Morgunblaðið - 23.10.1993, Síða 44
EINAR J.
SKÚLASON HF
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTIIÓLF 3040 / AKVREYRI: HAFNARSTRÆTI 85
LAUGARDAGUR 23. OKTOBER 1993
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Knattspyrna
KSÍ velur
leikmenn
framtíðar
HÆFILEIKANEFND Knatt-
spyrnusambands Islands tilkynnti
í gærkvöldi val á leikmannahópi
framtíðarinnar, en um er að ræða
fyrsta skrefið i hæfileikamótun
sambandsins, sem er átak þess í
þjálfun efnilegustu leikmanna
landsins.
Eggert Magnússon, formaður
KSÍ, kom hugmyndinni á framfæri
og fylgdi henni úr hlaði. Hann sagði
við Morgunblaðið að um væri að
ræða eitt mikilvægasta skrefíð í
knattspyrnuhreyfíngunni, en til-
^gangurinn væri að efla íþróttina með
þau markmið að a-landslið karla
kæmist í þriðja styrkleikaflokk fyrir
heimsmeistarakeppnina 1998 og
bestu félagslið landsins næðu í þriðju
umferð Evrópumótanna 1997.
Strákamir, sem valdir vom, koma
saman í dag, en líkamsástand þeirra
hefur verið kannað í vikunni hjá
rannsóknarstofu Háskóla Islands í
lífeðlisfræði og forvarna- og endur-
hæfíngastöðinni Mætti.
Vegna áætlunarinnar hefur KSÍ
skipað trúnaðarmenn víðs vegar um
landið sem eiga að bera ábyrgð á
vali, eftirliti og hæfileikamótun efn-
anna hver á sínu svæði.
Samfara hæfíleikamótuninni hef-
ur verið stofnuð sérstök íslands-
banka - KSÍ akademía, sem styrkir
nokkra leikmenn árlega til að æfa
með erlendu knattspyrnuliði.
Sjá bls. 42 og 43: „Eitt mikil-
vægasta...“
Mokveiði í
Smugiuuii
Eskifirði.
HÓLMATINDUR SU er á leið úr
Smugnnni með 190 tonn af væn-
um þorski eftir að hafa verið að
veiðum í rúma tvo sólarhringa.
Hólmatindur fór frá Eskifirði
föstudaginn 15. október og hóf
veiðar á miðvikudag. Á 54 klukku-
stundum fengust 190 tonn af þorski
sem er 5 kíló að meðaltali.
Skipið er nú á leið til Eskifjarðar
og verður landað þar á miðvikudag-
inn og aflinn unninn þar.
- Benedikt
Jöklaferð á fólksbíl
Morgunblaðið/Árni Sæberg
„EIGINLEGA var meginmarkmiðið að sýna fram á hvernig fólk getur,
með því að taka mið af tíðarfari, farið allra sinna ferða á fólksbíl með
keðjum. Sérútbúna bíla þarf ekki til,“ sagði Árni Alfreðsson eftir að
hafa ekið Hyundai Elantrá fólksbíl á sumardekkjum með keðjum upp á
tind Snæfellsjökuls 8. október. Vegna slæms skyggnis var ekki hægt
að mynda bílinn í ferðinni og var því brugðið á það ráð að skilja hann
eftir á jöklinum og reyna aftur hálfum mánuði síðar. Hafði bíllinn þá
farið í kaf en rauk í gang þegar hann hafði verið grafinn upp að hálfu.
Afleiðingar ferðalagsins urðu ekki aðrar en þær að á bílinn komu tvær
rispur. Þess má geta að í fyrra ók Árni á Lödu 1200 yfir Eyjafjallajökul.
Davíð Oddsson forsætisráðherra vill að Seðlabanki beiti tilslökunum
Markmiðið er að raun-
vextir fari niður í 5%
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra telur forsendur vera fyrir hendi
fyrir raunvaxtalækkun og að Seðlabanki íslands geti notað það svig-
rúm sem hann hefur til þess að flýta fyrir raunvaxtalækkun, m.a.
með því að vera með ákveðnar tilslakanir við viðskiptabankana, að
því er varðar refsivaxtastig, lausafjárstöðu og bindiskyldu. „Raunvext-
ir þurfa og eiga að lækka tiltölulega hratt. Að mínu mati fyrst niður
fyrir hin erfiðu 7% og síðan áfram niður í 5%, sem er eðlilegt mark-
mið,“ sagði forsætisráðherra í samtali við Morgunblaðið í gær.
„Ég tel að það sé útséð um
það, að þó að við náum stöðugleik-
anum, vinnufriðnum, lágri verð-
bólgu og hagstæðum viðskipta-
jöfnuði, þá vantar þennan stóra
þátt, raunvaxtalækkun, inn ef
menn eiga að eygja einhverja von
í því að fyrirtækin þori að leggja
Manndráp af ásetningi talið sannað á Þórð Jóhann Eyþórsson
Dæmdur í ævilangt fangelsi
ÞÓRÐUR Jóhann Eyþórsson, 36 ára, var í gær dæmdur í ævilangt
fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa af ásetningi orðið
Ragnari Ólafssyni, 33 ára, að bana á heimili þess síðarnefnda við
Snorrabraut í Reykjavík aðfaranótt 22. ágúst.
