Morgunblaðið - 23.10.1993, Qupperneq 42
42
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR LAUGARDAGUR 23. OKTÓBER 1993
FOLX
■ TONY DaJey, útherjinn knáti
hjá Aston Villa, fer líklega til
ítalska nfélagsins Udinese á tvær
milljónir punda. Hann fer þó ekki
til Ítalíu eftir seinni UEFA-leik
Aston Villa og Deportivo La Cor-
una 3. nóvember.
■ STEVE Staunton, bakvörður
Aston Villa, sem hefur verið frá
vegna meiðsla tvo sl. leiki, kemur
aftur á bekkinn í leik liðsins gegn
Chelsea. Earl Barrett leikur sinn
fyrsta leik í fimm vikur.
■ MIÐHERJAR Norwich, sem
hefur ekki tapað sex leikjum í röð,
Efan Ekoku og Mark Robins, eru
meiddir og leika ekki með liðinu í
dag gegn West Ham.
■ ROY Wegerle, miðheiji
Coventry, getur ekki leikið gegn
sínum gömlu félögum hjá QPR, þar
sem hann er meiddur á ökkla. Hann
verður þó á varamannabekknum.
■ TOTTENHAM leikur án
markaskorarans mikla Teddy
Sheringham og táningsins Darren
Caskey gegn Swindon. Shering-
ham er meiddur á hné.
■ DAVID Howeli mun leika í
fremstu víglínu hjá Tottenham,
með þeim Nick Barmby og Darren
Anderton. Þá mun Colin Cald-
erwood koma aftur í vörnina, eftir
leikbann.
■ TVEIR norskir landsliðsmenn
eru nú byijaðir að æfa með Totten-
ham. Það eru þeir Ronny Johnsen
frá Lyn og Divind Leonhardson
frá Rosenborg, sem eru báðir 24
'ára. Þeir eru hvor um sig metnir á
500 þús. pund.
UM HELGINA
Körfuknattleikur
Úrvalsdeildin
Laugardagur:
Seltjamanes: KR - Haukar ...........16
Sunnudagur:
Akranes: ÍA - Skallagrímur.......20.30
Borgames: Skallagrímur - KR.........16
Hlíðarendi: Valur-ÍBK...............20
Sauðárkrókur: UMFT - UMFG...........20
Frjálsíþróttir
Stjömuhlaup FH verður haldið í dag, iaug-
ardag, og hefst kl. 14 í Kaplakrika. Skrán-
ing hefst kl. 12.30. 10 ára og yngri hlaupa
600 m, 11-12 ára 1.000 m, 13-14 ára 1.500
m, 15-18 ára 3.000 m, karlar 19-39 ára,
40-49 ára og 50 ára og eldri hlaupa 5 km
en konur f sömu aldursflokkum hlaupa 3
km. Þátttökugjald er kr. 500 fyrir fullorí)na
og 250 kr. fyrir 18 ára og yngri. Fimm
fyrstu í hveijum flokki fá verðlaunapening.
Sund
Sundfélagið Ægir heldur árlega Ægir-
Triumph mót sitt í Sundhöll Reykavíkur í
dag og á morgun. Mótið hefst kl. 14. báða
dagana og_ keppt verður í karla- og kvenna-
greinum. íþróttir fatlaðra
Reykjavíkurmeistaramót fatlaðra í boccia
og lyftingum verður haldið í Í.F.R. húsinu
við Hátún um helgina. Keppni i boccia hefst
báða dagana kl. 10 en í lyftingum hefst
keppni kl. 13.
Skvass
Hi-Tec skvassmótið verður haldið í Vegg-
sporti um helgina. Mótið hefst í dag, laugar-
dag, kl. 12. Keppt verður í meistaraflokki
karla og kvenna, A-fiokki karla og kvenna
og byijendaflokki.
Badminton
Vetrardagsmót unglinga verður haldið í
TBR-húsinu í dag og á morgun. Keppni
hefst kl. 13 í dag og heldur áfram kl. 10
á morgun. Keppt verður í öllum greinum í
fjórum elstu flokkum unglinga.
Golf
Púttmót verður á sunnudag í Goifheimum.
Mótið hefst kl. 11 og stendur til kl. 20.
Fijáls mæting.
Skautar
Fyrirhugað var að opna skautasvellið í
Laugardal í dag, en að því getur ekki orðið
vegna rigninga og bleytu.
