Morgunblaðið - 25.01.1994, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 25. JANUAR 1994
Súpa seyðið af kaupum á silfurdölum
Þúsundir í skatt
af verðlítilli mynt
SILFURPENINGAR, sem einstaklingar hér á landi hafa keypt af belg-
ísku fyrirtæki, hafa undanfarið borist til landsins. Til að leysa þá út
úr tolii verða eigendurnir að greiða virðisaukaskatt samkvæmt reikn-
ingi sem fylgir sendingunni, en það hefur enginn gert hingað til. Mik-
iU vafi leikur enda á að peningarnir séu jafn rnikils virði og kaupverð-
ið segir tii um.
Morgunblaðið skýrði frá því fyrir
nær tveimur árum að belgískt fyrir-
tæki, Washington Mint Intemation-
al, hefði boðið íslendingum að
kaupa myntir, sem sölumenn þess
sögðu verðmætar og mjög góða
fjárfestingu. Einhver brögð voru að
því að menn keyptu myntimar óséð-
ar og greiddu jafnvel þúsundir
Bandarikjadala fyrir. Þær myntir,
sem um var að ræða, vom svokall-
aðir Morgan-silfurdalir, sem vom
slegnir í Bándaríkjunum á ámnum
1878-1904. Ragnar Borg, mynt-
fræðingur, sagði að menn hefðu
greitt 60-200 þúsund krónur fyrir
peningana, eftir ástandi þeirra, en
raunveralegt verðmæti þeirra væri
miklu minna.
Ragnar sagði í samtali við Morg-
unblaðið í gær að hann hefði haft
spumir af því að myntfyrirtækið
hefði haft samband við kaupanda
hér á landi fyrir áramót og tilkynnt
að silfurdalur hans, sem var i íjár-
hirslum fyrirtækisins í Belgíu, yrði
fljótlega fluttur í peningageymslur
í London. „Maðurinn heyrði ekki
meira af þessu, en fyrir skömmu
fékk hann tilkynningu um póstsend-
ingu. Þar var þá silfurdalur hans
kominn og átti hann að greiða 20
þúsund krónur í virðisaukaskatt,"
sagði Ragnar.
Hjá tollpóststofunni í Reykjavík
fengust þær upplýsingar, að nokkr-
ar sendingar biðu viðtakanda, en
enginn hafði vitjað slíkrar sending-
ar síðdegis í gær.
Deila sjómanna og kaupskipaútgerðanna
Ríkissáttasemjari
með miðlunartillögu
RÍKISSÁTTASEMJARI hefur sett fram miðlunartillögu I kjaradeilu
Sjómannafélags Reykjavíkur og kaupskipaútgerðanna, en hið fyrsta
af þremur fjögurra daga verkfölium félagsins á kaupskipaflotanum
áttí að hefjast á miðnættí í nótt. Verkfallið frestast og atkvæða-
greiðsia um miðiunartíllöguna er hafin. Niðurstöður í henni eiga að
liggja fyrir 11. febrúar þegar atkvæði verða taiin hjá rikLssáttasemj-
ara. Þá á einnig afstaða framkvæmdastjómar VSI og VMSS.
Sjómannafélagið hafði boðað fjög-
urra sólarhringa verkfall sem heQast
átti á miðnætti og ná til allra hafiia
við Faxaflóa. Annað verkfallið á að
hefjast 15. febrúar og það þriðja 7.
mars og mun niðurstaða í atkvæða-
greiðslunni um miðlunartillöguna
iiggja fyrir áður en annað verkfallið
á að hefjast. Sjómannafélagið hafði
boðað verkfall fyrir áramót sem Fé-
lagsdómur dæmdi ólöglegt.
Guðlaugur Þorvaidsson ríkissátta-
semjari sagði að miðlunartillagan
væri lögð fram til að leysa deiluna,
en hún snerist einkum um vinnufyrir-
komulag. Samkvæmt lögunum ætti
hann að ráðgast við samninganefnd-
irnar áður en hann legði fram miðl-
unartillögu og það hefði hann gert.
Sjómenn hefðu mótmælt tillögunni
og teldu hana ekki tímabæra, en
hann hefði talið sér skylt að leggja
hana fram eins og málum var kom:
ið, ekki síst sjómannanna vegna. í
tiÚögunni væri tekið á viðkvæmum
málum og reynt að taka tillit til sjón-
armiða beggja aðila. „Það er búið
að þjarka um þetta síðan í fyrravor.
