Morgunblaðið - 18.01.1994, Side 1
64 SIÐURB
13. tbl. 82. árg. ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1994 Prentsmiðja Morgunblaðsins
Öflugur landskjálfti, 6,6 stig á Richter-kvarða, ríður yfir suðurhluta Kaliforníu-ríkis
Tugir manna taldir af og
eignatjónið er gífurlegt
„Fyrsta hugsunin var að ná í börnin og koma öllum út úr húsi“, sagði Guðlaugur Sigurgeirsson verkfræðingur
Los Angeles. Reuter.
AÐ MINNSTA kosti 24 menn létu lífið í gær í einum öflugasta jarð-
skjálfta sem riðið hefur yfir Kaliforníu í Bandaríkjunum á síðustu
áratugum. Upptök skjálftans, sem mældist 6,6 stig á Richter-
kvarða, voru í San Fernando-dalnum, norð-austur af miðborg Los
Angeles. Gríðarlegar skemmdir urðu á hraðbrautum og yfir 1.000
húsum i borginni og úthverfum hennar af völdum náttúruhamfar-
anna og elda sem kviknuðu í kjölfar þeirra. Skjálftinn, sem varði í
um það bil eina mínútu, reið yfir kl. 4.30 að staðartíma (12.30 ísl.
tíma) og voru íbúar borgarinnar því i fastasvefni. Þakka björgunar-
menn þeirri staðreynd það að ekki fór verr, þar sem fáir voru á
ferli. Guðlaugur Sigurgeirsson verkfræðingur, sem býr suð-austur
af miðborg Los Angeles, líkti í samtali við Morgunblaðið skjálftanum
við mikinn öldugang og sagði að sér hefði virst hann vara í heila
eilífð. „Fyrsta hugsunin var að ná í börnin og koma öllum út úr
húsi,“ sagði Guðlaugur. Ekki hafði frést af öllum þeim Islendingum
sem búa á svæðinu en nokkrir þeirra eru búsettir í San Fernando-
dalnum.
Heimili manna tættust í sundur í
gassprengingum, bílar fuðruðu upp
í brennheitum vítislogum og víða
komu skelkaðir íbúar saman og
fylgdust grátandi með er eigur
þeirra urðu eldinum að bráð. Hús
lögðust saman, önnur bókstaflega
skriðu af grunni sínum. Hraðbrautir
rofnuðu, brýr hrundu, götur opn-
uðust og gaslyktin fyliti vit manna
er leiðslur gengu í sundur. Eldar
loguðu í yfir 100 byggingum í gær-
kvöldi en þeir kviknuðu er gasleiðsl-
ur rofnuðu. Björgunarmenn þóttu
víða vinna afrek er þeir drógu fólk
út úr hrundum og brennandi bygg-
ingum. Ekki bætti úr skák að vatns-
leiðslur rofnuðu víða auk þess sem
slökkviliðsmönnum gekk erfiðlega
að komast að eldunum, þar sem
samgöngukerfið var ónothæft í
mörgum borgarhlutum. Fjöldi fólks
sat fastur í bifreiðum sínum á helstu
umferðaræðum Los Angeles.
Rafmagn fór af stórum hluta Los
Angeles og var víða ekki komið á
seint í gærkvöldi. Þá var erfitt á ná
símasambandi við borgina og útilok-
að með öllu að ná sambandi við þá
sem eiga heima í San Fernando-
dalnum, er þar búa nokkrir Islend-
ingar. Ekki hafði frést af slysum eða
alvarlegu tjóni hjá ísiendingum á
svæðinu.
Neyðarástand
Yfirvöld sögðu í gærkvöldi að
fimm hefðu farist í bruna í stúdenta-
görðum við Kaliforníuháskóla í Nort-
hridge í San Fernando-dalnum. Þá
fórust tólf manns er fjölbýlishús
hrundi þar. Fjórir létust af völdum
hjartaáfalls og einn lögreglumaður
á mótorhjóli lést er hann þeyttist
af hraðbraut í skjálftanum.
Yfir 70 hús brunnu í Sylmar-
úthverfínu og um 50 hús eyðilögð-
ust í Hollywood. Þá losnuðu nokkur
hús af grunni sínum við skjálftann.
Fjöldi báta og skútna sökk í höfnum
við Los Angeles er miklar öldur
gengu þar yfir. Járnbrautarlestir
fóru út af sporinu og flugvellinum
við borgina var lokað í nokkra
klukkutíma.
