Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 12
12 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1994 Árásin á skqutadroltningunq Nqncy Kerrigqn hefur beint athyglinni ad helsta keppinaut hennar, Tonyu Harding, sem lýst hefur verió sem „afsprengi götunnar" ÍSDROTTNINGANNA -eftir Urði Gunnarsdóttir Ekki voru liðnir nema tveir sólar- hringar frá árásinni, þar til lög- reglu fóru að berast upplýsingar frá fólki, sem vissi hver stóð að baki henni. Reyndist lögreglan hafa leitað langt yfir skammt, geðveill aðdáandi skautadrottingarinnar hafði ekki verið að verki, í ljós kom að lífvörður Tonyu Harding hafði lagt á ráðin um árásina. Arásin hafði ekki tilætl- uð áhrfi; hné Kerringan bólgnaði og marðist, en hún hefur nú jafnað sig og mun keppa á Ólympíuleikunum í Lillehammer í febrúar. Hins vegar er alls óvíst að árásin á Kerrigan muni reynast Harding sú lyftistöng er hún og lífvörðurinn hugðu. Milljónir i húfi ÞEIM ÞOKKA og glæsileika, sem einkennir list- hlaup á skautum, lýkur þegar skautasvellinu sleppir. Raunar er baráttan utan þess svo hörð að um líf og dauða getur verið að tefla og það kom skýrt í Ijós er ráðist var á ókrýnda drottn- ingu listdans á skautum vestanhafs, Nancy Kerrigan, fyrr i mánuðinum. Árás, sem í fyrstu virtist tilefnislaus, reyndist vera verk manna sem starfa fyrir helsta keppinaut Kerrigan, Tonyu Harding, og ástæðan; peningar. Þegar hugað er nánar að aðdraganda árásarinnar kem- ur í Ijós heimur harðrar baráttu, afbrýði og græðgi og sérkennilegt samsafn fólks, sem hefur það eina markmið að sigra. Adal- leikararnir TONYA Harding þykir kraftmikil skautakona en ekki sérlega þokkafull. Nancy Kerrigan kemur hins vegar ekki síður vel fyrir í sjónvarpi en á ísn- um. Lífvörðurinn Eckhardt hefur játað að hafa lagt á ráðin um árás- Þrátt fyrir fullvissu Tonyu Harding um eigið ágæti virðast mennirnir, sem stóðu henni næst, fyrrver- andi eiginmaður og lífvörður, ekki hafa treyst því að hún gæti borið sigurorð af kepþinaut sínum. Milljónir dala eru i húfi, því sigurvegar- inn fær miklar fjár- hæðir í sinn hlut og þeir sem standa hon- um næst fara ekki varhluta af gróðanum. Eða svo taldi lífvörður Harding, Shawn Eckhardt. Kennararar hans segja greinilegt að „allmargar blaðsíður" vanti í hann en Eckhardt sótti námskeið í lög- fræði fyrir almenning. Að sögn sam- nemenda Eckhardts taldi hann sig vera nokkurs konar James Bond, þrátt fyrir að hann hafi veg- ið um 170 kg, og stærði sig í sífellu sig af ævintýrum sínum á erlendri grund. Eng- inn lagði trúnað á þau. í desember bauð hann nokkrum sam- nemendum sínum fé fyrir að myrða ákveðna manneskju og þegar þeir neituðu bauð hann þeim fé fyrir að fótbijóta hana. Nemendurnir aftóku það með öllu en honum tókst engu að síður að fá tvo menn, Derrick Smith og Shane Stant, til að ráðast á Kerrigan. Stant réðist að henni á æfingu í Detroit og sló hana í fótinn með málmbút úr sjónauka en Smith ók Stant til og frá skauta- höllinni. Eckhardt var hinn roggnasti með árásina og stærði sig af henni við skólaféiagana, sem vissu ekki hvað þeir áttu að halda. Segja þeir að hann hafi fullyrt að fyrrverandi eig- inmaður Harding, Jeff Gillooly, hafi átt hugmyndina að árásinni en með henni hafi hann viljað hækka í áliti hjá eiginkonunni fyrrverandi. Spilaði Eekhardt upptöku fyrir einn sam- nemanda sinn þar sem Gillooly heyr- ist leggja til að Kerrigan verði drep- in. Þá segir Eckhardt að Gillooly hafi lagt á það áherslu að Kerrigan yrði brotin á^hægri fæti, sem hún íendir á. Þeim sem sátu laganám- skeiðið var orðið um og ó og nokkr- um dögum