Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 4
4 FRETTIR/YFIRUT MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1994 ERLENT INNLENT Hagkaup vann „skinku- málið“ HÆSTIRÉTTUR komst að þeirri niðurstöðu á fimmtudag að land- búnaðarráðherra og fjármálaráð- herra hafi verið óheimilt að koma í veg fyrir að Hagkaup fengi að flytja inn til landsins rúmlega 1 tonn af soðinni skinku og 1,5 tonn af hamborgarhrygg í september. Enn er þó deilt um hvort innflutn- ingur landbúnaðarafurða sé heim- ill undir ákveðnum kringumstæð- um. Verðstöður SEÐLABANKINN gerir ráð fyrir því að miðað við óbreyttar for- sendur hækki lánskjaravísitalan aðeins um 0,33% næstu 12 mán- uði. Gangi það eftir þýðir það að nánast engin verðbólga verður á árinu á mælikvarða lánskjaravísi- tölu; að verðstöður ríki. Bankinn spáir raunar að lánskjaravísitalan verði óbreytt næstu fjóra mánuði. Máni ÍS fórst EINN maður fórst og tveir björ- guðust þegar Máni ÍS 54, 36 lesta eikarbátur, sökk 11 sjómflur vest- ur af Barða rétt eftir hádegi á fimmtudag. Á bátnum voru þrír menn og komust þeir allir í gúm- björgunarbát. Einn skipverja var látinn þegar skipbrotsmennimir fundust rúmum fimm klukku- stundum síðar. ERLENT Jarðskjálftar í Kaliforníu ÖFLUGIR jarðskjálftar urðu í Suður-Kaliforníu á mánudag og er vitað um meira en 50 dauðs- föll af völdum þeirra. Upptökin vom í San Fernando-dalnum, norðaustur af Los Angeles. Skjálftamir voru hinir mestu í Kalifomíu í rúma tvo áratugi, styrkleikinn var 6,6 stig á Richter- kvarða. Lýst var yfir neyðar- ástandi og eignatjón er gífurlegt, metið á milljarða Bandaríkjadoll- ara. Hefur Bill Clinton Banda- rílqaforseti heitið aðstoð alríkis- stjómarinnar í Washington. Víða kviknuðu eldar er gasleiðslur fóru í sundur og loguðu hundruð húsa á mánudagskvöld en hamfarimar hófust aðfaranótt mánudags þeg- ar flestir voru í fastasvefni. Fjöldi minni eftirskjálfta fylgdi í kjölfar- ið. Síðar í vikunni fórust tugir manna í Mið- og Austurríkjunum vegna fimbulkulda. Rehn Rehn á sigurbraut ELISABETH Rehn, vamarmála- ráðherra Finnlands, varð önnur í fyrri umferð finnsku forsetakosn- inganna og mun því keppa um embættið við Martti Ahtisaari, frambjóðanda jafnaðarmanna, eftir tvær vikur. Skoðanakannanir benda til þess að Rehn sigri auð- veldlega en hún er í Sænska þjóð- arflokknum sem að jafnaði fær Vextir lækkuðu DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra gagnrýndi viðskiptabankana sl. sunnudag fyrir að hafa látið und- ir höfuð leggjast að lækka óverð- tryggða vexti til samræmis við verðlagsþróun. Sighvatur Björg- vinsson viðskiptaráðherra kallaði bankastjórana á sinn fund í kjöl- farið og í vikunni var tilkynnt um lækkun vaxta á óverðtryggðum lánum. Búnaðarbankinn iækkaði um 1,5-2 prósentustig, sparisjóð- irnir um 0,5-1%, íslandsbanki um 1,2-2% og Landsbanki um 1-2%. Atvinnuleysi RÚMLEGA átta þúsund manns, nær jafn margir karlar og konur, voru að meðaltali atvinnulausir í desembermánuði eða um tvö þús- und fleiri en í nóvember og einnig um tvö þúsund fleiri en í desem- ber í fyrra. Þetta jafngildir því að atvinnuleyfi hafi verið 6,3% af mannafla á vinnumarkaði. At- vinnuleysi hefur ekki áður verið jafnmikið. 