Almenningur hélt sig meira og
minna heima við, samkvæmt fyrir-
mælum yfirvalda. í gær var almenn-
ur frídagur vegna fæðingardags
blökkumannaleiðtogans Martins
Luthers Kings og var talið víst að
enn verra ástand hefði skapast í Los
Angeles, sem er mjög víðfeðm, hefðu
fleiri átt erindi til vinnu og skóla.
Lýstu Richard Riordan, borgarstjóri,
og Pete Wilson, ríkisstjóri, yfir
neyðarástandi vegna náttúruham-
faranna. Bill Clinton, Bandaríkjafor-
seti, undirritaði í gærkvöldi sérstaka
yfirlýsingu um að neyðarástand ríki
í suður Kaliforníu en hún tryggir
íjárhagsaðstoð af hálfu alríkisstjórn-
arinnar.
Allt hristist og skelfur
Tugir eftirskjálfta skóku Los Ang-
eles í gær og fóru nokkrir þeirra
yfir 5 stig á Richter. Konráð J. Sig-
urðsson, hljóðmaður, sem búsettur
er um 9 km frá upptökum skjálft-
ans, sagði í samtali við Morgunblað-
ið í gær, að allt hristist og skektist
enn, nokkrum klukkustundum eftir
fyrsta skjálftann.
Um var að ræða svonefndan þver-
gengisskjálfta, en svo er það nefnt
þegar á sér stað lárétt færsla jarð-
skorpunnar um misgengisflöt, sagði
Þorvaldur Þórsson, jarðvísindamað-
ur við háskóiann á Hawaii í samtali
við Morgunblaðið. Upptök skjálftans
voru um 30 kílómetra suður af San
Andreas-misgenginu og í sama
sprungukerfi. Hermdu óstaðfestar
fréttir að skjálftinn hefði orðið 14
kílómetrum undir yfirborði jarðar og
fannst hann allt til Las Vegas og
suður til San Diego. Ekki var þó um
þann „stóra“ að ræða en sérfræðing-
ar hafa spáð því að slíkur skjálfti
muni fyrr eða síðar ríða yfir Kalifor-
níu og geti hann orðið rúmlega átta
stig á Richter. Sagði Þorvaldur að
skjálftinn nú hefði líklega Iétt á
spennunni, sem talið er að muni leiða
til stóra skjálftans í Kaliforníu.
í júní 1992 varð öflugur jarð-
skjálfti um 150 kílómetra austur af
Los Angeles sem mældist 7,4 stig á
Richter. Talið er að skjálftinn sem
lagði San Francisco í rúst 1906 hafi
verið 8,3 stig á Richter. Landsjálft-
inn sem reið yfir San Francisco 1989
var 7,1 stig á Riehter og fórust þá
67 manns.
Sjá fréttir á bls. 26-27.
Hraðbrautir hrynja
LÖGREGLUMAÐUR á þaki bifreiðar sem varð undir er hraðbraut hrundi í Sherman Oaks, nærri San
Fernadno-daslnum. Nokkrir bílar eyðilögðust er brautin féll saman og lögreglumaður lét lífið.
Talsmaður Kravtsjúks segir
Krím-kosningar ólöglegar
Simfcropol. Reutcr. A.—? A,—J A—J
Simf'eropol. Reuter.
RUSSNESKI þjóðernissinninn Júrí Meshkov, sem vill að Krím samein-
ist Rússlandi, fór með sigur af hólmi í fyrri umferð forsetakosning-
anna á Krímskaga á sunnudag. Talsmaður Leoníds Kravtsjúks, for-
seta Úkraínu, lýsti því yfir að kosningarnar væru ólöglegar.
Þegar talið hafði verið í 64 af
66 kjörstöðum var Meshkov með
40% atkvæðanna. Næstur kom Ní-
kolj Bagrov, eini frambjóðandinn
sem vill að Krím verði áfram hluti
af Úkraínu, með aðeins 20% at-
kvæða. Kosið verður á miili þeirra
tveggja í síðari umferðinni eftir
tvær vikur.
Úrslitin komu á óvart og gætu
valdið mikilli spennu milli Úkraínu
og Rússlands. Talsmaður Kravt-
sjúks fordæmdi kosningarnar og
sagði að forsetinn myndi ákveða
bráðlega hvernig bregðast ætti við
þeim. „Þessar forsetakosningar eru
ólöglegar þar sem ekki er gert ráð
fyrir embætti_ forseta Krímskaga í
stjórnarskrá Úkraínu," sagði hann.
Kravtsjúk gæti komið á beinni
forsetastjórn yfir Krím en það
myndi kalla á hörð viðbrögð í Rúss-
landi.