KNATTSPYRNA
Hæfileikamótunin, átak KSÍ í þjálfun efnilegustu leikmanna landsins, íframkvæmd
Ertt mikilvægasta
skrefið í hreyfingunni
- segir Eggert Magnússon, formaður Knattspyrnusambands fslands
HÆFILEIKANEFND KSI valdi í
vikunni 22 leikmenn á aldrinum
15 til 19 ára, leikmenn framtíð-
arinnar, og koma þeir saman í
dag. Þetta er fyrsta skrefið í
hæfileikamótun sambandsins,
sem var kynnt á sfðasta árs-
þingi, en um er að ræða átak
þess f þjálfun efnilegustu leik-
manna landsins með þvf mark-
miði að a-landsliðið komist f
þriðja styrkleikaflokk fyrir riðla-
keppni heimsmeistarakeppn-
innar 1998 og bestu félagslið
landsins nái í þriðju umferð í
Evrópumótum fyrir 1997. Stórt
skref er stigið með þessu fram-
taki, „eitt það mikilvægasta f
knattspyrnuhreyfingunni,"
sagði Eggert Magnússon, for-
maður Knattspyrnusambands
íslands, sem kom hugmyndinni
á framfæri í stjórn KSI fyrir tæp-
lega ári og fylgdi henni úr hlaði.
Eggert sagði við Morgunblaðið að
með þessu væri gamall draumur
færður í nýjan búning. Knattspymu-
■■■■ forystan hefði um
Eltir árabil lagt áherslu á
Steinþór uppbyggingu og
Guðbjartsson markvisst hefði verið
unnið að framförum og þróun, jafnt
innan félaganna sem Knattspymu-
sambandsins, en með átakinu væri
mótuð ákveðin afreksmannastefna,
þar sem árangur byggðist á sam-
starfi og samvinnu ungra leikmanna,
foreldra og forráðamanna þeirra,
knattspymufélaga og sambandsins.
Margar spumingar hefðu vaknað á
stjómarfundi í Neskaupstað fyrir
tveimur og hálfi ári, en skriður hefði
komist á málið eftir að hann hefði
kynnst uppbyggingu Norðmanna í
fyrra og kynnt hana á stjómarfundi
KSI. í kjölfarið hefði starfshópur um
málið verið skipaður og síðan hefði
markvisst verið unnið að mótun áætl-
unarinnar. „Þetta hefur verið löng
fæðing, en í svona mikilvægu máli
er betra að flýta sér hægt,“ sagði
Eggert. „Nauðsynlegt var að leggja
upp með fastmótaða stefnu, en málið
er þess eðlis að það tekur stöðugt
breytingum, vankantar verða sniðnir
af og sífellt hugsað um að laga og
bæta.“
Dyrnar alltaf opnar
Eggert áréttaði mikilvægi þess að
allir, sem hlut ættu að máli, ynnu
saman að settu marki, að efla og
bæta íslenska knattspymu.
„Knattspymusambandið er aðeins
einn hlekkur í keðjunni," sagði for-
maðurinn við Morgunblaðið. „Fyrsti
hópurinn hefur verið valinn, en þetta
er ekki endanlegur hópur, því allir
efnilegir knattspymumenn hvar sem
er á landinu eiga jafna möguleika á
að komast inn — dymar standa öllum
opnar úti um allt land.“
Eggert sagði að hlutverk trúnað-
armanna væri mjög mikilvægt og
velferð knattspymumannanna ungu
skipti öllu máli. „Við gerum ekkert
nema í samvinnu og samstarfí við
leikmennina, foreldra og félögin.
Miklu skiptir að foreldrar og forráða-
KnattspyrnuMálfarar óskast
Ungmennafélagið Einherji, Vopnafirói,
auglýsir eftir spilandi þjálfurum fyrir meist-
araflokk karla og kvenna sumarið 1994.
Upplýsingar gefur Aðalbjörn í símum
97-31 108 og 97-31556.
Morgunblaðið/Sverrir
Leikmenn f ramtíðar hafa verið prófaðir á ýmsan hátt í vikunni. Hér er Atli Knútsson á þrekhjóli hjá rannsóknar-
stofu Háskólans í lífeðlisfræði ogÁsgeir Elíasson, landsliðsþjálfari, fylgist með.
menn séu með í ráðum og við leggjum
áherslu á jafnvægi menntunar og
knattspymunnar. I því sambandi má
nefna að hvað varðar æfíngaferðir til
erlendra liða erum við að athuga með
möguleika á námi, til dæmis tungu-
málanámi, í tengslum við ferðimar."
Hugarfarsbreyting
A-landsliðið náði betri árangri en
áður í stórmóti í nýafstaðinni riðla-
keppni heimsmeistaramótsins, yngri
landsliðin hafa staðið sig vel og bestu
félagsliðin gerðu góða hluti í Evrópu-
mótunum. Eggert sagði þetta árangur
öflugs starfs, en gera þyrfti betur og
að mörgu þyrfti að huga.
„Val á afreksmönnum framtíðar
er fyrsta skrefið, en yfírbyggðir vellir
em algjör forsenda þess að knatt-
spyman taki framförum úti um allt
land. Með slíkri aðstöðu er hægt að
æfa markvisst allt árið og lengja
keppnistímabilið enn frekar. Gervi-
grasvellir eru af hinu góða, en þeir
gagnast ekki í slæmu vetrarveðri.