í niðurstöðum Sverris Einarsson-
ar héraðsdómara segir að dómurinn
telji sannað að þegar Þórður hafi
tekið upp vasahníf á leið niður kjall-
aratröppur að íbúð Ragnars hafí
myndast hjá honum ásetningur um
* að reka hnífinn í Ragnar. Þetta er
annað ásetningsmanndrápið sem
Þórður er dæmdur fyrir en hann
varð manni að bana með hnífí á
nýársnótt 1983 og var dæmdur fyr-
ir það í 14 ára fangelsi í Hæsta-
rétti. Hann fékk reynslulausn á
helmingi refsitímans og var fjögurra
ára skilorðstíma að verða lokið þeg-
ar hann varð Ragnari að bana.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu braut Þórður sér leið inn
í íbúðina og inn í eldhús þar sem
Ragnar var fyrir ásamt tveimur kon-
um, sambýliskonu sinni og fyrrver-
andi sambýliskonu Þórðar. Þórður
lagði til Ragnars áður en nokkur
þeirra sem í íbúðinni var hafði áttað
sig á því hvað gerst hafði eða séð
hnífinn í hendi Þórðar. Hann kastaði
síðan hnífnum frá sér, hljóp út og
fór heim til fyrrum eiginkonu sinnar
en gaf sig síðan fram á lögreglustöð
eftir að hafa frétt af dauða Ragn-
ars, sem var úrskurðaður látinn um
klukkustund eftir atlöguna.
Ásetningur sannaður
Dómurinn hafnar þeirri skýringu
Þórðar að hann hafi ekki ætlað að
vinna Ragnari mein heldur telur
sannað að Þórður hafi af ásetningi
stungið Ragnar. Þetta fái stoð í
þeirri lýsingu í krufningarskýrslu að
stungan hafí verið upp á við, vitni
hafi séð hönd Þórðar hreyfast þegar
þeir Ragnar rákust saman og á
skyrtu Ragnars hafí verið tennt gat,
líkt og þrisvar eða fjórum sinnum
hafi verið hjakkað í sama farinu.
Vegna bráðaaðgei-ðar sem gerð var
til að reyna að bjarga lífi Ragnars
var ekki unnt að sjá eftir krufningu
hve margar stungurnar voru.
Mat dómkvadds geðlæknis er að
Þórður Jóhann sé sakhæfur. Hann
hafí greind í meðallagi en beri merki
persónuleikatruflana og yfirborðs-
kennds og sjálfmiðaðs tilfínningalífs
sem geri hann viðkvæman fyrir
áreitni og gagnrýni. Skapgerðar-
brestir sem vegi líklega þyngst varð-
andi nánasta aðdraganda verknaðar-
ins hafí líklega aukist undanfarið
vegna áfengis- og fíkniefnaneyslu,
atvinnuleysis, stormasamra tilfinn-
ingasambanda og neikvæðs félags-
legs umhverfis.
Þetta er í annað skipti sem undir-
réttur á íslandi dæmir mann til
ævilangrar fangelsisvistar. Sakborn-
ingur í Guðmundar- og Geirfinns-
máli var dæmdur í héraði í ævilangt
fangelsi en hæstiréttur mildaði þann
dóm í 17 ára fangelsi.
í einhverjar fjárfestingar,“ sagði
Davíð. Hann sagði nú vera svig-
rúm til þess að gefa örlítið lausari
taum, án þess að menn þyrftu að
óttast þensluáhrif. „Þetta tel ég
rétt að fara efnislega vel yfir með
Seðlabankanum," sagði forsætis-
ráðherra.
Festa komin á
„Við erum núna búnir að koma á
festu á nýjan leik og ekkert bendir
til annars en að gengið geti verið
fast hjá okkur um langa hríð og það
er ekkert sem bendir til þenslu. Þess
vegna eru forsendur nú til þess að
ákvarða slíkt til lengri tíma,“ sagði
Davíð.
Davíð sagði að það yrði forgangs-
verkefni að afloknum landsfundi
Sjálfstæðisflokksins að reyna að
stuðla að því að kjarasamningar
héldu. Allt of mikið væri í húfi, ef
þeim yrði sagt upp. „Við skulum sjá
hvort við getum ekki lagt fram hug-
myndir og greinargerðir, sem þeir
geta sætt sig við, innan þeirra tíma-
marka sem VMSÍ tilgreindi í sam-
þykkt sinni,“ sagði Davíð. „Við erum
að mínu mati að fara í gegnum síð-
ustu erfíðu dýfuna. Atvinnuleysi mun
því miður vaxa nokkuð á þessum
vetrarmánuðum, og það væri kynt
afskaplega undir því atvinnuleysis-
báli, ef samningar héldu ekki,“ sagði
Davíð Oddsson forsætisráðherra.
Sjá bls. 17: „Seðlabankinn..."