Morgunblaðið - 11.11.1993, Page 27
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1993
27
Stuðningur við NAFTA
eykst eftir kappræður
Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins.
Fylgst með framgangi mála
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, fylgist með kappræðum A1 Gore
varaforseta og auðkýfingsins Ross Perot.
kappkostar nú að fá Fríverslun-
arsáttmála Norður-Ameríku
(NAFTA) samþykktan á þingi og
á þriðjudagskvöld tefldi hann
fram varaforseta sínum, A1 Gore,
í kappræðu við auðkýfinginn Ross
Perot, sem undanfarið hefur hald-
ið fundi gegn NAFTA í rúmlega
40 rikjum Bandaríkjanna, í því
skyni að laða til sín stuðning óráð-
inna og andvígra þingmanna.
Gore hafði betur í þessu óvenju-
lega hanaati, en óvíst er hvort það
dugi til atkvæðaveiða á þingi,
þótt varaforsetinn kunni að hafa
snúið almenningsálitinu á sveif
með sáttmálanum.
Gore blés til sóknar í upphafi
þáttarins „Larry King Live“ á sjón-
varpsfréttarásinni CNN og átti síð-
asta orðið þegar kappræðunum lauk
einni og hálfri klukkustund síðar.
Lítið bólaði á hnyttnum tilsvörum
Perots og honum gekk misvel að
svara fyrir sig.
Aukin atvinna eða atvinnuflótti
var heistá þrætueplið milli Gores og
Perots er þeir ræddu samninginn,
sem nær til Bandaríkjanna, Kanada
og Mexíkó og leggur drög að stærsta
fríverslunarsvæði heims.
„Útflutningur til Mexíkó hefur
fjölgað störfum um 400 þúsund á
undanförnum fimm árum og mun
fjölga þeim um 200 þúsund á næstu
fimm,“ sagði Gore.
„Kvikfénaður hér lifir betra lífi
en góðir, heiðarlegir, vinnusamir
Mexíkóar, sem vinna fyrir bandarísk
fyrirtæki [í Mexíkó],“ sagði Perot
og bætti við að Mexíkóar hefðu
vinnu af Bandaríkjamönnum „því
fólk þar í landi getur unnið fyrir
laun, sem undirbjóða Bandaríkja-
menn“.
„Nú lýgur þú“
Oft var grunnt á því góða í kapp-
ræðunum.
„Nú lýgur þú,“ sagði Perot þegar
Gore vændi hann um að hafa beitt
sömu brögðum til að hafa áhrif á
Bandaríkjaþing á áttunda áratugn-
um og auðkýfingurinn frá Texas
gagnrýndi stuðningsmenn NAFTA
um að nota nú til þrýstings.
Gore vitnaði til þess að Perot hefði
verið fylgjandi NAFTA áður en hann
bauð sig fram til forseta á síðsta
ári og ýjaði að því að hann hefði
bæði peningalegan og pólitískan
ávinning af því að NAFTA yrði fellt.
Samkvæmt skoðanakönnun CNN,
dagblaðsins USA Today og Gallup-
stofnunarinnar voru 57% fylgjadi
NAFTA eftir kappræðurnar, en áður
kváðust aðeins 34% styðja sáttmál-
ann.
Fulltrúadeild Bandaríkjaþings
gengur til atkvæða um NAFTA 17.
nóvember og talsvert vantar upp á
að sáttmálinn verði samþykktur.
Hefur sáttmálinn mætt meiri and-
stöðu meðal demókrata en repúblik-
ana.
Hart deilt um hvort boða eigi til þingkosninga á Ítalíu
Hótað að mynda nýja stjórn
Rómaborg. Reuter.
UMBERTO Bossi, leiðtogi Norðursambandsins á Ítalíu, olli miklu upp-
námi í gær þegar hann hótaði því að þingmenn flokksins gengju af
þingi og stofnuðu nýja ríkisstjórn, alls óháða þinginu, ef ekki yrði
boðað til þingkosninga þegar í stað.
Hótunin jók enn á ólguna sem
verið hefur á Ítalíu vegna spillingar-
mála sem hafa tröllriðið stjórnmála-
og fjármálalífinu að undanförnu. Nú
síðast voru forsetinn, Oscar Luigi
Scalfaro, og fleiri stjórnmálamenn
sakaðir um að hafa þegið miklar
íjárhæðir úr sjóðum leyniþjón-
ustunnar SISDE.
„Norðursambandið dregur sig til
baka og myndar bráðabirgðastjórn
sem verður algjörlega óháð þinginu,
sem er spillt og vanvirt með glæpum
eins og þeim sem SISDE framdi,“
sagði Bossi. Hann kvaðst ætia að
stofna „ríkisstjórn norðursins" ef
Scalfaro forseti leysti ekki þingið
upp þegar í stað og boðaði til kosn-
inga.
Búist er við að gömlu valdaflokk-
arnir myndu tapa miklu fylgi ef efnt
yrði til kosninga á næstunni og
Norðursambandið yrði einn af þeim
flokkum sem myndu auka fylgi sitt
mest.
BOSS
HUGO BOSS
elements
Nýr herrailmur frá BOSS
SS>ssla
H
1
; í-Seim’iU'
Karlmannlegur - ferskur - ómótstæðilegur
- Ef til vill sá besti -
Drengjaúlpa
Telpnaúlpa,
Kuldajakki
Kuldafrakki,
Kuldajakki, síður
Barnakuldaskór, 1.79
Barnakuldaskór, 1.79
Ullarsokkar
Ullarsokkar fullorðins, 49
íslensk framleiðsla
Ullarsokkar barna, 39
Otrúlegt úrval
af vetrarfatnaði á hreint
ótrúlegu verði
HAGKAUP
m1193