Morgunblaðið - 18.01.1994, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 18. JANÚAR 1994 .
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Heiðursborgari
STEINDÓR Steindórsson frá Hlöðum hefur verið kjörinn heiðursborgari Akureyrar, en Sigurður
J. Sigurðsson, forseti bæjarsljórnar, afhenti honum heiðursborgarabréf í samsæti sem haldið var
honum til heiðurs á Fiðlaranum á sunnudagskvöld.
Steindór Steindórsson
kjörinn heiðursborgari
STEINDÓR Steindórsson frá Hlöðum var kjörinn heiðursborgari á
Akureyri síðastliðinn sunnudag og var honum afhent heiðursborg-
arabréf í samsæti sem bæjarstjórn Akureyrar hélt honum á Fiðlaran-
um þá um kvöldið. Steindór er áttundi heiðursborgi Akureyrarbæjar.
Formaður Neytendafélagsins um A. Finnsson
Framkvæmdastj óriim
fer með rangt mál
„í þakklætis- og virðingarskyni
fyrir afrek þín í þágu lands og þjóð-
ar og fyrir að hafa með störfum
þínum og búsetu aukið veg og reisn
Akurejrar hefur bæjarstjóm Akur-
eyrar einum rómi kjörið þig heið-
ursborgar bæjarins frá og með 16.
janúar 1994,“ segir í heiðursborg-
arabréfi sem Sigurður J. Sigurðs-
son, forseti bæjarstjórnar Akur-
eyrar, afhenti Steindóri í samsæti
sem haldið var honum til heiðurs
á sunnudagskvöld.
í ávarpi sínu rakti Sigurður störf
Steindórs, sem lagt hefur gjörva
hönd á margt, en hann sat lengi í
bæjarstjórn Akureyrar, á Alþingi
var skólameistari við Menntaskól-
ann á Akureyri auk þess að stunda
margvísleg vísinda- og fræðistöf,
en hann er grasafræðingur að
mennt. Þá hefur hann hlotið marg-
ar viðurkenningar fyrir störf sín.
„Það liggur við að ég missi mál-
ið,“ sagði Steindór að lokinni af-
hendingu heiðursborgarabréfsins,
„en margt hefur mér nú farið betur
um dagana en að þegja.“
Steindór sagði það kannski ekki
vænlegt til mikilla afreka að vera
marglyndur, áhugasvið hans væri
margbreytilegt og hann hefði grip-
ið í margt. „En ekkert held ég að
gefi lífinu meiri fyllingu en að hafa
áhuga á mörgu, það gerir lífið svo
óendanlega miklu bjartara. Ég naut
flests þess sem ég gerði og þá er
ekki hægt að hugsa sér betra líf,“
sagði Steindór.
Stærsta stundin
Hann riijaði upp daginn er Matt-
hías Jochumsson var kjörinn fyrsti
heiðursborgari Akureyrar árið
1920, en Steindór sagðist einmitt
hafa séð Matthías þann dag. „Ég
hef lifað margar stórar stundir, en
þetta er áreiðanlega sú stærsta.
Ég er óendanlega þakklátur bæjar-
stjóm fyrir að hafa gefið mér þessa
stóru stund, hún er vitnisburður
um að ég hafi ekki lifað til einskis,
að ég hafi eitthvað gert til þuift-
ar,“ sagði Steindór og kvaðst að
Iokum óska þess og trúa að Akur-
eyri yrði áfram bær fegurðar og
friðar, menntunar og menningar.
Steindór er áttundi heiðursborg-
ari Akureyrarbæjar, Mattías Joch-
umsson var sá fyrsti, en hann var
kjörinn árið 1920, Finnur Jónsson
árið 1928, Jón Sveinsson (Nonni)
árið 1930, Oddur Björnsson árið
1935, Margrethe Schiöth árið
1941, Davíð Stefánsson árið 1955
og Jakob Frímannsson árið 1974.
VILHJÁLMUR Ingi Árnason
formaður Neytendafélags Ak-
ureyrar og nágrennis segir það
rangt hjá Aðalgeir Finnssyni
framkvæmdastjóra A. Finns-
sonar hf. að kaup á fimm íbúð-
um af fyrirtæki hans sem mikið
hafa verið til umræðu undan-
farið hafi farið athugasemda-
laust gegnum bæjarkerfið. Vil-
hjálmur Ingi hefur farið fram
á við ýmsar stofnanir að kan'nað
verði hvort óeðlileg hagsmuna-
tengsl séu á milli byggingafyr-
irtækisins, Islandsbanka og
Húsnæðisnefndar Akureyrar-
bæjar.
