Morgunblaðið - 08.01.1994, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANUAR 1994
24 taka þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík
Meirihluti borgarfulltrúa
stefnir á 2. eða 3. sæti
ALLS skiluð 24 inn framboði sínu vegna prófkjörs sjálfstæðis-
manna fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík en framboðs-
frestur rann út kl. 17 í gær og úrskurðaði kjörnefnd öll framboð-
in lögmæt á fundi sínum síðdegis. Kjörnefnd hefur heimild til að
bæta inn fleiri frambjóðendum á lista í prófkjörinu en tók ekki
afstöðu til þess í gær. Verður ákvörðun um það tekin á fundi
kjörnefndar á morgun.
Morgunblaðið leitaði til núver-
andi aðalfulltrúa og varafulltrúa í
borgarstjórn sem ætla að taka
þátt í prófkjörinu og spurði þá í
hvaða sæti listans þeir stefndu í
prófkjörinu.
Eftirtaldir aðilar munu taka
þátt í prófkjöri sjálfstæðismanna:
Amal Rún Qase stjórnmála-
fræðinemi.
Anna K. Jónsdóttir lyfjafræð-
ingur og borgarfulltrúi stefnir á
5. sæti í prófkjörinu eða ofar á
listanum.
Árni Sigfússon framkvæmda-
stjóri og borgarfulltrúi stefnir á
2. sæti.
Axel Eiríksson úrsmíðameistari.
Björgólfur Guðmundsson fram-
kvæmdastjóri.
Einar G. Guðjónsson verslunar-
maður.
Guðrún Zoéga verkfræðingur
og borgarfulltrúi, stefnir á 3.-4.
sæti.
Gunnar Jóhann Birgisson lög-
maður.
Haraldur Blöndal hrl. og vara-
borgarfulltrúi, stefnir á 3. sæti.
Helga Jóhannsdóttir húsmóðir.
Hilmar Guðlaugsson múrari og
varaborgarfulltrúi, stefnir á 4.
sæti.
Jóna Gróa Sigurðardóttir vara-
borgarfulltrúi, stefnir á 3. sæti.
Júlíus Hafstein framkvæmda-
stjóri og borgarfulltrúi, stefnir á
2. sæti.
Katrín Gunnarsdóttir húsmóðir
og varaborgarfulltrúi, stefnir á 6.
sæti.
Markús Örn Antonsson borgar-
stjóri, stefnir á 1. sæti.
Ólafur F. Magnússon, læknir
og varaborgarfulltrúi, stefnir á
6.-7. sæti.
Páll Gíslason, læknir og borgar-
fulltrúi, stefnir á 2. sæti.
Sigríður Sigurðardóttir, fóstra
og varaborgarfulltrúi, stefnir á 9.
Siguijón Á. Fjeldsted skóla-
stjóri.
Sveinn Andri Sveinsson, lög-
maður og borgarfulltrúi, stefnir á
5. sæti.
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, lög-
fræðingur og borgarfulltrúi,
stefnir á eitt af efstu sætunum.
Yfirlýsing Katrínar Fjeldsted borgarfulltrúa
„Hef orðið fyr-
ir vonbrigðum“
HÉR fer á eftir í heild yfirlýsing
Katrínar Fjeldsted, sem hún lét
frá sér fara í gær, þegar hún
lýsti yfir að hún ætlaði ekki að
taka þátt í prófkjöri sjálfstæðis-
manna í Reykjavík:
Á undanförnum árum hef ég
marglýst þeirri skoðun minni að
ekki sé heppilegt að menn gerist
mosavaxnir í pólitískum trúnaðar-
stöðum, jafnvel þótt þéir njóti til
þess áframhaldandi trausts sinna
stuðningsmanna. Eg hlýt því að
lokinni þriggja kjörtímabila setu í
borgarstjórn og tveggja í borgar-
ráði að taka til vandlegrar yfirveg-
unar, hvort ekki sé rétt að láta hér
staðar numið, í bili a.m.k. og greiða
þannig fyrir endurnýjun í borgar-
stjórnarflokki Sjálfstæðismanna.
Hinu er ekki að leyna, að ég hef
einnig orðið fyrir vissum vonbrigð-
um á undanförnum árum með þær
undirtektir sem mínar tillögur hafa
fengið í borgarstjórnarflokknum og
það, hversu hægt hefur gengið að
þoka þeim fram, þótt vissulega
hafi margt áunnist. Þau gildi og
þær lífsskoðanir, sem ég hef slaðið
fyrir, hafa ekki alltaf átt greiða
leið inn í stefnumótun borgarinnar
og sumt, sem forgang hefur feng-
ið, ekki verið mér að skapi. Við því
væri í sjálfu sér ekkert að segja,
ef til væri vettvangur til að skjóta
sínum málum til hins almenna
flokksmanns, og finna þannig
styrkleikavægi hinna ýmsu hug-
mynda og lífsgilda, sem verða
mætti til leiðbeiningar í starfi borg-
arstjórnarmeirihlutans. Prófjörin
áttu á sínum tíma að verða slíkur
vettvangur.
