Morgunblaðið - 08.01.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 8. JANUAR 1994
13
s
V
>
»
I
»
I
»
L'
I
»
h
Fáein orð um
sölu SR-mjöls hf.
eftirHrein Loftsson
Frásagnir og yfirlýsingar í fjöl-
miðlum undanfarið, varðandi söl-
una á SR-mjöli hf., hafa verið með
ólíkindum. Svo virðist, sem ýmsir
séu reiðubúnir að trúa því, að fýrir-
tækið hafí verið afhent óskil-
greindu fjölskylduveldi fýrir smán-
arverð. Einnig, að sú gjörð hafi
verið ákveðin fyrir löngu og að lög
og reglur um útboð hafi verið þver-
brotin. Hefur síðan myndast um
þennan uppspuna gífurlegur sögu-
burður og stóryrðaflaumur, sem
rennur inn í stofur landsmanna úr
útvarpi og sjónvarpi. Vil ég af
þessu tilefni koma eftirfarandi á
framfæri:
1. í 3. gr. laga nr. 20/1993 um
stofnun hlutafélags um Síldarverk-
smiðju ríkisins er sjávarútvegsráð-
herra fengið vald til að fara með
eignarhlut ríkisins í hlutafélaginu
og er þar jafnframt heimild til að
selja hlutabréfin í félaginu eða
hluta þeirra samkvæmt nánari
ákvörðun hluthafa. Við meðferð
málsins kom fram greinilegur vilji
þingmanna til að viðhalda fyrir-
tækinu sem einni öflugri einingu.
í greinargerð með 3. gr. frum-
varpsins, sem varð að lögum, seg-
ir og, að við sölu hlutabréfa.skuli
stefnt að dreifðri eignaraðild þann-
ig að enginn einn aðili eignist
meirihluta. Jafnframt segir þar,
að sérstaklega skuli horft til
heimamanna og starfsmanna á
þeim stöðum, sem verksmiðjur eru
starfræktar.
Menn geta í sjálfu sér deilt um
þá ákvörðun, að auglýsa hlutabréf-
in til sölu I einu lagi í stað þess
að selja þau í áföngum, en hitt er
alveg ljóst, að sjávarútvegsráð-
herra, með fulltingi annarra ráð-
herra, hefur allar heimildir í því
sambandi. Sjálfur er ég þeirrar
skoðunar, að þessi ákvörðun hafi
verið rétt og virkað mjög hvetjandi
á aðila til að sameina krafta sína.
Þessi aðferð hefur og gefist vel
við fyrri sölur þar sem fram hefur
komið fremur lítill áhugi fjárfesta
á að eiga minnihluta í félagi á
móti ríkinu. Þá er hugsanlegt, ef
farin hefði verið sú leið, að selja
fyrirtækið í skömmtum, að fjár-
festar hefðu talið sér nægilegt að
eignast rétt rúman meirihluta hlut-
afjárins, en ríkið gæti þá setið
uppi með minnihlutann til lengri
tíma, án þess að koma honum í
verð.
Tómas Þorvaldsson
treysta grunn þessarar ungu list-
greinar hérlendis og byggja traustan
atvinnuveg. Með óbreyttu lögbundnu
framlagi mætti halda í horfínu. Með
skertu framlagi er stórkostlegum
árangri stefnt í bráðan voða.
Við hljótum að vona að til séu
Hreinn Loftsson
„Ekkert í framkvæmd
útboðsins stangast á við
lög.“
2. Á síðasta ári voru samþykkt ný
lög nr. 65/1993 um framkvæmd
útboða. í 1. gr. þeirra laga kemur
skýrt fram, að þau gildi ekki fyrir
útboð á fjármagns- og verðbréfa-
markaði. Á því sviði gilda nú lög
nr. 9/1993 um verðbréfaviðskipti,
nr. 10/1993 um verðbréfasjóði og
nr. 11/1193 um Verðbréfaþing
íslands. Áður en Verðbréfamark-
aður íslandsbanka fór af stað með
útboð eða sölu hlutabréfanna í
SR-mjöli var kannað af hálfu verð-
bréfafyrirtækisins hvemig best
yrði staðið að framkvæmdinni. Hér
var ekki um að ræða almennt út-
boð nýrra hlutbréfa heldur sölu
þegar útgefinna bréfa, en um slíka
sölu gilda aðrar reglur. Niðurstað-
an var sú, að settar voru reglur
af hálfu seljanda og verðbréfafyrir-
tækis og þær kynntar væntanleg-
um þátttakendum, m.a. um fjár-
hagslega getu til hlutafjárkaup-
anna, en einnig um íjárhagslega
getu til að reka fyrirtækið áfram.