Við gerum okkur grein fyrir að um-
ræddar framkvæmdir kosta sitt og
ekki er hægt að gera öllum til hæfis
í einu, en ég sé fyrir mér samvinnu
sveitarfélaga í þessu sem öðm —
margt smátt gerir eitt stórt.
í öðm lagi er æskilegt að félagslið-
in taki þátt í fleiri alþjóðlegum mót-
um, því slík þátttaka lengir keppnis-
tímabilið og hefur sitt að segja. í því
sambandi er nærtækt að nefna árang-
ur Skagamanna, sem vom með í
sterku móti í Danmörku í ársbyijun.
Landsliðin taka við af félagslið-
unum og þar höfum við gert ákveðna
kerfisbreytingu með því að gera a-
landsliðsþjálfarann ábyrgan fyrir 16
ára liðinu, yngsta landsliðinu. Með
því fyrirkomulagi tekur hann við efni-
legum leikmönnum á hveijum tíma
og getur þegar í byijun haft mikil
áhrif á hluti, sem skipta miklu máli
í a-landsliðinu. Miklu máli skiptir að
efnilegir knattspyrnumenn fái tæki-
færi á réttum tíma, að þeir fari fljót-
lega inní hið ákjósanlegasta æfínga-
mynstur, sem gagnast seinna meir.
Með öðram orðum, þá emm við
ekki aðeins að hugsa um að bæta og
efla einstaklingana heldur viljum við
með þessu átaki stuðla að hugarfars-
breytingu í hreyfingunni, að allir legg-
ist á eitt um að gera knattspymuna
enn betri.“
^Samið við Feyenoord og Stuttgart
Samfara hæfileikamótuninni
hefur veríð stofnuð sérstök
íslandsbanka - KSÍ akademía,
sem m.a. hefur það að mark-
miði sínu að velja og styrkja
nokkra efnilega leikmenn svo
þeir geti æft um lengri eða'
skemmri tíma hjá þekktu knatt-
spyrnuliði erlendis. KSÍ hefur
þegar samið við þýska liðið
Stuttgart og hollenska félagið
Feyenoord um að taka árlega
við nokkrum leikmönnum og að
sögn Eggerts Magnússonar, for-
manns KSÍ, stendur til að semja
við fleiri félög.
Eftir á að kanna hvort og
hvaða piltar í hópnum eiga
heimangengt í vetur, en stefnt
er að því að fara með einn hóp
til Þýskalands og annan til Hol-
lands og styrkir íslandsbanki
æfíngaferðirnar.
Leikmannahópur framtíðarinnar
Hæfíleikanefnd KSÍ valdi 22 leikmenn á aldrinum 15 til 19 ára í
fyrsta leikmannahóp framtíðarinnar. Leikmenn sem æfa og leika
erlendis eins og Guðmundur Benediktsson hjá Ekeren í Belgíu (fædd-
ur 1974),_Guðni Rúnar Helgason hjá Sunderland í Englandi (1975),
Sigurvin Ólafsson hjá Stuttgart í Þýskalandi (1976), Björgvin Magn-
ússon hjá Werder Bremen í Þýskalandi (1976) og Andri Sigþórsson
hjá Bayern Munchen (1977) em ekki í hópnum, en með þeim er
sérstaklega fylgst. Eftirtaldir eru í fyrsta hópnum:
Nafn (fæðingarár) félag...................leikstaða
Auðun Helgason (1974), FH.....................varnarmaður
Helgi Sigurðsson (1974), Fram,................sóknarmaður
Pálmi Haraldsson (1974), IA,...................miðjúmaður
Rútur Snorrason (1974), ÍBV,...................miðjumaður
Tryggvi Guðmundsson (1974), ÍBV..........miðjum./sóknarm.
ívar Bjarklind (1974), KA.............. miðjum./sóknarm.
Atli Knútsson (1975), KR........................markmaður
Kristinn Hafliðason (1975), Víkingi,.....miðjum./sóknarm.
Bjarki Stefánsson (1975), Val..................vamarmaður
Sigurbjörn Hreiðarsson (1975), Val.......miðjum./sóknarm.
Þórhallur Hinriksson (1976), KA................miðjumaður
Kjartan Antonsson (1976), UBK,.................vamarmaður
BjarnólfurLárusson (1976), ÍBV.................miðjumaður
VálurF. Gíslason (1977), Fram..................miðjumaður
Þorbjöm Sveinsson (1977), Fram................sóknarmaður
Vilhjálmur Vilhjálmsson (1977), KR,............vamarmaður
Grétar Sveinsson (1977), UBK...................miðjumaður
Rúnar Ágúátsson (1977), Fram,.................varnarmaður
Halldör Hilmisson (1977), Val.......... miðjum./sóknarm.
ívar Ingimarsson (1977), KBS,.................varnarmaður
Gunnar Magnússon (1978), Fram...................markmaður
Eiður Smári Guðjohnsen (1978), Val,......miðjum./sóknarm.