sveitarfé- lagi í stjórn samtakanna en stærstu sveitarfélögin, Reykjavík, Kópavog- ur og Hafnarfjörður eiga tvo fulltrúa hvert'. Meginreglan hefur hefur verið sú að meirihluti og minnihluti sveit- arfélaganna þriggja hafí hvort um sig fulltrúa í stjórninni. Á fundinu lagði uppstillingarnefd til að Þorgils Óttar kæmi inn í stað Magnúsar Jóns Ámasonar, fulltrúa Alþýðubandalagsins, sem hefur setið í stjórninni til þessa. Til að halda Gítarvinafélag- ið í Kringlunni EINS og viðskiptavinir í Kringlunni hafa orðið varir við síðustu laug- ardaga hefur Kringian boðið upp á tilbreytingu á laugardögum en þá hafa komið í Kringluna gítarleikarar í fremstu röð klassískrar gitartónlistar. Á laugardag verður framhald á þessari tónveislu og mun gítarleikarinn Einar Kristján Einarsson flytja verk frá Spáni og Suður-Ameríku. Tónleikarnir eru i tveimur hlutum og hefst fyrri hlut- inn kl. 13 og sá síðari kl. 14 og verða þeir í göngugötu Kringlunnar. Flest þeirra verka sem flutt verða í Kringlunni hafa verið flutt af git- arsnillingnum Andrési Segovia. Tón- listarveislan í Kringlunni er tileinkuð minningu snillingsins en í ár em einmitt 100 ár frá fæðingu hans. Gítarverkin sem flutt verða í dag eru eftir tónskáldin Joaquin Turina, Francisco Tárrega, Isaac Albéniz, Agustin Barrios og Heitor Villa Lo- bos. ' : Tónleikarnir eru í tveimur hlutum og hefst fyrri hluti kl. 13 en síðari hluti kl. 14. Á hverjum laugardegi október- og nóvembermánaðar munu aðrir gítarleikarar úr gítar- vinafélaginu fylgja á eftir og leika á þessum tímum í Kringlunni. Gítarleikari dagsins, Einar Krist- ján Einarsson, útskrifaðist frá Tón- skóla Sigursveins D. Kristinssonar árið 1982. Þá stundaði hann fram- haldsnám og hefur sótt námskeið hjá ýmsum þekktum gítarmeisturum s.s. Manuel Barrueco og Alirio Díaz. Gamlar kvikmyndir sýndar í bíósal MÍR ÞRJÁ næstu sunnudaga verða sýndar jafnmargar gamlar kvik- myndir úr safni MÍR í bíósalnum Vatnsstíg 10. Hvíti hundurinn nefnist myndin sem sýnd verður sunnudaginn 24. október kl. 16. Hún er nær hálfrar aldar gömul, byggð á sögu eftir Kúprin og þótti notaleg fjölskyldu- mynd á sínum tíma. Kvikmynd af svipuð tagi og álíka gömul verður svo sýnd 31. okt. Sannir vinir, nefn- ist hún en hin fræga mynd Eisen- steins, Október, gerð 1927, verður sýnd 7. nóv. Aðgangur að kvikmyndasýning- um MIR er ókeypis og öllum heimill. HÓTEL LEIFUR EIRÍKSSON Skólavörðustíg 45 Reykjavík sími 620800 Fax 620804 Hagkvæm gisting íhjarta borgarinnar Einst.herb. kr. 2.800 Tveggja m. herb. kr. 3.950 Þriggja m. herb. kr. 4.950 Morgunverður innifalinn: Ný láns- kjaravísitala reiknuð út SEÐLABANKINN hefur reiknað út lánskjaravísitölu fyrir nóvem- ber 1993. Lánslgaravísitalan 3347 gildir fyrir nóvember 1993. Hækkun lánskjaravísitölu frá mánuðinum á undan varð 8,24%o. Umreiknuð til árshækkunar hefur breytingin verið sem hér segir: Síð- asta mánuð 2,9%, síðustu 3 mánuði 4,9%, siðustu 6 mánuði 4,3% og síðustu 12 mánuði 3,4%. HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA UNDiRVAGNSRYÐVÖRN