eftir árásina hafði einn þeirra samband við lögreglu. Skautadýr Tonya Harding og Nancy Kerrigan eru eins ólíkar og dagur- og nótt. Kerrigan kemur úr verkamannaíjöl- skyldu og hefur efnast vel á íþrótt- inni. Hún hefur helgað sig málefnum blindra þar sem móðir hennar er blind og í frístundum leikur hún golf. Kerr- igan virðist standa fyllilega undir þeim kröfum sem gerðar eru til skautadrottninga, hún er ímynd heil- brigðis, þykir glæsileg kona og hreyf- ingar hennar á ísnum þokkafullar. Það sama verður ekki sagt um Tonyu Harding, kraftmikla skauta- konu, sem býr ekki yfir sömu fágun á ísnum og Kerrigan. Harding bætir það upp með kraftinum en hún var fyrst bandarískra kvenna til að ná þrefaldri skrúfu í keppni í listdansi á skautum. Á síðustu árum hefur áhuginn þó ekki síður beinst að per- sónu Hardings og einkalífi, sem þyk- ir skrautlegt í meira lagi. Fyrstu viðbrögð hennar við árás- inni á Nancy Kerrigan þykja dæmi- gerð fyrir konu sem fyrrum sam- starfsmenn hafa lýst sem „afsprengi götunnar“ en verður ef til vill betur lýst sem „skautadýri". „Ég hefði vilj- að mala hana sjálf (það er að segja í keppni),“ sagði Harding. Þegar ljóst varð að Kerrigan myndi keppa á Olympíuleikunum þrátt fyrir allt huggaði Harding sig með því að hún myndi „taka hana í gegn“ í keppn- inni. Þegar böndin bárust að lífverði Harding sagði hún málið allt vera fáránlega atlögu að sér. Alit lagt undir Foreldrar Nancy Kerrigan lögðu allt undir til að dóttir þeirra næði árangri. Hún lærði á skauta þegar hún var sex ára og faðir hennar vann á tímabili þijú störf til að kosta þjálfun hennar er Ijóst varð hversu efnileg hún var. Foreldrar Kerrigan hafa alltaf fylgt henni; á meðan á Ólympíuleikunum í Albertvilie stóð sáu sjónvarpsáhorfendur móður hennar þrýsta andlitinu að sjónvarps- skjá til að sjá hreyfingar dótturinnar en móðirin missti nær alla sjón er Nancy var smábarn. Kerrigan þykir frábær á skautum og ekki spillir fyrir að hún þykir vera glæsileg kona, sem kemur ekki síður vel fyrir á sjónvarpsskjánum en á svellinu. Helsti veikleiki Nancy Kerrigan er sagður sá að hana skortir andleg- an styrk. Síðasta ár reyndist henni erfitt; ekki síst vegna slæms árang- urs á heimsmeistaramótinu í list- dansi á skautum. Búist hafði verið við því að hún sigraði og allt benti til þess eftir fyrsta daginn. Þá var eins og botninn færi úr og frammi- staða hennar það sem eftir var keppni var afleit. Ástæðan var sögð sú að hún virtist hafa talið sig vera að mæta til krýningar, ekki keppni. Hún tók sig á eftir þessa niðurlæg- ingu, æfði enn meira en áður og Ieit- aði til íþróttasálfræðings. Árangur- inn lofaði góðu, hún sigraði á stór- móti í október og var talin liklegust til að keppa fyrir hönd_ Bandaríkj- anna í Lillehammer. Árásin, sem setja átti strik í þann reikning, hefur orðið til þess að almenningsálitið hefur snúist enn frekar á sveif með skautadrottningunni Kerrigan. Erfió aeska Bandaríkjamenn hafa hins vegar aldrei fellt sig fyllilega við Harding í hlutverki skautadrottningar, hún þykir illa uppalin og strákaleg, enda eru aðaláhugamál hennar kappakst- ur, bílaviðgerðir, veiðar og billjard. Stjúpfaðir hennar segir hana hafa liðið fyrir þetta og segir að ef hæfi- leikar Harding hefðu verið lagðir að jöfnu við þokka Kerrigan væri Hard- ing án efa taiin fremst bandarískra kvenna í listhlaupi á skautum. Tonya Harding átti erfiða æsku. Hún er dóttir þjónustustúlku og fimmta eiginmanns hennar, vörubíl- stjóra í stopulli vinnu, og hefur búið mestalla ævi í húsvagni. Faðir henn- ar kenndi henni að veiða, gera upp gamla bíla og