Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1994
eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
FIMM manna fjölskylda
þarf að hafa um kr. 150
þúsund í
ráðstöfunartekjur á
mánuði til að geta
framfleytt sér,
samkvæmt útreikningi
Vigdísar Stefánsdóttur,
sem haldið hefur
búreikninga um árabil.
Er þá reiknað með
ýtrustu sparsemi, til
dæmis er ekki gert ráð
fyrir að fjölskyldan
veikist að ráði, þurfi
gleraugu eða
tannréttingar, né veiti
sér þann munað að fara
í sumarfrí. Ekki er heldur
gert ráð fyrir gjöfum,
afmælis- eða
fermingarveislum, ekki
gert ráð fyrir að hjónin
fari i bíó, leikhús eða á
dansleiki, og því síður að
þau reyki eða drekki
áfengi. Að vísu er reiknað
með að þau veiti
börnunum þann munað
að vera í tónlistarnámi
og íþróttum. Til að mæta
þessum útgjöldum þyrfti
fjölskyldan að hafa um
kr. 240 þúsund í
heildartekjur á mánuði.
•igdís Stefánsdóttir
hefur áður sagt frá
því í viðtali hér á
Morgunblaðinu hvernig lifa
má sparlega og gaf meðal
annars uppskrift af brauði
sem nú mun vera bakað
eftir víðsvegar um landið.
Vigdís hefur um árabil
haldið nákvæma búreikn-
inga og hefur lengi velt því
fyrir sér hvað það kostar í
raun að lifa.
Með hliðsjón af eigin
heimilisrekstri,
upplýsingurrí frá
einstaklingum, stofnunum
og fyrirtækjum, tók hún
saman búreikning fyrir
fimm manna fjölskyldu.
Heildarútgjöldum var deilt
niður á tólf mánuði til að
menn gætu betur áttað sig
á kostnaði hinna ýmsu liða.
Gerði hún ráð fyrir
hjónum með þijú börn á
aldrinum fjögurra, níu og
sextán ára. Þau búa í eigin
fjögurra herbergja íbúð í
blokk í Reykjavík og aka á
fimm ára gamalli Lödu.
Yngsta barnið er í leikskóla
í fimm tíma á dag, og tvö
eldri börnin í grunnskóla
og í framhaldsskóla.
Húsnæði oo heimili
Þegar búreikningar
þessarar ímynduðu
ijölskyldu eru skoðaðir,
vekur það athygli hversu
heildarupphæðin er há sem
fjölskyldan þarf að hafa til
umráða til að geta
framfleytt sér, það er að
segja ef laun verkamanna
og opinberra starfsmanna
hér á landi eru höfð i huga,
en engu að síður vekur það
eftirtekt hversu sparsöm
fjölskyldan er.
En hvemig fór Vigdís að
því að fá ofangreindar
tölur?
„Þetta er mjög hófsöm
og sparsöm fjölskylda,“
segir Vigdís. „í sambandi
Morgunblaðið/Júlíus
við húsnæðið aflaði ég mér
upplýsinga hjá
Fasteignamati ríkisins. Það
telst ekki mikið að skulda
um þijár milljónir í
húsbréfum og öðrum lánum
í fjögurra herbergja íbúð
og þá eru mánaðargreiðslur
um 25 þúsund krónur á
mánuði.
Fasteignagjöld og
tryggingar eru um kr.
44.400 á ári, viðhald
húsnæðis, málning og fleira
getur numið allt að kr.
36.000 á ári og algengt er
að fólk greiði um kr. 24.000
þúsund á ári í hússjóð.“
- Þú reiknar með að
fólk greiði kr. 36.000 í
húsmuni, viðhald og
endurnýjun, hvernig færðu
þá útkomu?
„Oft þarf að endumýja
rúm og önnur húsgögn í
barnaherbergjum, kaupa
gardínur eða rúmfatnað,
heimilisáhöld og tæki, gera
við þvottavél eða jafnvel
kaupa nýja, og þá er þetta
nú ekki orðin há upphæð.“
Til að komast að því hvað
eðlilegt sé að nota af heitu
vatni og rafmagni á
ársgrundvelli hafði Vigdís
samband við Hitaveitu
Reykjavíkur og
Rafmagnsveituna og deildi
síðan þeirri upphæð sem
húnfékk niðurál2
mánuði. Fjölskyldan fer
með kr. 27.600 í hita á ári
Hófsöm oo
sparsöm fimm
fjölskylda barf
að liafa um kr.