VESTURVOR 6 KOPAVOGI sama vægi milli flokkanna varð að samkomulagi að Guðrún Þorbergs- dóttir bæjarfulltrúi Alþýðubanda- lagsins í Seltjarnamesi yrði í kjöri. Sljórnin Leikar fóru svo að í stjórn voru kjörin fyrir Reykjavík, Sveinn Andri Sveinsson, Sjálfstæðisflokki, og Guðrún Ögmundsdóttir, Kvenna- lista, fyrir Kópavog eru Arnór L. Pálsson, Sjálfstæðisflokki, og Sig- urður Geirdal, Framsóknarflokki, og fyrir Hafnarfjörð eru Árni Hörleifs- son, Alþýðuflokki, og Þorgils Óttar Mathiesen, Sjálfstæðisflokki. Fyrir Garðarbæ var kjörin Laufey Jó- hannsdóttir, Sjálfstæðisflokki, fyrir Bessastaðahrepp María Sveinsdóttir, Sjálfstæðisflokki, fyrir Mosfellsbæ Guðmundur Davíðsson Sjálfstæðis- flokki, fyrir Seltjarnarnqs Guðrún Þorbergsdóttir Alþýðubandalagi, fyrir Kjalarnes Pétur Friðriksson Sjálfstæðisflokki og fyrir Kjósa- hrepp Kristján Finnsson, Grjóteyri. Sveinn Andri Sveinsson, formaður samtakanna, sagði að í raun réði meirihluti fulltrúa á aðalfundi hver yrði formaður. Það hefði og gerst áður fulltrúi minnihluta í svéitarfé- lagi væri kjörinn formaður samtak- anna. Til dæmis hefði Richard Björg- vinsson, Sjálfstæðisflokki, gegnt formennsku þegar flokkurinn var í minnihluta í bæjarstjórn Kópavogs. ára afmæli Grensássafnaðar GRENSÁSSÖFNUÐUR var stofnaður á haustdögum 1963 og er því 30 ára um þessar mundir. Fyrsti sóknarpresturinn var sr. Felix Ólafs- son, síðar sr. Jónas Gíslason núverandi víglsubiskup í Skálholti, en frá því i september 1973 hefur sr. Halldór S. Gröndal þjónað söfnuð- inum og gerir enn. Sr. Gylfi Jónsson kom til starfa haustið 1988, enda hafði fjölgað mikið í sókninni og starfið vaxið. Formaður sókn- arnefndar er Ásgeir Hallsson og safnaðarfulltrúi Kristín Halldórs- dóttir. Meðhjálpari og húsvörður er Sverrir Sigurðsson. 14. Kirkjustarf aldraðra felst í því, að á þriðjudögum er opið hús kl. 14 Í tilefni af þessum tímamótum verður hátíðarmessa nk. sunnudag 24. október. Þá verður líka tekinn í notkun góður flygill, sem kirkjan hefur eignast og mun Halldór Har- aldsson leika á hann fyrstur manna. Kirkjukórinn syngur ásamt Sigurði Bjömssyni einsöngvara, svo og bámakórinn undir stjórn Margrétar Pálmadóttur, en organisti er Árni Arinbjamarson. Grensássöfnuður stendur nú í byggingarframkvæmdum. Verið er ' að reisa sj'álft kirkjuskipið og tengi- byggingu við safnaðarheimilið, sem tekið var í notkun 1972.' Fram- kvæmdum miðar vel áfram og ætti byggingin að verða fokheld síðar í vetur. Vetrarstarfið er ailt komið í gang. Tvær messur verða hvem sunnudag. Fjölskyldumessa kl. 11 auk barna- starfsins og hefðbundin messa kl. Fræðsla um sorg og sorgarviðbrögð KÁRSNESSÓKN mun á næstu vikum bjóða upp á fræðslu og hópstarf fyrir þá sem orðið hafa fyrir missi. Þriðjudaginn 26. október kl. 20.30 mun Erla Jónsdóttir félags- ráðgjafí M.Sc. halda fyrirlestur um sorg og sorgarviðbrögð. Fyrirlest- urinn verður í safnaðarheimilinu Borgum og að honum loknum verð- ur boðið upp á kaffiveitingar og þá gefst einnig tími til umræðna. Allir em hjartanlega velkomnir. Þá hefur verið ákveðið að hafa opið hús og bjóða upp á hópstarf um sorgarvinnu. Það starf hefst þriðjudaginn 2. nóvember og mun verða öll þriðjudagskvöld fram til 7. desember í Safnaðarheimilinu Borgum kl. 20.30. Erla Jónsdóttir hefur umsjón með hópstarfinu. - Ægir Fr. Sigurgeirsson, sóknarprestur. 