höggva við í eldinn. Harding þakkar það eldiviðarhögg- inu hversu vöðvastælt hún er en það mun vera lykillinn að stökkkrafti hennar. Hrifningu Hardings á skautaíþróttinni má rekja aftur til þess tíma er hún var smástelpa og sá skautasvell í fyrsta sinn. Hún lærði að skjóta af hlaupsöguðum riffli áður en hún hóf nám í lestri og hún lærði á skautum áður en hún lærði að skjóta. Saga Tonyu Harding hefur alla burði í það að vera öðrum fordæmi; sígild saga ungrar stúlku sem sigr- ast á erfiðum aðstæðum og nær af- burðaárangri. Sú hefur hins vegar ekki orðið raunin, persónuleiki henn- ar hefur komið í veg fyrir það. Hún hefur verið sögð eigingjörn, skapmik- il og á köflum erfið í umgengni. Þá hefur hún ekki vílað fyrir sér að fara fijálslega með staðreyndir til að vekja á sér athygli. Henni hefur hald- ist illa á þjálfurum og samband henn- ar við eiginmanninn, Jeff Gillooly, er æði skrautlegt. Þau kynntust þegar hún var fimmtán ára og hann átján og giftu sig fimm ánim síðar. Gillooly er sagð- ur stjómsamur maður. Harding hef- ur margoft kært hann fyrir ofbeldi og í tvígang látið setja á hann sam- skiptabann en hann hefur m.a. hótað henni að fótbijóta hana og binda þar með endi á ferilinn. Þau hafa marg- oft látið hendur skipta og vinir þeirra fullyrða að hjónakomin hafi jafnvel gripið til skotvopna. Þess á milli hef- ur allt fallið i ljúfa löð. Harding og- Gillooly skildu eftir þriggja og hálfs árs hjónaband i ágúst síðastliðunum en tóku á ný saman í október. Síðastliðinn þriðju- dag tilkynnti Harding hins vegar að hún hygðist segja endanlega skiiið við Gillooly. Logió til wm morðhótwn? Ferill Tonyu Harding hefur verið upp og ofan síðustu ár. Þegar hún náði þrefaldri skrúfu fyrst banda- rískra kvenna, fyrir þremur árum, blasti framtíðin við henni. Hún náði ekki 'nema þriðja sæti á bandaríska meistaramótinu 1992 og lenti í fjórða sæti á Ólympíuleikunum í Albertville 1992. Hún hefur hvað eftir annað lent í óhöppum í keppni; skautinn losnað undan skónum, búningur hennar rifnað, astmi, sem hún hefur haft frá því í barnæsku, tók sig upp og í haust kvaðst hún ekki getað keppt á bandaríska meistaramótinu þar sem henni hefði borist morðhót- un. Þrátt fyrir það mætti hún í versl- unarmiðstöð daginn eftir til að gefa eiginhandaráritanir og hefur einn af sakborningunum í árásarmálinu full- yrt að sagan um morðhótunina sé uppspuni frá rótum. Fjármál hafa ekki verið sterkasta hið Harding. Hún hefur átt í stöðug- um peningavandræðum síðustu ár og var nýlega vísað úr leiguhúsnæði vegna vanskila. Fer hún ekki dult með þá ósk að eiga næga peninga eins og ljóst varð er hún sneri til heimaborgar sinnar, Poitland, í kjöl- far sigursins á úrtökumótinu fyrir Ólympíuleikana en þá sagði hún pen- inga vera sér efst i huga. Harding er sökuð um að hafa ver- ið með í ráðum um árásina og hafi hún komist að æfingaáætlun Kerrig- ans. Símtöl frá heimili hennar og Gillooly renna stoðum undir þennan grun. Þá grunar lögreglu að fé, sem Harding fékk úthlutað frá Banda- ríska skautasambandinu, hafi verið notað til að greiða árásarmönnunum en þeir fengu rúmar 430.000 krónur fyrir verknaðinn. Samkvæmt skoðanakönnun Newsweek telur 41% Bandaríkja- manna að Harding hafi að minnsta kosti vitað af árásinni. Hún neitar öllum sakargiftum en hætt er við að málið geti orðið Harding að falli hvoit sem hún reynist sek eða ekki, það hefur sett blett á þátttöku Bandaríkjamanna í Ólympíuleikun- um. Árásin gæti að endingu kostað hana ólynipíugull, æruna og frelsið. Byggt á Newsweek og Reuter.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.