Morgunblaðið - 18.01.1994, Qupperneq 56
MORGUNBLAÐW, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SÍMI 691100, StMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3010 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTl 85
ÞRIÐJUDAGUR 18. JANUAR 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Vinnslustöðin í Eyjum
EES eykur
framlegð
um 50 millj.
SIGHVATUR Bjarnason fram-
kvæmdastjóri Vinnslustöðvar-
innar í Vestmannaeyjum segir
að vinnsla fyrirtækisins á salt-
fiski í neytendapakkningum
fyrir Frakklandsmarkað verði
í það minnsta tíföld á við það
sem hún var á liðnu ári, vegna
nýrra möguleika sem opnast.
hafa í kjölfar gildistöku EES.
Hann áætlar að framlegð fyrir-
tækisins aukist um 50 millj. kr.
á ári vegna EES.
„Nú í janúar framleiðum við
meira af söltuðu flökunum í
lofttæmdum umbúðum en á öllu
árinu í fyrra,“ sagði Sighvatur. „Ég
áætla að saltfiskframleiðslan í neyt-
endapakkningum fyrir Frakklands-
markað, verði að minnsta kosti tí-
föld á við það sem hún hefur ver-
ið,“ sagði Sighvatur. „Það sem fyrst
og fremst breytist, er að toilurinn
fellur niður af söltuðu flökunum,
en hann var 20%, en engtnn tollur
var á útvötnuðu flökunum."
Sighvatur sagði að hann sæi
einnig fyrir sér' aukinn útflutning
frá Vestmannaeyjum af ferskum
flökum inn á Evrópumarkað, nú
"þegar tollar af slíkum innflutningi
hefðu verið felldir niður vegna
EES. „Vegna legu sinnar ættu
Vestmannaeyjar að vera eina ver-
stöðin sem gæti nýtt sér ferskfisk-
markaðina í einhveiju magni með
gámaútflutningi í ferskum flökum,"
sagði hann.
Sjá bls. 31: „Tífalda .. “
Morgunblaðið/Sigurgeir
Aðgerð í Kúttmagakoti
HJÓL fiskvinnslunnar snúast nú aftur og starfsfólkið í Kúttmagakoti í Vestmannaeyjum hafði nóg að gera
í aðgerðinni eftir að verkfall sjómanna hafði verið stöðvað með bráðabirgðalögum á föstudagskvöld. Unnið
var bæði laugardag og sunnudag og hér er verið að gera að afla Sigurbáru VE, sem fékk 6 tonn í netin
eftir nóttina, en þeir eru með fá net í sjó enda báturinn af minna taginu. í Kúttmagakoti er aðgerðarþjón-
usta fyrir báta, sem síðan selja fiskinn á mörkuðunum.
Talinn týnd-
ur en fannst
af tilviljun
Blönduósi
BJÖRGUNARSVEITIR á
Blönduósi voru kallaðar út um
hágegisbil í gær til að svipast
um eftir tveimur mönnum, sem
fóru frá Hveravöllum á jeppa-
bifreið kl. 13.30 í fyrradag.
Björgunarsveitarmenn fóru
strax á átta jeppum með snjó-
sleða upp úr Vatnsdal og
Blöndudal til leitar. Það var svo
um kl. 15.30 í gær að lögreglan
á Blönduósi rakst á hin týnda
jeppa við bæinn Geitaskarð í
Langadal fyrir tilviljun en þá
voru fjallafarar á leið til
Reykjavíkur frá Hofsósi.
Lögreglunni á Blönduósi barst
fyrirspurn frá bróður annars
þeirra sem í jeppanum var hvort
vart hefði orðið við ferðalangana
á Blönduósi í fyrradag eða gær-
morgun. Var talið að mennirnir
tveir sem í jeppanum voru hafi
ætlað á Blönduós og þaðan til
Reykjavíkur. Það var svo fyrir ai-
gjöra tilviljun og árvekni að lög-
reglumaður á eftirlitsferð í
Langadal mætir jeppanum sem
saknað var og var hann þá á leið
til Reykjavíkur frá Hofsósi. Ef lög-
reglan hefði ekki mætt jeppanum
þá hefðu björgunarmenn verið að
leita langt fram á kvöld í gær.
Mennirnir voru með CBS talstöð
sem að sögn lögreglunnar á
Blönduósi dugar skammt við þess-
ar aðstæður.
Jón Sig.
Vopnaleitargjald hækkar um 50%
GEFIN hefur verið út ný gjaldskrá í utanríkisráðuneytinu fyrir vopna-
leit í Leifsstöð sem gildir frá 1. febrúar nk. Gjaldið hækkar þá úr 60
krónum í 90 og er það 50% hækkun. Einar Sigurðsson, upplýsingafull-
trúi Flugleiða, segir forsvarsmenn fyrirtækisins óánægða með hversu
hækkunin er mikil og hve fyrirvarinn að henni er skammur.