Kaup Húsnæðisnefndar á íbúð-
unum fimm við Drekagil 28 hafa
mikið verið til umræðu á Akureyri
síðustu vikur og hefur Vilhjálmur
Ingi óskað eftir að kannað verði
hvort óeðlileg hagsmunatengsl séu
milli aðila málsins, A. Finnssonar,
íslandsbanka og Húsnæðisnefndar
Akureyrar. „Ég hef ekki enn feng-
ið nein viðbrögð við þeirri ósk
minni, en á von á að eitthvað ger-
ist í málinu fljótlega. Þegar fulltrú-
ar í bæjarstjórn og húsnæðisnefnd
hafa mótmælt umræddum kaup-
um og bygginganefnd hefur viður-
kennt að íbúðirnar standist ekki
reglugerðir má ætla að eitthvað
verði gert,“ sagði Vilhjálmur Ingi.
Hann segir Aðalgeir Finnsson
því fara með rangt mál er hann
sagði við Morgunblaðið í síðustu
viku að íbúðarkaupin hefðu farið
athugasemdarlaust í gengum bæ-
jarkerfið. Mótatkvæði hafi komið
fram í bæjarstjórn og eins í hús-
næðisnefnd.
Upphaf svikamyllunnar
Vilhjálmur Ingi segir að rekja
megi upphaf málsins til þess „þeg-
ar verið var að kafa niður í þann
ósóma sem tengdist málefnum
ungmenna í klóm Islandsbanka og
fasteignasala," sagði Vilhjálmur
Ingi, en fjármunir þeirra og for-
eldra þeirra hafi lent hjá fyrirtæki
Aðalgeirs Finnssonar og þangað
megi upphaf svikamyllunnar.
-----------» »-♦-----
Heilsugæslustöðin
Um 6% fækk-
un á komum
til lækna
KOMUM til heilsugæslulækna á
Heilsugæslustöðina á Akureyri
fækkaði um 6% milli áranna 1991
og 1992, en almennt heilsufar var
gott síðarnefnda árið, að því er
fram kemur í nýútkominni skýrslu
um starfsemi stöðvarinnar.
Fram kemur í skýrslunni að sam-
skiptum fólks við stöðina hafi fækk-
að um 5% milli ára, en íbúum fjölg-
aði um 1,5%. Hlutfall aldraðra
breyttist lítið en vitjunum heima-
hjúkrunar fjölgaði verulega milli ára
eða um 13%.
Dregið úr aðsókn
Þá kemur fram í skýrslunni að í
kjölfar þess að tekið var upp svokall-
að komugjald á heilsugæslustöðvum
hafi dregið mjög úr aðsókn á Heilsu-
gæslustöðina á Akureyri.
í yfirliti yfír samskipti við heilsu-
gæslustöðina kemur fram að um
33.500 manns hafí notið læknisþjón-
ustu á stöðinni, um 3.600 komu á
mæðradeild, um 5.000 komur voru
skráðar í ung- og smábamaeftirlit,
510 viðtöl voru skráð hjá fjölskyldu-
ráðgjöf, tæplega 17 þúsund vitjanir
voru hjá heimahjúkrun, tæplega
2.000 skoðanir í krabbameinsleit,
tæplega 5.000 komu á rannsóknar-
stofu og um 2.500 á aðgerða- og
skiptistofu. Þá voru komur og vitjan-
ir við Heilsugæslustöðina á Grenivík
1.353 talsins.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir um hugsanlega þátttöku á sameiginlegum framboðslista
Málefnasamningur verði raun-
sær og listínn sigurstranglegur
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir, þingkona Kvennalistans, seg-
ist ekki ætla að svara því endanlega hvort hún taki áttunda
sæti á sameiginlegum framboðslista minnihlutaflokkanna í
Reykjavík og verða borgarstjóraefni listans fyrr en málefna-
samningur og framboðslisti flokkanna liggur fyrir. Gert er
ráð fyrir að það verði um miðjan febrúar. „Mér lýst mjög vel
á málin eins og þau hafa þróast að undanförnu," segir hún.