100 útköll slökkviliðs TIMBURHÚS við Skólavörðustíg eyðilagðist í eldi á miðvikudags- morgun. Þetta var fjórði bruninn á útkallssvæði Slökkviðliðs Reykjavíkur á fimm dögum, en daginn áður drápust 3.000 varp- hænur þegar kviknaði í hænsna- húsi að Grímsstöðum í Kjós. Á miðvikudag voru útköll slökkvil- iðsins orðin 97 en í meðalári er slökkvilðið kallað út 800-900 sinnum. aðeins 5-6% atkvæða. Báðir fram- bjóðendur styðja eindregið inn- göngu Finnlands í Evrópubanda- lagið. Stjórnarkreppa í Rússlandi TVEIR af helstu frammámönnum róttækra umbótasinna í ríkis- stjóm Rússlands, þeir Jegor Gajdar efnahagsmálaráðherra og Borís Fjodorov fjármálaráð- herra, höfnuðu báðir í vikunni að taka sæti í nýrri stjórn Viktors Tsjernómýrdíns forsætisráð- herrasem skipuð var á fímmtu- dag. Ástæðan var óánægja þeirra með áhrif afturhalds- og miðju- manna í stjóminni en Tsjernó- mýrdín sagði á fimmtudag að umbótum yrði haldið áfram þótt tímabili „markaðs-rómantíkur" væri lokið. Gengi rúblunnar féll hratt vegna kreppunnar, margir óttast óðaverðbólgu og stjórn- málaskýrendur spá aukinni óvissu í rússneskum stjórnmálum. Kravtsjúk Ólga vegna Krím-kosninga FYRRI umferð forsetakosninga á Krímskaga fór fram fyrir rúmri viku og hlaut frambjóðandi sem vill sameina héraðið Rússlandi flest atkvæði en mdrihluti íbú- anna er rússneskur. Á hinn bóginn hefur Krím heyrt undir Úkraínu í 40 ár og forseti Úkraínu, Leo- níd Kravtsjúk, sagði að kosning- amar væru ólöglegar. Bækistöðv- ar Svartahafsflota Sovétríkjanna gömlu, sem verið hefur þrætuepli Rússa og Úkraínumanna, eru í Sevastopol á Krímskaga. Umönnun danskra sjúklinga fer eftir aldri þeirra Yfírlæknar segja niður- skurð vera ástæðuna w* * * » iteuu.-r Lemn a haugana SJÖTÍU ár voru liðin frá dauða Vladímírs Ilíjítsj Leníns á föstudag. Nokkur hundruð kommúnista fóru að grafhýsi hans við Rauða torgið og lögðu þar blóm og kransa. Aðrir óku styttum af honum á ruslahauga en þannig fór m.a. fyrir styttubrotunum sem Olga Grankína starfsmaður Lenínsafnsins krýpur hér við. Safninú hefur verið lokað og verður það aðsetur héraðsþings Moskvu sem kemur saman síðar í mánuðinum. Kaupmannahöfn. Frá Sigrúnu Davíðsdóttur, fréttaritara Morgunblaðsins. SAMTÖK eldri borgara í Danmörku hafa vakið athygli á að flest sjúkra- hús mismuni heilablóðfallssjúklingum eftir aldri. Sjúklingar eldri en 65-70 fái ekki endurhæfingu, þó að rannsóknir sýni að aldurinn skipti ekki máli hvað árangur hennar snerti. Yfirlæknar á nokkrum sjúkrahús- um hafa viðurkennt að þetta sé vinnuregla, sem komi til af pláss- og aðstöðuleysi vegna niðurskurðar. Torben Lund heilbrigðisráðherra segir þessa reglu fyrir neðan allar hellur og fáránlegt sé að láta aldur ráða meðferð. Samtök eldri borgara hafa vakið athygli heilbrigðisráðherra á þeim sið sjúkrahúsanna að velja sjúklinga í endurhæfíngu í stað þess að gefa öllum kost á henni. Um er að ræða sjúklinga, sem lagðir eru inn vegna heilablæðingar eða blóðtappa í heila. Eftir að hafa spurst fyrir á dönskum sjúkrahúsum hefur komið í Ijós að öll nema eitt velja á milli sjúklinga í endurhæfingu, því endurhæfingar- deildimar anni ekki öllum. Þá er brugðið á það ráð að miða við aldur og miða sum þeirra við 65 ár en önnur við 70 ár. Öllum sjúklingum er hins vegar boðið upp á bráðameð- ferð og gjörgæslu strax í upphafi. Eftirstöðvamar geta verið ýmiss konar lömun og talerfiðleikar, en ef sjúklingamir em settir í góða endur- hæfingu sem fyrst eiga þeir góða möguleika á að ná sér vel. Sjúkrahúsin bera við aðstöðuskorti vegna niðurskurðar, en á eina sjúkra- húsinu, sem býður öllum upp á end- urhæfingu, hefur skipulaginu verið breytt og þar með hefur gefist svig- rúm til að taka alla í endurhæfingu. Yfirlæknirinn segir að þetta kosti sjukrahúsið ekkert