Morgunblaðið - 08.01.1994, Qupperneq 48
1
LAUGARDAGUR 8. JANUAR 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Falsaðir
seðlar í
umferð
0 0 m 9 Morgunblaðið/Oddur Sigurðsson
Sprungur í Siðujökli
HLAUP er komið í Síðujökul í Vatnajökli og færist hann fram sem nemur tugum ef ekki hundruðum metrum á dag, að sögn Odds Sig-
urðssonar, jarðfræðings hjá Orkustofnun. Hann segir að stærstu sprungurnar, eins og þær sem sjást á þessari mynd, séu líklega um 10 metrar
á breidd og um 30 metra djúpar og myndi fjögurra hæða blokk hverfa auðveldlega í þær.
HLAUP er hafið í Síðujökli í Vatnajökli og er búist við að áður en
því lýkur hafi jökuljaðarinn færst fram um 500-1.000 metra. Þetta
er þriðja hlaupið sem kemur í jökulinn sem vitað er um og er þetta
í fyrsta skipti sem jarðfræðingum hér á landi tekst að sjá hlaup af
þessu tagi þegar það er svona skammt á veg komið, að sögn Odds
Sigurðssonar, jarðfræðings hjá Orkustofnun.
Hlaupið lýsir sér þannig að bylgja
myndast ofarlega í jöklinum og fær-
Ók á 160
. km hraða
LÖGREGLUMENN í Keflavík
stóðu ungan ökumann að of hröð-
um akstri á Reykjanesbraut um
kl. 18 í gær. Reyndi ökumaðurinn
að komast undan á ofsahraða og
hófst þá eftirför á Reykjanes-
brautinni og inn á Grindavíkur-
veg. Samkvæmt upplýsingum Iög-
reglu sýndi hraðamælir lögreglu-
bílsins 160 km. þegar bilið jókst
töluvert á milli bílanna.
Lögreglan náði svo ökumanninum
^^þegar hann hafði stöðvað bifreiðina
við Hótel Bláa lónið og var hann
þegar í stað handtekinn og færður
til yfirheyrslu. Var henni ekki lokið
í gærkvöldi. Ökumaðurinn er fæddur
árið 1976 og var hann þegar í stað
sviptur ökuréttindum. Að sögn lög-
reglu óka hann mjög glæfralega er
hann reyndi að stinga lögregluna af
með tvo farþega í bílnum.
ist með töluverðum hraða niður á
við, þar til hún brotnar. Oddur segir
að jökullinn skríði fram um tugi ef
ekki hundruð metra á hveijum sólar-
hring og myndast stórar sprungur
við hreyfinguna. Þegar jökullinn
stöðvast sígur hann og segir Oddur
að þá þrýsti hann undan sér vatni
og megi þá búast við hlaupi í þeim
ám sem frá honum renna.
Orkustofnun fékk fyrst tilkynn-
ingu um að eitthvað óvenjulegt væri
á seyði þegar Snorri Björnsson,
bóndi á Kálfafelli og mælavörðúr við
Djúpá í Fljótshverfi, tilkynnti á
mánudag að áin væri undarleg á lit-
inn. í gærmorgun þegar vatnamæl-
ingamenn á vegum Orkustofnunar
voru á ferð fyrir austan fréttu þeir
hjá bændum á svæðinu að sprungur
væru komnar í Síðujökul.
Ástæðan ókunn
Fyrri hlaupin tvö voru árin 1934
og 1963 og hlaupið nú bendir til að
hlaup í jöklinum verði á um 30 ára
fresti. Ekki hefur enn tekist að finna
út hvers vegna hlaup af þessu tagi
bytja en að sögn Odds er ein kenn-
ing sú að þau séu í tengslum við
breytingu á vatnsþrýstingi undir
jöklinum.
Raunvísindastofnun Háskóla ís-
lands hefur um nokkurt skeið verið
með stikur í jöklinum því búist hefur
verið við hlaupi þar. Vonir eru
bundnar við að það takist að endur-
heimta stikurnar, en jökullinn er
ófær yfirferðar þar til snjór verður
búinn að fylla sprungurnar að nýju
og segir Oddur að það verði ekki
Félagsmálaráðherra kvaðst telja
að málið væri enn í höndun biskups.
„Það vantar ýmsar upplýsingar sem
bárust ekki inn á þennan fund og
meðan þær liggja ekki fyrir og hvem-
ig þeim hefur verið komið á fram-
færi við fulltrúaráðið, vil ég ekki tjá
mig um málið,“ segir Jóhanna.