16. Boðið er uppá m.a. biblíulestra og bænastund, síðan eru veitingar og samtöl. Einn miðvikudag í mán- uði (næst 27. október) er hádegis- verðarfundur kl. 11 þar verður hegi- stund, fyrirlestur og léttur hádegis- verður. Kyrrðarstundir verða alla þriðjudaga kl. 12 - 13 með helgi- stund, altarisgöngu og létt máltíð og samfélag á eftir. Barna- og æskulýðsstarf. Alla föstudaga kl. 17.30 eru fundir fyrir börn 10-12 ára. Æfingar barna- kórsins eru á þriðjudögum kl. 17 og laugardögum kl. 10 - 12. Barnakór- inn tekur þátt í messuhaldi og bama- starfínu og vinnur auk þess að öðrum verkefnum. Fermingarstarfið hófst í september og er bömunum skipt í sex bekki. Fræðslan fer fram í safn- aðarheimilinu, en auk þess fóru böm- in á fermingarnámskeið í Vatnaskógi í byijun október. Tvö fræðslukvöld verða fyrir foreldra fermingarbarna í vetur. Kirkjukórinn hefur fastar æfingar alla miðvikudaga kl. 18 og auka- æfingar fyrir hátíðar. Kvenfélagið hefur fundi annað mánudagskvöld í hverjum mánuði auk annarra starfa og verður basar félagsins 6. nóvem- ber nk. Nokkur félög hafa starfsemi sína hér í safnaðarheimilinu m.a. AA-samtökin og A1 Anon, svo og Ný dögun og um þessar mundir em þar börn úr heilsdagsskóla Hvassa- leitis. Við óskum Grensássöfnuði og vel- unnurum kirkjunnar til hamingju með 30 ára afmælið. Guð blessi ykk- ur öll. - Sr. Halldór S. Gröndal og sr. Gylfi Jónsson KONUR fjölmenntu á kynningu á heilsudögunum 14. október sl. Morgunblaðið/Árni Sæberg Holliday Inn í Reykjavík Höfðað til kvenna á sér- stökum heilsudögum EFNT verður til svokallaðra orku- og heilsudaga fyrir konur á Holliday Inn í Reykjavík tvær helgar í haust. Fyrri helgin er 28.-31. október og sú síðari 4.-7. nóvember og verður tekið á móti 20-25 konum í hvort sinn. Boðið er upp á eins konar pakka og felur hann í sér þriggja nátta gistingu og fæði í þrjá daga, fyrir- lestra og ýmsar uppákomur. Samfelld dagskrá verður alla dag- ana og hafst hún með því að boðið verður upp á nýpressaðan ávaxtasafa milli kl. 7 og 8 á morgnana. Að því loknu verða teknar nokkrar leikfimis- æfingar fram að morgunverði kl. 8.30 en eftir hann verða fyrirlestrar til kl. 11. Tekur þá við jóga fram að hádegisverði. Eftir hádegisverð em fyrirlestrar og síðdegishressing til kl. 16.30 þeg- ar úti og inni æfíngar taka við. Á eftir er frjáls tími og sama er að segja um kvöldið. Meðal fyrirlesara eru Anna Valdi- marsdóttir, sálfræðingur, Þorvaldur Karl Helgason, forstöðumaður fjöl- skylduþjónustu kirkjunnar, og Ingi- björg Guðmundsdóttir, jógakennari. Meginþema orku- og heilsudag- anna er að vekja konur til umhugs- unar um að með heilbrigðum lífsstíl geti þær haft áhrif á heilsuna í nút- íð og framtíð.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.