aukalega, því nýtt sé rými á öðmm deildum og eins styttist legutími hvers sjúklings um þriðjung eða meira. í fréttum danska útvarpsins í gær var rætt við yfirlækna á nokkmm sjúkrahúsum og þeir játuðu að um mismunun væri að ræða, en jafnframt sæju þeir sér ekki aðra leið færa. Lækn- amir segja að engir sjúklingar látist vegna þessa, en samtök eldri borgara áætla hins vegar að um 800-1.000 sjúklingar látist árlega, af því þeir hafi ekki verið í endurhæfingu. Hagfræðinámskeið? Þessi ráðstöfun sjúkrahúsanna kann að spara þeim sjálfum útgjöld, en er þjóðfélaginu óhemju dýr, þar sem heilablóðfallssjúklingar, sem ekki em endurhæfðir, þurfa mjög mikla umönnun, sem ýmist fer fram heima fyrir og þá oft með aðstoð heimahjúkmnarfólks, eða á legu- deildum elliheimilanna. Einn þing- manna Vinstriflokksins hefur stung- ið upp á að læknar verði látnir sækja námskeið í þjóðhagfræði til að opna augu þeirra fyrir hvaða áhrif aðgerð- ir þeirra geti haft á þjóðfélagið í heild. Torben Lund hefur krafist skýringar frá sjúkrahúsunum. Sjón barna og unglinga í Japan hefur aldrei mælst verri Grunurinn beinist að of- notkun á tölvuleikjum London. The Daily Telegraph. HUGSANLEGT er, að tölvuleikir séu farnir að hafa veruleg áhrif á sjón margra unglinga. Eru þær ályktanir dregnar af rannsókn, sem fram fór í Japan, en niðurstöður hennar voru, að sjón ungs fólks þar í landi er verri nú en áður hefur mælst. Að visu eru engar sannanir fyrir því, að tölvuleikirnir séu sökudólgurinn en margir telja, að skýr- ingin geti ekki verið önnur. Við sjónpróf í Japan em ungling- amir látnir standa í sex metra fjar- lægð frá prófspjaldinu og þeir, sem sjá táknin vel gleraugnalaust, fá ein- kunnina einn en þeir, sem sjá aðeins skýrt í þriggja metra fjarlægð, fá einkunnina hálfan. í síðustu könnun vom 1,25 milljónir bama og unglinga sjónprófaðar og kom þá í ljós, að 60% miðskólanemenda, á aldrinum 15 til 18 ára, vom undir einum í einkunn. Þriðjungurinn var undir 0,3, sem er „mjög slæmt“, en aðeins fjórðungur 1983. Þróunin í takt við tölvurnar Á þessum tíma frá 1983 hefur fiöldi nemenda á aldrinum 12 til 15 ára með mjög slæma sjón aukist úr 13,4% í 20,4%. Á aldrinum sex til tólf ára jókst fjöldinn úr þremur í fimm prósent. Embættismaður í jap- anska menntamálaráðuneytinu segir, að sjónheilbrigði japanskra unglinga hafi mælst lítil 1980, skömmu eftir að leikjakassarnir komu á markað, en batnað síðan fram til miðs áratug- arins. Þá fór henni aftur að hraka og það var einmitt þá, sem leikjatölv- ur, sem tengdar eru við sjónvarp, urðu vinsælar. Eins og fyrr segir er engin bein sönnun fyrir skemum áhrifum tölvu- leikja á sjón bama og unglinga og verið getur, að tölvuleikirnir séu ekk- ert óhollari en sjónvarpið yfirleitt. Um það er þó ekki deilt, að þeir hafa stóraukið sjónvarpsgláp ungl- inga. Perry eftirmaður Aspins? Washington. Reuter. BILL Clinton Bandaríkjaforseti ræddi í gær við Williatn Perry, aðstoðarvarnarmálaráðherra, í Hvíta húsinu en forsetinn reynir nú að finna hæfan eftirmann Les Aspins sem varð að víkja úr embætti varnarmálaráðherra fyrir skemmstu. Clinton tilnefndi fyrst Bobby Ray Inman aðmírál en hann hætti við vegna þess sem hann kallaði sam- særi repúblikana gegn sér. Að sögn Washington Post er ekki víst að Perry hreppi embættið,. Talið er að Clinton hafi einnig augastað á iðnjöfrinum Norman Augustine. Sam Nunn öldungadeildarþingmað- ur er sagður hafa hafnað stöðunni.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.