Morgunblaðið - 23.01.1994, Blaðsíða 36
36 mörgunblÁðið ATVIMWA/^ÆWfó^^'u 23.jÁNUÁR;1994„ ,
ATVINNU Ai K ÝSINGAR
Nýr leikskóli
í byrjun apríl tekur til starfa nýr fjögurra
deilda leikskóli við Miklaholt í Hafnarfirði.
Starfsfólk óskast til starfa við leikskólann í
eftirfarandi störf:
Yfirfóstra í 100% starf.
Deildarfóstrur, fóstrur eða annað uppeldis-
menntað starfsfólk.
Matráður í 100% starf, auk aðstoðar í eldhús.
Upplýsingar um störfin gefa leikskólastjóri,
Laufey Ósk Kristófersdóttir og ieikskólafull-
trúi í síma 53444.
Félagsmálastjórinn í Hafnarfirði.
Rannsóknamaður
f jarðf ræði
Hafrannsóknastofnunin auglýsir eftir rann-
sóknamanni í jarðfræði sem fyrst. Starfið
felst í gagnasöfnun á sjó og landi og úr-
vinnslu gagna. Leitað er að starfsmanni sem
er vanur að vinna við tölvur og/eða hefur
einhverja stærðfræðimenntun. Um er að
ræða tímabundna ráðningu í 6 mánuði.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Kjartan
Thors í síma 20240.
Umsóknarfrestur er til 4. febrúar.
Hafrannsóknastofnunin,
Skúlagötu 4,
101 Reykjavík.
Sími20240.
Frá Háskóla íslands
Stofnun í erlendum tungumálum við Háskóla
íslands auglýsir laust til umsóknar starf
framkvæmdastjóra stofnunarinnar. Um er
að ræða 50% starf, laun samkvæmt launa-
kerfi Háskóla íslands. Framkvæmdastjóri
vinnur sjálfstætt í samvinnu við stjórn stofn-
unarinnar að málefnum hennar, svo sem fjár-
reiðum, kynningarmálum, funda- og ráð-
stefnuhaldi. Hann annast jafnframt þýðinga-
miðlun.
Umsóknir, með upplýsingum um náms- og
starfsferil, sendist skrifstofu heimspekideild-
ar Háskóla íslands fyrir 1. febrúar nk.
Skipstjóri
Yfirvélstjóri
Óskum að ráða vanan skipstjóra á skuttog-
ara, sem veiðir undir erlendum fána. Togar-
inn verður gerður út frá íslandi og verður
afli flakaður og saltaður um borð. Veiði-
svæði verða Svalbarðasvæðið og Barentshaf
(Smugan). Við leitum að sjálfstæðum ein-
staklingi með góða málakunnáttu.
Yfirvélstjóri óskast á sama skip. Vélastærð
1600 kw (Deutz 1987). Við leitum að manni,
sem hefur mikla reynslu á sínu sviði og áhuga
á meðferð véla.
Aðrir skipshafnarmeðlimir óskast einnig,
þurfa að vera vanir hver á sínu sviði.
Öllum umsóknum svarað og fyllsta trúnaði
heitið.
Umsóknir leggist inn á auglýsingadeild Mbl.,
merktar: „T - 4769", fyrir 1. febrúar.
Markaðsstjóri
Stórt þjónustufyrirtæki í borginni með fjöl-
breytta starfsemi óskar að ráða markaðs-
stjóra til starfa sem fyrst. Um er að ræða
hlutastarf, 50%, vinnutími er samningsatriði.
Leitað er að duglegum, kröftugum og sjálfstæð-
um einstaklingi, sem hefur reynslu af markaðs-
málum. Laun samningsatriði.
Umsóknir er tilgreini aldur, menntun ásamt
starfsreynslu sendist skrifstofu okkar fyrir
28. janúar nk.
GuðntTónsson
RÁÐCJÖF b RÁÐNI NGARÞJÓNUSTA
TJARNARGÖTU 14, 101 REYKJAVÍK, SÍMI62 13 22
SVÆÐISSKRIFSTOFA
MÁLEFNA FATLAÐRA
VESTFJÖRÐUM
Komdu vestur!
Þroskaþjálfar!!
Því ekki að breyta til og reyna sig á
nýjum vettvangi?
Á vegum Svæðisskrifstofu málefna fatlaðra,
Vestfjörðum, er nýbúið að opna skrifstofu á
Reykhólum.
Starfssvið skrifstofunnar er að sinna stuðn-
ingi og ráðgjöf við fatlað fólk í Austur-Barða-
strandarsýslu.
Reykhólar eru í 280 km fjarlægö frá Reykjavík. ( Reykhólahreppi búa
370 manns en helsti þéttbýliskjarninn er á Reykhólum. Þar er öll
nauðsynleg þjónusta, s.s. verslanir, skóli, leikskóli, heilsugæsla o.fl.
Svæðið er kjörið til útivistar og þar er t.d. að finna eina bestu sund-
laug landsins.
Nánari upplýsingar gefa Laufey Jónsdóttir,
framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu, í síma
94-5224, og Bjarni P. Magnússon, sveitar-
stjóri Reykhólahrepps, í síma 93-47880.
Umsóknarfrestur er til 28. febrúar 1994.
Glaxo
GLAXO tók til starfa hér á landi í júlí 1990
og er dótturfyrirtæki GLAXO HOLDINGS
Ltd. í Englandi.
GLAXO er stærsta lyfjafyrirtæki veraldar
með yfir 45 þúsund starfsmenn í 150 löndum.
