Morgunblaðið - 25.01.1994, Qupperneq 48
wgunftfjtfetfe
blteciyd
MORGUNBLADID, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK
SlMI C91100. SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTKÆTI 85
ÞRIÐJUDAGUR 25. JANUAR 1994
VERÐ I LAUSASOLU 125 KR. MEÐ VSK.
Dómaroglaga-
safn á tölvudisk
Lögfræðingar stofna hlutafélag um útgáfuna
í UNDIRBÚNINGI er útgáfa á dómasafni Hæstaréttar og lagasafn-
inu á tölvudiskum til sölu á almennum markaði og er stefnt að því
að útgáfan geti hafist á þessu ári. Hafa sex lögfræðistofur og nokkr-
ir lögfræðingar staðið að stofnun sérstaks hlutafélags um þetta verk-
efni og hefur félagið fengið samþykki dómsmálaráðuneytisins til að
safna efninu á tölvudisk.
Gísli Gíslason hdl. er einn þeirra
sem standa að þessu verkefni en
hann segist hafa unnið að því í
mörg ár að finna leiðir til að koma
hæstaréttardómum og lagasafni á
tölvutækt form. Ógerningur sé að
ætla að rita alla dóma inn á tölvur
og bendir hann m.a. á að dóma-
'safn Hæstaréttar frá upphafi sé
um 64 þúsund blaðsíður að stærð.
Síðastliðið haust fannst hins vegar
aðferð til að láta tölvur lesa efnið
eða skanna það inn á disk en með
þeirri aðferð hefur tekist að færa
inn um 1.000 blaðsíður á viku.
sagði Gísli að að því loknu væri
stefnt að því að færa efnið yfir á
geisladisk til almennra nota í eink-
atölvum og er gert ráð fyrir að á
fyrsta disknum sem kemur á mark-
verði 13 nýjustu dómabindi
Hæstaréttar. í framtíðinni er
stefnt að því að allir hæstaréttar-
dómar ásamt lagasafni og fræðirit-
um verði tiltækir á tölvudiski en
einnig er í undirbúningi að gefnir
verði út diskar á þriggja mánaða
fresti með nýjustu dómum og laga-
breytingum. Gísli sagði að notend-
ur ættu að geta haft margvísleg
not af disknum þar sem gefist
kostur á að kalla m.a. upp einstak-
ar lagagreinar ásamt viðkomandi
hæstaréttardómum eða einstök
lögfræðihugtök og atriðisorð. Líkti
hann gagnasafninu við byltingu
fyrir lögfræðinga því mikil og
tímafrek vinna færi oft í að fletta
upp dómum í dómasafni Hæsta-
réttar en að sögn Gísla á tölvudisk-
urinn einnig að koma laganemum
til góða og almenningi ekki síður.
Þriggja manna ritstjórn
Hinn 12. desember var stofnað
hlutafélagið íslex hf. um þetta
verkefni. í stjórn félagsins sitja
Örn Höskuldsson hrl., Gísli Gísla-
son hdl. og Tryggvi Gunnarsson
hrl. Þá hefur einnig verið skipuð
sérstök ritstjórn sem hefur yfirum-
sjón með verkinu en í henni sitja
Sigurður Líndal lagaprófessor,
Ragnar Aðalsteinsson, formaður
Lögmannafélags Islands, og Sig-
urður T. Magnússon, skrifstofu-
stjóri Héraðsdóms Reykjavíkur.
Þriggja manna var leitað í gær, en þeir höfðu farið
inn á Kjöl á sunnudag. Þeir fundust síðdegis í gær
heilir á húfi. „Þótt það sé ekki okkar að setjast í
dórnarasæti," sagði einn björgunarmanna í samtali
við Morgunblaðið í gær, „þá er ljóst að það er ekki
reglan að menn fari einir inn á öræfin um hávetur
án þess að hafa góð fjarskiptatæki." Myndin sýnir
bílinn á Kili, þar sem mennirnir urðu að yfirgefa
hann.