Ríkisbankar hafa ákveðið vaxtabreytingar á föstudag
Vextír óverðtryggðra
útlána verða lækkaðir
TALSMENN Búnaðarbankans boðuðu í gær 1,5—2 prósentu-
stiga útlánsvaxtalækkun á föstudag og áður hafði stjórn Spari-
sjóðabanka Islands tilkynnt vaxtalækkun sparisjóðanna upp á
0,5—1%. Tekin hefur verið ákvörðun um vaxtalækkun í Lands-
banka en ekki hvað hún verður mikil. Ekki fengust upplýs-
ingar í gær um fyrirætlanir í íslandsbanka.
Sighvatur Björgvinsson við-
skiptaráðherra kallaði fulltrúa
bankastjóma viðskiptabankanna
á sinn fund í gær til að ræða
Þremur Islendingum meinuð þátttaka í skotíþróttamóti
Máttu ekki mæla lival-
veiðum íslendinga bót
ÞREMUR meðlimum í Skotsambandi íslands, sem voru þátttakendur
á skotíþróttamóti í Lúxemborg í síðustu viku, hefur verið meinuð
• þátttaka í móti sem haldið verður í Hollandi í byrjun febrúar. Ástæð-
an er sú að forsvarsmenn mótsins segjast ekki geta leyft það að
Islendingarnir mæli hvalveiðum íslendinga bót.
Mennirnir þrír, Ölafur Jakobsson,
Hannes Tómasson og Jónas Ilaf-
steinsson, tóku þátt í skotíþrótta-
mótinu RIAC ’94 í Lúxemborg og
var um að ræða 3 mót í loftbyssu-
greinum að sögn Þorsteins Ásgeirs-'
sonar fararstjóra. Hann segir að
þeir hafi náð góðum árangri á mót-
inu og hafi farið þess á leit með
óformlegum hætti að taka þátt í
móti sem nefnist InterShoot og
verður haldið í byijun febrúar í
Hollandi. Á meðan á mótinu stóð í
Lúxemborg kynnti fararstjórinn
sjónarmið hvalveiðiþjóða með kynn-
ingarbæklingum og með því að sýna
kafla úr sjónvarpsmyndum Magn-
úsar Guðmundssonar á 6 metra
háum skjá. í símbréfi frá móts-
höldurum í Hollandi segir að ekki
sé unnt að bjóða Islendingunum til
þátttöku því Hollendingar geti ekki
leyft þeim að mæla hvalveiðum bót.
vaxtamál í kjölfar harðrar gagn-
rýni forsætisráðherra á bankana
sem fram kom um helgina. Eftir
fundinn sagðist Sighvatur hafa
ástæðu til að ætla að bankar og
sparisjóðir myndu lækka verulega
óverðtryggða útlánsvexti á föstu-
dag en þá er næsti vaxtabreyt-
ingadagur bankanna. Innláns-
vextir muni hins vegar ekki lækka
og því minnki vaxtamunur.
„Ég sýndi bankastjórunum
þeirra eigin ákvarðanir um raun-
vexti bankanna í verðtryggða
kerfinu, sem hafa farið lækkandi,
og hins vegar ákvarðanir þeirra
sjálfra um raunvexti í nafnvaxta-
kerfinu, sem hafa farið hækk-
andi, og benti þeim á að ekkert
samræmi væri þar á milli,“sagði
Sighvatur. “Við ræddum ýmis
önnur mál eins og möguleika
þeirra til að draga úr ýaxtamun
og um líklegar ákvarðanir næsta
föstudag og lagði þunga áherslu
á að menn gerðu þar heldur meira
en minna til að þessi mál leysist
á öllum vígstöðvum," sagði Sig-
hvatur.
Sjá bls. 4: „Treysti að ...“
Fimm hrepp-
ar Dalasýslu
sameinast
FIMM hreppar í Dalasýslu munu
sameinast 11. júní og verður kosið
til hreppsnefndar hins nýja sveit-
arfélags í sveitarstjórnakosning-
unum í vor. Hrepparnir fimm eru
Laxárdalshreppur (Búðardalur og
nágrenni), Hvammshreppur,
Fellsstrandarhreppur, Haukadals-
hreppur og Suðurdalahreppur.
íbúar hreppanna fimm samþykktu
sameiningu allra hreppa Dalasýslu í
atkvæðagreiðslunni 20. nóvember.
Sameiningin var felld í tveim nyrstu
hreppunum, það er Saurbæjarhreppi
og Skarðshreppi. Þar sem tillagan
var samþykkt í meira en tveimur
þriðju hluta sveitarfélaganna hafa
hreppsnefndirnar fimm heimild til
að sameina hreppana án nýrrar at-
kvæðagreiðslu. Þær náðu samkomu-
lagi á þessum grundvelli og senda
staðfestingu um ákvörðun um sam-
einingu til félagsmálaráðuneytisins í
vikunni.