Rannsóknar- og þróunarstarfsemi er megin-
viðfangsefni fyrirtækisins og á síðastliðnu
ári varði GLAXO hærri upphæð en nokkuð
annað lyfjafyrirtæki til rannsókna eða 75
milljörðum króna.
Sökum aukinna umsvifa fyrirtækisins auglýs-
ir GLAXO á íslandi hf. nú eftir starfsfólki.
a) Starfsmaður rannsóknarsviðs (Clinical
Research Scientist).
Viðkomandi sér um uppsetningu, fram-
kvæmd og eftirlit með íslenskum sem og fjöl-
þjóða klíniskum rannsóknum í samvinnu við
GLAXO Research & Development Ltd og
íslenskrar heilbrigðisstéttir.
Leitað er eftir starfskrafti með háskólamennt-
un á sviði heilbrigðismála, líffræði, lífefnafræði
eða sambærilegt.
Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k.
einu Norðurlandamáli.
b) Lyfjakynnir
(Sales representative).
Starfið felst í kynningu á vörum fyrirtækisins
til heilbrigðisstétta og fræðslustarfsemi af
ýmsu tagi.
Leitað er eftir röskum og ákveðnum einstakl-
ingi með menntun á sviði heilbrigðismála
(lyfjafræðingi, hjúkrunarfræðingi eða sam-
bæril.).
Umsóknir sendist til GLAXO, Pósthólf 10054,
130 Reykjavík, eða skilist á skrifstofuna,
Stangarhyl 5, fyrir 1. febrúar nk. Með allar
umsóknir verður farið sem fyllsta trúnaðar-
mál og öllum umsóknum verður svarað.
Tölvuumbrot/-
grafísk hönnun
Óska eftir vinnu eða verkefnum við tölvuum-
brot/grafíska hönnun. Hef 7 ára reynslu og
eigin tölvubúnað (Macintosh).
Upplýsingar í síma 28039.
Framkvæmdastjóri
skrifstofu
forsætisnefndar
Norðurlandaráðs
í Stokkhólmi
Norðurlandaráð er samstarfsvettvangur
þjóðþinga og ríkisstjórna Norðurlanda og
sjálfstjórnarsvæðanna Færeyja, Grænlands
og Álandseyja. Norðurlandaráð á frumkvæði
um norræn samstarfsverkefni og gerir um
þau samþykktir sem beint er til ráðherra-
nefndar og ríkisstjórna Norðurlanda og held-
ur ráðstefnur um mál sem þýðingu hafa fyr-
ir norrænt samstarf.
Á milli hinna árlegu þinga Norðurlandaráðs
leiðir og samræmir forsætisnefnd ráðsins
þann hluta samstarfsins sem varðar þjóð-
þingin og nýtur við það atbeina skrifstofu
forsætisnefndar Norðurlandaráðs í Stokkhólmi,
en starfsmenn þar eru 30. Skrifstofan hefur
stöðu alþjóðlegrar stofnunar. Danska, norska
og sænska eru notuð jöfnum höndum þar.
Framkvæmdastjóri skrifstofunnar ber ábyrgð
á undirbúningi þeirra mála sem lögð eru fyr-
ir forsætisnefnd og kynnir þau á fundum
nefndarinnar. Hann annast undirbúning þess
alþjóðlega samstarfs sem forsætisnefnd
ráðsins á aðild að og undirbýr jafnframt það
samráð sem forsætisnefnd hefur við ráð-
herranefnd Norðurlanda. Hann er formaður
nefndar þeirrar sem í eiga sæti forstöðu-
menn landsdeildarskrifstofa Norðurlanda-
ráðs en nefndin er til ráðuneytis um undir-
búning funda forsætisnefndar. Mikilvægt er
að sá sem ráðinn verður geti tekið frum-
kvæði um aðgerðir sem til þess eru fallnar
að styrkja norrænt þinglegt samstarf eða til
þess eru fallnar að styrkja Norðurlönd á
Evrópuvettvangi. Umsækjendur skulu hafa
háskólamenntun, víðtæka reynslu af stjórn-
unarstörfum hjá hinu opinbera eða í atvinnu-
lífinu, haldgóða þekkingu á norrænu sam-
starfi og á þjóðfélagsháttum á Norðurlönd-
um. Auk þess þurfa umsækjendur að eiga
auðvelt með að tjá sig munnlega og skriflega.
Æskilegt er að umsækjendur hafi þekkingu
á stjórnmálastarfi og alþjóðlegu samstarfi.
Góð tungumálakunnátta er nauðsynleg.
Staðan er laus frá 1. ágúst 1994.
Við ráðningar í stöður á skrifstofunni er leit-
ast við að gæta jafnréttis milli kynjanna. Um
laun og önnur kjör gilda sérstakar norræna
reglur. Stöðunni fylgir embættisbústaður.
Ráðningartími er fjögur ár. Ríkisstarfsmenn
eiga rétt á launalausu leyfi frá störfum vegna
starfa hjá Norðurlandaráð.
Nánari upplýsingar um stöðuna veita Jo-
stein Osnes núverandi framkvæmdastjóri
forsætisnefndar, Elín Flygenring forstöðu-
maður íslandsdeildar Norðurlandaráðs í
síma 630771 og Lene Hjaltason fulltrúi hjá
íslandsdeild Norðurlandaráðs í síma 630772.
Umsóknum skal beina til forsætisnefndar
Norðurlandaráðs (Nordiska rádets presid-
ium) og skulu þær sendar til skrifstofu for-
sætisnefndar (Nordiska rádets presidiesekr-
etariat, Box 19506/Tyrgatan 7, S-10432
Stockholm) og póststimplaðar eigi síðar en
4. febrúar 1994.