Ég tel mig vita hver em megin-
ágreiningsefhin þama. Ég tek á þeim
og tel að það sé báðum aðilum fyrir
góðu að reyna að gera það áður en
til átaka kemur," sagði Guðlaugur.
Forsætisráðherra tekur við áskorun frá 1.300 sjómönnum
Áskorun afhent
Morgunblaðið/l>orkell
KRISTJÁN Sveinsson, skipstjóri á björgunarskipinu Goðanum, sem fórst í Vöðlavík 10. janúar,
afhendir Davíð Oddssyni forsætisráðherra undirskriftalista fyrir framan Alþingishúsið í gær með
áskorun á ríkisstjórnina um þyrlukaup fyrir Landhelgisgæsluna.
Ákvörðun um þyrlukaup
verður tekin innan skamms
FJÖLDI sjómanna og aðstandenda þeirra kom saman við Alþingis-
húsið kl. 17 í gær þar sem Davíð Oddssyni forsætísráðherra var
afhent áskorun um kaup á nýrri björgunarþyrlu fyrir Landheigis-
gæsluna. Það var Kristján Sveinsson, skipstjóri Goðans, sem fórst
i Vöðiavík 10. janúar sl., sem afhentí forsætisráðherra áskorunina
ásamt undirskriftaiistum með nöfnum um 1.300 sjómanna.
Áskomnin til forsætisráðherra ganga til samninga um kaup á
brotsmenn á Goðanum hefðu verið
nær úrkula vonar þegar björgunar-
þyrlur vamarliðsins birtust og
mönnum hafi verið það alveg ljóst
að það vantaði góða þyrlu fyrir
Landhelgisgæsluna.
er svohljóðandi: „Við undirritaðir
sjómenn á íslenskum skipum skor-
um á þig, herra forsætisráðherra
Davíð Oddssori, að standa við orð
þín frá 25. febrúar 1993 á Alþingi
Islendinga „að ríkisstjómin mun
innan fárra vikna meira að segja
þyrlu“. Síðan em liðnar nærri 50
vikur og þolinmæði okkar er á þrot-
um.“
Kristján Sveinsson minntist
björgunarinnar í Vöðlavík þegar
hann afhenti forsætisráðherra und-
irskriftalistana og sagði að skip-
Forsætisráðherra sagði að samn-
ingaviðræður hefðu átt sér stað við
umboðsmenn og seljendur nokk-
urra þyrlutegunda „og það er allra
manna mál að innan skamms tíma
þá verður tekin ákvörðun
kaup“.
um
LÍÚ segir Kvótaþing and-
stætt hagsmunum útgerðar
STJÓRN LÍÚ vísaði á fundi sinum í gær á bug tíllögum svonefndrar
þríhöfðnefndar, sem skipuð var samkvæmt bráðabirgðalögum rikis-
stjórnarinnar til að gera tillögur og undirbúa lagasetningu tíl þess að
koma í veg fyrir að viðskipti með aflaheimildir hafí óeðlileg áhrif á
skiptakjör. Tillögur nefndarinnar gera ráð fyrir frjálsu framsali afla-
heimilda milli skipa sömu útgerðar en að allt annað framsal farið fram
á uppboðsmarkaði, Kvótaþingi. í yfírlýsingu samninganefndar físki-
manna innan Farmanna- og fískimannasambands Islands segir að hún
telji tíliöguna ekki leysa það alvariega vandamál sem snerti þátttöku
sjómanna í kaupum á veiðiheimildum.
við bregðumst neikvætt við þeim.“
Útilokar ekki kvótabrask
í ályktun samninganefndar fiski-
manna innan Farmanna- og físki-
mannasambands íslands segir m.a.
að það sé álit nefndarinnar að Kvóta-
þing muni alls ekki útiloka kvóta-
brask, heldur muni kvótamarkaður-
inn leiða til breytinga á braskinu,
þ.e. hugsanlega muni draga úr leigu-
liðaviðskiptum og „tonn á móti tonni“
viðskiptum. Aftur á móti sé hætt við
því að aukning muni eiga sér stað
þar sem kostnaður keyptra veiði-
heimilda á Kvótaþingi yrði dregin frá
aflaverðmætinu áður en til skipta
komi og lækka þar með tekjur sjó-
manna.