Ingibjörg Sólrún segist ekki
setja nein einstök skilyrði fyrir
þátttöku sinni. „Mér finnst skipta
miklu máli að málefnasamningur-
inn verði raunsær og afmarkaður
og að listinn verði sigurstrangleg-
ur. Skoðanakannanir benda til
þess að hann eigi ágæta mögu-
leika. Þótt ég taki skoðanakönnun
DV með fyrirvara, þá sýnir hún
að það er ákveðinn vilji til að
breyta til í borginni,“ segir hún.
12 manna vinnuhópur
Skipaður hefur verið 12 manna
vinnuhópur með fulltrúum þeirra
fjögurra flokka sem taka þátt í
sameiginlegu framboði vegna
borgarstjómarkosninganna, til að
útfæra málefnasamning og fram-
boðslista. Er gert ráð fyrir að nið-
urstaðan liggi fyrir um miðjan
næsta mánuð. Félagsfundur
Kvennalista og trúnaðarráð Al-
þýðuflokks, Alþýðubandalags og
Framsóknarflokks samþykktu á
laugardag að ganga til sameigin-
legs framboðs í vor og kynntu
fulltrúar flokkanna framboðið,
sem gengið hefur undir vinnuheit-
inu, Reykjavíkurlistinn, á frétta-
mannafundi á laugardag.
Samþykkt var samhljóða að
ganga til samstarfsins á fundum
í Kvennalista, Alþýðubandalagi og
Alþýðuflokki á laugardag en einn
greiddi atkvæði á móti tillögunni
á um 100 manna fundi í fulltrúa-
ráði Framsóknarflokksins.
Líta flokkarnir svo á að 8. sæt-
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
skráir sig á fundi Kvennalistans
á Iaugradag, þar sem fjallað var
um sameiginlegt borgarstjórnar-
framboð minnihlutaflokkanna.
ið verði baráttusæti listans í kosn-
ingunum en samkomulag er um
að fulltrúi Alþýðuflokksins, sem
skipi 9. sætið, verði 1. varamaður
fyrir alla borgarfulltrúana ef fram-
boðið fær 8 fulltrúa í borgarstjórn.
Árni Þór Sigurðsson, fulltrúi Al-
þýðubandalags í viðræðunum orð-
aði þann möguleika á frétta-
mannafundinum að ef fleiri fram-
boðslistar kæmu fram fyrir kosn-
ingarnar og sameiginlega fram-
boðið næði ekki meirihluta myndi
það hugsanlega standa að myndun
meirihluta með öðrum framboðs-
lista.
Áhrif á landsmálapólitík
Fulltrúar flokkanna voru ekki til-
búnir til að ræða hveijar yrðu
helstu málefnaáherslur framboðs-
ins á fréttamannafundinum á
laugardaginn. Steinunn V. Ósk-
arsdóttir, fulltrúi Kvennalista,
sagði allir flokkarnir myndu leggja
sínar hugmyndir um stefnu fram-
boðsins í einn pott við gerð mál-
efnasamningsins og reyna að ná
sínum áherslumálum þar fram.
Pétur Jónsson, fulltrúi Alþýðu-
flokksins, sagði að eftir að sam-
þykki flokkanna lægi nú fyrir
mætti mikið út af bregða ef sam-
eiginlegt framboð yrði ekki að
veruleika. Fram kom í máli full-
trúa allra flokkanna á frétta-
mannafundinum að forystumenn
flokkanna hefðu fylgst með sam-
starfsviðræðunum úr fjarlægð og
ekki komið með beinum hætti að
málinu. Ptur sagðist aðspurður
telja að sameiginlegur framboðs-
listi þessara flokka gæti átt eftir
að hafa áhrif á landsmálapólitíkina
þegar fram í sækti.
I vinnuhópnum sem skipaður
er þremur fulltrúum frá hveijum
flokki eru af hálfu Kvennalista,
Steinunn Óskarsdóttir, Sigríður
Lillý Baldursdóttir og Guðrún
Ögmundsdóttir. Af hálfu Alþýðu-
bandalags, Guðrún Ágústsdóttir,
Arthur Morthens og Árni Þór Sig-
urðsson, Af hálfu Framsóknar-
flokksins, Valdimar Kr. Jónsson,
Sigrún Magnúsdóttir og Alfreð
Þorsteinsson og af hálfu Alþýðu-
flokks, Pétur Jónsson, Bryndís
Kristjánsdóttir og Arnór Benónýs-
son.
iNNLEisrr