Sjá nánari frásögn á bls. 4.
Garðyrkjubændur fá endur-
greidda tolla af aðföngum
STJÓRNARFRUMVARP um að endurgreiða tolla og vörugjöld af
aðföngum garðyrkjubænda verður væntanlega lagt fram á Aljiingi í
næstu viku, að sögn Halldórs Blöndals landbúnaðarráðherra. A þetta
meðal annars við um græðlinga, lampa og ljósaperur til ylræktar.
Ráðherra skýrði frá þessu í um-
ræðum utan dagskrár á Alþingi í
gær, þegar vandi garðyrkjubænda
var ræddur að ósk Jóns Helgasonar
þingmanns Framsóknarflokks. Jón
sagði að staða þessarar atvinnu-
greinar væri slæm og ekki bætti úr
skák tvíhliða samningur við Evrópu-
bandalagið um tollfijálsan innflutn-
ing á ýmsum tegunda grænmetis
og blóma frá öllum heimshornum
um það bil hálft árið. Því væri at-
vinna garðyrkjubænda í hættu og
eignir þeirra gætu orðið verðlausár.
Halldór Blöndal sagðist vera sam-
mála því að fella yrði í lög ákvæði
um endurgreiðslu á tollum og gjöld-
um af rekstarvörum og aðföngum
garðyrkjubænda. Hann hefði rætt
þetta við fjármálaráðuneytið á síð-
asta ári og aftur á þessu og málið
væri nú á góðum skriði. „Eg á von
á því að frumvarp þessa efnis verði
lagt fyrir Alþingi mjög fljótlega,
vonandi ekki síðar en í næstu viku,“
sagði Halldór. Þá sagðist hann hafa
beitt sér fyrir því að verð á raforku
til garðyrkjubænda yrði endurskoð-
að.
Mikil rækja í
Skjálfandaflóa
MIKIL rækjuveiði hefur verið
á Skjálfandaflóa í vetur og að
sögn Óskars Karlssonar á Guð-
rúnu Björgu ÞH hefur rækjan
farið sístækkandi. Þrír bátar
stunda veiðarnar og landa þeir
lyá Fiskiðjusamlagi Húsavík-
ur.
Að sögn Óskars er hver bátur
með 200 tonna kvóta og er að
minnsta ^kosti einn þeirra langt
kominn með hann. Gera mætti ráð
fyrir að meðalverð fyrir kílóið yrði
rúmar 70 kr., og heildarverðmætið
því um 45 milljónir.
Skipveijarnir tveir sem björguðust er línubáturinn Máni fórst út af Barða
Kraftaverk að við
skyldum lifa þetta af
Þingeyri.
„ÞAÐ VAR kraftaverk að við skyldum lifa þetta af,“ segir Jens
A. Jónsson vélsljóri á Þingeyri í samtali við Morgunblaðið en hann
bjargaðist ásamt Ólafi Gunnarssyni stýrimanni þegar vélbáturinn
Máni IS sökk út af Vestfjörðum sl. fimmtudag. Skipveijarnir þrir
fóru allir á kaf þegar báturinn sökk en komust í gúmbjörgunar-
bát. Þá var mjög dregið af Jóni Andréssyni skipstjóra, föður Jens,
og lést hann í fanginu á honum.
Jens segir að Máni hafí farið frá
Þingeyri í línuróður um hálffjögur-
leytið á fimmtudagsmorguninn.
Þeir hafi farið á venjubundna veiði-
slóð um fimmtán mílur út af Kópn-
um, lagt 32 bala og byijað að draga
um tíuleytið að morgni. Þá hafi
vindur verið af suðvestan, um sex
vindstig, en þungur sjór. Hann seg-
ir að þeir hafi verið búnir að draga
tólf eða þrettán bala þegar brotsjór
reið yfir bátinn á bakborðssíðu og
kastað honum umsvifalaust á
stjómborðssíðu með möstur í sjó
og við það hafi drepist á vélinni.