í ályktun stjómar LÍÚ segir að
frjálst framsal aflamarks hafi öðm
fremur stuðlað að hagræðingu og
spamaði f sjávarútvegi að undan-
fömu. „Hindmn eins og hér er lögð
á frjálst framsal þar sem seljandi og
kaupandi ná ekki saman nema á til-
boðsmarkaði mun valda mikilli rösk-
un á áformum útgerðarmanna til að
í dag
Sarajevo
Dauði sex bama vekur hörð við-
brögð 22
Bandaríkin
Bill Clinton er sakaður um fjöllyndi
í ástarmálum 23
SjúífsUeðisflokkur
Atvinnu- og fjölskyldumál eru mál
málanna á kjördæmaþingi 47
Leiðari
Kaupum nýja þyrlu 24
Iþróttir
► Evrópukeppnin í knatt-
spymu, tekjur KSÍ ogEM U-18
á Islandi 1997. Hjahi Arnason
atvinnumaður í boxL Kristján
Arason þjálfar Dormagen.
ná fram hagræðingu í rekstri. Vitað
er um íjölda útgerða sem hafa selt
skip eða úrelt þau og notað fjármuni
til að greiða niður skuldir. Þær hafa
samið við aðra um notkun aflamarks
báðum aðilum til hagsbóta. Með tíl-
boðsmarkaði yrði þeim gert slíkt
samstarf ókleift."
„Ráðstöfun aflamarks á tilboðs-
markaði mun einnig valda valda því
að aflamark fari úr viðkomandi
byggð því aðilar mega ekki komið
sér saman um nýtingu þess innan
byggðarinnar," sagði Kristján Ragn-
arsson, formaður LÍÚ, í gær. „Allt
þetta mundi valda því að stórlega
mundi draga úr framsali aflamarks
og þar með mundi stórlega draga
úr hagræðingu í greininni."
í ályktuninni segir að tilkoma til-
boðsmarkaða muni auðvelda erlend-
um aðilum að fá afla héðan og enn-
fremur muni það hvetja til ráðstöfun-
ar afla á erlenda fiskmarkaði.
Aðspurður hvort stjóm LIÚ hefði
aðrar tillögur til að koma í veg fyrir
að viðskipti með aflaheimildir hefðu
óeðlileg áhrif á skiptakjör sagði
Kristján að slíkt hefði ekki verið
rætt. „Ríkisstjómin setti lög þar sem
hún setti þá kvöð á sig að koma með
tillögur að lausn málsins fyrir 1. febr-
úar og við emm ekki að leggja henni
línur um hvemig hún eigi að bregð-
ast við með öðram hætti en þeim að
Ungverjar réðust á Siguijón Bjarnason
Selfossi.
„Þetta einstaka atvik byijaði með
því að það var dæmt aukakast tíu
sekúndum fyrir leikslok. Við kom-
umst ekki til þess að taka aukakast-
ið því línumaðurinn stóri stóð á
punktalínunni. Við bentum dómaran-
um á að tíminn gengi og vildum láta
stöðva klukkuna. Þá ýtti Grímur við
línumanninum til að taka aukakastið
á réttum stað. Þá gerðist það að
annar homamaðurinn kom hlaupandi
og hrinti Grimi í gólfið. Ég sneri
mér þá að þeim en þá tók línumaður-
inn þeirra, þessi stóri, í axlimar á
mér og sneri mér við. Þá strax vom
komnir þrír aðrir leikmenn sem
I
Þeir létu höggin og
spörkin dynja á mér
„EG FEKK högg á hálsinn, undir kjáikann og datt. Svo spörkuðu þeú'
í mig þar sem ég lá í gólfinu,“ sagði Siguijón Bjarnason, leikmaður
Selfossliðsins, en leikur þess við ungverska liðið Pick Szeged á laugar-
dag endaði með hreinni líkamsárás af hálfu Ungveijanna á Grím Her-
geirsson og Sigurjón. Ungveijamir sigruðu í leiknum, 30:18. Þetta var
fyrri viðureign liðanna í átta liða úrslitum, en þau mætast hér á landi
næsta laugardag.
mynduðu hring um mig og svo byrj-
uðu höggin að dynja á mér. Ég reyndi
að veija andlitið en fékk högg á
hálsinn undir kjálkann og datt. Svo
fékk ég spörk þar sem ég lá í gólf-
inu. Þetta var hrein líkamsárás.
Maður er lurkum laminn eftir
þetta en ég verð með í leiknum gegn
Val á miðvikudaginn [á morgun] og
svo auðvitað á laugardaginn gegn
Ungvequnum," sagði Sigutjón við
Morgunblaðið í gær. Hann þurfti að
leita til læknis í gærkvöldi vegna
eymsla í hálsi.
Sig. Jóns.
Sjá bls. B5.