150.000 í
ráöstöfunarteki-
ur á mánuði til
að geta mætt
helstu
kostnaðarliðum
sé miðað við 500 tonn, og
fyrir 4.500 kílóvattstundir
á ári greiðir hún kr. 31.200
í rafmagn. Af síma er greitt
þriðja hvern mánuð og gerir
Vigdís ráð fyrir að
reikningurinn sé um kr.
3.000 í hvert sinn.
Afnotagjöld sjónvarps era
síðan kr. 2.000 ámánuði.
Biíreið
Bifreiðin sem fjölskyldan
ekur er fímm ára gömul
Lada Samara, og af henni
þarf að borga tryggingar
og bílaskatt og borga
bensín og viðhald.
Samanlagður kostnaður við
bílinn á ári er kr. 153.600
og er þá ekki reiknað með
neinum afföllum.
„Ég fékk upplýsingar hjá
Bifreiðatryggingum
ríkisins og Bifreiðum og
landbúnaðarvélum í
sambandi við
rekstrarkostnað
Lödunnar,“ segir Vigdís.
„Bifreiðatrygging með
góðum bónus er um kr.
36.000 á ári, bifreiðagjöld
til ríkisins um kr. 9.600 og
bensín á bílinn, sé honum
ekið hóflega, kostar um kr.
72.000 á ári. Gert er ráð
fyrir að skipt sé um dekk
tvisvar á'ári, að ný dekk
séu keypt annað hvert ár
og að bíllinn sé smurður og
skipt um olíu á honum
tvisvar á ári. Einnig er
reiknað með minniháttar
viðgerðum og samanlagt
gerir þetta um kr. 36.000
krónur á ári.“
Vigdís reiknar auk þess
með fargjöldum hjá SVR,
einu grænu korti á mánuði
og það gerir kr. 34.800 á
ári.
Matur
Fjölskyldan fer með kr.
46.000 í matvörur á
mánuði, þar af kr. 6.000 í
nesti. Er það raunhæf
upphæð og við hvað er
miðað?
„Upphæðin þykir líklega
lág, en þetta er sú upphæð
sem ég fer með í mat fyrir
fimm til sex manna
fjölskyldu á mánuði,“ segir
Vigdís. „Til að halda
matarreikningi niðri þarf
tvennt til, að skrifa niður
hjá sér hvað keypt er til að
gera sér grein fyrir því í
hvað peningarnir fara og
að gera áætlun um innkaup
og matseðil fyrir mánuðinn.
Vinkona mín lækkaði
matarreikninginn hjá sér
um kr. 20 þúsund á mánuði
með slíkum aðgerðum,
þannig að það er allt hægt
í þessum efnum. Hvað
nestið snertir geri ég ráð
fyrir því að
grunnskólabamið kaupi sér
djúsmiða í skólanum, en tíu
miðar kosta kr. 450 og
duga þeir oftast í viku
þegar barnið er bæði fyrir
og eftir hádegi í skólanum.
Hjá
framhaldsskólanemanum
reikna ég með að þessi
kostnaður sé tvöfaldur því
þau hafa sjaldnar með sér
mjólk og smurt brauð að
heiman."
- Nú fer hver og einn í
fjölskyldunni með kr. 36
þúsund á ári í fatnað. Er
það ekki full lítið þegar
reiknað er með útigöllum,
skófatnaði, jólafötum,
skólafötum og kápu á frúna
sem kostar oft um 30
þúsund krónur?
- Kápan verður að duga
í minnst fimm ár. Sjálfsagt
er þessi upphæð of lág. En
það er gert ráð fyrir að
hvert bam fái
utanyfirfatnað annað hvert
ár og að allur fatnaður sem
keyptur er sé mjög ódýr.“
Skólaganga
Læknis- og
lyfjakostnaður er um kr.
12.000 á ári fyrir alla
fjölskylduna og er því Ijóst
að almenn hreysti ríkir á
heimilinu.
Tannlæknakostnaður á ári
er kr. 24.000 fyrir alla, svo
að segja má að sælgæti sé
ekki oft um hönd haft.
- Þú reiknar með
dijúgum kostnaði í
skólagöngu barnanna, eða
I
|
)
I
)
)
)
)
)
\
)