Eins og prófkjörin hafa þróast á
liðnum árum hef ég hins vegar
ákveðnar efasemdir um ágæti
Þorbergur Aðalsteinsson lands-
liðsþjálfari.
Þórhallur Jósepsson, aðstoðar-
maður samgönguráðherra.
Þorleifur Hinrik Fjeldsted sölu-
maður.
Þrír efstu menn hætta
Þrír efstu menn borgarstjórnar-
lista Sjálfstæðisflokksins í sein-
ustu kosningum hafa ákveðið að
taka ekki þátt í prófkjörinu en
þeir eru Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra og borgarfulltrúarnir
Magnús L. Sveinsson og Katrín
Fjeldsted.
Fjórir núverandi varaborgar-
fulltrúar taka ekki þátt í prófkjör-
inu en þeir eru: Hulda Valtýsdótt-
ir, Guðmundur Hallvarðsson, Mar-
grét Theodórsdóttir og Ingólfur
Sveinsson.
Prófkjör sjálfstæðismanna í
Reykjavík fer fram dagana 30. og
31. janúar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Katrín tilkynnir ákvörðun sína
KATRÍN Fjeldsted borgarfulltrúi kom á skrifstofu Sjálfstæðisflokksins
laust eftir kl. 17 í gær, þegar framboðsfrestur í prófkjöri sjálfstæðis-
manna var runninn út, og las upp yfirlýsingu fyrir fréttamenn þar sem
fram kom að hún hefði ákveðið að gefa ekki kost á sér í prófkjörinu.
Katrín skipaði 3. sæti listans í seinustu borgarstjómarkosningum.
þeirra. Þegar skráðar eða óskráðar
leikreglur þeirra eru á þá lund, að
hægt er að segja fyrir um „rúss-
neska kosningu“ ákveðinna manna
í ákveðin sæti, en tilviljun ræður
mestu um skipun annarra, er nán-
ast ómögulegt að koma saman lista
sem endurspegli til fulls þann
styrkleika, breidd og fjölbreytni
sjónarmiða, sem hafa verið megin-
styrkur Sjálfstæðisflokksins frá
upphafi. Ég tel mig því ekki geta
sótt í niðurstöður prófkjörs þann
styrk og stuðning við mín sjónar-
mið í borgarmálum, sem ég þyrfti
á að halda, til að bera þau fram
til sigurs í borgarstjórn á næsta
kjörtímabili.
Annar ókostur við prófkjör, er
að í stað málefnaátaka eru þau
rekin sem hatröm átök um persónu-
vinsældir og leiða þannig oft til
sárinda og tortryggni meðal þeirra
sem ætlað er að starfa saman af
heilindum næsta kjörtímabil. Þann-
ig verður borgarstjórnarflokkurinn
ósamstæðari en ella þyrfti að vera.
Niðurstaða mín er því sú að,
a.m.k. um sinn, sé betra fyrir mig
að hafa óbundnar hendur til að
gera grein fyrir mínum skoðunum
á borgar- og þjóðmálum, innan
Sjálfstæðisflokksins og utan.
Flokksagi er nauðsynlegur innan
skynsamlegra marka, en hann má
ekki ganga svo langt að drepa nið-
ur sjálfstæði og frumkvæði þeirra
sem kjósendur hafa treyst til að
vinna að sínum málum með hag
þeirra einungis fyrir augum. Ég
hef því ákveðið að gefa ekki kost
á mér í þetta prófkjör, en mun
starfa áfram af fullum heilindum
að stefnumálum Sjálfstæðisfiokks-
ins á hveijum þeim vettvangi, þar
sem ég tel að ég geti komið að
gagni.
Merki Þjoðhatiðararsins 1994
Þjóðhátíðarnefndin áskilur sér ótímabundinn notkunar- og ráðstöfunarrétt
á því merki sem valið hefur verið þjóðhátíðarmerki ársins 1994 og sem hér birtist.
Nefndin mun heimila notkun merkisins eftir neðangreindum skilmálum.
1. Að nefndinni berist skrifleg umsókn með ósk um notkun merkisins:
Þjóðhátíðarnefnd
Bankastræti 7 Sími: 609460
150 Reykjavík Bréfsími: 609463
2. Án sölu
Að fengnu erindi varðandi ráðstefnur, fundi, mannfagnaði, viðburði,
sýningar o.fl., þar sem um prentun eða merkingar er að ræða án
endursölu, og sem aðilar vilja tengja afmæli lýðveldisins.
3. Til sölu
Varðandi notkun merkisins á framleiðslu til sölu verður að fylgja eins
ítarleg lýsing og kostur er, um framleiðsluhlutinn, útlit, efni, stærð, magn
o.s.frv. Við notkun af þessu tagi kemur til höfundarréttur samkvæmt
reglum Myndstefs.
4. Nefndin áskilur sér rétt til að samþykkja eða hafna öllum erindum sem
henni berast.
5. Umsóknarfrestur vegna töluliðar 2 er til 1. apríl 1994, en vegna
töluliðar 3 til 1. febrúar 1994.
ÞJÓÐHÁTÍBARNEFND
50 ÁRA LÝÐUELDIS Á ÍSLANDI