Morgunblaðið - 23.10.1993, Síða 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993
35
Veislustjórinn Magn-
ús E. Sigurðsson í
miðjunni, t.v. er Sig-
urður L. Hall og t.h.
Bolli Kristinsson.
Veiðimenn upp-
skáru á Argentínu
Veitingamenn Argentínu steik-
húss efndu í vikunni til þess
háttar uppskeruhátíðar veiðimanna
að mál manna er að um árlegt fram-
hald gæti orðið að ræða. Einungis
karlmönnum var hleypt í húsið.
sagði Óskar Finsson það bæði hafa
stafað af því að afar fáar konur
væru í fremstu röð meðal veiði-
manna og einmitt vegna þess yrði
einhvers staðar að draga línuna þar
sem húsrými í veitingahúsinu væri
af skornum skammti.
Veiðisögur sagðar
Kvöldið hófst með því að spari-
klæddir veiðimennirnir gengu í for-
stofu og nýja koníaksstofu og síðan
var blásið til borðhalds. Undir borð-
um stjórnaði veislustjórinn Magnús
E. Sigurðsson markaðsstjóri Stöðv-
ar 2 gangi mála. Auk þess að reita
af sér brandara kynnti hann til
sögumennsku Eyþór kokk Sig-
mundsson, Orra Vigfússon og hinn
óviðjafnanlega Ingva Hrafn Jóns-
son, en lýsingar hans af fiskgengd
í Langá hafa löngum verið þjóð-
sagnakenndar. Aldrei lítur Ingvi
sjóinn neðan Sjávarfoss öðru vísi
en að hann „sjóði“. Og aldrei lítur
hann stigann í Skuggafossi öðru
vísi en að hann „kraumi“. Auk
framangreidra kom Grétar Har-
aldsson óvænt í pontuna.
Matseðill veiðimannsins
Matseðillinn var óvenjulegur:
Fyrst var það „Þingvallaflétta“ með
heitri vermútsósu. Þá villibráðar-
seyði með skógarsveppum og púrt-
víni, síðan grafin heiðargæsabringa
Tveir góðir saman, Bjarni I.
Árnason og Orri Vigfússon.
með einibeija- og ginsósu, þar næst
hundasúrukrap með brennivíns-
skvettu og loks aðalrétturinn:
Hreindýrasteik, lambalund og
lundabringur með tærri lyngsósu. A
eftir þessu, kóníaksís með sykur-
hjúpuðum fi'allagrösum og beijum.
I lokin má geta þess, að með
eftirréttinum var borin fram flugan
„Bulls Eye“, sérhönnun Geirs Birg-
is Guðmundssonar, barþjóns á Arg-
entínu og veiðimanns, í tilefni af
uppskeruhátíðinni. Geir Birgir kann
að hnýta þær, eftir hann liggur ein
aflasælasta fluga sem hnýtt hefur
verið hérlendis, sjálfur „Þingeying-
urinn“.
HÁTÍÐ
Morgunblaðið/Þorkell
f; Á leika fyrir dansi til kl. 03,
• • J iimwm'1bX Tllwaliöfyrirt.d.
'Sm'Wm.' .JBr' Jv \ vinnustaðahópa,
; mJrJRJB : félagasamtökog t Qt a
^ saumaklúbba. ifiLr/1 olj QyÆ
og borðapantanir miili kl. 13 og 17 alla daga í síma 681
PALL OSKAR 06
MILJÓNAMÆRINGARNIR
A HOTEL ISLANDI
I KVOLD
ROKKSTJORNIIRNAR
ÞÓR NIELSEN - HARALD G. HARALDS - STEFÁN JÖNSSON - MJÖLL HÓLM - GARÐAR
GUÐMUNDS - SIGGIJOHNNY - ANNNA VILHJÁLMS - BERTI MÖLLER - ASTRID
JENSDÓTTIR - EINÁR JÚLÍUSS. - ÞORSTEINN EGGERTS - SIGURDÓR SIGURDÓRS.
KYNNIR ER ÞORGEIR ÁSTVALDSSON.
MatdeMU
Sjavarréttatríó í .nnnepooó.m með
eijgjaró.i og agárkiúalati.
Hunangoreyktar oœtkera-
% gríoahryggur metf kryddrjómaoóou,
3 ofnbökuðum kartöflum, rauÖvín.iperu
og gljáefu grænmeti.
Mokkaío nted ferokjum og oherry.uíou.
GAMLA ROKKLANDSLIÐIÐ ÁSAMT
STÓRHLJÓMSVEIT GUNNARS
ÞÓRÐARSONAR SEM SKIPA:
Gunnar Þórðarson - Rúnar Júlíusson
-Engilbert Jensen - Jón Kjell-
Rúnar Georgsson - Einar Scheving-
Ásgeir Steingrímson - Helga Möller
m/sýníngu og mat
m/sýningu
eftirsýningu
Næslu sýningar: 23. okl. -13. nóv. - 20. nóv. - 27.
J I
j687111.
Vertu með
-draumurinn gæti orðið að veruleika !
CRAFlSK HÖNNUN: MERKISMENN HF