Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 16
16
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JANUAR 1994
Tilboð í Bónus og McDonald's
McHamborgari+
McFranskar*+gosdrykkur
*
Hitill
(Venjulegt verð kr. 363.-. Þetta
tilboð gildir út februar -94,
aðeins fyrir ofangreint og er
ekki breytanlegt.)
/Y\
iMcDonaid's
I * K ,
Með kassakvittun og
tilboðsmiða frá Bónus.
VEITINGASTAÐUR FJOLSKYLDUNNAR,
SUÐURLANDSBRAUT 56
býður norrænum
vísindamönnum að sækja
um styrki vegna norrænnar
vísindamenntunar:
<•
%
\
• Vísindaþing • Vinnuhópar • Ferðastyrkir • Stutt dvöl í öðru
landi • Samstarf • Norræn þátttaka í vísindanámskeiðum innan
Norðurlandanna • Norrænir eða alþjóðlegir
gestafyrirlesarar/leiðbeinendur
• Skipulagningarfundir
• Önnur vísindastarfsemi. \
Fresturinn á einnig við um
starfsemi innan norrænna
umhverfisrannsóknaverkefnisins.
Nánari upplýsingar er aðfinna í upplýsingabæklingi „NorFa Grœnselös
forskerutdanning 1994”. Bœklinginn, þar sem einnig er aðfinna umsóknar-
eyðublöð, er hægt aðfá ( háskólum, rannsóknastofnunum og
vísindaráðum eða á skrifstofum NorFa:
NORDISK F ORSKERUTDANNIN GS AKADEMI
Póstbox 2714, St. Hanshaugen, N-0131 Ósló.
Heimilisfang vegna heimsókna: Stensberggaten 26.
Sími: 90 47 22 03 75 20 / Myndsími: 90 47 22 03 75 31
John O’Connor kardínáli.
Morgunblaðið/Bar
Kanffnáli
kemur senn
John O'Connor kardínáli
af New York er
væntanlegur til íslands
nk. mióvikudag
eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur
ÍSLENDINGAR eiga von á tignum gesti úr hinum kaþólska
kirkjuheimi innan skamms. 26. janúar kemur John Josep
O’Connor kardináli frá New York í vináttuheimsókn. Sam-
kvæmt upplýsingum séra Jakobs Rolands á skrifstofu kaþólska
biskupsins á íslandi kom O’Connor nokkrum sinnum til Kefla-
víkur þegar hann var yfirmaður presta bandarískra hersins
til þess að hitta að máli presta sem störfuðu þá hjá banda-
ríska hernum á íslandi. Einnig kom hann hingað til lands til
þess að vígja Alfreð Jolson, núverandi biskup kaþólska safnað-
arins á íslandi 6. nóvember árið 1988. „Þá stóð hans ágæti
Jolin O’Connor kardínáli aðeins við í fáeinar klukkustundir
en hafði á orði að hann vildi gjarnan koma hingað aftur í
lengri heimsókn til þess að kynnast betur landinu og hinum
kaþólska söfnuði sem þar starfar og sú heimsókn stendur nú
fyrir dyrum,“ sagði séra Jakob ennfremur.
Kardínálar eru næstæðstu
embættismenn róm-
versk-kaþólsku kirkj-
unnar, útnefndir af páfa. Upp-
haflega voru kardínálar prestar
við höfuðkirkjuna í Róm. Þeir
eru nú 120 og mynda ráð sem
hefur frá 1059 kosið páfa úr
sínum röðum á lokuðum fundi.
Þeir eru nánustu ráðgjafar páfa
og búa flestir í Róm. John O’C-
onnor kardínáli býr hins vegar
í New York en hefur samskipti
við Jóhannes Pál II. páfa í hverj-
um mánuði.
Alfreð_ Jolson biskup kaþól-
skra á Islandi sagði í samtali
við Morgunblaðið að sem kard-
ínáli og erkibiskup New York
hafi O’Connor varið mannlegt
líf í öllu tilliti. „Hans ágæti John
kardínáli O’Connor styður þá
sem minna mega sín og talar
fyrir friði, trú og réttlæti. Hann
tók persónulega áhættu þegar
hann fór í sérstaka ferð til Lí-
banon til að tala fyrir friði í
Miðausturlöndum. Hann ver
heilbrigði mannlegs lífs og fjöl-
skyldunnar á öllum sviðum og
hefur komið á fót heilsugæslu-
stöðvum og mörgum skýlum
fyrir heimilislausa. Hann hefur
boðið Móður Theresíu, systur
kærleikans, velkomna til að ann-
ast þá sem mest eru afskiptir
hér í heimi,“ sagði biskup.
Að sögn Jolsons biskups, sem
er gamall vinur O’Connor kard-
ínála, er kardínálinn maður mjög
vel máli farinn og hefur mikla
hæfileika til að taka þátt í orð-
ræðum og jafnvel deilum án
nokkurrar óvildar í garð and-
stæðingsins. í þessu sambandi
minntist biskupinn á frægt og
umdeilt vináttusamband
O’Conners við Ed Koch, borgar-
stjóra New Yorkborgar. Jolson
biskup gat þess ennfremur að
O’Connor hafi verið virtur prest-
ur og kapellán í sjóhemum og
Akademíu sjóhersins. „Þegar
O’Connor kardínáli kom hingað
er ég tók við embætti sem biskup
yfir kaþólsku kirkjunni á íslandi
hitti hann marga íslendinga og
heillaði menn með persónuleika
sínum og predikunum. Nú mun
hann tala m.a. um barnakver
kaþólsku kirkjunnar, sem nýlega
er komið út. Ég lít á heimsókn
Johns O’Connors kardínála sem
mikinn heiður fyrir hina íslensku
kaþólsku kirkju,“ sagði Alferð
Jolson biskup að lokum.