Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 48
UPPLÝSiNGASÍMI 63 73 00 MORGVNBLADID, KRINGLAN 1, 103 REYKJA VÍK SÍMl 091100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3010 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 varða i i Landsbanki íslands Banki allra landsmanna SUNNUDAGUR 23. JANÚAR 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Stúlka meiddist eftir árekstur stolins vélsleða og lögreglubíls Morgunblaðið/Ingvar ÖKUMAÐUR og farþegi vélsleðans voru fluttir á slysadeild til rannsóknar eftir að ökuferð þeirra lauk með ákeyrslu við lögreglubíl á gamla þjóðveginum við malarnámið í Kollafirði. Eftirför lauk við Esjuhlíðar UNG kona meiddist á hné í fyrri- nótt þegar stolinn vélsleði sem hún var farþegi á lenti í árekstri við lögreglubíl á gamla þjóðveg- inum í grennd við malarnámið við Kollafjörð. Þetta gerðist etir að lögreglan hafði um skeið elt menn á tveimur vélsleðum sem báðir eru taldir stolnir. Öku- mennirnir sem báður voru á 19. ági gistu fangageymslur lög- reglu í fyrrinótt. Um klukkan hálftólf barst lög- reglunni kæra frá bensínstöð Olís við Gullinbrú um að ökumenn tveggja vélsleða hefðu látið fylla tækin af bensíni en ekið á brott þegar greiða átti fyrir. Skömmu síðar sáu lögreglumenn á leið til Mosfellsbæjar til tveggja vélsleða og sat tvennt á hvorum. Kom þá í ljós að annar sleðinn var sá sem tilkynnt hafði verið um og stolið skömmu áður. Ökumenn sleðanna sinntu ekki stöðvunar- merkjum lögreglunnar sem fylgdi þeim eftir áleiðis að Kollafirði þar sem öðrum þeirra, þeim sem vitað var að væri stolinn, var ekið eftir gamla þjóðveginum við malarná- mið í Kollafirði upp í hlíðar Esju. Að sögn lögreglu lögðu lögreglu- menn bíl á þjóðveginn og þegar sleðinn kom aftur niður úr fjallinu um klukkan hálfeitt stóð lögreglu- maður um 30 metrum framan við lögreglubílinn og gaf ökumanni sleðans merki um að stöðva. Að sögn lögreglu sinnti maðurinn því ekki heldur jók ferð en tókst ekki að aka fram hjá lögreglubílnum heldur rakst sleðinn á framhom hans og ók þaðan út fyrir veg en stöðvaðist skömmu síðar. 15 mínút- um síðar var hinn sleðinn stöðvaður skammt frá Skálatúni. Ökumaður sleðans sem ók á lög- reglubílinn við Esjuna og stúlka sem sat fyrir aftan hann á sleðan- um voru flutt á slysadeild með sjúkrabíl. Eftir skoðun var ökumað- urinn látinn í vörslu lögreglu sem setti hann í fangageymslur, en í ljós kom að stúlkan var meidd á fæti. Að sögn lögreglu var talið að hún hefði a.m.k. slitið krossbönd í hné. Ökumaður sleðans, sem stöðvaður var við Skálatún, gat ekki gert grein fyrir hver ætti sleð- ann. Hann var einnig vistaður í fangageymslu en stúlka, sem var farþegi á sleðanum, fékk að fara. Búvöruiögin Tvímæli tekin af á Alþingi RÍKISSTJÓRNIN mun leggja fram frumvarp til breytingar á búvörulögum, um leið og Al- þingi kemur saman á morgun. Breytingin á að tryggja það réttarástand sem að var stefnt með breytingu Alþingis á bú- vörulögunum 21. desember síð- astliðinn og taka af öll tvímæli um hver viyi Alþingis sé í því efni. Halldór Blöndal landbúnaðar- ráðherra sagði í samtali við Morg- unblaðið í gær, að ráðherrar væru að ganga frá frumvarpinu og að um það væri full samstaða í ríkis- stjórninni. Halldór sagði landbún- aðarráðuneyti og landbúnaðar- nefnd hafa undirbúið lagabreyting- una í desember mjög vel og borið hana undir reynda lögfræðinga. Álit þeirra hafi verið að lagabreyt- ingin héldi, hvernig sem dómur Hæstaréttar gengi í „skinkumál- inu“. Nú væru uppi efasemdir um merkingu búvörulaganna og það einfaldlega gengi ekki. Útreikninffar Kjararannsóknarnefndar á launaþróun frá árinu 1966 Verkamenn með 800 kr. hærri laun en fyrir 27 árum Laun verkakvenna og- iðnaðarmanna hafa hækkað um 20 og 30 Samanburður á heildarlaunum verkakvenna, verkakarla og iðnaðarmanna 1966-1992 -i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i—i— 40 1966 7 0 75 '80 ’85 ’90 '92 Morgunblaðið/Sigurður Jónsson Helena í Kolsholti III, Sigurbjörg Eva, 15 mánaða, og Guðjón Sigurkarl, 4 ára, með Bangsa. Hundurinn bjargaði bænum Selfossi. „VIÐ vorum að sjóða hangilqöt tig fundum ekki reykjarlykt fyrr en Bangsi kom inn. Hann er ekki vanur að koma inn