„Ég var staddur fram í lúkar og
klifraði strax upp á síðu og í því
kemur Ólafur upp á síðuna til mín
en hann hafði verið við mastrið,"
segir Jens. „Þá varð mér litið á stýr-
ishúsið þar sem ég vissi að faðir
minn var og sá að hurðin á því var
á kafi í sjó. Ég bað þá Ólaf að losa
björgunarbátinn frammá en hljóp
sjálfur aftur á brún og barði á
glugga bakborðsmegin sem faðir
minn opnaði og dró ég hann svo
út um giuggann. Síðan fór ég til
að losa björgunarbátinn uppi á stýr-
ishúsinu og þá gaf sig að öllum lík-
indum hurðin og báturinn sökk eins
og steinn, á einu augnabliki. Þá
hafa ekki verið liðnar meira en fímm
mínútur frá því að brotið reið yfir.“
Fórum allir á kaf
„Við fórum allir á kaf þegar
báturinn sökk og þegar mér skaut
upp aftur sá ég björgunarbátinn á
stýrishúsinu blásast upp. Synti ég
að honum en þegar ég náði taki á
honum dróst hann í kaf þar til línan
milli hans og Mána slitnaði. Ég
synti þá að honum aftur og komst
um borð en hann var þá orðinn
fullur af sjó.
Þegar ég leit yfír sá ég að Ólafur
héit í belg en faðir minn svamlaði
í sjónum þar skammt frá. Ólaf rak
til mín og hann náði í línu sem lá
út frá bátnum og meðan ég var að
ná honum inn í bátinn til mín náði
faðir minn í hinn björgunarbátinn
og gat hangið í honum. Bátana tvo
rak svo saman og náðum við þá
föður mínum um borð í okkar bát.
Þá kveikti ég á neyðarsendinum og
var klukkan þá um hálftvö."
Björguðust
af Mána
JENS A. Jónsson,
vélstjóri, t.v. og
Ólafur Gunnars-
son, stýrimaður,
sem björguðust
þegar Máni sökk
vestur af Barða á
fimmtudag.
Morgunblaðið/Helga Halldórsdóttir
Ausið með stígvélum
Jens segir að þar sem faðir hans
hafi verið orðinn mjög þrekaður
hafi hann setið undir honum og
reynt að halda honum upp úr sjón-
um en Ólafur byrjað strax að ausa
bátinn. „Hann notaði pokann utan
af pumpunni og árunum þangað
til að faðir minn skipaði okkur að
taka af sér stígvélin og nota þau
við austurinn. Ekki var hægt að ná
í austurstrogið sem var í neyðar-
pokanum, þar sem við hættum
ekki á að opna neyðarpokann með-
an báturinn var fullur af sjó.
Þarna var mjög af föður mínum
dregið og lést hann skömmu síðar
í fanginu á mér.
Ég var þá búinn að pumpa loft
í botninn á bátnum til að einangra
okkur frá sjávarkuldanum, við
kláruðum að þurrka bátinn og ég
tók af okkur stígvélin, vatt sokkana
og klæddi okkur í varmapoka. Við
bjuggum okkur undir að vera
a.m.k. sólarhring í bátnum og var
það því ólýsanleg tilfínning að
heyra í flugvélinni um fímmleytið.
Ég skaut strax upp fallhlífar-
flugeldi og kveikti síðar á hand-
blysi til nánari staðsetningar fyrir
flugvélina. Við vorum þó orðnir svo
kaldir og tilfínningalitlir að ég
þurfti að horfa á hendurnar á mér
til þess að hafa stjórn á þeim og
vita hvað ég var að gera.“
Jens segist vilja, fyrir hönd
þeirra Ólafs, koma á framfæri
miklu þakklæti til allra þeirra sem
að björguninni stóðu.
Helga.