Skýrt var tekið fram, að seljandi
áskildi sér allan rétt til að taka
hvaða tilboði sem væri. Þessi fram-
kvæmd er fyllilega í samræmi við
lög á þessu sviði.
Það er því út í bláinn, að vísa í
lög um framkvæmd útboða, eins
og að ákvæði þeirra laga gildi í
þessu efni og saka stjómvöld um
stjómmálamenn með framtíðarsýn,
við treystum því að slíkir menn sjái
nú sóma sinn í því að leiðrétta nú
þegar þau mistök sem hér hafa orð-
ið. Það verða ekki einungis kvik-
myndagerðarmenn sem munu fylgj-
ast með þessu máli. Almenningur á
íslandi hefur alla tíð stutt íslenska
kvikmyndagerð. Hún hefur þegar
fengið viðurkenningu almennings
sem fram hefur komið í góðri aðsókn
og almennum áhuga. Og það er tek-
ið mark á íslenskri kvikmyndagerð
erlendis. Við höfum notið þess. Þess-
um árangri hefur nú verið stefnt í
hættu.
Það slys sem varð á lokaspretti
fjárlagagerðar snertir ekki eingöngu
kvikmyndaframleiðendur á íslandi,
það snertir alla þá listamenn og
starfsmenn sem við sögu koma, leik-
stjóra, rithöfunda, leikara, tónlistar-
menn, leikmyndagerðarmenn, iðnað-
armenn, tæknimenn, bílstjóra og svo
framvegis. En fyrst og fremst snert-
ir þetta allan almenning á íslandi.
Höfundur cr lögnmhir Sambnnds
íslenskra
kvikmyndaframleiðenda.
lögbrot á þeim grundvelli. Ekkert
í framkvæmd útboðsins stangast á
við lög, hér var í einu og öllu farið
eftir reglum, sem þátttakendum
höfðu verið kynntar fyrirfram, en
til marks um ruglið er, að menn
hafa jafnvel haldið því fram, að
tilboð, sem ekki var talið standast
skilyrði um fjárhagslega getu,
bæri að skoða sem fullgilt tilboð,
en svo er auðvitað ekki.
3. Mikið hefur verið gert úr
tengslum verðbréfafyrirtækisins
við aðila úr kaupendahópnum. Þar
horfa menn framhjá stífum reglum
laga um verðbréfafyrirtækin og
aðskilnað þeirra frá bönkunum.
Miklar kröfur eru og gerðar til
forstöðumanna fyrirtækjanna um
fagleg vinnubrögð og sjálfstæði.
Með aðdróttunum um óeðlileg
tengsl er vegið ómaklega að Sig-
urði B. Stefánssyni, forstöðumanni
VÍB. Ég fullyrði, eftir að hafa
fylgst með störfum hans í málinu,
að hér er um ósannan og óréttmæt-
an áburð að ræða. Eitt fyrirtæki
hefur sérstaklega verið tekið út úr
í þessu sambandi, en það er Sjóvá-
Almennar tryggingar. Það fyrir-
tæki verður þó ekki eigandi að
nema um 10% af hlutafénu. At-
hyglisvert er einnig í því sambandi
að sá bjóðandi, sem varð af kaup-
unum, hefur lagt mikið upp úr því
að fá það fyrirtæki í lið með sér
á fyrri stigum málsins.