A fundi fulltrúaráðsins voru sam-
þykktar tillögur þær sem félagsmála-
fyrr en eftir alla vega ár.
Menn á vegum Orkustofnunar og
Raunvísindastofnunar munu fylgjast
með hlaupinu næstu vikur, en Oddur
segir að búast megi við að það vari
í 1-2 mánuði.
Sjá bls. 19: „Eitt mikil-
fenglegasta...“
ráðherra hafði lagt fram, sem um-
ræðugrundvöll að samkomulagi, en
áhersla lögð á að tryggt sé að fram-
lag til reksturs Sólheima sé nægilegt
miðað við óbreytta þjónustustarf-
semi. Telur ráðið rétt að framkvæmt
verði almennt mat á þjónustuþörf
fatlaðra. Eigi fjárveitingar til Sól-
heima í framtíðinni að grundvallast
á því mati.
FALSAÐI seðillinn er fremst-
ur í röðinni. Þótt áferð og
gljái pappírsins sé nokkuð
annar er erfitt að koma auga
á hann í fljótu bragði, einkum
innan um raunverulega seðla.
Gólf Lukkupottsins sést í bak-
grunni.
Opinberum deilum verði hætt
I framhaldi af slíkri athugun vill
fulltrúaráðið að gengið verði frá
þjónustusamningi við Sólheima með
hliðsjón af því sem kveðið er á um
í fjárlögum 1994. Formaður fulltrúa-
ráðsins gat þess á fundi með frétta-
mönnum á þriðjudag að heimilið
vantaði um 19 milljónir kr. til að
viðhalda eðlilegum rekstri. Fulltrúa-
ráðið harmar þá umræðu sem farið
hefur fram um málefni Sólheima og
óskar þess að opinberum deilum verði
hætt til að aðilar fái svigrúm og
næði til að vinna að lausn, er tryggja
eigi öryggi og velferð fatlaðra íbúa
á Sólheimum. Ráðið fól Vilhjálmi Þ.
Vilhjálmssyni, Ástu Ragnheiði Jó-
hannesdóttur og Margréti Frímanns-
dóttur að leiða sáttaleitan.
Stefnubreyting á fulltrúaráðsfundi Sólheima í gær
Ráðherra rétt sáttahönd
Bréfi var leynt fyrir fulltrúaráðinu, segir ráðherra
FULLTRÚARÁÐ Sólheima samþykkti á fundi sínum í gær að skipa
þriggja manna nefnd til að leita eftir lausn á deilumálum Sólheima
við félagsmálaráðuneytið í samráði við biskup íslands. Jóhanna Sig-
urðardóttir, félagsmálaráðherra, sagðist í samtali við Morgunblaðið
í gærkvöldi ekki vilja Ijá sig um samþykktir fulltrúaráðsins. Hún
kveðst hafa upplýsingar um að fulltrúaráðið hafi verið leynt bréfi
sem hún sendi inn á fundinn að ósk framkvæmdastjóra Sólheima,
þar sem viðræðuslit voru staðfest „þrátt fyrir að ítrekað hafi verið
spurt um það á fundinum hvort viðræðunum hafi verið slitið“, segir
Jóhanna.
FALSAÐIR peningaseðlar
komust á kreik skömmu fyrir
jól þegar bunka af seðlum,
sem afritaðir voru með litljós-
ritun, var stolið frá Lukku-
pottinum, bar og spilasal við
Lækjargötu. I Lukkupottinum
er að flnna happdrættisvélar
frá Happdrætti Háskóla Is-
lands og er gólf staðarins
klætt með eftirlíkingum ís-
lenskra og erlendra peninga-
seðla. Var stuldurinn tilkynnt-
ur lögreglu.
Starfsmaður hjá Lukkupott-
inum segir að bunki af ljósrituðu
seðlunum hafi horfið þegar verið
var að leggja gólfið á sínum
tíma. Lögreglu hafi verið til-
kynnt um þjófnaðinn og segir
starfsmaðurinn að skömmu síðar
hafi tveir fulltrúar frá Seðla-
bankanum, þungir á brún eins
og komist var að orði, heimsótt
Lukkupottinn. Að sögn starfs-
manns var tilgangurinn sá að
skoða gólfið og seðlana því ljós-
ritun peningaseðla í réttri stærð
samræmist ekki lögum. Hann
segir jafnframt að lögreglan
hafi skráð númer seðlanna sem
notaðir voru til að ljósrita eftir.
Hlaup hafið í Síðujökli og er búist við að hann færist fram um allt að 1.000 metra
Jökullinn skríður fram
um tugi metra á dag