en heldur sig í kjallaranum," sagði Helena Þórð- ardóttir í Kolsholti III í Villinga- holtshreppi, sem er timburhús en þar kom eldur upp í kynditækjum á föstudagskvöld. Sigurður Guðjónsson, eiginmaður Helenu, ætlaði með hundinn aftur niður í kjallara og varð þá var við eldinn. Þá var kjallarinn fullur af reyk. Eldurinn var í kynditækjum og voru Sigurður og faðir hans Guð- jóns Sigurðssonar, búnir að slökkva 'teldinn með handslökkvitækjum áður en slökkvilið kom frá Selfossi. Helena sagði það væri Bangsa að þakka að þau urðu nægilega fljótt vör við eldinn og að ekki fór verr. Bangsi er lassí-hundur, ættaður frá Tungu í Gaulveqabæjarhreppi. Hann er skynsemdarskepna sem getur meðal annars opnað dyr ef hann viil svo við hafa. Sig. Jóns. HEILDARLAUN verkamanna á höfuðborgarsvæðinu eru ein- ungis 800 krónum hærri í dag en þau voru árið 1966 fyrir 27 árum síðan, reiknað á verðlagi 1. ágúst 1993, samkvæmt út- reikningi Kjararannsóknar- nefndar. Launin á verðlagi 1993 voru að meðaltali 108.900 krón- ur árið 1966 og 109.700 krónur að meðaltali á mánuði árið 1992. Hins vegar höfðu laun verka- kvenna á þessu árabili hækkað að meðaltali um tæpar 20 þús- und krónur og laun iðnaðar- manna um tæpar 30 þúsund krónur. Vinnutími að baki þess- um launum hefur styst hjá öll- um þessum stéttum, sýnu mest hjá verkamönnum. Ef tillit er tekið til þess hafa kjör verka- manna batnað um nálægt 20% en kjör iðnaðarmanna og verka- kvenna tvöfalt meira. Heildarmánaðarlaun verkamanna urðu hæst á þessu árabili á árinu 1974, en þá voru þau 135.400 kr. og næst hæst urðu þau 1987, kr. 129.500. Lægst urðu launin 1969 kr. 88.800. Vinnutími verkamanna 1966 var tæpar 60 stundir á viku eða 59,2, en allt til ársins 1972 var dagvinnutími 44 stundir en ekki 40 eins og nú er algengast. Vikulegur vinnutími hafði hins vegar styst um tæpax tíu vinnustundir á viku í 49,4 stundir árið 1992. Styttri vinnutími Heildarmánaðarlaun verka- kvenna voru 63.900 krónur fyrir 27 árum síðan, en voru að meðal- tali kr. 83.200 árið 1992 eða 19.300 krónum hærri þrátt fyrir að vinnu- tími verkakvenna hafi styst um 4 klukkustundir á viku á þessu tíma- bili. Hann var 48 stundir á viku 1966 en var 44 stundir árið 1992. Launin urðu lægst 1969 kr. 55.400 og hæst 1987 kr. 99.700 krónur. Heildarmánaðarlaun iðnaðar- manna á höfuðborgarsvæðinu voru 127.400 kr. 1966, en höfðu hækkað um tæpar 30 þúsund krónur 1992 og voru 157.100 að meðaltali. Hæst voru launin 1974 rúmar 176 þúsund kr. og næst hæst 1987 174.400 krónur. Lægst urðu launin hins veg- ar 1969 kr. 100.300. Vinnutími iðn- aðarmanna styttist um rúmar sex klukkustundir á þessu árabili, fór 54,8 stundum 1966 í 48,7 stundir 1992. Kjör kvenna batnað um 42% Ef launabreytingarnar á þessu árabili eru skoðaðar í prósentum kemur fram að heildarlaun kvenna eru 30,2% hærri 1992 en 1966, laun iðnaðarmanna 23,3% hærri og laun verkamanna 0,7% hærri. Vinnutíma- styttingin er mest hjá verkamönnum 16,5%, hjá iðnaðarmönnum 11% og 8,3% hjá konum. Ef þetta tvennt er tekið saman má áætla að kjör verka- manna hafi batnað um 20% á þessu árabili, kjör iðnaðarmanna um tæp 39% og kvenna um 42%. )úsund á sama árabili Tangi og H.Þ. Togararn- ir kostuðu 21,5 millj. ^ Þórshöfn. ÚTHAF hf., félag í eigu Hrað- frystistöðvar Þórshafnar hf. og Tanga hf. á Vopnafirði hefur samið um kaup tveggja kanadískra togara sem koma til landsins I febrúar. Skipin kosta bæði 21,5 millj. kr. Skipin eru systurskip, hvort um sig 430 tonn að stærð og 53 metrar á lengd. Þau voru smíðuð árið 1977 og er ástand þeirra nokkuð gott. Þau verða botnhreinsuð úti og máluð hérna heima. Þeim fylgja kassar og veiðarfæri að einhveiju leyti þannig að ekki þarf að kosta til miklu til að þau geti hafið veið- ar. Skipin, sem eru kvótalaus, verða á ísfiskveiðum og verður hluti aflans saltaður. Stærstu hluthafar að kaupunum eru H.Þ. og Tangi en auk þeirra koma nokkrir smærri hluthafar að þeim. Framkvæmdastjórn Út- hafs hf. verður hjá Tanga en skipin verða þjónustuð, hvort frá sínum stað, Þórshöfn og Vopna- fírði. Kaupverðið er 385 þúsund kanadískir dalir eða um 21,5 milljónir íslenskra króna. L.S.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.