4. Ýmsir hafa lýst hneykslun
sinni á því, að hærra tilboðinu var
ekki tekið, og sagt sem svo, að
reyna hefði átt á stóru orðin um
getu til að leggja fram 801 m.kr.
fyrir hlutaféð og greiða upp 932
m.kr. skuldir í Landsbankanum. Á
stjómvöldum hvílir mikil ábyrgð,
sem m.a. leiðir til þess að ekki er
skynsamlegt að taka menn alltaf
á orðinu. Bjóðandanum hafði áður
verið gerð grein fyrir því, að honum
hefði ekki tekist að sýna fram á
fjárhagslega getu; ekki var nóg í
því efni að fara fram á frest til
að skrapa saman lánsfé til kaup-
anna upp á von og óvon, eftir var
að sýna fram á fjárhagslega getu
til að tryggja rekstur fyrirtækisins
áfram. Ef eingöngu væri um að
ræða lánsfé fyrir öllu saman var
alltaf sú hætta fyrir hendi, að lán-
veitandinn, hver svo sem hann
væri, yfirtæki eignirnar. Stjórn-
völdum bar að fá þetta upplýst,
m.a. vegna ákvæða laga nr.
34/1991, sem banna erlenda eign-
araðild að fyrirtækjum á borð við
SR-mjöl hf. Að virtu öllu framan-
sögðu var því áhættan einfaldlega
of mikil og það staðfestu athugan-
ir verðbréfafyrirtækisins á for-
sendum tilboðsins. Þær athuganir
fóru fram með samþykki bjóðand-
ans.
5. Ástæðan fyrir því að lægra
tilboðinu var tekið er því einfald-
lega sú, að um betra boð var að
ræða. Kaupendahópurinn er
traustur og samanstendur af
70-80% viðskiptamanna SR-mjöls
hf. Eignardreifingin verður mikil
og stuðningur er frá viðkomandi
bæjarfélögum og starfsmönnum.
Áframhaldandi rekstur öflugs fyr-
irtækis er einnig tiyggður, að
mati seljanda, en það skiptir ekki
minnstu máli. Söluverðið er 725
m.kr., sem að mestu greiðist á
þessu ári, en 200 m.kr. færast
yfir á árið 1995. Að mati sérfræð-
inga á verðbréfamarkaði er sölu-
verðið hagstætt, en fyrirfram var
talið að búast mætti við tilboðum
á bilinu 650-750 m.kr.
Höfundur er hæstaréttar-
lögmaður ogformaður
framkvæmdanefndar um
einkavæðingu.
Þolfimi 1
meistarakeppni 1
karla, kvenna og
para; óvenjulegar
tískusýningar á
íþrótta- og
tískufatnaði
fimleikar,
bardagalist,
Sigrún Eva
með Ótýndum
þjófum.
Anna Björk
Birgisdóttir.
Húsið opnað ki. 19.30
Dagskrá hefst kl. 20.30
Dráttarbeisli - kerrur
" 1 ..— ■
Eigum á lager 2ja og 3ja hesta kerrur - dráttarbeisli á flestar gerðir bíla - allar gerðir af
kerrum og vögnum - allir hlutir til kerrusmíða - ódýrar hásingar fyrir hestakerrur og fleira.
Veijum íslenskt - Póstsendum - Velkomin í sýningarsal okkar.
VÍKUR-VAGNAR Síðumúla 19 - sími 68 49 11.
dags.: upphæö: staður:
|io; 16.12.1993 17.12. 1993 20.12. 1993 23.12.1993 27.12. 1993 27.12. 1993 28.12. 1993 1. 1. 1994 4. 1. 1994 5. 1. 1994 kr. 443.946,- Hótel Saga kr. 114.952,- Monakó, Laugavegi kr. 274.752,- Hofsbót, Akureyri kr. 254.898,- Monakó, Laugavegi kr. 132.351,- Rauöa Ljónið, Eyðistorgi kr. 80.540,- Háspenna, Laugavegi kr. 106.691,- Háspenna, Hafnarstræti kr. 272.941,- Ölver, Glæsibæ kr. 157.943,- Mamma Rósa, Kópavogi kr. 192.873,- Hótel Saga
Gullpotturinn stendur nú í u. þ. b. 3.602.000,- og fer sfliækkandi
Auk þess eru ótal mangir smasrri vinningar
sem eru greiddir út oft á dag